Morgunblaðið - 03.02.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lést í
bflslysi á
Reykja-
nesbraut
Járnblendifélagið og Norðurál stofna hafnarfyrirtækið Klafa um Grundartangahöfn
Ætlað að sinna uppskipun-
arþörfum beggja fyrirtækja
ÍSLENSKA járnblendifélagið og Norðurál á
Grundartanga hafa sameiginlega stofnað fyrir-
tækið Klafa til að annast starfsemi við Grund-
artangahöfn og kemur fram í fréttatilkynningu,
sem gefín var út í gær, að Kláfa sé ætlað að
anna þörfum beggja fyrirtækjanna fyrir upp-
skipun hráefna og útskipun afurða, en áður hafí
félögin sinnt þessum verkum hvort í sínu lagi.
Klafi er í jafnri eigu beggja fyrirtækjanna, að
því er segir í tilkynningunni, og gera áætlanir
ráð fyrir hagræði af samstarfi um höfnina.
Klafa er einnig ætlað að þjónusta aðra skipa-
umferð um Grundartangahöfn, en til þessa hef-
ur slík þjónusta ekki staðið sjófarendum til
boða. Kveðast eigendur hafnarinnar vænta þess
að hafnarfyrirtækið muni leiða af sér aukna
vöruveltu um Grundartangahöfn og uppbygg-
ingu á hafntengdri starfsemi á Grundartanga-
svæðinu.
Nýráðinn framkvæmdastjóri Klafa er Guð-
mundur Eiríksson, sem var áður tæknilegur
framkvæmdastjóri hjá Loftorku í Borgarnesi.
Stjórn Klafa skipa Ragnar Guðmundsson frá
Norðuráli og Bjarni Bjarnason frá íslenska
járnblendifélaginu.
Flutningar gætu numið 1,5 milljón
tonnum á ári
Höfnin á Grundartanga var upphaflega gerð í
lok 8. áratugarins til að mæta þörfum Islenska
járnblendifélagsins. Eigendur hafnarinnar eru
sveitarfélög á Vesturlandi. Árið 1997 var hafist
handa við stækkun Grundartangahafnar vegna
byggingar álvers Norðuráls. Stækkun hafnar-
innar lauk árið 1998 og þjónar hún öllum hafn-
arþörfum beggja fyrirtækjanna. 60.000 tonna
skip geta lagst að nýja viðlegukantinum í höfn-
inni við góðar aðstæður.
Sjóflutningaþörf Norðuráls við 60.000 tonna
framleiðslu nemur 220 þúsund tonnum á ári en
í framtíðinni er áætlað að hún geti orðið allt að
einni milljón tonna á ári. Arlegir flutningar
Járnblendifélagsins um Grundartangahöfn
nema nú um 530 þúsund tonnum. Heildarflutn-
ingar beggja fyrirtækjanna um höfnina gætu
numið um 1,5 milljónum tonna innan nokkuri’a
ára, segir í tilkynningunni.
Þar kemur fram að nafnið Klafi sé sótt í jarð-
arnafnið Klafastaðir en verksmiðja Járnblendi-
félagsins og hluti Norðuráls standi í landi
Klafastaða.
KONAN sem lést í bílslysi á
Reykjanesbraut við Kúagerði
síðstliðinn þriðjudag hét Anna
Margrét Pétursdóttir, til heim-
ilis í Einihlíð 12 í Hafnarfirði.
Anna Margrét var 41 árs að
aldri, fædd 9. september árið
1958. Hún lætur eftir sig eigin-
mann, Pál Kristjánsson og einn
son, Kristján.
Dóttir Önnu Margrétar og
Páls, Asa Pálsdóttir, lést í bíls-
lysi hinn 4. maí síðastliðið vor,
þá fimmtán ára, er ekið var á
hana á gangbraut yfir Reykja-
nesbraut við Öldugötu í Hafn-
arfirði.
Fórust í
flugslysi
MEÐAL farþega í MD-83 far-
þegaþotu Alaska Airlines, sem
hrapaði í Kalifomíuflóa aðfara-
nótt síðastliðins þriðjudags
voru hinn íslenzkættaði Karl
Karlsson og kona hans Carol
Karlsson.
Þau bjuggu í Petaluma í ná-
grenni San Francisco en Karl
hafði búið vestanhafs í 40 ár eða
írá 10 ára aldri. Hann var
fæddur í Reykjavík árið 1949
og starfaði sem lögreglumaður
vestanhafs og var nýlega kom-
inn á eftirlaun. Hann lætur eft-
ir sig þrjú uppkomin böm með
fyrri eiginkonu sinni.
Hann og kona hans Carol
höfðu verið í tíu daga leyfi í Pu-
erta Vallarta.
Staðall gefínn út
fyrir dyraverði
NYR breskur staðall fyrir dyra-
verði kom á markað í lok síðasta
árs. Hann er saminn með þá í
huga sem annast dyravörslu og
móttöku gesta og einnig þá sem
kaupa þjónustu dyravarða. Að
staðlinum standa þeir sem eiga
hagsmuna að gæta í sambandi við
dyravörslu. I staðlinum er að finna
leiðbeiningar um útlit og fram-
komu, leit á fólki og hvernig eigi
að taka á ágreiningi. Þetta kemur
fram í fréttabréfi Staðlaráðs fs-
lands, Staðlamál. íslenskum veit-
ingahúsum stendur þessi staðall til
boða.
Þá er einnig í staðlinum fjallað
um aðferðir við skýrslugjöf og
skráningu atvika. Gerð er krafa
um þjálfun dyravarða og fylgir
lýsing á því hvað hún eigi að fela í
sér. Þar má nefna þekkingu á eit-
urlyfjum, skyndihjálp og bruna-
vörnum. Lögð er áhersla á þjón-
ustu við viðskiptavini og félagslega
færni, meðal annars færni í líka-
mstjáningu til að koma í veg fyrir
að ágreiningur þróist út í ofbeldi.
í Bretlandi er dyravarsla orðin
viðurkennd starfsgrein og dyra-
verðir ekki lengur flokkaðir sem
útkastarar. Það er í mörgum til-
fellum í dyravörslunni sem andlit
fyrirtækisins birtist gestum og því
huga framsækin fyrirtæki betur
en áður að þessum þætti. Hjörtur
Hjartarson, kynningarstjóri
Staðlaráðs íslands, taldi ekki lík-
legt að íslenskir aðilar færu að
taka upp þennan staðal, því ólíkt
dyravörslu í Englandi væri það fag
ekki orðið hefðbundin atvinnu-
grein á íslandi. Hér væru menn
meira að vinna sem dyraverðir í
íhlaupavinnu og engin fyrirtæki
sem sérhæfðu sig í þessari þjón-
ustu eingöngu, líkt og víða erlend-
is. Hann taldi þó ekki loku fyrir
það skotið að einhverjir aðilar
myndu kynna sér málið, því mikils
virði væri að kynna sér slíkan
staðal þar sem dregin er saman
reynsla fjölmargra hagsmunaaðila
í dyravörslu.
Risaskip á Grundartanga
TVÖ risastór flutningaskip lágu
samtímis við bryggju í Grundar-
tangahöfn í gær.
Að sögn Péturs Baldvinssonar
hafnarsijóra var annað skipið, Lea-
der, að flytja 16.500 tonn af súráli
til Norðuráls. Skipið er ekki full-
lestað en burðargeta þess er 37.500
tonn og það er skráð í Panama. Hitt
skipið, Highland Trust, er með
4.200 tonn af koksi til íslenska jám-
blendifélagsins. Burðargeta skips-
ins er 42.800 tonn.
Andlát
LIJÐVÍK
KRISTJÁNSSON
LÚÐVÍK Kristjáns-
son rithöfundur lést
1. febrúar síðastlið-
inn, 88 ára að aldri.
Lúðvík var kunnast-
ur fyrir hið mikla rit
sitt Islenskir sjávar-
hættir.
Lúðvík fæddist í
Stykkishólmi 2.
september 1911.
Foreldrar hans
voru Kristján Árna-
son frá Jaðri í Ólafs-
vík og Súsanna Ein-
arsdóttir.
Lúðvík stundaði
nám í Flensborg
Lúðvík Kristjánsson
rithöfundur.
Heimilislína Búnaðarbankans - ræktaðu garðinn þinn
Gullreikningur með hærri innlánsvöxtum • Lægri vextir á yfirdrætti
Heimilisbanki á Netinu • VISA farkort • Fjármögnunarleiðir
Greiðsluþjónusta • Ávöxtunarleiðir
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
fffájft/fK
HEIMILISLÍNAN
veturinn 1926-1927 og
lauk þaðan gagnfræða-
prófi vorið 1929. Eftir
nám í Flensborg stundaði
hann kennslu í Fróðár-
hreppi veturinn 1929-
1930. Síðan lauk hann
kennaraprófi vorið 1932.
Hann fékk leyfi til að
sækja kennslustundir í
Háskóla íslands og var
nemandi þar um tveggja
vetra skeið, 1932-1934.
Hann kenndi í Miðbæjar-
skólanum frá 1932-1944.
Árið 1937 gerðist Lúð-
vík ritstjóri Ægis, tíma-
rits Fiskifélags íslands,
og þeirri stöðu gegndi
hann til 1954 og var jafnframt kenn-
ari á vélstjóranámskeiðum félags-
ins. Frá árinu 1964 sneri Lúðvík sér
alfarið að ritun fslenskra sjávar-
hátta, sem voru gefnir út í fimm
bindum á tímabilinu 1980-1986. Auk
þess skrifaði hann margar bækur
um sagnfræðileg efni, ásamt því að
rita fjölda greina í blöð og tímarit.
Lúðvík var sæmdur heiðursdoktors-
gráðu Háskóla íslands árið 1981.
Hann kvæntist 30. október 1936
Helgu Jónsdóttur, sem lést 1. apríl
1989. Hann lætur eftir sig þrjú
börn.