Morgunblaðið - 03.02.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 03.02.2000, Blaðsíða 58
i ^ 58 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Viðurkenndir bókarar útskrifaðir: Frá vinstri: Ragnheiður Snorradóttir, form. prófnefndar, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Inga Jóna Óskarsdótt- ir, Gísli Jóhannes Grímsson, Friðþjófur K. Eyjólfsson, Kristinn Guðmundsson, Kristinn Á. Einarsson, Anna Karlsdóttir, Guðrún Ó. Guðmundsdóttir, Hulda Júliusdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir og Kolbrún Hilmarsdóttir. ✓ Utskrift viðurkenndra bókara VIÐURKENNDIR bókarar voru í fyrsta sinn útskrifaðir síðasta föstudag. Geir H. Haarde fjár- málaráðherra afhenti viðurkenn- ingarskírteini til þeirra sem luku prófi. „Með 1. gr. Iaga nr. 29/1997, um breytingu á lögum um bók- hald var ákveðið að setja á lagg- irnar námskeið og próf fyrir þá sem vilja öðlast viðurkenningu sem bókarar. I viðurkenningunni felst að viðkomandi hefur staðist próf í bókfærslu, helstu atriðum reikningsskila og lögum og reglum um skattskil, auk þess sem þeir þurfa að fullnægja ákveðnum almennum hæfis- skilyrðum sem talin eru upp í lög- unum. Markmið viðurkenningar- innar samkvæmt lögunum er fyrst og fremst að horfa til þeirra sem kaupa bókhaldsþjónustu. Með op- inberri viðurkenningu sem þess- ari má gera ráð fyrir þegar fram Iiða stundir að sá sem vill kaupa þjónustu af hæfum aðila geti gengið að því vísu að fá slíka þjónustu ef fyrir liggur að við- komandi þjónustuaðili hefur stað- ist próf samkvæmt lögunum. Gerður var samningur milli fjármálaráðuneytisins og Við- skiptaháskólans í Reykjavík, nú Háskólans í Reykjavík, um nám- skeiðahald í þessu skyni. Á fyrsta námskeiðinu sem haldið var á haustdögum voru skráðir 24 þátt- takendur og hafa nú tfu þeirra lokið prófum og fá því til staðfest- ingar afhenta viðurkenningu ráð- herra. Er þeim þar með heimilt að kalla sig viðurkennda bókara. Öðrum en þeim sem uppfylla of- angreind skilyrði er óheimilt að nota heitið viðurkenndur bókari," segir í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu. I3IOMIEGÁ E-vítamín I VÍTAM {N 3 i Sindurvari sem verndar frumuhimnur líkamans. Fæst í næsta apóteki. O Omega Farma Blöndunartæki Moratemp High-Lux hentar sérlega vel í eldhúsum þar sem koma þarf háum Ilátum undir kranann. Mora - Sænsk gæðavara Æhrfömdfc TeflGI ■—■IIIB-Illlf-'M Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089 Fást i bygginga vöru versluiium tim l.wtl alll Styðja kröfur VMSÍ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi samþykkt frá Samninganefnd Stéttarfé- lagsins Samstöðu: „Samninganefnd Stéttarfé- lagsins Samstöðu lýsir yfir fullum stuðningi við fram komnar kröfur Verkamanna- sambandsins og Landssam- bands iðnverkafólks vegna komandi kjarasamninga. Samninganefndin minnir á að það umtalaða ástand sem ákveðnir aðilar í þjóðfélaginu halda nú mjög á lofti, er ekki af völdum launahækkana til fé- lagsmanna áðurnefndra lands- sambanda, það ættu stjómvöld í það minnsta að hafa hugfast, það sýnir líka skuldaþróun fjölskyldnanna í landinu. Samninganefnd Stéttarfé- lags Samstöðu skorar á launa- fólk að sýna í verki samstöðu og samtakamátt hreyfingar- innar og mynda það bakland sem þarf til að ná fram þeim sanngjörnu kröfum sem lagðar hafa verið fram þeim lægst- launuðu í landinu til hagsbóta.“ VasHhugi A L H L I D A VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR I Fjárhagsbókhald I Sölukerfi I Viöskiptamanna kerfi l Birgðakerfi I Tilboðskerfi I Verkefna- og pantanakerfi i Launakerfi I Tollakerfi Vaskhugi ehf. Síöumúla 15 - Simi 568-2680 Strik.is á WAP Tölvupóstur og dagbók í farsímann NETÞJÓNUSTA á Striki.is var frá og með miðvikudeginum 26. janúar aðgengileg þeim farsímanotendum sem eru með WAP-síma. Þeir sem hafa skráð sig inn á Strikið geta þannig meðal annars náð í og lesið tölvupóst og fylgst með gengi hlutabréfa og gjaldmiðla, auk þess sem þar má finna fréttir Morgun- blaðsins á mbl.is. Það var Asgeir Friðgeirsson, framkvæmdastjóri Islandsnets, sem opnaði þessa þjónustu á ráðstefnu Íslandssíma um WAP-tækni á Hótel Loftleiðum. „Strik.is verður þannig fyrsta al- menna þjónustugáttin á íslandi til að bjóða efni og þjónustu í gegnum WAP, en hingað til hafa einstakir þjónustuaðilar á borð við banka- stofnanir opnað gáttir sínar,“ segir í fréttatilkynningu. „Á allra næstu dögum verður WAP-þjónusta Striksins aukin enn frekar, meðal annars með því að bjóða þjónustu banka og fyrirtækja á borð við Gulu línuna, Tal og fleiri. Fréttir úr heimi íþrótta, viðskipta, fjármála og tölvutækni verða í boði innan skamms og síðast en ekki síst verður notendum Striksins gert kleift að halda eigin dagbók. Þá þjónustu Striksins verður einnig hægt að nálgast með aðstoð WAP- tækninnar. íslandsnet rekur þjónustugáttina Strik.is," segir þar ennfremur. A Islandsbanki veitir heyrnarlausum bankaþj ónustu FELAG heymarlausra á 40 ára af- hófst hún þriðjudaginn 1. febrúar, í mæli um þessar mundir og af því til- útibúinu við Lækjargötu. Valgerður efni hefur sérstakt þjónustuútibú Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðar- fyrir heymarlausa verið sett á lagg- ráðherra, verður heiðursgestur við imar í útibúi íslandsbanka í Lækjar- opnun þessarar þjónustu ásamt full- götu 12. Þar hefur verið sett upp for- trúum Félags heymarlausra og mun ritið Skjámi sem gerir heymar- formaður þeirra, Berglind Stefáns- lausum kleift að hringja í útibúið og dóttir, verða fyrst til að notfæra sér ræða við starfsfólk útibúsins. þessa nýju þjónustu. Skjámi er textasímaforrit fyrir íslandsbanki leggur ríka áherslu á PF-tölvur og getur notandi þess nýtt þjálfun starfsfólks svó það geti sinnt tölvuna sína sem textasíma. Fonitiö h’eymarlausum á sama hátt og öðr- er mjög einfalt í notkun og teíst bylt- um viðskiptavinum bankans. Á ing fyrir heymarlausa. Landssfminn næstu vikum munu því starfsmenn þýddi forritið og geta menn nálgast Lækjargötuútibúsins sækja tákn- það ókeypis á vefsvæði fyrirtækisins. málsnámskeið. Auk þess mun bank- Nýherji er þjónustuaðili Skjáma. inn í tilefni afmælisársins bjóða Það að Skjámi sé tekinn í notkun í heyrnarlausum upp á kennslu í notk- fjármálafyrirtæki veitir heymarlaus- un Netsins og Netbankans. um möguleika á að sinna sínum pers- Aðalbaráttumál félagsins og lykill- ónulegu fjármálaerindum í bankan- inn að aðgengi heymarlausra í sam- um án þátttöku þriðja aðUa, túlks. félaginu er það að táknmálið verði íslandsbanki er fyrsti bankinn hér viðurkennt sem móðurmál þeirra á á landi sem veitir Skjámaþjónustu og afmælisárinu. Bækling- ur um rannsókn- jr á melt- ingarvegi KOMINN er út bæklingurinn Listin að spegla meltingarveginn og fjallar hann um holsjárskoðanir og holsjár- aðgerðir. Höfundar em Ásgeir Theodórs yfirlælknir og Guðjón Har- aldsson læknanemi. I formálsorðum segir Ásgeir Theodórs meðal annars að rannsókn- um til að greina sjúkdóma í melting- arvegi hafi fleygt mjög fram síðustu árin og með speglunartækinu hafi orðið breyting til batnaðar í meðferð þeirra. Hafi speglunartækið eða hol- sjáin verið notuð í vaxandi mæli við meðferð. Hann segir speglunartækið eða holsjána hafa tekið mUdum breytingum og tengist það framfdr- um á sviði tölvu- og mynd- bandstækni. Ásgeir segir litla fræðslu hafa verið um holsjárskoðan- ir fyrir heilbrigðisstéttir og fræðslu- efni af skomum skammti. Er bækl- ingnum ætlað að bæta úr þeirri þörf auk þess sem hann henti til að fræða sjúklinga um rannsóknir og aðgerðir sem þeir standa frammi fyrir. Bæklingurinn fæst á meltingar- sjúkdómadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. ---------------- Stuðningur við starfsemi Barnahúss ÁGREININGUR og deUur í fjölmiðl- um um stöðu og not Bamahússins bijóta í bága við hagsmuni þeirra bama sem sætt hafa kynferðislegu of- beldi, segir í ályktun stjómar HeimU- is og skóla vegna Barnahúss frá 12. janúar sl. DeUumar hafa leitt af sér öryggisleysi fyrir bömin og fjölskyld- ur þeirra að viðbættri þeirri óvissu sem nú er um hvaða meðferðar böm- inmegavænta. Þar segir ennfremur: „Stjómin skorar á alla aðila þessara deilna að útkljá ágreining sinn sem fyrst í þágu velferðar þessara barna. Stjómin tek- ur eindrenga afstöðu með starfrækslu Bamahúss enda mun óumdeUt að sú aðstaða sem bömum er boðin þar er tU fyrirmyndar og með því allra besta sem gerist hjá öðmm þjóðum. Minna megum við ekki að sætta okkur við.“ ---------------- Styrkir í boði ÍSLANDSDEILD Letterstedtska sjóðsins mun veita ferðastyrki á árinu 2000 íslenzkum vísinda- og fræðimönnum sem ferðast vilja til Norðurlanda á árinu í rannsóknar- skyni. Ekki er um eiginlega náms- styrki að ræða, heldur koma þeir einir til greina sem lokið hafa námi en hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á starfssviði sínu svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnunum eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum. Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um tilgang ferða skal senda til ritara íslandsdeildar Letterstedtska sjóðsins, Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar, Þjóðminjasafni íslands, Lyngási 7, 210 Garðabæ, fyrir 1. mars 2000. ------♦-♦-♦----- Leiðrétt í FRÉTT um viðræður Landsvirkj- unar og hreppsnefndar Fljótsdals- hrepps í blaðinu í gær var sagt að samningar þyrftu að liggja fyrir við jarðeigendur og ábúendur í byrjun júní nk. Þetta er ekki alls kostar rétt. Engar sérstakar tímasetningar hafa verið settar um samninga aðila.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.