Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 34

Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 34
58 eeei HaaMavóM .œ auoAauiaiHa 34 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 aiGAjanuoaoM MORGUNBLAÐIÐ h Grandavegi vel tekið í Gautaborg Leikritið Grandavegur 7 var frumsýnt í Stadsteatern, Borgarleikhúsi Gautaborgar, föstudaginn 12. nóvember sl., undir stjórn Kjartans Ragnarssonar. Höfundurinn,, Vigdís Grímsdóttir, var viðstödd, en fyrir leikgerðinni byggðri á samnefndri sögu standa Kjartan og Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir. Kristín Bjarnadóttir fylgdist með gangi mála. SÆNSKA þýðingin á Grandavegi 7 er eftir Inge Knutsson, en tónlistin eft- ir Pétur Grétarsson. Leik- mynd og búningar eru eftir Axel Johannesson og þegar fréttaritari hitti hann í upphafi æfingatímabils- ins sagði hann grunnhugmynd uppsetningarinnar vera þá sömu og þeir félagar unnu fyrir Þjóðleik- húsið á sínum tíma. „En sviðið er annað og leikaramir aðrir og það kallar að sjálfsögðu á breytta út- færslu,“ sagði Axel, sem kvaðst einnig hér leitast við að ná fram þeirri hjárænu sem einkennir heim Fríðu. Ung og nýtútskrifuð leikkona að nafni Mellika Melaní fer með hlut- verk Fríðu, og það leyndi sér ekki, áhorfendur voru ánægðir með frammistöðu hennar og annarra leikara. í leikarahópnum er Marika Lagercrantz í hlutverki Völu móð- ur Fríðu, þekktasta nafnið, alþjóð- lega kunn fyrir leik sinn í kvik- myndum, m.a. Viderbergmyndinni Lust och fegring stor. Aðspurð segir hún það hafa verið frábæra reynslu að vinna með Kjartani sem leikstjóra, hann sé auðmjúkur, þol- inmóður og ákveðinn í senn. „Kjartan er nú þekktur í Svíþjóð fyrir uppfærslur sínar á leikritum Tjékóvs," segir Marika, „og þegar hann bað mig að vera með hafði ég lesið allar bækur Vigdísar sem til em á sænsku nema Grandaveg 7. Svo ég fékk góða ástæðu til að kynna mér þá sögu. Hreint ekki létt verkefni á sviði. Til að byrja með vomm við kolrugluð, gláptum tvístígandi hvert á annað og spurð- um: Ert þú dáinn núna? Það var erfitt að skilja og krefjandi að ná fram þeim skýra samleik sem er nauðsynlegur fyrir svo flókið verk. En Kjartan gaf sig ekki, heldur krafðist þess að við þyrðum að dvelja í sársaukanum, lifandi eða „dauð“, til að ná fram þeirri sam- eiginlegu gleði sem úr honum sprettur. Svo sýningin óx og óx. Nú gæti ég vel hugsað mér að vinna aftur með Kjartani. Og mig er farið að langa til ís- lands. Þangað vil ég koma... Við eigum eftir að sakna þeirra mikið Kjartans og Axels.“ Blaðadómar um Grandaveginn LISTIR Grandavegur 7 í uppfærslu Borgarleikhúss Gautaborgar. sem birst hafa um og eftir helgina era í heild mjög jákvæðir, þrátt fyrir að Johan Franzon, sem skrif- ar í Göteborgs-Posten, eigi bágt með að finna byr undir vængi sýn- ingarinnar. Hann skellir skuldinni á texta sem hann heimfærir annars vegar upp á töfraraunsæi og hins vegar anda nýaldarstefnu, sem reynast honum kuldalegar gárur, en bæði leikarar og leikstjóri fá engu að síður heilmikið hrós. Gagn- rýnandi Dagens Nyheter, Mikael Löfgren, velur aftur á móti að skoða verkið með hliðsjón af femin- ískum formerkjum og finnur þann- ig sjónarhól með frábæru útsýni. Hjá honum rífur Vigdís gat á þjóð- lega goðsögn feðraveldisins um Isl- and sem heimkynni karlmennsku og kraftaskálda, goðsögn sem breiðir yfír stéttaskiptingu og fleira. En höfundurinn manar hins vegar fram aðra íslenska goðsögn sem feminískan valkost, sam- kvæmt Löfgren, og þannig verður Fríða einskonar „póst-punk-spá- kona“ með sinni félagslegu færni og skyggnigáfu. „Underhállande och elegant" hljóðar íyrirsögnin og áhersla sýn- ingarinnar liggur - í túlkun Löf- grens - annars vegar á sambandi Fríðu og föður hennar, glæsilega leiknum af Lars Varinger, og hins- vegar á Islandssögu eftirstríðsár- anna eins og hún lýsir sér í örlög- um fjölskyldunnar. Og „sem stundum vekur bæði hugsun og til- finningar í senn“, skrifar Löfgren í lokin. Ganrýnandi blaðsins Arbetet, Karin Gustafsson, gefur sér einnig greiðan aðgang að sýningunni, en frá öðram sjónarhóli. Hún túlkar hana iyi-st og fremst á tilvistarieg- um grandvelli, notar forsendur þeirrar tilvistarstefnu sem túlkar manneskjuna sem sögu, sem fæðist inn í sögu annarra og er nærver- andi með sögur sínar samanlagðar, hvert augnablik sem breytir þeim um leið. Fyrirsögn er Ást í auga óttans (Kárlek mitt i radslan) og hveija einustu setningu má lesa sem lág- vær en ákveðin meðmæli með sýn- ingunni. „Þetta er sálfræðilega þétt verk þar sem fortíð og nútíð leika saman innra með Fríðu. Það gerir miklar kröfur til leikstjórnar, leikaravinnu og sviðsmyndar. Þess vegna er ánægjulegt að sjá hve lipur upp- færsla Borgarleikhússins reynist. /.../ Auk þess snertir þetta leikrit. Það sýnir hispurslaust hvernig ást getur brotist fram í óttanum miðj- um..." Tvö verk Vigdísar samtímis í Svíþjóð Það er ekki aðeins í Gautaborg að leikrit byggt á sögu eftir Vigdísi Grímsdóttur fær góðar undirtektir. Sýning litla kjallaraleikhússins Gi- ljotin í Stokkhólmi á Ég heiti ís- björg ég er ljón (leikgerð Hávars Sigurjónssonar), sem framsýnt var 15. október síðastliðinn, hlaut margvíslegt lof gagnrýnenda, en leikstjóri þeirrar sýningar er Kia Berglund. Sýningar eru áætlaðar til 28. nóvember næstkomandi. Sýningar á Grandavegi 7, í Borg- arleikhúsi Gautaborgar, munu hins vegar áætlaðar fram í janúar 2000. Blásið til framtíðar TÓIVLIST S a I u r i n n EINLEIKSTÓNLEIKAR Einleiks- og kammerverk eftir Ra- be, Kraft, Stockhausen, Eirík Örn Pálsson, Hindemjth, Takemitsu og Blacher. Eiríkur Ö. Pálsson, tromp- et; Sigurður Þorbergsson, básúna; Judith Þorbergsson, píanó; Ásgeir H. Steingrímsson, trompet; Einar St. Jónsson, flygilhorn; Pétur Grét- arsson, slagverk. Sunnudaginn 21. nóvember kl. 20:30. CAPUT stóð fyrir tónleikum í Tónlistarhúsi Kópavogs á sunnu- dagskvöldið var, þar sem sívaln- ingsmembranófónamir trompet og básúna voru í forgrunni. Hljóðfærin era skyldari en halda mætti, því sleðakerfið var einnig til fyrir trompet á síðmiðöldum, þó að hafi lifað af ventlabyltingu 19. aldar á básúnu. Einhverra hluta vegna virðast stærstu meðlimir hverrar hljóðfærafjölskyldu bera með sér flest fomeinkenni, en í tilfelli básún- unnar verður að viðurkenna, að lausn miðaldamanna hafi í senn ver- ið einföld og snjöll. I uppundir 400 ár var básúnan eini lúðurinn sem gat leikið krómatíska tóna á grunn- tónsviði - og m.a.s. áður en þeir komust í notkun. BASTA eftir Folke Rabe fyrir básúnu án undirleiks undirstrikaði þennan möguleika - meðal fjölda annarra úr hrifabúri básúnunnar - í afburðasnjöllum leik Sigurðs Þor- bergssonar. Verkið var samið fyrir sænska snillinginn og vélhljóðs- manninn Christian Lindberg og myndaði frábæran inngang í stutt- um en meitluðum frásagnarmáta, þar sem stakir hvellir botntónar skáru á undangengnar röksemda- færslur með tilvísun í titil: „og hana- nú.“ í Encounters eftir William Kraft fengu menn að heyra plast- ískan samleik trompets í höndum Eiríks Amar Pálssonar og allstórr- ar slagverkssamstæðu í meðfórum Péturs Grétarssonar, þar sem stundum var svo að batteristanum saumað að minnti á Sesar forðum við skyndiáhlaup Belga, þar sem foringinn varð að gera femt í senn. Pétur leysti þessar fjölþrautir, að litríkri slagverkskadenzu með- taldri, af stakri greiðvikni. Karlheinz Stockhausen var ábyrgur fyrir einleiksverkinu In Freundschaft, sem hann er sagður hafa skrifað fyrir 13 mismunandi hljóðfæri. Básúnuútgáfan sem Sig- urður flutti hér, er frá 1982 og bar að hyggju undirritaðs flest þau Morgunblaðið/Sverrir I umfjölluninni segir m.a. aö nafnið Caput fari senn að hljóma eins og löggiltur gæðastimpill. Hér eru Eiríkur Ö. Pálsson, Sigurður Þor- bergsson, og Judith Þorbergsson á æfingu fyrir tónleikana. merki pappírshyggju og þaulskipu- lags sem honum þykir ósjaldan loða við þennan nafntogaða framúrstefn- uframkvöðul, en megna samt sem áður ekki að koma í veg fyrir langd- rægni - þrátt fyrir glampagóðan og hnitmiðaðan flutning. Það var stundum eins og að Stokki kariinn ætlaði aldrei að ljúka sér af. Eftir annan sólista kvöldsins var síðan flutt Línuspil fyrir 3 trompet, sem Eiríkur Öm samdi 1986. Verk- ið var borið uppi af hugvitssamri raddfærslu og skemmtilegri rytm- ík, er nálgaðist tökkötu í fyrsta hluta, vann úr tvítóna bamagælu- frumi í miðju sem leiddi hugann að alfeðmri forsjárhyggju nútímans í tvítóna tákngervi sjúkrabílasíbylju, en klykkti út með glaðværri hoss- andi í „Pomposo con brio“; allt í vel- upplögðum og smellandi samtaka leik þeirra Eiríks og Asgeirs H. Steingrímssonar á trompeta og Einars St. Jónssonar, sem ég sá ekki betur en að héldi á flygilhomi. Eftir hlé tóku hjónin Judith og Sigurður Þorbergsson fyrir hina sí- gildu Básúnusónötu Pauls Hindem- iths frá 1941. Verkið gerir einnig verulegar kröfur til píanóleikarans, eins og strax kom fram af hráslaga- legri hraðpunkteraðri óeirð I. þátt- ar, sem Judith leysti snöfurlega af hendi, þó að básúnan ætti til að yfir- keyra slaghörpuna, enda eitt af ör- fáum einleikshljóðfæram sem fer létt með það. Eftir hinn syngjandi Allegretto-þátt mátti heyra „kvik- mynda“tónlist Hindemiths í III. þætti (Swashbuckler’s Song), þar sem Errol Flynn sveif yfir skógar- liminu á grænum sokkabuxum við skemmtilega krossrytma milli bás- únu og píanós, og í lokaþætti upp- hófst svipuð „túmúltísk" punkterað hrynjandi og í inngangsþættinum. Kraftmikið verk og samtaka leikið, þrátt fyrir nokkra krafteklu Bösen- dorfarans. Eiríkur Öm lék þessu næst einn og óstuddur Paths fyrh- einleiks- trompet eftir stærsta nafn Japana í framsæknum stfl, Tora Takemitsu. í verkinu er sífellt skipt á milli opins lúðurs og dempaðs („con sordino"), g svo að laglínunni virtist ýmist beint " að hlustanda eða hugsuð innra með sér. Þetta fallega íhugula verk var eins og röð af hækum um sömu grannhugsun, þar sem skáldið skiptist á framsögn og hvísli, og leikurinn var að sama skapi skáld- legur og ljóðrænn. Á léttustu strengi kvöldsins var slegið í lokin, þar sem Eiríkur, Sig- fe urður og Judith léku sjöþætt Di- ' vertimento fyrir trompet, básúnu s og píanó frá 1946 eftir Berlínar- P búann Boris Blacher. Verkið var lauflétt og áhyggjulaust, og engu líkara en að höfundur hafi dansað á brunarústum stórborgar líkt og Neró. Allir samsetningarmöguleik- ar hljóðfæranna vora nýttir, þó að píanóið fengi eitt þátttakenda að leika sóló (í IV.) í blúsuðum stíl við sérkennilegan tvíradda þrábassa í j| vinstri hönd. „Bátssöngm’" básún- unnar gól gælinn við bára í II. ■ þætti, og endað var á iðandi fimm- P skiptum takti í gáskafullum loka- þættinum. I heild var vel og fagmennskulega að þessum tónleikum staðið, og náð- ist skemmtilegt jafnvægi milli ól- íkra efnisþátta. Úrvalið af nýrri lúðrakammertónlist var furðufjöl- breytt og spilamennskan réttum megin gæðahryggjar, svo vægt sé til orða tekið. Enda fer nafnið eitt - Caput - hvað úr hverju að hljóma ij eins og löggiltur gæðastimpill. Ríkarður Örn Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.