Morgunblaðið - 03.02.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 27
ERLENT
Svíar deila um lög sem skylda símafyrirtæki til að opna fjarskiptanet sín
Sahlin gagnrýnd
fyrir rangfærslur
Foreldrar
ábyrgir
TVÖ af hverjum þrem ung-
börnum sem deyja vöggu-
dauða í Bretlandi, látast vegna
þess að foreldrar líta ekki
nægilega vel eftir þeim, að því
er ný rannsókn bendir til. Nið-
urstaða rannsóknarinnar, sem
unnin var í samvinnu opin-
berra aðila og félagasamtaka í
Bretlandi, var sú að í um 60%
tilvika mætti rekja vöggu-
dauða til vanrækslu eða van-
þekkingar foreldra.
Rannsóknin tók til 450
barna, allt frá einnar viku
gömlum, sem látist höfðu á ár-
unum 1993-96 í mið-vestur-
Englandi. í 325 tilvikum hafði
engin skýring fundist á dauða
barnanna og voru þau flokkuð
sem vöggudauði.
Tilfellum vöggudauða hefur
fækkað mjög í Bretlandi á síð-
ustu árum, voru 295 árið 1998
en 403 árið á undan.
Ræddu um
kjarnavopn
ÞINGMENN á ísraelska
þinginu, Knesset, ræddu í gær
í fyrsta skipti um kjarna-
vopnabúr landsins. Arabískur
þingmaður, Issam Mahoul,
efndi til umræðnanna en hafði
áður leitað til hæstaréttar til
að knýja þær fram. Hann
krafðist þess að stjórnvöld
viðurkenndu opinberlega að
Israel ætti kjarnavopn og að
stefnt yrði að því að eyða
þeim.
Umræðurnar urðu fljótlega
mjög háværar og sökuðu gyð-
ingar úr röðum þingmanna
arabíska kollega sína um að
stefna í voða öryggishagsmun-
um ríkisins. Á þriðja tug þing-
manna gengu úr þingsal áður
en umræðurnar hófust til að
tjá andúð sína á því að málið
skyldi tekið fyrir í Jjinginu.
Stjórnvöld í Israel hafa
aldrei viðurkennt opinberlega
að landið ráði yfír kjarnavopn-
um.
Innflutnings-
bann úr
gildi?
ÞYSKA ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær að leggja til við
þingið að innflutningsbann á
bresku nautakjöti verði numið
úr gildi í samræmi við ákvörð-
un framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins frá því í
ágúst á síðasta ári. Þá ákvað
framkvæmdastjórnin að heim-
ila aftur útflutning á bresku
nautakjöti eftir að sýnt þótti
að búið væri að eyða hættu á
að neysla þess ylli kúariðu í
mönnum, s.k. Kreutzfeldt-
Jakob-sjúkdómi.
Hingað til hafa þýsk stjórn-
völd neitað að verða við kröf-
um ESB um að aflétta inn-
flutningsbanni. Ákvörðun um
að heimila innflutning að nýju
öðlast ekki gildi fyrr en efri
deild þýska þingsins, Bund-
esraat, hefur fjallað um málið.
Efrí deildin er skipuð fulltrú-
um sambandslandanna og
gera þýsk lög ráð fyrir að
samþykki hennar þurfi til að
hægt sé að taka ákvarðanir er
varða hollustuvernd. Þing-
menn Bundesraat munu
greiða atkvæði um ákvörðun
ríkisstjórnarinnar í mars og er
búist við því að innflutningur á
bresku nautakjöti til Þýska-
lands muni hefjast í kjölfarið.
í SVÍÞJÓÐ er nú deilt um laga-
frumvarp sem samið hefur verið að
undirlagi Monu Sahlin, aðstoðarráð-
herra efnahagsmála, og skyldar far-
símafyrirtæki að opna fjarskiptanet
sín fyrir keppinautum. Þrjú fyrirtæki
hafa á undanfórnum árum byggt upp
farsímanet í Svíþjóð, ríkisfyrirtækið
Telia og tvö einkafyrirtæki, Europol-
itan og Comviq. Að mati ríkisstjóm-
arinnar er nú svo komið að fákeppni
ríkir á markaðnum sem hefur valdið
því að verðsamkeppni er ekki virk.
Ný fyrirtæki eiga erfitt með að hasla
sér völl á sviði farsímaþjónustu vegna
sterkrar stöðu þeirra sem fyrir eru.
Til að leiðrétta ástandið og ná verði
þjónustunnar niður lagði Sahlin í des-
ember á síðasta ári fram tillögur um
að þessum fyrirtækjum yrði fram-
vegis gert skylt að veita öðrum afnot
að farsímanetum sínum gegn leigu-
gjaldi. Sahlin rökstuddi nýju reglu-
mar á þá leið að miðað við tölur um
hagnað þessara fyrirtækja væri Ijóst
að fjárfestingar þeirra í farsímakerf-
um væra fyrir löngu búnar að skila
sér aftur.
Fyrirtækm þrjú sem um ræðir
hafa alfarið hafnað rökum aðstoðar-
ráðherrans og neita því að fjárfest-
ingar þeirra hafi þegar skilað sér til
baka. Hagfræðingar sem önnuðust
rannsóknir fyrir efnahagsráðuneytið
við undirbúning framvarpsins hafa
tekið í sama streng.
Eiga að fá að njóta ávaxtanna
Svenska dagbladet hefur bent á að
ríkisstjómin hafi á sínum tíma gert
samning við fjarskiptafyrirtækin
þegar uppbygging farsímanetanna
var að hefjast. Ríkið hafi gefið fyrir-
tækjunum leyfi til framkvæmdanna
gegn því að þau tækju á sig mögulegt
tap af rekstrinum en fyrirtækin
fengju hins vegar að njóta ábatans ef
vel gengi. Ljóst sé að fyrirtækin hafi
tekið umtalsverða áhættu með því að
fara út í að byggja upp eigin farsíma-
net og þeim beri réttur til að njóta
ávaxtanna.
Þegar hafa verið gerðar breyting-
ar á framvarpi Sahlin, m.a. að kröfu
sænska lagaráðsins. Ráðið krafðist
t.d. breytinga á ákvæði sem fól í sér
að sænska póst- og símamálastofnun-
in úrskurðaði ef deilumál milli neteig-
enda og þeirra sem leigja aðgang
kæmu upp. Þess í stað vill ráðið að al-
mennir dómstólar fjalli um ágreining
milli aðila.
Isuzu
Oflugasta díselvélin sem völ er á
159 hestöfl
Sjálfskiptur
eða beinskiptur, þitt er valið
Komdu, skoðaðu og prófaðu
öflugasta jeppann.