Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 80
80 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOIABIO
# *
HASKOLABIO
Sýnd kl. 5 oq 7 íslenskt tal.
James Bond er mættur í sinni stærstu mynd hingað til! Pierce
Brosnan, Robert Carlyle, Sophie Marcueau og Denise Richards
fara á kostum og hasaratriðin slá öllu við.
Algjörlega ómissandi mynd.
.Snilld" HK Fókus
www.samfilm.is
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri óskar Mörtu Nordal og Baldri
Trausta Hreinssyni til hamingju með góðan leik í Bláa herberginu.
Bláa herbergið
frumsýnt
AFÖSTUDAGSKVÖLD var
leikritið Bláa herbergið
frumsýnt á stóra sviðinu í
Borgarleikhúsinu. I öllum tiu hlut-
verkunum eru Baldur Trausti
Hreinsson og Marta Nordal, og það
er María Sigurðardóttir sem leik-
ífltýrir þeim.
Bláa herbergið er eftir breska
leikritaskáldið David Hare og bygg-
ir hann það á þýska leikritinu Reig-
en, en einnig hefur þekkt frönsk
kvikmynd, La Ronde frá 1950, verið
gerð eftir sama verki. I því er fjallað
um samskipti kynjanna og er mörg-
um ólíkum spurningum kastað fram;
hvað dregur fólk hvort að öðru og
hveiju fólk sækist eftir með kynlífi.
Hvað er gott siðferði í kynlífi?
Eftir sýninguna ríkti mikil gleði í
Borgarleikhúsinu enda flestir sam-
mála um að Marta og Baldur Trausti
hafi staðið sig með prýði í erfiðu við-
fangsefni. Gestum og starfsmönnum
lcikhússins voru boðin dýrindis
veisluföng og undir lék sveitin
Leynifélagið nokkra notalega cjjass-
standarda.
María Sigurðardóttir lcikstjóri og Helga I. Stefánsdóttir húningahönn-
uður voru ánægðar með frumsýninguna.
Kristm Johannesdottir og Sigurður Pálsson osku leikkonunm til
hamingju.
Nýjasta tískan
í Kínaklæðum
KÍNVERJAR eru nú óðum að
taka upp vestræna siði og til
merkis um það eru þeir dug-
legir að halda tískusýningar og er
þar síst fornfálegri klæðnaður á boð-
stólum en á sýningum í Evrópu eða
vestanhafs. Núna stendur yfir sex
daga tískuvika í höfuðborginni Pek-
ing og auk þess að sýna fjölbreytnina
í kínverskri fatahönnun er meiningin
að kjósa besta hönnuðinn í hópnum.
Þessar þrjár eru í skrautlegra
lagi og ekki ólíklegt að fatnaður-
inn sé hugsaður fyrir einhver há-
stemmd tilefni. Kannski kín-
verskar konur klæðist einhverju
svipuðuá gamlárskvöld?
Glæsilegar kínverskar fyrirsætur gefa vestrænum sprundum
ekkert eftir.
Tískuvika í Kína
■HMIWWBlilBIIIH
Kröftug
mótmæli
spilltu
ekki fyrir
STÚLKAN sem sigraði í feg-
urðarsamkeppninni ungfri
heimur siðastliðinn laugar-
dag er tvítug, frá Indlandi, og
heitir Yukta Mookhey. Ungfrú ísl-
and, Katrúi Rós Baldursdóttir, var
meðal keppenda cn alls tóku stúlk-
ur frá 93 löndum þátt í keppninni
sem haldin var í London í ár. Mikil
mótmæli höfðu átt sér stað vegna
keppninnar í London og mótmæl-
endur söfnuðust saman fyrir utan
samkomuhúsið þar sem keppnin
var haldin og líktu henni við
gripasýningu. En hin indverksa
Yukta lét það ekki á sig fá. „Allt
frá því ég var lítil stelpa hefur mig
dreymt um að vera metin að verð-
leikum vegna skoðana minna,
hugsjóna og persónuleika," sagði
hún í viðtali eftir keppnina.
Fegurðarsamkeppnir hafa alla
tíð verið umdeildar og var þess
gætt í ár að andstæðingar hennar
Reuters
Yukta Mookhey frá Indlandi sigraði í keppninni Ungfrú heimur en
ungfrú Suður Afríka, Sonia Raciti (t.v.) og ungfrú Venesúela, Martina
Thorogood urðu í 2.-3. sæt.i.
gætu ekki notað þau rök að aðcins
karlmcnn dæmdu stúlkurnar og
var helmingur dómaranna konur.
Stúlkurnar komu heldur ckki
fram á baðfötum á sviðinu í ár
hcldur fóru þær ásamt kvik-
myndatökuliði til Möltu þar sem
fjörlegt strandaatriði var tekið
upp og sýnt á skjá í keppninni
sjálfri.
Ekki geta þó allir fallist á það
að persónuleiki og innri fegurð
skipti eins miklu máli og aðstand-
endur keppninnar vilja halda
fram heldur sé sakleysislegt jóm-
frúarútlit það sem skipti máli um
valið á sigurvegara.
Hvað sem öllum inótmælum og
vangaveltum Iíður var kvöldið hið
glæsilegasta og er talið að um
einn milljarður manna hafi fylgst
með keppninni í sjónvarpi um all-
an heim. Ungfrú Bandaríkin varð
ekki sigursæl en í viðtali kom hún
fram með eftirminnilega fullyrð-
ingu sem mun síst verða til þess að
keppnin verði talin snúast um út-
geislun, greind og iimri fegurð.
Var stúlkan spurð að því hver
væri heista áskorun sem hún hefði
staðið frammi fyrir á lífsleiðinni
og eftir stutta umhugsun svaraði
hún: „Að reyna að komast að því
hver ég er.“