Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ i-J' Feitir kettir og / • mjoir IBretlandi eru peir nefndirjat cats“ eða feitir kettir og fullyrt að þeir hafi myndað með sér óformleg samtök um að kífa hver annan upp með því að hækka stöðugt kaupkröfurnar. KÖTTUR sem lokaður er inni all- an daginn og hefur fátt við að vera en getur alltaf hámað í sig rjóma og annað hnossgæti er í lífshættu. Það er hann líka ef hann lifir í frjálsri náttúrunni, óbundinn mönnunum en þá eru hætturnar aðrar. Vandinn er sá að mörg dýr kunna sér ekki magamál og séu krásirnar alltaf innan seilingar og lítið þurfi fyrir þeim að hafa er voðinn vís. Við mennirnir berjumst oft við sama vanda og málleysingjarnir. Bretar hafa einkavætt mikið á síðustu áratugum og meðal ann- ars vatnsveitur og orkufyrirtæki. Þjónustan VIÐHORF Eftir Kristján Jónsson hefur stund- um batnað, stundum versnað og erfitt fyrir þá sem virða leiksviðið fyrir sér að gefa stefnunni í Bret- landi eina heildareinkunn. En þegar upp er staðið er það ein staðreynd sem stendur upp úr: Verkamannaflokkurinn hefur nú verið við völd í þrjú ár og ekkert bólar á því að hann hyggist ríkis- væða á ný það sem Thatcher einkavæddi. Sem hlýtur að vera vegna þess að summan af aðgerðunum er já- kvæð, hvað sem líður hnökrunum. Einn af þeim síðarnefndu að ráða- menn einkavæddu risafyrirtækj- anna hafa sumir gerst svo djarf- tækir til launa að þeir hafa komið óorði á einkavæðingu sem slíka. í Bretlandi eru þeir nefndir „fat cats“ eða feitir kettir og fullyrt að þeir hafi myndað með sér óform- leg samtök um að hífa hvem ann- an upp með því að hækka stöðugt kaupkröfumar. Venjulegir neytendur fá varla hland fyrir hjartað þótt aftan við nafnið á til dæmis Landssímanum komi stafimir hf. Fyrir flesta skiptir meira máli hvort fjarsk- iptaþjónusta í landinu er góð og ódýr, ekki hvort starfsmennirnir fá laun frá ríkinu eða einhverjum öðram. í sumum þjónustugrein- um er hins vegar augljóst að hagnaðarvonin, sem rekur fólk til að stjóma einkafyrirtækjum af viti, getur verið óheppilegur þátt- ur. En að sjálfsögðu á að einka- væða fjármálafyrirtæki í opin- berri eigu, opinber samkeppni á því sviði er fjarstæða sem aldrei getur gengið upp til lengdar í markaðssamfélagi. Fjármálafyr- irtæki sem er með sjálft ríkið að bakhjarli er ekki að keppa á jafn- ræðisgrundvelli, það hefur alltaf tilhneigingu til að haga sér með tilliti til þess að það á Stóran bróður sem hleypur undir bagga ef óvarlega er farið. Séu stjóm- endurnir fífldjarfir getur farið illa fyrir skattgreiðendum. Það var því hárrétt að breyta Fiskveiðasjóði, Iðnþróunarsjóði og Iðnlánasjóði í banka sem heitir Fjárfestingabanki atvinnulífsins, FB A. Þetta var rétt ákvörðun vegna þess að fyrir þorra þjóðar- innar er betra að einkarekinn banki annist lánastarfsemi til fyr- irtækja en að það séu beint og óbeint þingmennirnir sem eru lík- legir til að láta atkvæðasjónarmið sín og flokksins ráða ferðinni fremur en skynsemi og hag sjóðs- ins/bankans. En þá er það þetta með kettina. Bent hefur verið á að Islendingar þekki vel bónuskerfi í frystihús- um og frá fornu fari hlutaskipti í fiskveiðum. Arangurstengd laun séu því ekki nýtt fyrirbæri heldur stef við gamalt tilbrigði. Hinu má samt ekki gleyma að þótt hlutirn- ir væru misstórir eftir ábyrgð var formaðurinn, nú skipstjórinn, aldrei með meira en tvöfaldan hlut á við sjómanninn. Jafnvel hörðustu aflaklærnar urðu að láta sér það lynda og það sem meira er, þær virðast ekki hafa kvartað sáran yfir þessu. Hvers vegna ekki? Getur verið að aflaklærnar hafi verið skynsamari en við, eyðsluklær nútímans, sem aldrei fáum nóg, þær hafi haft tilfinningu fyrir því að fengju þær til dæmis tífaldan hlut eða 20-faldan myndu þær tapa á öðram vettvangi? Þær myndu þá missa virðingu vegna þess að innst í okkur blundar allt- af ákveðin efasemd gagnvart því að einhver eigi skilið óendanlega mikið af peningum fyrir að mæta í vinnuna. Það er gagnrýnisvert að ráða- menn FBA skyldu setja reglur sem gefa þeim milljónatugi í kaupauka ef þeir standa sig ekki illa í taumlausu góðærinu og nýta sér eftir föngum góða stöðu bank- ans strax í upphafi. Bent hefur verið á að bankinn er með ágæt veð í fiskiskipum kvótakónganna og lagði því ekki upp án þess að vera með nesti og nýja skó. Öðru nær. Launamunur er óhjákvæmileg- ur en sé hann svo mikill að hug- myndaflug mitt dugi ekki til að meðtaka hann og forsendumar verð ég fórnarlamb annarrar höf- uðsyndar en græðginnar. Hún heitir öfund og mér þykir fyrir því að gangast við henni en get aðeins borið fyrir mig þá afsökun að ég var aldrei spurður álits, heldur ekki fulltrúi minn, ráðherra bankamála. Mér er því ögrað. Með fullri virðingu fyrir unga dugnaðarfólkinu hjá FBA, má ég náðarsamlegast fara fram á að næst fái ég tækifæri til að greiða atkvæði um verðlaunin sem starfsmenn hjá fyrirtækjum ríkis- ins eigi að fá fyrir að skila hagn- aði? Viðskiptalífið er sveiflukennt, það er rétt. En ef þetta er eins konar áhættuþóknun langar mig til að fá t.d. að vita hvað hjúkran- arfræðingar fá fyrir að útdeila lyfjum. Ef þeim verða á mistök er líf sjúklingsins í hættu og angistin vegna slíkra mistaka er varla bærilegri en áföll vegna tapaðra lána. Við verðum að tryggja okkur að hjúkranarfræðingar séu vel staddir, ekki utan við sig og þjak- aðir af skuldabasli. Þeir verða að fá myndarlegan kaupauka fyrir að gera ekki mistök. Yass sýnir ÍI8 f Galleríi i8 opnar Catherine Yass sýningu á verkum sinum 8. aprfl nk.Catherine Yass fæddist 1963 og starfar við list sína í London, þar sem hún kennir einnig við Central Saint Martins’s School of Art. Hún hefur sýnt verk sín víða um heim. Félag íslenskra fræða Leit að óvinar- ímynd Islendinga FÉLAG íslenskra fræða boðar til fundar með Sverri Jakobssyni sagnfræðingi i Skóla- bæ, Suðurgötu 26, í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20.30. Erindi Sverris nefn- ist: „Við og hinir: Sjálfsmynd íslendinga á miðöldum". Þar verð- ur rætt á hverja Is- lendingar litu sem „hina“ á miðöldum. Sjálfsmynd tiltekins hóps felst ekki einvörð- ungu í að skilgreina hverjir tilheyra honum (við), heldur einnig í því að slá því föstu hverjir tilheyra honum ekki (hinir), segir í fréttatilkynningu. Rýnt verður í ís- lenskar ritheimildir í leit að óvin- arímynd íslendinga, en jafnframt reynt að skil- greina þá þætti sem skipuðu mönnum í flokk með „hinum“. I því samhengi verður m.a. litið á tungu, trúarbrögð og útlit. Sverrir Jakobsson er MA í sagnfræði og hef- ur stundað nám við Háskóla Islands í Reykjavík og við Há- skólann í Leeds. Hann er nú stundakennari við Háskóla íslands og vinnur að doktorsrit- gerð um heimsmynd Islendinga 1100-1400. Eftir framsögu Sverris munu fara fram almennar umræður um erindi hans. Fundurinn er öllum opinn. Sverrir Jakobsson Nútímahlj ómsveit kynnir sig TOJVLIST Háskiílabíó SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Poul Ruders: Konsert í hlutum („Concerto in Pieces”). Sibelius: Sinfónía nr. 2. Carl Nielsen: Sinfón- ía nr. 4. Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins u. stj. Júrís Temirkanovs. Mánudaginn 28. febrúar kl. 20. HEIMSÓKNIR erlendra sinfón- íuhljómsveita hingað hafa frá upp- hafi verið teljandi á fingram ann- arrar handar. Enn blasir nefnilega sú blákalda staðreynd við, að Island er ekki í alþjóðarbraut hvað þetta varðar, og eftir því sem næst verður komizt vora tónleikar dönsku út- varpshljómsveitarinnar í fyrradag fyrsta skiptið sem dönsk sinfón- íuhljómsveit kveður upp raust sína hér á landi. Og þar sem fyrri við- burðir af slíku tagi hafa átt sér stað í Laugardalshöllinni, vora þessir tón- leikar því ómetanlegri sem íslenzkir áheyrendur (þ. á m. fjöldi meðlima SÍ) gátu hlýtt á flutninginn á sjálfum vinnustað Sinfóníuhljómsveitar Is- lands, með öllum hans kostum og ekki sízt göllum, og því fengið ein- stakt tækifæri til raunhæfs saman- burðar. Það ætti að þykja einsýnt, að fátt yrði hérlendu tónlistarlífi al- mennt, og SÍ sérstaklega, betri lyft- istöng en gestakomur af slíku tagi, nema ef vera skyldi ferðalög okkar hljómsveitar erlendis - og vitanlega tilkoma boðlegs tónleikahúss í höf- uðborginni. Það síðastnefnda ætti einnig öðra fremur að hvetja til heimsókna erlendra sinfóníuhljóm- sveita hingað, sem vissulega er ekki vanþörf á. Danska útvarpshljómsveitin fagn- ar 75 ára aldri á þessu ári og kom hingað í boði Menningarborgar 2000, SI og fleiri aðilja á leið sinni vestur um haf. Með í för var danska tón- skáldið Poul Ruders (f. 1949), sem óðum fer að verða einn þekktasti samtímahöfundur Dana á alþjóða- vísu. Eftir hann var flutt „Concerto in Pieces, hljómsveitartilbrigði um stef eftir Purcell, sem BBC pantaði á fimmtugsafmæli Britten-verksins al- kunna, Hljómsveitin kynnir sig frá 1946. Athygli vekur að Bretar skuli hafa leitað út fyrir landsteina með því að fela dönsku tónaskáldi verkefnið, sem hlýtur að teljast meðal stærri tækifæra norrænna tónskálda í seinni tíð. Líkt og í verki Brittens voru upplesnar kynningar milli til- brigða, og sá höfundur sjálfur um lesturinn á dönsku; sem betur fór með nokkuð skýrmæltri framsögn. Mikið vatn hefur til sjávar rannið frá nýklassíska skeiði Brittens, og mætti í gárangamunni kannski auknefna tilbrigði Ruders „Nútíma- hljómsveitin kynnir sig“, því eins og við var að búast var verkið mótað af tónmáli ofanverðrar þessarar aldar. Ruders valdi sér ekki eitt af lag- rænni stefjum Purcells, heldur notar „Ho ho ho“-söng nornanna í Dido og Eneasi til útfærslu, eins og heyra gat í upphafi verksins, þar sem illkvittin þórðargleðin brýzt fram með hoss- andi hrossahlátri allrar hljómsveit- arinnar. Síðan komu 10 tilbrigði koll af kolli, sem unnu mestmegnis út frá mismunandi áferð og litbrigðum að hætti flestra nútímatónskálda. Fjöl- margt var áheyrilegt og skemmti- legt í hugmyndaríkri og fjöltækri út- leggingu Ruders, sem vatt sér fyrirhafnarlítið milli stíltegunda samtímans; kannski eftirminnilegast í tilbrigðinu þar sem dulúðlegur ein- leikssaxofónn á lágværam en safa- ríkum strengjabakgrunni lék í eins- konar samblönduðum anda austurs og vesturs. I heild hélt verkið athygli allar sínar nítján mínútur, enda hið fjölbreyttasta í kynnisferð þess um breitt hljómsveitarléreftið og nálg- unaraðferðir nútímans. Hvað upp- eldisgildi þess varðar lá í augum uppi að spyrja hví enginn skyldi hafa látið sér detta annað eins í hug fyrr, þegar nánast óyfirsjáanleg fjölbreytni nýrrar fagurtónlistar er höfð í huga. Túlkun hljómsveitar og stjóm- anda var frábærlega góð í tilbrigða- verkinu, í senn snörp og hlý, og reis enn hærra í sérkennilegri 4. sinfóníu Carls Nielsens þar á eftir. Titill verksins, „Hið óslökkvandi" vísar á lífið sjálft. Vinnslumáti danska snill- ingsins verkar hér furðu leitandi og jafnvel brotakenndur þegar á heild- arformið er litið, einkum í saman- burði við meistaraverk hans 5. sin- fóníu, en var engu að síður víða einkar hrífandi, ekki sízt í bráðfjör- ugum flutningi Dananna, sem vora auðheyrilega með allt á tæra, án þess að stjórnandinn virtist þurfa að leggja mikið til málanna. Persónu- legur frumsköpunarkraftur Niel- sens birtist í fjölmörgum ólíkum myndum, allt frá himinstormandi reisn tutti-kaflanna í innilega en ferska gleði yfir minnstu djásnum náttúrannar líkt og í tréblásarakór- alnum í upphafi II. þáttar, sem var eins og eitt eilífðar smáblóm með orðalagi skáldsins í íðilfagurri tján- ingu hljómsveitarmanna. Undirtekt- ir áheyrenda voru eftir því góðar. Það er veralega gaman þegar sam- einast nærri því óskandinavískur skaphiti og rakvélablaðsnákvæmni - t.a.m. í mörgum eitilsnörpum fúgató- köflum verksins, að ekki sé minnzt á ketilbumbueinvígið fræga - og leik- ur lítill vafi á að 4. sinfónía Nielsens mun gera það gott í tónleikahöllum Bandaríkjamanna á næstunni, ef Dönunum tekst álíka vel upp þar og hér. 2. sinfónía Sibeliusar frá síðustu aldamótum er óður til finnskrar náttúra, ort úr hillingarfjarlægð suð- rænnar sólar á Italíu. Miðað við glæstar vonir undangenginna afreka kvöldins var ekki með öllu laust við að hún ylli svolitlum vonbrigðum í túlkun Temirkanovs. Hraðabreyt- ingar hans vora að vísu vel ásættan- legar, þótt stundum sérvizkulegar væru með lengri „kúnstpásum" en maður á að venjast, og ekki vantaði heldur skaphitann í hljómsveitinni frekar en fyrri daginn. Én á köflum var sem aðdáunarverð snerpan í spilamennskunni nýttist ekki sem skyldi vegna óheppilegs jafnvægis milli hljómsveitarhópa, sem hafði til- hneigingu til að skyggja á mikilvæg stef og frum. Þau hefði að ósekju mátt draga betur fram, enda auð- þakin í víða þykkum hljómsveitarvef Sibeliusar. Lúðrablásturinn, sem hér líkt og í fyrri verkum dagskrár var í sjálfu sér stórglæsilegur, hefði mátt draga aðeins niður í styrk hér og þar, og sumar innkomur í strengj- um og tré náðu ekki alveg sömu skeiðklukkustundvísi og í fyrri verk- um. Hvað jafnvægisvandann varðar kann að vísu að vera, að ókunnur hljómburður Háskólabíós, sem í bezta falli afhjúpar án þess að styðja, hafi átt sinn þátt í því hvemig til tókst. Til dæmis var eftirtektarvert að jafnvel fullskipuð strengjasveit með 8 kontrabössum náði minni hljómfyllingu en maður átti von á, auk þess sem tréblástur átti oft auð- velt með að hverfa í mergðinni. En þrátt fyrir allt var spilagleðin þakk- látum tónleikagestum augljós á þessu eftirminnilega kvöldi, og verð- ur hún ugglaust það sem útslagið gefur, þegar hljómsveitin tekur til óspilltra mála á næstunni í sölum á við Kennedy Center og Carnegie Hall. Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.