Morgunblaðið - 23.11.1999, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
IIR VERINll
Karfakvóti á Reykjaneshrygg ræddur á ársfundi NEAFC
Gert ráð fyrir mikl-
um niðurskurði
Ársfundur NEAFC í London hófst í gær. Á myndinni eru Albert Jóns-
son og Kristján Ragnarsson, sem sitja í íslensku sendinefndinni, ás-
amt Árna M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra.
Líkan af grjótvamargarði, sem Siglingamálastofnun hefur
hannað og verður byggður í Noregi.
Siglingastofimn
hannar brimvarnar-
garð í Noregi
ÁRSFUNDUR Norðaustur-Atl-
antshafsfískveiðinefndarinnar
(NEAFC) hófst í London í gær. Á
fundindum verður tekin ákvörðun
um leyfilegan karfaafla á Reykjan-
eshrygg á næsta ári en lagt hefur
verið til að karfaafli á svæðinu
verði skorinn verulega niður
Ami M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra segir að leita verði
allra leiða til að koma veiðistjórnun
á Reykjaneshrygg í skynsamlegt
horf. Akvörðun um leyfilegan
heildarafla og skiptingu veiðiheim-
ilda á milli aðildarþjóða NEAFC
verður að öllum líkindum tekin á
fundi nefndarinnar á miðvikudag
eða fimmtudag. Alþjóða hafrann-
sóknaráðið (ICES) lagði til í maí að
úthafskarfakvótinn á Reykjanes-
hrygg yrði færður úr 153.000 tonn-
um á yfirstandandi ári í 85.000
tonn á næsta ári.Verði þetta end-
anleg niðurstaða skerðist kvóti ís-
lendinga verulega, en hlutur ís-
lands á síðasta ári var um 53.000
tonn af um 120.000 tonna afla. Á
þessu ári er leyfilegur heildarafli
153.000 tonn og er hlutur íslend-
inga 45.000 tonn. Fastlega er gert
ráð fyrir að farið verði að tillögum
ICES en hinsvegar eigi eftir að
takast á um skiptingu milli aðildar-
þjóða. Á fundinum verður einnig
farið yfir ráðleggingar varðandi
aðra fiskistofna innan NEAFC-
svæðisins, s.s. kolmunna, makríls
og síldar.
Veiðistjómun á Reykjaneshrygg
hefm’ legið undir töluverðri gagn-
rýni hérlendis að undanförnu.
Telja menn að á svæðinu sé veitt
úr tveimur karfastofnum, djúpk-
arfastofni undir 500 metra dýpi en
úthafskarfastofni ofan 500 metra
dýpis en veiðum á djúpkarfa sé
hinsvegar algerlega stjómað á
grundvelli bergmálsmælinga á út-
hafskarfa.
Vill viðurkenningu á
tveimur karfastofhum
Árni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra segir aðildarþjóðir
NEAFC ekki hafa viljað viður-
kenna að á Reykjaneshrygg sé um
tvo karfastofna að ræða, þrátt fyrir
að íslenskir vísindamenn hafi fært
fyrir því sterk rök. „Við höfum
talsverðra hagsmuna að gæta hvað
þetta varðar því við emm líka með
djúpkarfa innan okkar landhelgi
sem gæti verið af sama stofni og
djúpkarfinn sem er fyrir utan land-
helgina. Þar að auki hefur stór
hluti af okkar veiði úr úthafskarfa-
kvótanum verið djúpkarfi sem
veiddur er á landhelgismörkunum.
Ef samningsaðilar okkar vilja
ekki viðurkenna vísindalegar nið-
urstöður verðum við að leita leiða
til að stjóma þessum veiðum úr
þessum stofnum á skynsamlegan
hátt. Það er ótækt að verið sé að
mæla annan stofninn en veiða svo
úr hinum,“ segir Árni.
Akvörðun heildaraflans verður
að sögn Árna eitt af helstu verk-
efnum fundarins. Þar verði sjónar-
miðum íslendinga haldið fram.
SIGLINGASTOFNUN hefur teldð
að sér hönnun og ölduhæðarrann-
sóknir á nýjum brimvamargarði á
suðvesturströnd Noregs. Garður-
inn er með hæstu ölduáraun af öll-
um grjótgörðum í Noregi. Um er að
ræða svokallaðan bermigarð en
þeir era byggðir úr þykkari grjót-
vöm en hefðbundnir grjótgarðar,
þannig að grjótvömin gleypir öld-
una sem inn í hana gengur.
Yfir 20 slíkir brimvarnargarðar
hafa verið hannaðir og byggðir hér
á landi frá árinu 1983 eða um helm-
ingur bermigarða sem byggðir hafa
verið í veröldinni, að því er fram
kemur í fréttabréfi Siglingastofn-
unar, Til sjávar. í ferúar sl. var
gerður rammasamningur milli Sigl-
ingastofnunar og Kystverket í Nor-
egi um að Siglingastofnun tæki að I
sér hönnun brimvamargarðs sem
verður fyrir utan lítið fiskiþorp,
Sirevág, sem er sunnan við Stavan-
ger á suðvesturströnd Noregs en
þar er höfnin mjög opin fyrir vest-
Íægum vindum og öldu úr Norður-
sjónum. Aðrir aðilar sem koma að
verkefninu era Háskólinn í Þránd-
heimi, SINTEF sem annaðist lík-
anatilraunir af höfninni í Sirevág,
ráðgjafafyrirtækið Norconsult sem
sá um útboðsgögn og Jarðfræðist-
ofan Stapi sem vann að grjót-
námsrannsóknum.
Þrisvar sinnum stærri
en í Bolungarvík
Við hönnun garðsins er leitast
við að hafa hann eins stöðugan og
kostur er en það er gert með því að
hafa stærsta grjótið þar sem
áraunin er mest. I garðinn fara um
640.000 rúmmetrar af sprengdu
efni, þar af helmingur stórgrýti yfir
1 tonn. Til samanburðar fóm >
200.000 rúmmetrar í brimvarnar-
garðinn í Bolungarvík. Garðurinn
verður 500 metra langur og verður
að hluta til byggður á klöpp með
breytilegu dýpi, 3 til 22 metra, en
garðendinn á sandbotni með 18
metra dýpi. Tilboð í verkið vom
opnuð 22. september sl. og þauð
fyrirtækið E. Phil & Spn/ístak
lægst eða 678 milljónir króna. Gert
er ráð fyrir að verkið hefjist í des-
ember nk. og ljúki í desember árið j
2001.
------------------
Meiri afli
við Perú
VEIÐAR á ansjósu við Perú hafa
glæðzt verulega að undanfömu og
vikulegur afli er nú á bilinu 250.000
til 300.000 tonn. Leyfilegur kvóti er
aðeins tvær milljónir tonna og því
er búizt við frekari veiðitakmörk-
unum á næstunni. Viðskipti með
fiskimjöl em lítil um þessar mundir
og veiði til bræðslu nánast alls stað-
ar lítil svo sem hér við landið. Svip-
aða sögu er að segja af viðskiptum
með jurtamjöl af ýmsu tagi. Mikil
deyfð virðist vera yfir markaðnum.
Perú selur nú mest af sínu fiski-
mjöli til Kína og fyrstu níu mánuði
ársins nam sá útflutningur um
290.000 tonnum. Á sama tíma fyrir
tveimur ámm seldu Perúmenn
Kínverjum 750.000 tonn af mjöli.
VICTD A D
V EIKAK
Ný vegtenging við Hnoðraholt í Garðabæ
*
Idagverður
meðopnun
Vetrarbrautar
tekin ínotkun
nýtenging við
Hnoðraholt
íGarðabæ.
Vetrarbraut liggur frá Vífilsstaðavegi á móts við Vífilsstaðaspítala yfir
Vetrarmýri vestan golfvallar að Hnoðraholtsbraut Um leið verður lokað
beinni tengingu hverfisins við Reykjanesbraut, sem var einungis til
bráðabirgða.
Auk hinnar nýju tengingar verður áfram tenging fyrir litla bíla (lægri en
2.25 m) um undirgöng undir Reykjanesbrautfrá Bæjargili.
Með breytingum þessum ervænstaukins umferðaröryggis og aukinnar
afkastagetu Reykjanesbrautar sem kemur Garðbæingum ekki sísttil góða.
GARÐABÆR