Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Búið er að skipta um gólf í íþróttahúsinu á Kjalarnesi eftir fimni ára notkun. Guðni Ársæll Indriðason, umsjónarmaður
íþróttahússins, sagði að komið hefði gat í gólfið er spónaplata gaf sig.
Úrbætur til
að draga úr
hraðakstri
Hafnarfjörður
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarð-
ar hefur samþykkt að vísa
tillögum skipulags- og um-
ferðarnefndar um úrbætur
til að draga úr umferðar-
hraða á Suðurgötu og Eyr-
arholti til bæjarstjórnar, en
fyrir nokkru sendu íbúar
hverfanna bæjaryfirvöldum
bréf, þar sem farið var fram
á úrbætur vegna hraðakst-
urs.
Skipulags- og umferðar-
nefnd leggur til að sett verði
upphækkuð gönguleið yfir
Suðurgötuna á móts við
Flensborgarstíg og að gert
verði ráð fyrir gangstétt
austan megin við götuna,
enda sé það í samræmi við
fyrirliggjandi hönnun og að-
gerðir annars staðar á Suð-
urgötu.
Nefndin leggur einnig til
að hafnar verði á ný viðræð-
ur við Skattstofuna um að
breyta aðkomunni að henni,
þannig að hún verði frá
Strandgötu, en ekki Suður-
götu, sem telst vera húsa-
gata.
Skipulags- og umferðar-
nefnd leggur til að á Eyrar-
holti verði sett upp hraða-
hindrun á móts við stíg frá
„Ljónagryfjunni" norðvest-
ast í Hvaleyrarholtinu, en
jafnframt að Hvaleyrarholtið
verði tekið tO skoðunar í
heildaráætlun bæjarins fyrir
hverfi með 30 km hámarks-
hraða.
Skipt um gólf í
5 ára íþróttahúsi
Kjalarnes
ÍÞRÓTTAHÚS Kjalnesinga
í íþróttamiðstöðinni Klé-
bergi, sem var byggt fyrir
um fimm árum, var tekið í
notkun á ný í byrjun nóvem-
bermánaðar eftir að skipt
hafði verið um gólf, en húsið
hafði staðið ónothæft í um
fimm mánuði. Þetta kom
fram í samtali Morgunblaðs-
ins við Guðna Ársæl Indriða-
son, umsjónarmann Iþrótta-
miðstöðvarinnai-. Samkvæmt
upplýsingum frá byggingar-
deild borgarverkfræðings
nemur kostnaðurinn vegna
endurbótanna rúmum fjór-
um milljónum króna.
„Það var ekki hægt að
nota salinn lengur vegna
þess að það var komin hola í
gólfið eftir að gólfplata hafði
brotnað,“ sagði Guðni Ár-
sæll. „Það voru lagðar
spónaplötur undir dúkinn í
stað krossviðar og þær voru
ekki næstum nógu sterkar."
Guðni sagði að viðgerðin á
húsinu hefði hafist í septem-
ber og að nú væri búið að
skipta um undirlag. Hann
sagði að í þetta skiptið hefði
verið settur krossviður, en
ekki spónaplötur. Þá hefði
einnig verið settur nýr dúkur
og ýmislegt lagfært inni í
salnum, m.a. ofnar hækkaðh-
og rýmkað við hliðarlínurnar
þannig að hægt væri að sitja
þar og fylgjast með.
„Hvort það var Kjalarnes-
hreppur eða verktakinn
(Trésmiðja Snorra Hjalta-
sonar) sem tók ákvörðun um
að nota spónaplötur sem
undirlag þegar húsið var
byggt veit ég ekki,“ sagði
Guðni Ársæll.
Töldu spónaplöturnar
jafngóðar
Jón Pétur Líndal var
sveitarstjóri á þeim tíma sem
íþróttahúsið var byggt.
„Eg man eftir þessum um;
ræðum,“ sagði Jón Pétur. „í
upphafi var talað um að hafa
krossvið sem undirlag, en
síðan breyttist það og ákveð-
ið var að leggja spónaplötur.
Það var ekki vegna þess að
það væri eitthvað ódýrara
heldur taldi verktakinn að
spónaplöturnar væru jafn-
góðar í þetta og krossviður-
inn og við fórum eftir því.
Fljótlega eftir að salurinn
var tekinn í notkun, eða strax
eftir fyrsta veturinn, var sent
bréf til verktakans þar sem
kvartað var yfir gólfinu, sem
þótti ekki nægilega gott, en
ekkert kom út úr þeim bréfa-
skriftum og málið því ekki
skoðað nánar. Það er því Ijóst
að gólfið hefur verið gallað
frá fyrstu tíð og að mínu viti
er það alfarið á ábyrgð selj-
endanna, þar sem ending gól-
fefnisins er ekki sem skyldi."
Iþróttahúsið á Kjalarnesi
er frekar lítið eða um 20x30
metrar að stærð og er það
mest notað af nemendum í
Klébergsskóla.
Morgunblaðið/Kristinn
Ný 10-11 verslun verður opnuð þar sem Hagabúðin var til húsa á Hjarðarhaga. Til
stendur að bæta við annari hæð þar sem tónlistarskóli verður hugsanlega starfræktur.
Baugur kaupir húsnæði Hagabúðarinnar
Ný 10-11 verslun opn-
uð og tónlistarskóli
Nýr neyðarútbúnaður fyrir börn hjá Slökkviliðinu
Getur
sparað
dýrmætan
tíma
Reykjavík
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur
hefur tekið í notkun nýjan
neyðarútbúnað til að sinna
börnum. Hið svonefnda
Broselow-kerfi byggist á
tilbúnum pökkum í sjö mis-
munandi litum með neyðar-
útbúnaði sem er sérvalinn
eftir stærð og þyngd barns-
ins. Sérstakir litakvarðar
eru notaðir til að velja
réttu pakkana. Búnaðurinn
getur sparað dýrmætan
tíma í neyðartilfellum.
„Þetta er vissulega við-
bót við okkar búnað," segir
Jón Tómasson, læknir á
neyðarbfl hjá Slökkvilið-
inu. Um er að ræða eins
konar málmband sem borið
er við barnið sem sinna á
og er þá hægt að lesa af
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Tveir slökkviliðsmenn í Slökkviliði Reykjavíkur máta nýj-
an sérhannaðan neyðarbúnað fyrir börn við unga stúlku.
Á strimlinum sem slökkviliðsmaðurinn til hægri mælir
við stúlkuna er litakvarði, en eftir honum og hæð bams-
ins er valinn viðeigandi litur poki af borðinu.
litakvarða hvaða neyðar-
pakki hentar.
„I hvcrjum pakka er að
finna helstu neyðartæki
sem henta stærð barnanna
og aldurshópi. Barkarenn-
ur, nálar, maskar og allur
sérhæfður búnaður þarf að
vera af réttri stærð. Sama
gildir um lyfjaskammta.
Maður sér það strax með
því að bera málbandið við
barnið og þarf ekki að
eyða dýrmætum tíma í að
tína til rétta búnaðinn,"
segir Jón.
Vesturbær
STEFNT er að því að opna
nýja 10-11 verslun í húsnæði
gömlu Hagabúðarinnar að
Hjarðarhaga, snemma á
næsta ári og að líkindum í
mars. Til stendur að byggja
hæð ofan á húsið og hug-
myndir eru uppi um að starf-
rækja þar tónlistarskóla eða
útibú frá Tónlistarskóla
NÝTT leigubílabiðskýli
verður sett upp í miðbæ
Reykjavíkur á næstu vik-
um, en það mun verða
staðsett við Hafnarstræti
að Lækjargötu. Þetta kom
fram í samtali Morgun-
blaðsins við Jóhannes S.
Kjarval, hverfisstjóra hjá
Borgarskipulagi.
Það er fyrirtækið AFA
JCDecaux ehf. sem mun
setja skýlið upp og sjá um
viðhald, en reksturinn
Reykjavíkur. Þessai’ hug-
myndir bíða grenndarkynn-
ingar og endanlegrar
ákvörðunar skipulagsyfir-
valda.
Hagabúðin var keypt af
Kaupási ehf. sem síðan seldi
hana til Baugs ehf. Að sögn
Þórðar Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra 10-11 búð-
anna og Hraðkaupsbúðanna,
voru fyrst uppi hugmyndir
verður fjármagnaður með
auglýsingum. Skýlið verð-
ur svipað og strætisvagna-
skýlin í hönnun, en mun
stærra.
Nú þegar er eitt Leigu-
bílabiðskýli í Lækjargöt-
unni við Bókhlöðustíg og
sagði Hans Kaalund, fram-
kvæmdastjóri AFA
JCDecaux, að fyrirtækið
hefði sótt um að fá að rífa
það niður og setja upp nýtt
skýli á sama stað, en að
borgaryfirvöld væru ekki
búin að samþykkja það.
um að byggja hæð ofan á
húsið fyrir einstaklingsíbúð-
ir. „Þar sem íbúar reyndust
andvígir því í grenndarkynn-
ingu komu upp hugmyndir
um að koma þar fyrir at-
vinnustarfsemi. Nú er hins
vegar komin upp hugmynd
um að hafa þarna tónlistar-
skóla. Þessi hugmynd hefur
fengið mjög jákvæðar undir-
tektir svona í fyrstu og að
henni er unnið þessa dag-
ana.“
Verslunin verður opnuð
við fyrsta tækifæri
Kurr hefur verið meðal
íbúa í hverfinu vegna tafa á
opnun búðarinnar. Þórir seg-
ist sjálfur gjarnan vilja opna
búðina sem fyrst en tafirnar
séu fyrst og fremst vegna
þess að ekki hafi fengist
samþykkt starfsemi á hæð-
inni sem til standi að byggja
ofan á. „Við höfum fengið vil-
yrði fyrir þeirri stækkun á
búðinni sem við þurfum til
þess að hún fullnægi okkar
kröfum en menn hafa vílað
fyrir sér að fara í þær breyt-
ingar áður en vitað er hvaða
starfsemi verður á nýju hæð-
inni. Það er búið að teikna
búðina og það er ekkert sem
strandar á nema þetta.“
Nýtt leigu-
bflaskýli
Miöbær