Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Vegaframkvæmdir í
Höfn - Unnið er nú að endurbót-
um og lagningu á nýjum þjóð-
vegi í Suðursveit. Með þessum
nýja vegarkafla styttist um rúm-
an helming malarkaflinn sem
eftir var á milli Reykjavíkur og
Hafnar í Hornafirði, og verða
um 4 km eftir þegar þessum
framkvæmdum lýkur.
Nýi kaflinn er rúmlega 6 km
Iangur og nær frá Staðará að
Hestgerði. Sá kafli hefur verið
leiðinlegur yfírferðar og mikið
um blindbeygjur og blindhæðir
á stuttum kafla. Vegastæðið
verður að mestu endumýjað og
vegurinn gerður beinni og
greiðfærari.
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Suðursveit
Að sögn Stefáns Gunnarsson-
ar hjá verktakanum S.G. vélar á
Djúpavogi miðar framkvæmdum
vel. Áætluð verklok eru í júlí
næsta sumar, en þá verður nýi
vegarkaflinn tilbúinn með
bundnu slitlagi.
Framkvæmdir kosta 53 millj-
ónir.
Frá afhjúpun merkisins, Finnur Malmquist höfundur merkisins, Krist-
ján Einarsson forseti bæjarstjórnar og Samúel Smári Hreggviðsson
formaður undirbúningsnefndar um byggðarmerki.
Nýtt byggðarmerki fyrir
sveitarfélagið Arborg
Selfossi - Nýtt byggðarmerki fyrir
sveitarfélagið Árborg var kynnt fyr-
ir nokkru. Merldð, sem er eftir Finn
Malmquist, var valið eftir auglýsta
samkeppni um gerð merkisins.
Alls bárust 48 tillögur í sam-
keppninni frá 42 höfundum og birt-
ust þar margar og fjölbreytilegar
hugmyndir að merki.
Nýja merkið er blátt að lit og hef-
ur sterka skírskotun til höfuðein-
kenna sveitarfélagsins, sem eru Ölf-
usá og byggðakjarnamir þrír, Sel-
foss, Eyrarbakki og Stokkseyri,
ásamt sléttum Flóans. I umsögn um
merkið er sagt að styrkur þess sé
einfaldleikinn og það hafi nútíma-
legan og ferskan blæ.
Nýja merkið er til sýnis næsta
hálfa mánuðinn í Hótel Selfoss
ásamt þeim tillögum sem dómnefnd
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Hið nýja byggðarmerki
Árborgar.
bárust í samkeppninni. Nýja merk-
inu var skilað á tölvutæku formi og
var það strax tekið í notkun á eyðu-
blöðum sem notuð voru á fundi at-
vinnumálanefndar Árborgar um
ferðamál síðdegis á föstudag.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Betri er
ein rjúpa í
hendi en
tvær á fjalli
Vaðbrekku, Jökuldal - Betri er
ein rjúpa í hendi en tvær á fjalli.
Þórarinn Smári hefur þetta heil-
ræði í hávegum þar sem hann er
á rölti með byssu og hund á Há-
urð við Hrafnkelsdal. Það er
sem best hægt að slá tvær flug-
ur í einu höggi á ijúpnaveiðun-
um, fá sér hressandi heilsubót-
argöngu í leiðinni.
HAGKAUP
Jijr/dU
OPIÐ:
Virka daga til kl. 20:00
Laugardaga til kl. 18:00
Sunnudaga til kl. 18:00