Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
.................. 11 1 ——
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Aróður í dulargervi
skoðanakönnunar
NÝLEG skoðanakönnun, sem
Samstarfsnefnd um staðarvals-
athuganir iðnaðarsvæða á Reyðar-
firði (STAR) lét gera á afstöðu ís-
lendinga til stóriðju og virkjana
hefur vakið athygli. Sérstaka at-
hygli hefur þó vakið, hvernig spurt
er um margumrætt lögforrrdegt
umhverfismat í könnuninni.
Eins og kemur glöggt fram í um-
.^öllum Morgunblaðsins 21. nóvem-
ber sl. um lög um mat á umhverfis-
áhrifum, er umsagnarréttur
almennings og annarra aðila
tryggður með þeim lögum. Gefinn
er 10 vikna frestur til að koma at-
hugasemdum á framfæri eftir að
skipulagsstjóri auglýsir skýrslu
framkvæmdaraðilans. Skipulags-
stjóra er skylt að vinna úr umsögn-
um og athugasemdum áður en
hann kveður upp úrskurð. Sá úr-
skurður getur leitt til frekara mats
og nýrrar skýrslu og hefst þá sama
10 vikna ferlið á ný. Hvort sem
skipulagsstjóri fellst á fram-
kvæmdina eða hafnar henni er
hægt að kæra úrskurðinn til um-
hverfisráðherra, sem kveður upp
lokaúrskurð.
Lög um mat á umhverfisáhrifum,
sem tóku gildi 1. maí 1994 eru birt í
heild sinni í áðumefndri umfjöllun
Morgunblaðsins. Þau taka 3 heila
dálka í blaðinu og enda þótt margir
skilji vel aðalatriði þeirra, sem fela í
sér fagleg og lýðræðisleg vinnu-
brögð, kunna líklega fáir lögin ut-
anað. Þetta notfærir staðarvals-
nefndin (STAR) sér í
skoðanakönnuninni
þegar spurt er: „Tel-
urðu að þú þekkir mik-
ið, nokkuð, lítið eða
ekkert til hvað felst í
lögum um mat á um-
hverfisáhrifum?" Eins
og við mátti búast ger-
ir almenningur lítið úr
eigin þekkingu þegar
spurt er um lagatexta.
Aðrar spurningar í
skoðanakönnuninni
eru bæði of leiðandi og
almennar til að komist
sé að kjarna málsins
þ.e. hvort almenningur
sætti sig við þau
óvönduðu vinnubrögð sem stjóm-
völd ætla að viðhafa vegna Fljóts-
dalsvirkjunar. Fljótsdalsvirkjun er
aðeins hluti hins risa-
vaxna Noralverkefnis
og það er út í hött að
undanskilja þennan
hluta verkefnisins frá
umhverfismati.
Ljóst er að núver-
andi áform um virkjun
Jökulsár í Fljótsdal
fela ekki í sér hag-
kvæmasta kostinn við
virkjun árinnar. Með
Hraunavirkjun austan
Fljótsdals fæst mun
meiri orkuframleiðsla
og þá væri hugsanlega
hægt að komast hjá
Kárahnúkavirkjun og
þeirri gífurlegu eyði-
leggingu sem hún felur í sér. Ef
menn geta hugsað sér að fórna
náttúruperlunni Eyjabökkum er
’Olafur F
Magnusson
Afburða
hljómgæði
og hönnun
Staðreyndirnar um Bose Lifestyle
eru ekki flóknar en þeim mun mikilvægari:
Þótt ekkert sé gefið eftir varðandi
hljómgæðin, eru hátalararnir mjög nettir
og meðfærilegir og afar auðvelt
að koma þeim fyrir eða
fela þá ef þess er
óskað.
Fjölþættar lausnir
eru í boði og þú velur
samstæðuna sem hentar þér.
Ýmsir stækkunarmöguleikar fyrir hendi.
Bose Lifestyle eru margverðlaunuð
hljómtæki sem sameina magnaðan hljóm
ogstílhreint útlit.
EiaDDaofLQÐcacaD
iþ
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
www.ht.ls
Virkjanir
Skoðanakönnun sú, sem
staðarvalsnefnd álvers
í Reyðarfirði lét gera,
segir Ólafur F. Magn-
ússon, virðist notuð
í blekkingar- og
áróðursskyni.
þetta betri valkostur en fyrirhuguð
Fljótsdalsvirkjun.
A sama hátt þarf að skoða til hlít-
ar þann möguleika að þyrma Eyja-
bökkum, ef menn ætla síðar að
virkja við Kárahnúka. Mögulegt er
að samnýta vatnsafl bæði Jökulsár
á Brú og Jökulsár í Fljótsdal með
aðeins einu uppistöðulóni þ.e. Háls-
lóni. Eru þá ótaldir aðrir virkjunar-
kostir, m.a. virkjun háhitasvæða í
Öxarfirði og víðar á Norðaustur-
landi.
En stjórnvöldum þessa lands
liggur á, enda hugsa menn þar á bæ
fremur um hagvöxt á þessu kjör-
tímabili en náttúruverðmæti og
hamingju komandi kynslóða. Þegar
menn leyfa sér að tala um „hag-
kvæmar virkjanir" án þess að meta
fórnarkostnað náttúrunnar á eina
einustu krónu er ekki nema von að
illa fari. Að mínu mati er verið að
valda miklu meiri náttúruspjöllum
en nauðsynlegt er til að byggja upp
orkufrekan iðnað á Austurlandi.
Skoðanakönnun sú, sem staðar-
valsnefnd álvers í Reyðarfirði lét
gera, virðist notuð í blekkingar- og
áróðursskyni. Henni er sérstaklega
beint gegn undirskriftasöfnun Um-
hverfisvina, þar sem krafist er lög-
formlegs mats á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar. Umhverfisvin-
ir hafa hvorki ráðrúm né fjármagn
til að láta gera fyrir sig skoðana-
kannanir í áróðursskyni. Þeim dytti
heldur ekki í hug að beita slíkum
vinnubrögðum
Umhverfisvinir munu í samræmi
við góðan málstað sinn berjast af
auknum krafti fyrir því, að fram
fari lögformlegt mat á umhverfis-
áhrifum Fljótsdalsvirkjunar. Að-
eins með því móti getur ríkt sátt í
stað sundrungar meðal þjóðarinnar
í upphafi nýrrar aldar.
Höfundur er læknir og talsmnður
Umh verfisvina.
Húsgögn, ljós
og gjafavörur
<
w
nj
>
Munið
brúðargjafalistann
MÖRKINNI 3
SÍMI 588 0640 • FAX 588 0641