Morgunblaðið - 03.02.2000, Síða 62

Morgunblaðið - 03.02.2000, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand Sjáðu, jóL-istjarna. Ef við setjum hana Kannski geturðu á toppinn þá munu beygt hnén aðeins. allir sjá hana. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eru allir að ruglast? Frá Árna Bragasyni: Á NÁTTÚRUVERNDARÞINGI dagana 28. og 29. janúar voru sam- ankomnir fulltrúar stofnana, hags- munaaðila, náttúruvemdamefnda sveitarfélaga, fjölmargra frjálsra fé- lagasamtaka, ráðuneyta og þing- flokka til að ræða um náttúmvernd- armál. Verndar- og verðgildi náttúrannar, mat á umhverfisáhrif- um framkvæmda, gróðurvinjar á há- lendinu og hlutverk frjálsra félaga- samtaka og Náttúravemdarráðs. Umræður voru gagnlegar og munu eflaust skila fjölmörgum ábending- um til stjórnvalda um ýmislegt sem betur má fara í náttúravemdarmál- um. Athygli fjölmiðla beindist ekki að efni þingsins heldur að samskipt- um Náttúruverndarráðs og um- hverfisráðherra. Vegna umfjöllunar fjölmiðla hafa fjölmargir haft samband við Nátt- úravernd ríkisins og spurt hvort málaflokkurinn sé óstarfhæfur vegna deilna. Svo er ekki því Nátt- úravernd ríkisins er ekki sama og N áttúruverndarráð. Náttúravernd ríkisins. Með stofnun Náttúraverndar rík- isins fengu málefni náttúruverndar sömu stöðu og önnur mál í opinberri stjómsýslu. Hlutverk stofnunarinn- ar er að hafa eftirlit með náttúru landsins og umsjón með náttúra- verndarsvæðum. Stofnunin ber ábyrgð á rekstri þjóðgarðanna í Skaftafelli og Jökulsárgljúfram. Stofnunin veitir sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum ráð- gjöf, en einnig aðhald. Náttúravemd ríkisins heyrir til umhverfisráðu- neytis eins og 9 aðrar stofnanir og starfar samkvæmt náttúruverndar- lögum nr. 44/1999. Nánari upplýsingar um stofnun- ina era á heimasíðu http://www.ni.is/ nr Náttúruvemdamáð. Hvers vegna era allir að raglast? Skýringin er söguleg því frá árinu 1956 til 1996 starfaði Náttúravernd- amáð, en þann 1. janúar 1997 tók Náttúruvernd ríkisins við hlutverki, réttindum og skyldum Náttúru- vemdamáðs. Með lagabreytingunni var sett á stofn valdalaust ráðgef- andi 9 manna ráð sem kosið skyldi að hluta á Náttúruvemdarþingi og til að allir yrðu raglaðir var ákveðið að láta þetta ráðgefandi ráð heita Nátt- úraverndamáð! Aftur var lögum breytt árið 1999 og þrátt fyrir fjöl- margar ábendingar um að allir væra að ruglast var ákveðið að halda nafn- inu Náttúruverndamáð áfram inni í náttúravemdarlögum og þess vegna er almenningur, blaðamenn og jafn- vel þingmenn alltaf að raglast. ÁRNIBRAGASON, Náttúravemd ríkisins. Sultarólin hert Frá Guðmundi Bergssyni: ENN verða aldraðir og öryrkjar að herða sultarólina. Eitt af því nauð- synlega hjá þessu fólki er að hafa síma ef eitthvað kemur uppá. Nýj- ustu fréttir eru þær að stórhækka eigi afnotagjöld til að geta lækkað sí- mtöl til útlanda og í GMS-kerfið og þannig eiga venjulegir símnotendur að borga fyrir þá stóra. Talað er um 2.000 kr. gjald svo það munar um minna. Mörg meðul á að taka af skrá hjá Tryggingastofnun eða hækka stórlega. Gamlir og öryrkjar nota mikið af meðulum. Eftir áramót hækkaði mjólk, bensín, fasteigna- gjöld, branatrygging, leigubflar og svo mætti lengi telja en þetta kemur verst við þá sem minnst hafa í laun til ráðstöfunar. Fjöldinn allur af ful- lorðnu fólki er að basla við að búa í eigin íbúðum, en til að það sé hægt verður það að eiga fyrir gjöldunum. Það er greinilegt að ár aldraðra er liðið og að margt af því sem rætt var um að gera fyrir þá hefur dagað uppi í kerfinu en það vora nú líka kosning- ar á árinu og það er útgjaldalaust að tala hlýlega til þeirra gömlu og ör- yrkjanna, þótt þeir hafi ekki mikið gott af því en það lætur vel í eyrum svona rétt fyrir kosningar. Það gleymdist ekki að lækka skatt á þeim tekjuháu en skrítið að muna ekki eft- ir þeim tekjulágu. Það verður því ekkert annað að gera en herða bara sultarólina um eitt tvö, eða kannski þrjú göt. Einhverra hluta vegna hef- ur þetta margumtalaða góðæri farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim gömlu og öryrkjunum, hvernig sem á því stendur. GUÐMUNDUR BERGSSON Sogavegi 178, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. TILBOÐSDAGAR GLERAUGNABÚDIN Laugavegi 36 V Umgjarðir, gler og snertilinsur © ÚTFARARÞJÓNUSTAN F„r 10 ára 1990 - 2000 Persónuleg þjónusta Aðstoðum við skrif minningarrgreina Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is 0 áC. Rúiur Geirniundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjúri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.