Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 1
51. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar ná þorpinu Shatoi á sitt vald
MORGUNBLAÐIÐ 1. MARS 2000
5 690900 090000
Síðasta höf-
uðvígi skæru-
liða er fallið
Mozdok. Reuters, AFP.
SÍÐASTA höfuðvígi skæruliða í
Tsjetsjníu er nú fallið, að sögn
Gennadí Troshevs, undirhershöfð-
ingja, næstæðsta yíirmanns rússn-
esku hersveitanna í héraðinu.
Troshev sagði í gær, að hersveit-
imar hefðu náð meginhluta Argun-
gljúfursins á sitt vald, m.a. þorpinu
Shatoi og níu öðrum þorpum.
Shatoi var síðasta höfuðvígi
skæruliða, sem flúðu til fjalla í suð-
urhluta Tsjetsjníu fyiir mánuði þeg-
ar Rússar náðu Grosní, höfuðstað
héraðsins, á sitt vald. Fall Shatoi er
mikill sigur fyi-ir rússneska herinn
en hermálasérfræðingar segja að
honum stafi samt enn hætta af
skæruhernaði Tsjetsjena í fjöllun-
um.
Babítskí kominn til Moskvu
Ennfremur var skýrt frá því í gær
að rússneski fréttamaðurinn Andrei
Babítskí væri kominn aftur til
Moskvu en hann hvarf í Tsjetsjníu
fyrir mánuði. Babítskí kvaðst hafa
sætt barsmíðum „sadista" í Tsjerno-
kozovo-fangabúðunum í héraðinu og
heyrt óp annarra fanga sem hefðu
augljóslega verið pyntaðir.
„Þetta er mjög alvarleg yfirlýsing
Austurríki
Afsögn
Haiders
breytir litlu
Vín. Reuters, AFP.
AFSÖGN Jörgs Haiders úr leið-
togasæti Frelsisflokksins í Austur-
ríki dugði í gær ekki til að ráða-
menn hinna ESB-ríkjanna fjórtán
sæju ástæðu til að draga úr þeirri
pólitísku einangrun, sem þeir hafa
sett Austurríki í eftir að Frelsis-
flokkurinn myndaði nýja ríkisstjórn
ásamt flokki austurrískra íhalds-
manna fyrir tæpum mánuði.
Gagnrýnendur sögðu þetta skref
Haiders vera útspil í pólitískri ref-
skák; með þessu gæti hann firrt sig
ábyrgð á óvinsælum aðgerðum sem
ríkisstjórnin á eftir að þurí'a að
grípa til og búið í haginn fyrir end-
urkomu sína í stjórnmálabaráttuna í
Austurríki sem kanzlaraefni í næstu
þingkosningum. Hann verður áfram
fylkisstjóri í Kárnten og ætlar arf-
taki hans í flokksformannshlutverk-
inu, varakanzlarinn Susanne Riess-
Passer, að eiga áfram náið pólitískt
samráð við Haider. Wolfgang
Schússel, kanzlari og leiðtogi Þjóð-
arflokksins, sagði fréttamönnum að
hann teldi Haider vera með þessu
að leggja heiðax-legan skerf til þess
að reyna að draga úr hinum alþjóð-
lega þrýstingi á nýju ríkisstjórnina.
■ Lítil áhrif/28
Þúsund-
ir bíða
björgunar
FJÖLDI fliúa Mósabíkur bíður
björgunar eftir mikil flóð í land-
inu undanfarið. Hundruð biðu
björgunar á þessari brú í ná-
grenni við borgina Xiu-Xiu og
margir höfðust við á húsþökum og
í trjám.
Þrjár þyrlur í eigu mósambíska
hersins hafa sl. daga tekið þátt í
björgunaraðgerðum og í gær
bættust sjö þyrlur frá suður-
afríska flughernum í hópinn, auk
vestrænna hjálparsveita sem einn-
ig hafa tekið þátt í hjálparstarf-
inu. Tekist hefur að bjarga þús-
undum manna, en að sögn
yfirvalda eru tugir þúsunda enn
strandglópar og óttast erlendar
hjálparsveitir að aðgerðirnar
gangi ekki nógu hratt fyrir sig til
að mannslífum verði bjargað.
Rúmlega 300.000 manns eru nú
án húsaskjóls, matar eða annarrar
neyðarhjálpar, að því er John
Nkomo, einn ráðherra mósam-
bísku ríkisstjórnarinnar, sagði.
„Þá er ekki vitað hve margir eru
enn einangraðir, eða hversu mörg
heimili hafa eyðilagst," sagði
Nkomo. „Það þarf að auka af-
kastagetu [björgunarsveitanna].“
Yfirvöld í Mósabík hafa varað
við að vatnavextir kunni að auk-
ast enn frekar þegar vatn af
flóðasvæðum í Botswana og
Zimbabwe flæði yfir mið- og suð-
urhéruð landsins á næstu dögum.
sem krefst mjög ítarlegrar rann-
sóknar,“ hafði fréttastofan Itar-Tass
eftir háttsettum embættismanni í
rússneska innanríkisráðuneytinu.
Mannréttindahreyfingar segjast
hafa fengið þær upplýsingar frá
fólki, sem haldið var í Tsjemokoz-
ovo, að fangar hafi verið pyntaðir og
drepnir í fangabúðunum og mörgum
þeirra hafi verið nauðgað.
Rússnesk yfirvöld hafa harðneit-
að þessum ásökunum og fréttamenn
sem fengu að skoða búðirnar í fyrra-
dag sáu engin merki um illa meðferð
á föngum.
Babítskí kvaðst vera staðráðinn í
að skýra frá öllu sem henti hann í
Tsjetsjníu síðustu vikurnar. Hann
var í þjónustu vestrænu útvarps-
stöðvarinnar Radio Free Europe
þegar hann var handtekinn nálægt
Grosní um miðjan janúar og sakað-
ur um að hafa gengið erinda skæru-
liða. Rússnesk yfirvöld skýrðu frá
því í byrjun febrúar að hann hefði
verið afhentur Tsjetsjenum í skipt-
um fyrir nokkra rússneska fanga.
Síðan var ekkert vitað um ferðir
fréttamannsins þar til hann kom
fram í grannhéraðinu Dagestan á
föstudag.
George Bush spáð sigri í Virginíu
Óvissa ríkir um úr-
slit í Washington
Washmgton, Stockton, Kaliforníu. AFP, AP, Reuters.
GEORGE Bush, ríkisstjóra Texas,
var spáð stórsigri á John McCain,
öldungardeOdarþingmanni frá Ar-
izona, í forkosn-
ingum banda-
riskra repúblik-
ana í Virginíu í
gær skv. útgöngu-
spám bandarískra
sjónvarpsstöðva,
sem sögðu Bush
hljóta 58% at-
kvæða á móti 38%
John McCain McCains. Mikil
ovissa ríkti hins
vegar um úrslit forkosninga forseta-
kosninganna í Washingtonríki þar
sem McCain og Bush voru taldir
standa jafnt að vígi, en Bush var tal-
inn sigurstranglegri á kjörfundi sem
haldinn var í Norður-Dakóta.
A mánudag höfðu frambjóðendur-
nir báðir uppi ásakanir í garð hvor
annars. McCain sagði Bush vera full-
trúa kristinna öfgamanna sem bæru
ábyrgð á því umburðarleysi sem
ríkti. „Hvorugur flokkurinn ætti að-
stíga í vænginn við öfgaöfl banda-
rískra stjórnmála og fulltrúa um-
burðarleysis," sagði McCain á fundi í
Virginíu. Bush sakaði McCain hins
vegar um að gera lítið annað en að
gagnrýna. „Það er mikilvægt að sam-
eina flokkinn og leiða hann tO sigurs,"
sagði Bush og kvaðst fær um að leysa
vandamál sem við flokknum blöstu á
meðan McCain gagnrýndi aðeins.
Bush fagnaði útgöngumspám fyrir
Virginíu í gær og sagði kosningabar-
áttu sína hafa verið þá „réttu“.
Bush vinsælli
hjá repúblikönum
Fylgi McCains hefur aukist meðal
bandarísku þjóðarinnai’ undanfarið
og líta fleiri McCain jákvæðum aug-
um en Bush. Hann hefur hins vegar
enn forskot meðal repúblikana, en
57% þeirra myndu veita Bush at-
kvæði sitt á móti 33% McCain.
Tapi McCain í Washington kann
honum að reynast erfitt að viðhalda
því fylgi sem hann þarf á að halda í
komandi forkosningum. Erfiðar
kosningamar eru framundan í Kali-
forníu, New York og öðrum ríkjum
þar sem repúblikanar einir kjósa um
fulltnía flokksins í komandi forseta-
kosningum.
Óbundnar kosningar demókrata
fóru einnig fram í Washingtonríki í
gær og var talið að A1 Gore, varafor-
seti Bandaríkjanna, myndi bera sigur
afBill Bradley.
■ Eitt skref/27
Einka-
leyfí á
sjálfri sér
London. Reuters.
KONA nokkur í Bretlandi
hefur sótt um einkaleyfi á
sjálfri sér að sögn bresku
einkaleyfisskrifstofunnar.
„Já, ég get staðfest, að við
höfum fengið umsókn, sem
titluð er „Ég sjálf“, frá Donnu
Rawlinson MacLean,“ sagði
Brian Caswell, starfsmaður
einkaleyfisskrifstofunnar.
Dagblaðið Guardian hafði
eftir MacLean, skáldkonu og
þjónustustúlku frá Bristol, að
hún væri yfir sig hneyksluð á
því, að maðurinn sjálfur og
erfðaefni hans væru orðin að
einkaleyfi í höndunum á ýms-
um stórfyrirtækjum.
„I 30 ár hef ég barist við að
skilja sjálfa mig og finna og
ég vil ekki, að sá fundur verði
öðrum að féþúfu," sagði
MacLean. Að sögn Caswells
er hins vegar ekki þess virði
að sækja um einkaleyfi nema
hluturinn sé talinn mjög verð-
mikill.