Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 37
UMRÆÐAN
Dauðaþögn ríkisstjórnar
NÝVERIÐ var
kveðinn upp dómur í
svo nefndu Vatneyrar-
máli. Þeir sem að því
máli hafa staðið hafa
sýnt kjark og áræði
miðað við það sem rík-
isstjórn hefur viljað
með því aðgerðar- og
stefnuleysi sem hún
hefur sýnt allt frá því
að svonefndur Valdim-
arsdómur var kveðinn
upp. Þá gerði ríkis-
stjórn þær minnstu
breytingar sem unnt
var og með því var
viðhaldið óvissu og nánast
óbreyttri framkvæmd fiskveiðis-
stjórnunarkerfís sem íslensk þjóð
hefur fengið yfir sig nóg af.
Sameign
þjóðarinnar
Umgengni og framkvæmd
stjórnunarinnar er það sem brenn-
ur á landsmönnum og krafan er að
gerð verði breyting sem aflétti
eignarhaldi, komi í veg fyrir brask
og séð verði til þess að brottkast
verði takmarkað við
ónýtar afurðir og
verðlausar. Þetta þýð-
ir að allur veiddur
fiskur á að koma í land
og allt það sem eru
raunveruleg verðmæti
skuli koma í land.
Það er einnig skýla-
us krafa að nýliðun
geti átt sér stað í út-
gerð. Jafnframt er
krafan sú að þeir sem
reka útgerð og vinnslu
sjávarafurða fái aðlög-
unarhæfar breytingar
sem byggjast á jafn-
ræði og eðlilegri nýtingu auðlind-
arinnar. Margir spyrja: Er þetta
hægt? Mitt svar er: Þetta er hægt.
Allt sem þarf er vilji til breyt-
inga án kollsteypu. Únnt er að
byggja á kvótakerfinu en útfæra
framkvæmd stjórnunarinnar á
þann veg sem viðunandi er fyrir þá
sem nú lifa og hrærast í kerfinu og
ætla sér á annað borð að vera með í
viðunandinýtingu sameiginlegrar
auðlindar.
essu máli. Þingmaðurinn, þing-
Fiskveiðistjórnun
Það verður að leggja
fram, í kjölfar Vatneyr-
ardómsins, segír Gísli S.
Einarsson, tillögur sem
mögulegt er að skapa
sátt um.
flokksformaðurinn, formaður
Byggðastofnunar og varaformaður
sjávarútvegsnefndar, Kristinn H.
Gunnarsson, er í raun talsmaður
Framsóknar í málinu því aðrir
steinþegja. Meira að segja kvóta-
pabbi/utanríkisráðherra segir ekki
orð í málinu. Það verður fróðlegt
að heyra viðbrögð Davíðsstjórnar
þegar málið verður rætt á Alþingi
nú á næstu dögum.
Hverjir verða með,
hverjir verða á móti?
Það verður að leggja fram, í
kjölfar Vatneyrardómsins, tillögur
sem mögulegt er að skapa sátt um.
Eg geri þá kröfu að minn þing-
flokkur leggi fram tillögur, og í
raun geri ég kröfur til þess að allir
leggi sig fram um að gera breyt-
ingar á framkvæmd stjórnunar
kvótakerfisins. Útboðsleið sem
„áhugamenn" lögðu fram er góðra
gjalda verð, en útfærslur og tillög-
ur um afnám ígildi eignarhalds
vantar, ennfremur tillögur um önn-
ur atriði sem áður eru nefnd í þess-
ari grein um brottkast og brask.
Það verður fróðlegt að heyra við-
horf rauðgræningja í þessu máli.
Þeir hafa lifað á því að allir þeir
sem á móti eru safnist saman í
þeirra hóp, sama um hvaða mál er
að ræða. Um það segi ég: Verði
þeim að góðu því að „á móti menn-
irnir“ í framsókn og íhaldi skila sér
heim á bás þegar á þarf að halda.
Þetta er
ekki auðvelt
Undirritaður hefur á undanförn-
um árum marglýst skoðun sinni á
verstu ágöllum kerfisins og ávallt
komist að þeirri niðurstöðu að
lausn málsins felist í jafnræði og að
Gísli S.
Einarsson
þeir sem við sjávarútveg starfa við-
urkenni tilveru og tilvist allra út-
gerðarforma.
Einnig verður að vera ljóst að
þeir sem nýta auðlindina verða að
greiða fyrir rannsóknir og þann
kostnað sem fylgir nýtingu hennar
og allir landsmenn njóti hennar.
Skilyrði er að brottkast og brask
hverfi. Skilyrði er að nýliðun geti
átt sér stað, öðru vísi en gegnum
erfðir. En það er enginn að segja
að þetta sé auðvelt.
Höfundur er þingmaður Samfylking-
ar á Vesturlandi.
Verkbókhald
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
Það er eitthvað meira við Mégane Break
Tegund Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar Farangursrými CD Aksturstölva Fjarstýrð hljómtæki Verð
Corolla 1600 16v 110 iá 2 3081 já nei nei 1.589.000 kr.
Astra Station 1600 16v 101 Já 2 5001 nei nei nei 1.582.000 kr.
Golf Station 1600 16v 100 já 4 4601 Já nei nei 1.670.000 kr.
Baleno 1600 16v 96 já 2 3751 nei nei nei 1.515.000 kr.
Break 1600 16v 107 já 4 510 1 já já 1.588.000 kr.
Mégane Break kostar frá 1.588.000 kr.
Renault Mégane Brake er stórkostlegur skutbíll, rúmbetri og öruggari en
gengur og gerist. Taflan hér að ofan sýnir svo ekki verður um villst að
Break nýtur umtalsverðs forskots þegar hugað er að verði miðað við stærð,
búnað og öryggi. Veldu rúinbetri bíl. Prófaðu Mégane Break.
RENAULT