Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 57

Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 57 MINNINGAR Genginn er góður maður. Blessuð sé minning hans. Hanna Unnsteinsdóttir. Eggert Steinþórsson læknir er genginn á fund feðra sinna, þeirra Gautlandamanna, er settu drjúgan svip á þjóðlíf íslendinga á sínum tíma. Hann fæddist og ólst upp í Mývatnssveit og bar ávallt hlýjan hug til æskustöðva sinna, ekld síður en móðurbróðir hans, Sigurður skáld á Amarvatni. Eggert gekk menntaveginn eins og sagt er, gerðist læknir og naut virðingar og trúnaðar í sinni stétt. Eggert var skarpgreindur, yfir- vegaður jafnvægismaður, hafði skemmtilega samræðuhæfileika og var mikill húmoristi. Hann gat ver- ið snyrtilega hæðinn, einkum ef menn töldu sig meiri en efni stóðu til. Eggert var mjög vinsæll í sínu starfi og mörgum kom hann til góðrar heilsu eftir mikii veikindi. Mörgum stundum varði hann til lestrar, átti mikið og gott bókasafn, enda fróður um margt. Hann var útivistarmaður, hafði yndi af lax- og silungsveiðum og stundaði þær í frítímum sínum. Eggert átti góða og samhenta fjölskyldu. Kona hans var Gerður Jónasdóttir Jónssonar frá Hriflu, þess fræga manns og konu hans Guðrúnar Stefánsdóttur. Gerður er vitur kona og væn og hún gerði allt sem í hennar valdi stóð til þess að gera líðan manns síns sem bærileg- asta í veikindum hans. Þar er og hlutur Guðrúnar, dóttur þeirra, ómældur. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þessum góða manni og votta fjölskyldu hans mikla samúð mína. Jón Benediktsson, Höfnum. Handrit afmælis- og minningargreina skuiu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfínu, ekki sem við- hengi. Nánari upplýsingar má lesa á heima- síðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfílega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Fannar Bjarki Ólafsson fæddist 6. janúar 1993. Hann andaðist á Barnaspítaia Hringsins aðfaran- ótt miðvikudagsins 3. nóvember. Utför Fannars Bjarka fór fram frá Digranes- kirkju miðvikudag- inn 10. nóvember sl. Elsku drengurinn okkar afa og ömmu. Héma sit ég við eld- húsborðið með mynd af þér og kertaljós. A myndinni ert þú orðinn fjögurra ára, stór og fal- legur drengur með þitt þykka og fallega rauða hár og löngu augn- hárin þín sem stundum varð að greiða í sundur. Þau hafðir þú frá mömmu þinni en rauða hárið frá pabba þínum. Já, þarna á myndinni ert þú fjögurra ára, en ári áður, þá svo heilbrigður og kátur þriggja ára snáði, fótboltastrákur, bfla- deflukarl og mikið gefinn fyrir tón- list. En hvað gerðist, jú, þú varst á leikskólanum og ein fóstran tók eft- ir því þar sem þið bömin stóðuð og sunguð að þú varst eitthvað ein- kennilegur, gekk hún þá til þín en um leið feUur þú í gólfið. Þetta reyndist flogakast, þau áttu eftir að verða fleiri og ganga mjög nærri þér. Niðurstaða rannsókna leiddi í ljós að þú værir haldinn ólæknandi sjúkdómi. Við tók erfið bið í ein- lægri von um að við þyrftum ekki að missa þig, elsku drengurinn okk- ar. Ekkert í veröldinni var yndis- legra en þegar þú komst í heiminn, frískur lítill rauðkoUur, fyrsta og eina bamabarn ömmu og afa í Gullsmáranum. Heimsóknimar yndislegar og þegar afi og amma fengu að passa drenginn sinn var sungið og dansað meðan hægt var, seinna var áfram lesið og sungið, tónUst var líf þitt og yndi. Spólum- ar vora skoðaðar, í mestu upp- áhaldi var Palli póstur og þú hafðir mikið dálæti á Dodda- bókunum og mest var gaman þegar amma breytti röddinni eftir sögupersónum. Við áttum líka góðar stundir austur í bú- stað, t.d. að busla í „stóra baðinu hans afa“. Margar góðar minningar rifjast upp, en veikindin fóra að taka sinn toU og smám saman dró úr hæfileik- anum til að tjá sig og hreyfa. Foreldrar þínir lögðu hart að sér fyrir litlu hetjuna sína, mamma þín varð að hætta að vinna og varði öllum stundum með þér og sá tU þess að lífsgæðin væra sem mest við þessar erfiðu aðstæð- ur, klæddi þig upp í falleg fót og fór út að ganga með þig meðan heilsan leyfði. Pabbi þinn kom upp á spítala beint eftir vinnu á daginn og þar vora þau fram yfir miðnætti þar tU drengurinn þeirra var sofnaður og margar nætur vöktu þau yfir þér. Sjúkdómsstríðið tók fjögur erfið ár, en jafnframt dýrmæt ár okkur sem fengum að vera með þér. Samhentari foreldra var ekki hægt að hugsa sér í umönnun og ást tfl drengsins síns. Það vora oft þungbærar stundir, en aldrei gefist upp. Eitt af góðverkum læknisins þíns var að koma foreldram þínum í samband við foreldra drengs sem látist hafði úr sama sjúkdómi. Það samband er foreldranum mikill styrkur. Starfsfólki á deild 12-E þökkum við alla þá umhyggju og hlýhug sem þau sýndu Fannari Bjarka og fólkinu hans. Guð blessi þau og öll þeirra verk. Jafnframt viljum við þakka starfsfólki Lyngáss og Evu systur Örnu fyrir þeirra stuðning. Nú er komið að leiðarlokum, við kveðjum þig með sáram söknuði og trega, elsku litli drengurinn okkar. Guð almáttugur taki á móti þér og varðveiti þig, að eilífu. Amma og afi f Guilstnáranum. FANNAR BJARKI ÓLAFSSON + Hjartans litla dóttir okkar, systir og bama- barn, KRISTÍN ÞÓRDÍS SIGTRYGGSDÓTTIR, Ástúni, 14, Kópavogi, lést á vökudeild Bamaspítala Hringsins fimmtu- daginn 18. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Bamaspítala Hringsins. Katrín Helga Reynisdóttir, Sigtryggur Harðarson, Kristján Páll Rafnsson, Kristinn Reynir Kristinsson, Pálína Ágústa Jónsdóttir, Hörður Halldórsson, Þórdís Sigtryggsdóttir. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESARJÓNSSONAR, Hóli, Höfðahverfi. Sérstakar þakkir til starfsfólks og heimilisfólks Grenilundar. Árni Jóhannesson, Sigríður Stefánsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Haraldur Haraldsson, Jón V. Jóhannesson, Guðný Kristinsdóttir, Sveinn Jóhannesson, Halldór Jóhannesson, Þórsteinn Jóhannesson, Rósa Jóakimsdóttir, Anna Jóhannesdóttir, Þórólfur Þorsteinsson, Tómas Jóhannesson, Bergdís Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför ást- kærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRHALLU FRIÐRIKSDÓTTUR, Kirkjuvegi 1, Keflavík, Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sjúkrahúss Suðurnesja. Harpa Þorvaldsdóttir, Birgir Guðnason, Ása Ásmundsdóttir, Sigurður G. Eiríksson, Árni Ásmundsson, Margrét Ágústsdóttir, börn og barnabörn. ATVINNU AUGLÝSINGAR ORKUSTOFN U N GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYK]AV(K Yfirverkefnisstjóri Rannsóknasviðs Starf yfirverkefnisstjóra Rannsóknasviðs Orku- stofnunar er laust til umsóknar með umsóknar- fresti til 6. desember 1999. Starfið felur m.a. í sér yfirumsjón með verkefn- um Rannsóknasviðs, framgangi þeirra og ráð- stöfun manna í verkefni, skipulagningu, verk- efnaöflunar, gerð tilboða og verksamninga og sérfræðivinnu og ráðgjöf í jarðhitamálum. Nánari lýsing á starfinu ásamt upplýsingum um hæfniskröfur og fleira fást í afgreiðslu Orkustofnunareða á heimasíðu hennar, slóðin er: http:/AA/ww.os.is/ros/auglysing.html. Orkumálastjóri. Kennarar Elli- og hjúkrunarheimilið Grund Sjúkraþjálfari Sjúkraþjálfari óskast til starfa. Um er að ræða a.m.k. 50% stöðu með möguleika á að taka fólk í göngudeildarþjálfun. Á Grund er gott og þægilegt vinnuumhverfi meðfullkominni aðstöðu til sjúkraþjálfunar. Allar nánari upplýsingar veita Fríða eða Ágústa í síma 552 6222. Hei þú, já þú! Vantar þig vinnu? Alþjóðlegt fyrirtæki opnað á íslandi. Hlutastörf 1.000—2.000 þús. dollarar á mánuði. Fullt starf 2.000—4.000 dollarar á mánuði. Upplýsingar gefur Sigríður í síma 699 0900. Global Refund á íslandi hf. Bókari Global Refund á íslandi hf. óskar eftir að ráða bókara í hlutastarf. Um er að ræða fram- tíðarstarf. Fyrirtækið er hluti af alþjóðlegri keðju, sem sérhæfir sig í endurgreiðslu á VSK til ferðamanna. Global Refund var stofnað á íslandi árið 1996 og er í örum vexti. Um er að ræða lítinn og notalegan vinnustað með mjög fjölbreyttu og skemmtilegu vinnuumhverfi. Starfssvið ★ Færsla á bókhaldi. ★ Skjalavistun. ★ Almenn skrifstofustörf. ★ Símsvörun og móttaka. Hæfniskröfur ★ Reynsla af bókhaldi. ★ Töívukunnátta, Word og Excel. ★ Mjög gott vald á talaðri og ritaðri ensku. ★ Hæfni í mannlegum samskiptum. — íþróttakennarar Kennara vantar í Grenivíkurskóla frá næstu áramótum til að kenna íþróttir og bóklegar greinar. Nánari upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 463 3118 eða 463 3131. Aldamót án aukakílóa Ný öflug vara. Alma missti 11 kg á 9 vikum. Síðasta sending seldist upp. Persónuleg ráðgjöf og stuðningur. Upplýsingur veitir Lovísa í síma 868 1327. Umsókn, ásamt mynd, þarf að berast Global Refund fyrir mánudaginn 29. nóvember nk., merkt: „Bókari". Global Refund á íslandi hf„ Kaplahrauni 15, GLOBAL REFUND" 220 Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.