Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 23
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Kristinn
Við undirritun sainningsins.
NIB lánar
Landsvirkjun
1,4 milljarða
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli Norræna fjárfest-
ingarbankans, NIB, og Landsvirkj-
unar um lán að upphæð 20 milljónir
Bandaríkjadala, eða sem samsvar-
ar 1,4 milljörðum íslenskra króna.
Lánið er til 15 ára og verður það
nýtt til þess að fjármagna hluta af
fjárþörf fyrirtækisins vegna fram-
kvæmda við Vatnsfell.
NIB hefur tekið þátt í að fjár-
magna flestar af stærstu virkjun-
um Landsvirkjunar. Fyrsta lán
bankans til Landsvirkjunar var
veitt árið 1978 vegna framkvæmda
við Hrauneyjafossvirkjun en auk
þess veitti bankinn lán í tengslum
við framkvæmdir við Blönduvirkj-
un og Sultartangavirkjun. Lands-
virkjun er nú stærsti lánþegi NIB á
íslandi.
Guðmundur K. Magnússon,
stjórnarmaður í NIB, Þór Sigfús-
son, svæðisstjóri NIB, og Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, skrifuðu undir samninginn en
fyrir aftan þá standa Stefán Pét-
ursson, deildarstjóri hjá Lands-
virkjun, og Örn Marinósson, fram-
kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun.
Er viðhorf samfélagsins til jafnréttis-
mála ekkert að breytast?
- aukinn launamunur kynjanna á jafnréttisöld
Miðvikudaginn 24. nóvember boðar Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga til hádegisverð-
arfundar frá kl. 12.00-13.30 á Radisson-SAS Hótel Sögu, Skála, 2. hæð.
Framsögumenn verða:
Hafsteinn Már Einarsson, formaður kjaranefndar FVH, Helga Guðrún Jónasdóttir, þingmaður,
Eyþór Eðvarðsson, vinnusálfræðingur og ráðgjafi hjá Gallup og Ingólfur Gíslason, starfsmað-
ur jafnréttisráðs.
Hafsteinn Már mun fjalla um:
Áhugaverðar niðurstöður úr nýútkominni
kjarakönnun FVH.
Helga Guðrún mun fjalla um:
Eru konur annars flokks vinnuafl? Leitað verður svara við þeirri spurningu
hvort launamunur kynjanna sé goðsögn eða veruleiki og hvaða öfl móti
launaveruleika kvenna á vinnumarkaði. Jafnframt verður fjallað um það
hagnýta gildi sem jafnréttisstarf á vinnustað felur í sér fyrir atvinnurekendur.
Eyþór mun fjalla um:
Fráskilnaði, metnað, einka-vinnu-líf og ofþreytu.
Stéttarskiptingu, lyklabörn, þekkingafyrirtæki, email stjórnunarstíl, 200%
vinnuframlag og sjálfsskoðun.
Ingólfur mun fjalla um:
Viðhorf til hlutverka kynjanna meðal almennings,
stjórnvalda og atvinnurekenda.
Tengslin milli stöðu karla og kvenna gagnvart börnum
og kynbundins launamunar.
Verð með hádegisverði kr. 1.700 fyrir félagsmenn og kr. 2.200 fyrir aðra.
Skráning þátttöku í síma 568 2370 eða með tölvupósti fvh@fvh.is
aunávöxtun
Séreignarsjóður Kaupþings fer vel af stað. Hann var
stofnaður í árslok 1998 og ávaxtar viðbótarlífeyrissparnað.
Árangur sjóðsins talar sínu máli: 31,28% raunávöxtun fyrstu
sex mánuðina.
Séreignarsjóður Kaupþings fjárfestir að stórum hluta í
innlendum og ertendum hlutabréfum. Fjárfestingarstefnan
tekur mið af því að lífeyrissparnaður er í eðli sínu
langtímasparnaður; til lengri tíma ötið hafa sveiflur í ávöxtun
lítil áhrif.
Þú ferð líka vel af stað ef þú greiðir viðbótarsparnaðinn
í Séreignarsjóð Kaupþings. Hann stefnir hátt.
Framsækin fjárfestingarstefna
Ertend hlutabréf 47% Innlend skuldabréf 23%
Innlend hlutabréf 25%
■ Virk eignastýring
■ 10% mótframlag frá launagreiðanda
■ Enginn fjármagnstekjuskattur
■ Enginn eignaskattur
m
KAUPÞING
Kaupþing hf. • Ármúla 13A • Reykjavík
sími 5151500 • fax 5151509 • www.kaupthing.is