Morgunblaðið - 13.11.1999, Side 84
Skemmdi
sex bfla
ÞAÐ óhapp varð á Laugavegi,
rétt ofan við Hlemm, um níu-
leytið í gærkvöldi, að bifreið
ók á sex bfla og skemmdi þá
alla.
Okumaðurinn missti stjórn
á bflnum í þrengingu sem er á
götunni. Skipti engum togum
að bfllinn skall á sex bifreið-
um. Þær skemmdust allar og
varð að draga fjórar þeirra á
brott með kranabfl. Enginn
meiddist í óhappinu.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3m,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 13. NOVEMBER 1999
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK
Lögreglan á Sauðárkróki í viðbragðs-
stöðu vegna endurtekinna hótana
í sólskinsskapi
í múrverki
Handtók þrjá
„handrukkara“
ÞEIR voru í sólskinsskapi við
vinnu sína í blíðunni í gær,
Tryggvi Gunnarsson múrara-
meistari og Hermann Arni
Valdimarsson múraranemi, þar
sem þeir voru að pússa plötu í
fjölbýlishúsi við Eiðsvallagötu á
Akureyri.
„Tíðarfarið nú er gott og
svona verður þetta í vetur,“
sagði Tryggvi og var hinn
ánægðasti. Veðrið á Akureyri
var mjög fallegt í gær þótt hit-
inn væri heldur lægri en daginn
áður.
Hitinn á landinu hefur verið
með eindæmum undanfarið.
Þannig komst hitinn á Dala-
tanga í 23 gjráður í fyrrinótt
sem er met á þessum árstíma.
Heldur mun kólna í veðri
næstu daga.
LÖGREGLAN á Sauðárkróki kom í
gær í veg fyrir að svokallaðir „hand-
rukkarar" gengju í skrokk á ungum
pilti þar í bæ. Pilturinn var tekinn
með fíkniefni um verslunarmanna-
helgina og hefur sá sem telur sig eig-
anda efnanna haft í hótunum við pilt-
inn síðan. I gær komu þrír rukkarar
úr Reykjavík norður til að klekkja á
pilti en lögreglan greip inn í áður en
til þess kom.
Pilturinn var tekinn með tæplega
200 grömm af hassi auk lítilræðis af
amfetamíni og kókaíni síðastliðið
sumar. Talið var að hann væri burð-
ardýr og væri ætlað að selja fíkniefn-
in fyrir einhverja aðra. Hefur lög-
reglan því búist við að einhverjir
kæmu til að gera upp málin við pilt.
Margoft hefur verið hringt í pilt-
inn og honum send SMS-skilaboð
þar sem honum hefur verð hótað,
bæði að ganga í skrokk á honum eða
eyðileggja bíl eða hús sem tilheyra
fjölskyldunni.
„Það voru þrír menn í bflnum þeg-
ar við skárumst í leikinn," sagði
'Björn Mikaelsson yfiriögregluþjónn
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Björn sagði að foreldrar
piltsins hefðu einnig verið komnir til
aðstoðar en „rukkararnir“ hefðu hót-
að þeim líka og bent þeim á að þeir
ættu bæði hús og bfl sem hægt væri
að ganga að.
Rukkararnir voru handteknir en
látnir lausir að lokinni yfirheyrslu og
telst þessi hluti málsins upplýstur.
Að sögn Bjöms vom þeir sendir
norður af manni þeim sem telur sig
hafa átt fíkniefnin. Vill hann fá greitt
fyrir þau þó svo pilturinn ungi hafí
ekki náð að selja fíkniefnin áður en
lögreglan gerði þau upptæk.
Niðurstaða nýrrar
könnunar
Gæðum
grænmet-
is hrakar
GÆÐUM grænmetis hefur
hrakað frá því gæðakönnun
var síðast framkvæmd í októ-
ber. Þetta kemur fram í nýrri
gæðakönnun á grænni
papriku, jöklasalati og tómöt-
um sem framkvæmd var af
Matvælarannsóknum Keldna-
holti fyrir NS og ASÍ-félög á
höfuðborgarsvæðinu í vikunni.
Agústa Ýr Þorbergsdóttir,
verkefnisstjóri Samstarfsverk-
efnis Neytendasamtakanna og
ASI-félaga á höfuðborgar-
svæðinu, segir að gæðakönn-
unin hafi meðal annars verið
gerð til að kanna hvort versl-
anir gætu haldið gæðum græn-
metis í horfi frá síðustu könn-
un en svo virðist sem tilviljun
ráði því í hvaða sæti verslan-
imar lenda.
Að þessu sinni var besta
grænmetið í Samkaupum en
lægstu einkunnina hlutu Hag-
kaup og Nettó. í síðustu könn-
un vom það Hagkaup og
Fjarðarkaup sem vom með
besta grænmetið. I einu tilfelli
hlaut grænmeti einkunnina
núll en það þýðir að varan er
algjörlega ósöluhæf. Um var
að ræða jöklasalat.
■ Tilviljun/36
Morgunblaðið/Kristján
Ný símafyrirtæki munu geta tengst fjarskiptaneti Landssímans
Fastagjald síma hækkar
en mínútugjald lækkar
MARKAÐSRÁÐANDI fyrirtæki á fjarskipta-
markaði verða skylduð til að leigja öðmm fjar-
skiptafyrirtækjum aðgang að fjarskiptaneti sínu,
samkvæmt fmmvarpi til laga um fjarskipti, sem
verið hefur tfl fyrstu umræðu á Alþingi og vísað
var tfl samgöngunefndar í gær. Mun breytingin
hafa það í för með sér að Landssíminn mun
hækka vemlega fastagjald af símum en lækka á
móti mínútugjaldið.
I athugasemdum með framvarpinu segir að
það hvfli á tveimur meginstoðum. Annars vegar
sé í því að finna ákvæði sem eigi að stuðla að auk-
inni samkeppni og tryggja aðgang allra lands-
manna að ákveðinni lágmai-ksþjónustu, svokall-
aðri alþjónustu, en í framvarpinu er í íyrsta
skipti lagt til að gagnaflutningsþjónusta verði
skilgreind sem alþjónusta. Hér séu markverð ný-
mæli á ferð sem geti haft mikla þýðingu fyrir bú-
setu, atvinnuuppbyggingu og lífskjör í landinu.
Hins vegar sé með framvarpinu verið að laga ís-
lenska löggjöf að þeim tilskipunum sem gilda á
Evrópska efnahagssvæðinu um fjarskiptamál.
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssím-
ans, segir að þótt það sé óvanalegt í viðskiptum
að fyrirtæki eigi kröfu á að kaupa upp mikilvæg-
ar eignir keppinautarins, þá beygi Landssíminn
sig undir það í þessu tilviki enda leggi samgöngu-
ráðherra mikla áherslu á að örva samkeppni í
fjarskiptum. Hann vekur athygli á því að breyt-
ingin muni kalla á aðlögun gjaldskrár Landssím-
ans, fastagjaldið muni hækka til að standa undir
rekstri línukerfisins en umferðargjaldið lækka.
Þórarinn segir að kostnaðarmati sé ekki lokið og
því sé ekki vitað hvert fastagjaldið þurfi að vera.
Það er nú um 300 kr. á mánuði, þegar dregin hef-
ur verið frá innifalin notkun, en í nágrannalönd-
unum er að sögn Þórarins algengt fastagjald eitt
til tvö þúsund.
Fólk getur haldið númeri sínu
Meðal annarra breytinga sem kveðið er á um í
framvarpinu má nefna númeraflutning, en hann
gerir notendum kleift að halda símanúmeri sínu
án tillits til þess hjá hvaða símafyrirtæki við-
skiptin era og á hvaða númerasvæði þeir búa.
Almennt er þetta talin forsenda fyrir raunvera-
legri samkeppni í símaþjónustu, að því er fram
kemur í athugasemdum með frumvarpinu. Þetta
gildir um almenna fasta fjarskiptanetið og skal
Póst- og fjarskiptastofnun setja nánari reglur,
þ.ám. um hvenær númeraflutningur skuli inn-
leiddur.
Þá er að finna í framvarpinu ákvæði um inn-
lenda reikisamninga en þeir þýða að innlend far-
símafyrú’tæki eiga aðgang að farsímanetum ann-
an-a fyrirtækja þegar uppbygging eigin aðstöðu
er talin óraunhæf. Segir að með slíkum samning-
um sé því unnt að koma á virkri samkeppni í far-
símaþjónustu á öllu landinu. Forstjóri Landssím-
ans hefur áhyggjur af afleiðingum þess á upp-
byggingu farsímakerfisins ef önnur farsímafyrir-
tæki geti krafist aðgangs að þeim og telur að það
myndi draga veralega úr áhuga Landssímans að
byggja upp kerfi sitt á landsbyggðinni.
■ GagnafIutningsþjónusta/42
Netþjónar
og tölvur
COMPAd
Upplýsingar þurfa
að komast hratt og
örugglega til skila!
Það er dýrt að láta starfsfólkið biða!