Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 64
54 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
' 'i
Islandsmeistararnir í parasveitakeppni árið 2000. Talið frá vinstri:
Guðmundur Ágústsson forseti Bridssambandsins en hann afhenti
verðlaun mótsins, Þá Hróðmar Sigurbjörnsson, Ragnheiður Haralds-
dóttir, Una Sveinsdóttir og Pótur Guðjónsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Norðlendingar
unnu parasveita-
keppnina
íslandsmót í parasveitakeppni
l- 2000 var spilað um helgina. 29 sveitir
mættu til leiks sem er metþátttaka.
Mörgum þykir þetta ásamt para-
tvímenningnum skemmtilegustu
mót ársins og mæting var mjög góð
af landsbyggðinni. Til gamans má
geta þess að yngsti spilarinn var 17
ára en sá elsti 79 ára.
Islandsmeistarar urðu Hróðmar
Sigurbjörnsson, Ragnheiður Hara-
ldsdóttir, Una Sveinsdóttir og Pétur
Guðjónsson sem öll spila hjá Bf. Ak-
ureyrar. Forseti Bridssambandsins,
f Guðmundur Ágústsson afhenti verð-
laun í mótslok.
Staða efstu sveita:
Ritararogsmiðir/UnaSveinsdóttir 146
Stefanía Sigurbjömsdóttir 139
Lifandi vísindi/Olöf Þorsteinsdóttir 119
Ljósbrá Baldursdóttir 119
Guðrún Jóhannesdóttir 119
Landsliðskeppni/
kvennaflokkur
Skráningu lýkur fimmtudaginn 3.
febrúar kl. 17. Allar nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Föstudaginn 21. janúar mættu 23
pör til keppni og urðu úrslit þessi í
N/S: ,
Halla Ólafsd. - Magnús Halldórss. 250
Þorleifur Þórarinss. - Fróði Pálss. 249
Ingibj. Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 240
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórss. 240
Hæsta skor í A/V:
Garðar Sigurðss. - Baldur Ásgeirss. 288
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Bjömss. 264
Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 250
Sl. þriðjudag spiluðu einnig 23 pör
og þá urðu þessi pör efst í N/S:
Eysteinn Einarss. - Sigurður Pálss. 290
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórss. 268
AlbertÞorsteinss.-BjömÁmason 241
Hæsta skor í A/V:
Emst Bachman - J ón Andrésson 257
Stefán Ólafss. - Sigurjón Sigurjónss. 252
Baldur Ásgeirss. - Garðar Sigurðss. 241
JónStefánss.-SæmundurBjömss. 241
Meðalskor báða dagana var 216.
Bridshátíð Flugleiða,
BSfogBR
Nítjánda bridshátíðin verður hald-
in á Hótel Loftleiðum 18.-21. febrúar.
Dagskráin verður með hefðbundn-
um hætti: Tvímenningur föstudag og
laugardag, sveitakeppni sunnudag og
mánudag.
Skráning á www.bridge.is eða s.
587 9360. Síðasti skráningardagur er
fimmtudagur 10. febrúar.
Bridsfélag Hreyfíls
Hafin er Board-A-Match sveita-
keppni félagsins með þátttöku 10
sveita. Eftir þrjá leiki er sveit Ósk-
ars Sigurðssonar efst með 82 stig.
Kristinn Ingvason og félagar hans
eru í öðru sæti með 72 og sveit Birgis
Kjartanssonar þriðja með 57 stig.
f Keppninni verður fram haldið nk.
mánudagskvöld.
Bridsfélag Húsavíkur
Lokastaða efstu sveita í aðal-
sveitakeppni Bridsfélags Húsavíkur
2000 er eftirfarandi:
Þórólfur Jónasson 155
Þóra Sigurmundsdóttir 134
Friðrik Jónasson 110
Efstu pör í fjölsveitaútreikningi
eru:
Hjalti-Petrína 22,00
Þórólfur - Sveinn 20,83
Guðmundur - Hlynur 19,05
Stjóm BFH þakkar Landsbank-
anum á Húsavík veittan stuðning.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði í Reykjavík mánud. 24. janúar.
24 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Hjálmar Gíslason - Bergur Þorvaldss. 263
Sigtr. Ellertss. - Þorsteina Laufdal 250
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömss. 249
Árangur A-V:
Halldór Magnússon - Páll Hannesson 250
Ólafur Ingvarsson - Kristján Ólafsson 238
Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 237
Fimtud. 27. janúar. 22 pör.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 250
Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyv. 250
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 249
Árangur A-V:
BaldurÁsgeirss.-MagnúsHalldórss. 269
BergljótRafnar-SoffíaTheódórsd. 240
Fróði B. Pálss. - Þórarinn Árnas. 239
Fimmtudags-
spilamennskan
Fimmtudaginn 27. janúar mættu
21 pör til leiks. Spilaður var Mitchell
með þremur spilum á milli para.
Miðlungur var 216 og lokastaða varð
þessi:
NS
ísak Öm Sigurðss. - Hallur Símonarson 250
Ámína Guðlaugsd. - Steinberg Ríkarðss.236
Bryndís Þorsteinsd. - Ómar Olgeirsson 222
AV
Birkir Jónsson-GuðmundurBaldurss. 258
Pétur Steinþórss. - Úlfar Kristinnsson 237
Hermann Friðrikss. - Ingólfur Hlynsson230
Gunnlaugur og Asmundur unnu
bæði í flestum bronsstigum skoruð-
um og hæstu prósentuskor janúar-
mánaðar, 46 stig og 61,80 %.
Bæði bronsstigin og prósentu-
skorin gefa gæsilega vinninga á Þrjá
Frakka. Þar sem sú regla gildir að
sami maður geti ekki unnið bæði
verðlaunin drógu þeir spil til að
ákveða hvor þeir fengju. Gunnlaugur
og Ásmundur drógu sér prósentu-
skorina, sem þýðir að Birkir Jóns-
son, Pétur Steinþórsson og Úlfar
Kristinsson er jafnir í bronsstigun-
um og keppa um verðlaunin næsta
fimmtudag.
Nýr leikur byijar 3. febrúar.
Gullsmárabrids
Átján pör mættu til leiks í tví-
menningi hjá Bridsdeild
FEBK í Gullsmára mánudaginn
31. janúar sl. Efst voru:
NS
Stefán Ólafss. - Sigurjón Sigurjónss. 189
Gunnar Gíslas. - Sigurberg Sigurðss. 181
Karl Gunnarss. - Ernst Bachmann 175
Bjöm Bjamas. - Hafsteinn Ólafss. 175
AV
Jón Andréss. - Guðm. Á Guðmundss. 217
Sigrún Sigurðard. - Guðm. Þorgrímss. 195
Kristján Guðm.ss. - Sigurður Jóhannss. 171
VELV4KANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þorramatur
GETUR einhver frætt mig
á hvernig sú hugmynd er
tilkomin að síld sé þorra-
matur? Hér áður fyrr
borðuðu Islendingar mik-
inn súrmat - enda ekki
mörg geymsluúrræði fyrir
mat á öldum áður, en síld
flokkuðu þeir ekki undir-
mat (sbr. „Síld og fiskur“)
og borðuðu helst ekki
sjálfir - seldu hana til ann-
arra landa.
Síld tilreidd á ýmsan
hátt er ágætur matur en
það hefur lengi þvælst fyr-
ir mér hvernig hún komst
í þá stöðu að vera hefð-
bundinn þjóðlegur matur
og hluti af þorramat. Ég
man fyrst eftir síld í fisk-
búðum svona um 1950 og
þá bara heil flök, kryddsíld
og saitsíld. Ég man ekki til
að síld hafi almennt verið
á borðum fólks, eins og til
dæmis ýsan og annað sem
var „daglegt brauð“ í þá
daga. Og síld í allskyns
sósum er mun yngra fyrir-
bæri.
Mér finnast ýms önnur
matvæli, svo sem magáll,
saltkjöt og bjúgu eins og
þau voru „í gamla daga“
vera nær því að flokkast
undir þorramat en síld í
kryddlegi og sósu.
Fyrir þá sem vilja fræð-
ast um matarvenjur hér
áður, til dæmis í því skyni
að átta sig á hvaða mat ís-
lendingar borðuðu hér áð-
ur fyrr, vil ég benda á
bókina íslensk matarhefð
eftir Hallgerði Gísladóttur.
Bókin kom út núna fyrir
jólin og er hafsjór af fróð-
leik um mat og matargerð
hér áður fyrr.
Þar gefur til dæmis að
líta gamlan málshátt sem
er: „Svengd gerir síld
sæta“ (bls.174-5).
Þótt mér finnist síld
engan veginn flokkast
undir þorramat vil ég samt
lýsa ánægju minni yfir þvi
mikla og góða úrvali af síld
sem nú er fáanlegt í búð-
um og eiga framleiðendur
heiður skilið fyrir það. Ég
hefði heldur ekkert á móti
þvi að seldir væru til
dæmis sérstakir „síldar-
bakkar" sem tilbúin mál-
tíð, svipað og þorrabakk-
arnir, með mismunandi
síldartegundum, rúg-
brauði, góðu salati og öðru
sem þykir tiiheyra síldar-
máltíð - en bara ekki sem
hluti af þorramat. Fersk
síld er líka mjög góð í
hakk með ýsu eða þorski -
hlutföll svona um það bil
2-4 síldarflök á móti einu
ýsuflaki. Gefur fiskibollun-
um sérstaklega gott bragð.
Matargat
Tapad/fundid
Er siðgæði að verða
úrelt hugtak?
í HVERT sinn er ég opna
tímarit eða dagblað birtast
mér myndir af nöktu eða
lítt klæddu fólki. Margar
þessarra mynda, tísku- og
auglýsingamyndir, eru frá-
bærlega vel teknar og list-
rænar og eru til þess falln-
ar að gleðja augað um leið
og þær segja einhverja
sögu. En í seinni tíð hefur
þessi myndmiðill orðið
grófur og klámfenginn.
Þetta er einnig farið að
teygja sig inn í sjónvarpið
flestu heilbrigðu fólki til
leiðinda og auglýsendum
til skammar. En hér er
ekki allt upp talið. Að und-
anfómu hefur hið virðu-
lega ríkisútvarp boðið upp
á leikrit á besta tíma dags-
ins sem er þvflík samsuða
af sora, blótsyrðum og
klámi - með því subbuleg-
asta orðavali sem hægt er
að taka sér í munn. Einnig
hefur sjónvarpið sýnt á
sunnudagskvöldum 3 leik-
þætti undir samheitinu
„Herbergi 106“. Hér er að-
allega verið að draga upp
á yfirborðið kynlífshegðun
nútíma manna og kvenna.
Einnig væri hægt að nefna
nektarklúbba næturlífsins,
en þann iðnað þekki ég að-
eins úr fréttum - hef aldrei
á slíkan stað komið. Ég las
frétt í Morgunblaðinu 26.
janúar sl. þess efnis að 7.
hvert barn í Bretlandi
væri ranglega feðrað,
mæðurnar væru ekki með
það á hreinu hverjir væru
feður barna þeirra, eins
þær sem eru í hjónabandi.
Auglýsingar á „frjálsu
kynlífi“ hljóta að hafa áhrif
eins og annar áróður. I
desember sá ég fyrirsögn
á forsíðu eins okkar ís-
lensku tímarita eitthvað á
þessa leið; „Jóla-kynlífið“!!
Nú er ekki lengur hægt
að vera í friði með fæðing-
arhátíð frelsarans fyrir
þessum klámiðnaði sem
rekinn er til að græða pen-
inga. Mér dettur í hug um-
ræðan, þegar fíkniefnin
tóku að breiðast um heim-
inn og ráðamenn á Islandi
voru spurðir, hvort ástæða
væri að óttast að eiturlyf
bærust hingað til lands. Þá
voru þeir kokhraustir með
skoðanir sínar að ekki
þyrfti neinar varúðarráð-
stafanir að gera hér. Allir
vita nú hvernig komið er í
þeim efnum. I dag er því
alltaf borið við að ekki
megi svifta fólk frelsinu.
Því miður eru margir sem
ekld kunna að fara með
frelsið og það hefur einnig
sýnt sig í áfengisneyslu Is-
lendinga. Nú er í gangi ár-
óður fyrir því að fá áfengi
inn í matvöruverslanirnar.
Þegar SÁÁ leitaði til mín á
síðasta fjáröflunardegi sín-
um varð mér að orði; „Lát-
ið þá aðila borga áfengis-
meðferð sjúklinga ykkar
sem græða á því að
auglýsa og selja áfengi of-
an í óvita.“
Marfa K. Einarsdöttir
Rauðagerði 46
Reykjavík
Til stjórnar SVR
í TILEFNI auglýsinga í
blöðum og sjónvarpi síð-
astliðna helgi þar sem fólk
var hvatt til að nota þjón-
ustu SVR, sem reyndar
var ekki fyrir hendi á
mörgum leiðum, vil ég
benda stjóm SVR á það,
að það hefði verið nær að
nota peningana sem fóru í
auglýsingar í að hækka
laun starfsmanna og halda
uppi þeirri þjónustustarf-
semi sem þetta fyrirtæki
rekur. Lágmarksvirðing
við neytendur hefði líka
kannski verið að setja i
þessar auglýsingar, númer
þeirra vagna sem ekki
gengju þessa helgi, svo
fólk biði ekki tímum sam-
an eftir vögnum sem aldrei
komu.
Hallfríður
Bjarnadóttir.
Svört síð kápa tekin
í misgripum
SVÖRT sið kápa með
rúskinnsáferð var tekin í
misgripum úr fatahenginu
á Broadway laugardaginn
29. janúar sl. á árshátíð
Eimskips. Sá sem fékk
hana í misgripum er vinsa-
mlegast beðinn að hafa
samband við Jónínu í fat-
henginu á Broadway í
síma 533-1100.
Fjórir lyklar
fundust
FJÓRIR lyklar í svörtu
leðurhulstri fundust á
horni Flókagötu og Bar-
ónsstígs þriðjudaginn 1.
febrúar sl. Upplýsingar í
síma 552-1068.
Kvenskór í taupoka
týndust
KVENSKÓR í taupoka
týndust annaðhvort á Ás-
vallagötu eða í Hafnar-
stræti laugardaginn 29.
janúar sl. Éinnandi vinsa-
mlegast hringi í síma 552-
1601 eða skili þeim til lög-
reglunnar.
Svört mittistaska
týndist
SVÖRT mittistaska týnd-
ist í Nýkaupi í Kringlunni
laugardaginn 29. janúar sl.
I töskunni var gsm sími,
peningaveski og fleira.
Finnandi hafi samband í
síma 587-1893. Fundar-
laun.
Dýrahald
Kettlingar fást
gefins
TVEIR kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma
565-5935 og 565-1826 á
kvöldin.
Víkverji skrifar...
Víkverji frétti fyrir skömmu af
manni sem hafði ákveðið að
fara í tveggja mánaða ferðalag til út-
landa. Maðurinn fór þá leið við að
fjármagna ferðina, að óska eftir
hækkun á yfirdráttarheimild hjá við-
skiptabanka sínum. Maðurinn var
með 200 þúsund króna yfirdráttar-
heimild og óskaði eftir því að heim-
ildin yrði hækkuð upp í 400 þúsund.
Það tók bankann 2-3 mínútur að af-
greiða þessa beiðni og maðurinn fór
glaður heim með lánsheimildina.
Maðurinn á skandinavíska unn-
ustu sem ætlar með honum í ferðina.
Hún ákvað að ganga á fund útibú-
stjórans í viðskiptabanka í heima-
landi sínu og óska eftir yfirdráttar-
heimild. Stjómendur bankans
skoðuðu vandlega fjárhagsstöðu
hennar og tekjur og tilkynntu henni
síðan að ekki væri hægt að verða við
beiðninni. Kærasti hennar heima á
íslandi ákvað þá að ganga aftur á
fund bankans síns og biðja um að yf-
irdráttarheimildin yrði hækkuð upp í
600 þúsund. Eins og áður var honum
tekið af ljúfmennsku í bankanum og
samþykkt orðalaust að verða við
beiðninni.
Þessi frásögn er að mati Víkverja
lýsandi fyrir muninn á bankakerfinu
hér á landi og í nágrannalöndum
okkar. Hér getur hver sem er fengið
þau lán sem hann vill, en erlendis er
litið á tekjur, eignir og greiðslugetu
áður en lán eru veitt. Svo eru menn
undrandi á því að skuldir einstakl-
inga á íslandi hafa hækkað um millj-
arða á örfáum árum.
xxx
FYRIR stuttu var fjallað í útvarpi
um hugsanlega frambjóðendur
til embættis formanns Samfylking-
arinnar. Einn þátttakandi í umræð-
unum sagði að það væri þörf á að ný-
ir menn yrðu valdir til forystu. Ekki
þýddi að velja „gamla liðið eins og
Óssur og Guðmund Árna“. Víkverji
varð nokkuð undrandi á því að menn
eins og Össur Skarphéðinsson, sem
er 46 ára og hefur setið á Alþingi í 9
ár, og Guðmundur Árni Stefánsson,
sem er 44 ára og hefur setið á Al-
þingi í 8 ár, séu skilgreindir gamlir.
Víkverji skilur ekki hvers vegna svo
ungir menn eru álitnir of gamlir til
að vera í stjórnmálum. Þessi skoðun
hefur reyndar oft áður komið fram
og svo virðist sem mjög margir telji
æskilegast að forystumenn í stjóm-
málum séu ungir og reynslulitlir.
Þeir sem eru þessarar skoðunar
hljóta að telja tímabært að Steing-
rímur J. Sigfússon fari að draga sig í
hlé. Hann er 44 ára og hefur setið á
Alþingi í 17 ár. Víkveija finnst þetta
vera furðuleg afstaða. Reynsla í
stjórnmálum hlýtur að vera lykila-
triði þegar kemur að því að velja
menn til forystu. Hitt er svo annað
mál að verk stjórnmálamanna eru
umdeild og reynslan ein og sér dugar
ekki ef forystuhæfileikarnir eru ekki
fyrir hendi.
Til að forða misskilningi vill Vík-
verji taka fram að hann er ekki að
lýsa yfir stuðningi við Össur og Guð-
mund Árna.
xxx
* ,
AARUM áður þótti sjálfsagt mál
að stjórnmálamenn sætu á Al-
þingi i 20, 30 og jafnvel 40 ár. Nú er
svo löng þingseta fátíð. Menn virðast
þreytast fyrr í þessu starfi en áður
var.
í þessu sambandi dettur Víkverja
í hug þegar eitt sinn var skipt um
oddvita í sveitahreppi úti á landi.
Gamli oddvitinn lét af störfum eftir
40 ára farsælt starf. Sá sem tók við
var rétt tæplega þrítugur. Nágranni
hans óskaði honum til hamingju með
embættið og bætti við: „Þú ert nú
svo ungur að þú hlýtur að endast í 50
ár.“
Þess má geta að eftir 12 ára starf
taldi nýi oddvitinn tímabært að
hætta og hleypa yngri og ferskari
mönnum að.