Morgunblaðið - 23.11.1999, Qupperneq 37
3K4AjfWUOflOl
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 37
MENNTUN
Fléttað saman máli,
menningu og mannlífí
Morgunblaðið/Jim Smart
Oddný G. Sverrisdóttir dósent og Alma Möller verslunarmaður, sem
tók þátt í námskeiðinu í janúar síðastliðnum.
Hraðnámskeið í
þýsku verður haldið
1 Freiburg í Þýska-
landi í janúar á
næsta ári. Sveinn
Guðjónsson ræddi
við kennara og
nemenda um málið.
„Á námskeiðinu er bryddað upp á
ýmsum nýjungum og áhersla lögð á
að flétta þýskunámið saman við
þýska menningu og mannlíf í Frei-
burg,“ sagði Oddný G. Sverrisdótt-
ir, dósent í þýsku við Háskóla ís-
lands, en hún ásamt Danfríði
Skarphéðinsdóttur og Stefan
Pflaum, deildarstjóra í Sprachen-
kolleg í Freiburg, hafa umsjón með
hraðnámskeiði í þýsku sem haldið
verður í Freiburg í Þýskalandi dag-
ana 23. janúar til 3. febrúar á næsta
ári.
Námskeið með sama sniði var
haldið í Feiburg í janúar á þessu ári
og fóru þá 22 þátttakendur héðan
frá íslandi til Þýskalands og dvöldu
þar í tíu daga. Að sögn Oddnýjar
þótti námskeiðið takast með mikl-
um ágætum og almenn ánægja
meðal þátttakenda með fram-
kvæmd og tilhögun námskeiðsins.
Undir það tekur Alma Möller, sem
var í þessum hópi: „Bæði hafði ég
mikið gagn af þessu námskeiði og
auk þess var þetta sérlega
skemmtilegt enda frábær hópur
þarna saman kominn,“ sagði Alma.
„Þátttakendur voru úr hinum
ýmsu atvinnugreinum og sviðum
þjóðlífsins," bætti Oddný við.
„Þarna var fólk sem þarf atvinnu
sinnar vegna að tala þýsku, fólk í
viðskiptum og ferðamálaþjónustu
og aðrir sem vildu bara dusta rykið
af gömlu skólaþýskunni sinni,“
sagði hún. „Gert er ráð fyrir að
þátttakendur hafi undirstöðukun-
náttu í þýsku og megináhersla lögð
á talmál, en jafnframt gefst þátt-
takendum kostur á að kynnast
þýskri menningu og mannlífi.
Menn sitja ekki bara og læra málf-
ræði frá morgni til kvölds heldur
upplifa þeir Þýskaland samhliða
þýskunáminu."
Oddný sagði að hugmyndin með
námskeiðinu hefði frá upphafi mið-
ast við að gera það skemmtilegt
samhliða gagnseminni. „Ef menn
hafa ekki gaman af námi verður yf-
irleitt lítið gagn af því,“ sagði hún.
„Um leið og áhuginn vaknar er
kveiktur neisti sem getur orðið að
stóru báli og sú var einmitt hug-
myndin með þessu námskeiði. Að
gera það skemmtilegt." Alma sagði
að þátttakendur hefðu til dæmis
haft mikla ánægju af því að fara í
gönguferðir um Svartaskóg og allt-
af hefði Stefan Pflaum deildarstjóri
í Sprachenkolleg verið með í för
þannig að menn hefðu í raun verið í
þýskutímum á meðan á gönguferð-
unum stóð.
Skemmtilegur andi
Alma Möller kvaðst hafa tekið
þátt í námskeiðinu í janúar síðast-
liðnum vegna atvinnu sinnar. „Eg
Námsadstoð
í stærdfrædi
^ Upplýsingar í síma
551 5592
Tölvu- og
stærðfræðiþjónustan ehf.
er verslunarstjóri í stórri kvenfata-
verslun og þarf að fara að minnsta
kosti tvisvar á ári til Þýskalands í
innkaupaferðir. Mér fannst því
nauðsynlegt að dusta rykið af þýsk-
unni minni og helst að bæta ein-
hverju við og það að fara á þetta
námskeið í Þýskalandi virkaði afar
hvetjandi á mig og varð raunar til
þess að ég hélt áfram þýskunáminu
eftir að ég kom heim,“ sagði Alma.
„Þetta var mjög skemmtilegur
tími,“ sagði hún ennfremur. „Við
vorum í kennslu frá klukkan hálf
níu á morgnana og fram yfir há-
degi. Þá tóku við fræðslu-, menn-
ingar- og skemmtiferðir og stund-
um vorum við að langt fram eftir
kvöldi. Við fórum meðal annars í
lestarferð til Strassborgar og skoð-
uðum höfuðstöðvar Evrópuráðsins
og eins fórum við til Basel og víðar.
Allan tímann var talað við okkur
á þýsku og okkur var uppálagt að
tala þýsku hvert við annað, sem við
gerðum í flestum tilvikum. Svindl-
uðum kannski einstaka sinnum
þegar mikið lá við. Oddný og Dan-
fríður töluðu oftast við okkur á
þýsku og við áttum að svara á
þýsku. Ef okkur rak í vörðurnar þá
leiðréttu þær okkur og kenndu okk-
ur rétta orðið. Svo þegar frá leið
var það orðið einskonar sport hjá
okkur að tala bara saman á þýsku,
sem að vísu var stundum dálítið ís-
lenskuskotin. Lestarferðirnar not-
uðum við gjarnan til að beygja
sagnir og það myndaðist ansi snið-
ugur og skemmtilegur andi í þess-
um hópi,“ sagði Alma Möller og
bætti því við að hún hefði undir lok-
in verið farin að dreyma á þýsku.
Tilhögun námskeiðsins
Oddný sagði að tilhögun nám-
skeiðsins væri í stuttu máli sú að
flogið verður héðan til Frankfurt
og þaðan ekið með rútu til Frei-
burg. Þar verður gist á nýju Dor-
int-hóteli sem er í hjarta borgar-
innar, en kennslan er í nýjum
húsakynnum Sprachenkolleg við
Kappler Strasse og er námskeiðið
haldið í samvinnu við þá stofnun og
kennarar eru þaðan.
Fjöldi kennslustunda er um það
bil 65 stundir auk annarra dag-
skrárliða sem meðal annars felast í
því að kynnast ákveðnum störfum,
félagsstarfsemi og íbúum í Frei-
burg og Svartaskógi. Námskeiðs-
gjaldið er um 125 þúsund krónur
auk flugvallarskatts og er innifalið
flug, rúta, kort í almenningsfarar-
tæki í Freiburg og nágrenni, gist-
ing á tveggja manna herbergi og
morgunverðarhlaðborð, kennsla,
kennslugögn og dagskrárliðir sem
eru hluti af námskeiðinu. Ennfrem-
ur kvöldverður fyrsta kvöldið og
lokahóf.
Oddný gat þess að lokum að
haldinn verður kynningarfundur
um námskeiðið á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskóla ís-
lands í kvöld, þriðjudaginn 23. nó-
vember.
Ný sending
af samkvæmis-
drögtum og
síðum kjólum.
Ennfremur
buxna- og pils-
dragtir við öll
tækifæri.
umiarion
Reykjavíkurvegi 64,
sími 565 1147.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
ANNAÐ útboð verkefnisstyrkja í
áætlun ESB um upplýsingatæknis-
amfélagið var formlega opnað 1.
október á heimasíðu IST-áætlunar-
innar, www.cordis.lu/ist. Aðal-
áhersla þessa útboðs er á aðgerðir
á tíu afmörkuð-
um sviðum sem
eru: Stjómun
flutningatækni; Nýir vinnuhættir
og rafræn viðskipti; Margmiðlun-
arútgáfukerfi; Einstaklingsbundin
kennsla og þjálfun; Fjöltyngd
tungutækni, stafrænt efni og þjón-
usta; Hugbúnaðarkerfiseiningar;
Opin háþróuð viðmót/skil; Aðgengi
að og tilraunir með nauðsynlega
tækni og innviði; Tilraunir með
skjákerfi, örkerfi og örtölvutækni;
Uttektir/mat á hálfleiðarabúnaði
sem er að komast á framleiðslustig.
Skilafrestur umsókna er 17. janúar
nk.
Nánari upplýsingar um þetta má
fá hjá Rannsóknarráði Islands
s.562 1320
zÍ-I 1 -
Kvik-
I mynda- og
sjónvarpsáætlun Evrópusamband-
sins. MEDIA II áætluninni er ætl-
að að efla evrópskan sjónvarps- og
kvikmyndaiðnað með stuðningi við:
menntun fagfólks, undirbúning
mynda og margmiðlunarverka,
þróun framleiðslufyrirtækja og
dreifingu myndverka. I flestum til-
fellum er þessi stuðningur í formi
vaxtalausra og skilyrtra lána en í
sumum tilfellum er einnig um
styrki að ræða. Næsti skilafrestur
til undirbúnings margmiðlunar-
verkefna og kvik-, heimildar- og
teiknimynda er 1. desember nk.
Umsóknargögn, nánari upplýs-
ingar og skráning á útsendingar-
lista fréttabréfs fást á skrifstofu
MEDIA-upplýsingaþjónustunnar,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14,
101 Reykjavík, s. 562 6366, fax. 561
7171, netfang. mediadesk@centr-
um.is, vefsíða: www.centrum.is/
mediadesk
Full búð af nýjum vörum
OpiO:
mán.-fim.
föstudaga
laugardaga
sunnudaga
10-18
10-19
10-18
13-17
Kjólar
toppar
pils
jakkar
peysur
buxur
'Oí R ❖ y k | a v ík
Oxford Street Faxafeni 8 108 Reykjavík sími: 533 1555
Léltur og meðfærilegur
GSM posi
með imibyggðum prentara
Les allar tegundir greiðslukorta
°point sem notuð eru á íslandi.
Hiíðasmára 10 [ Er með lesara fyrir
sími 544 5060 [ snjallkort og segulrandarkort.
Fax 544 5061 ^
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.