Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 43
+ María Soffía
Kristinsdóttir
fæddist í Hringsdal í
Grýtubakkahreppi í
S-Þing. 16. niaí 1930.
Hún lést á Land-
spítalanum 19. febr-
úar síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Breiðholts-
kirkju 25. febrúar.
Maja og Palli, sjald-
an bar nafn þeirra á
góma öðruvísi en
svona, bæði saman,
enda var ekki hægt að
hugsa sér samrýndari hjón. Öll
þeirra samvera hefur snúist um
væntumþykju og hlýhug hvors í ann-
ars garð.
Synirnir þrír og fjölskyldur þeirra
voru þó ávallt hringamiðjan í lífl
þeirra.
Við hjónin vorum svo heppin að
vera næstum fjölskylda við Maju og
Palla.
Svo góðir vinir og félagar vorum
við að þegar foreldrar okkar voru
látnir tóku Maja og Palli að sér
ömmu- og afahlutverkið hjá börnum
okkar og sinntu því á fullkominn
hátt. Það var ef til vill ekki svo erfitt,
því Maja hafði tekið á móti yngra
barni okkar við fæðingu þess.
Vinskapur okkar hófst fyrir langa
löngu og eru ógleymanlegar sam-
verustundir í ferðalögum innanlands
sem utan, auk allra stundanna og
söngæfinganna með Söngfélagi
Skaftfellinga í Skaftfellingabúð. Ör-
lítill aldursmunur okkar varð til þess
að Maja og Palli urðu fljótt leiðtogar
okkar og fyrirmynd í hjónabandinu
og lífinu öllu.
En nú er hún Maja amma fallin frá
eftir erfið veikindi seinustu misserin
og er hennar sárt saknað.
Við biðjum æðri máttarvöld að
gefa Palla afa, sonum og fjölskyldum
þeirra styrk og blessun á þessum
erfiða tíma.
Margrét Bjömsdóttir
og Kristján Leifsson.
Er við kveðjum Mar-
íu Soffíu Kristinsdótt-
ur, ljósmóður eða Maju
eins og hún vildi láta
kalla sig, er okkur fyrst
og fremst í huga þakk-
læti fyrir góða sam-
vinnu með dugmikilli
og drífandi samstarfs-
konu.
Maja réðst hingað að
mæðradeildinni 1980
og vann hér sleitulaust
fram í maí 1997 að hún
hætti til þess að geta
notið lífsins. Maja var
rösk til verka, og skjót
að taka ákvarðanir. Það átti ekki við
hana að eyða tímanum í óþarfa inni-
haldslaust tal, heldur koma hlutum í
framkvæmd. Hún var ætíð opin fyrir
nýjungum í sínu fagi og fylgdist vel
með þó svo hún segði oft að mikill
munur væri á kennslu og þekkingu
nú eða þegar hún lærði. Hún sinnti
sínum verðandi mæðrum vel, og enn
þremur árum eftir að hún hættir
störfum eru konur sem höfðu haft
hana fyrir ljósmóður að spyrja er
þær koma þungaðar nú hvort Maja
sé ekki ennþá að vinna.
Á góðum stundum var Maja hrók-
ur alls fagnaðar. AJltaf með léttar
sögur á takteinum og hló svo hátt að
undir tók. Hún var og virk í félags-
starfi og söng í kór. Hún ræddi oft
um fjölskylduna og Pál sinn en þau
voru mjög samhent. Er hún lauk
störfum hér við mæðradeildina bauð
hún öllu samstarfsfólki sínu til veislu
í sumarbústað þeirra hjóna og sá
fagnaður er enn í minnum hafður.
Því miður veittist Maríu ekki Iang-
ur tími eftir að hún hætti störfum til
að njóta lífsins og sinna sínum hugð-
arefnum. Varla hafði hún hætt vinnu
fyrr en hún greindist með sjúkdóm
þann sem nú hefur lagt að velli þessa
sterku konu.
Við kveðjum Maríu með söknuði
og virðingu í dag og sendum eigin-
manni, sonum og ættingjum innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Starfsfólk mæðradeildar
Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur
njóta þeirrar sérstæðu stemmningar
sem felst í því að hittast, hlæja, skera
út laufabrauðið og borða gott norð-
lenskt hangikjöt í lok dags.
Nóttin sem tengdi okkur sterk-
ustu böndunum var aðfaranótt 19.
nóvember 1972 þegar Karen Jenný
kom í heiminn. Ég fann þá vel hve
góð ljósmóðir Mæja var og tilbúin að
hjálpa mér að eiga barn á sem auð-
veldastan hátt. Tuttugu og þremur
árum síðar endurtekur sagan sig
þegar Mæja fylgdist með Karen
Jenný ganga með Þórhildi Gyðu, það
var gaman fyrir okkur að fá að verða
þessarar gæfu aðnjótandi. Viska
hennar og ráðleggingar, sem við
báðar fengum að heyra, lifir í.okkar
ráðleggingum til barnshafandi
kvenna jafnt í fjölskyldu sem vina-
hóp.
Minningar um hlátur, söng og
gleði eru þær minningar sem auð-
veldast er að minnast. En alltaf var
Mæja til í að breiða út faðminn,
hugga og styrkja þegar lífið varð erf-
itt. Við þökkum Mæju alla þá vináttu
sem við í fjölskyldu Fúsa og Ingu
höfum orðið aðnjótandi í gegnum ár-
in.
Við í ijölskyldunni sendum Palla,
Jóhannesi og fjölskyldu, Þór og fjöl-
skyldu og Kidda, sem og öðrum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Gyða og Karen Jenný.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
baggi margra þyngri er.
Vertu sanngjam, vertu mildur,
vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er,
en þú hefur afl að bera,
orka blundar, næg er þér.
Þerraðu kinnar þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta
sólargeisla kærleikans.
(Höf.óþ.)
Dýpstu samúð votta ég Páli Jó-
hannessyni, sonum þeirra og fjöl-
skyldum.
Guðrún Árnadóttir.
MARÍA SOFFÍA
KRISTINSDÓTTIR
Okkur langar með nokkrum orð-
um að minnast góðrar vinkonu okk-
ar, Maríu Soffíu Kristinsdóttur eða
Maju hans Palla, eins og við kölluð-
um hana oftast. Maju kynntist ég
þegar ég leigði herbergi hjá þeim
hjónum, það var lítil leiga, oftast hef
ég áreiðanlega borðað fyrir þann
litla pening sem ég lét af hendi fyrir
herbergið. Maja var lærð Ijósmóðir
og tók hún á móti elsta barninu mínu
og studdi dyggilega við bakið á ungu
móðurinni. Maja og Palli stóðu fyrir
þeirri góðu hefð að kalla saman
nokkra ættingja og vini, til að steikja
laufabrauð fyrir jólin. Þetta er stór
dagur í lífi okkar allra, byrjað
snemma um morguninn og endað
með dýrindis hangikjöts- og laufa-
brauðsveislu. Fyrir síðustu jól var
Maja orðin mjög veik, en þau hjónin
létu það ekki stoppa sig, vildu hafa
sín „litlu jól“. Maja kom heim af
sjúkrahúsinu til að vera með okkur
þennan dag. Ég veit að hún naut
þess að fylgjast með öllum hópnum
sínum. Hún fullvissaði sig um að
potthlemmurinn væri á sínum stað,
ef kviknaði í feitinni. Mér þykir mik-
ill heiður að hafa steikt laufabrauðið
hennar Maju síðustu tvö árin.
Palli og Maja komu sér upp sum-
arbústað í Öndverðaneslandi, þar
dvöldu þau í sínum frítíma. Maja
hafði yndi af að vera úti í náttúrunni,
fara í gönguferðir og sund.
Maja var létt í lund, hrókur alls
fagnaðar þar sem við átti en ljúf og
nærgætin, tilbúin að hugga og
hjálpa. Við Maggi og börnin okkar
þökkum Maju allar góðu samveru-
stundirnar.
Palli minn, síðustu mánuðir hafa
verið erfiðir, en þú átt góða syni,
tengdadætur og bamabörn, þið hafið
öll misst mikið. Við sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur. Guð gefi
ykkur styrk.
Jóhanna, Magnús S., Ásbjörg,
Hrafnhildur og Magnús.
Þegar komið er að þáttaskilum í
lífi manns renna upp minningarnar
sem tengja okkur saman og gera
okkur að fjölskyldu. Okkur mæðg-
urnar langai- að þakka Mæju fyrir
hennar þátt í að móta líf okkar. Það
er aldrei að tilefnislausu sem við
kynnumst fólki, Mæja kom inn í fjöl-
skylduna með bros og hlýju og bar
með sér nýja menningarstrauma
sem enn setja mark á fjölskylduna.
Þannig hefur það orðið órjúfanlegur
hluti af jólaundirbúningi margra
fjölskyldna að taka þátt í laufa-
brauðsbakstrinum, og a.m.k. fjórar
kynslóðir hafa fengið að neyta og
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
Davib Inger Öhiftir
l 'tfnr/trstj. I 'tfar/irstj. (Ufar/irstj.
LÍK KI STllVI N N USTO FA
EYVINDAR ÁRNASONAR
+
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem vott-
uðu samúð sína og veittu okkur styrk við and-
lát og útför
MARÍU BJARKAR EIÐSDÓTTUR,
Holtsbúð 14,
Garðabæ.
Ingólfur Hansen,
Reynir Harðarson, Rosemary Wanjiku Kihuri,
Ester Birna Hansen,
Valgerður Ósk Hansen,
Valgerður Magnúsdóttir,
systkini og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN VILBORG GÍSLADÓTTIR,
Þórunnarstræti 134,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn
28. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Gísli Sigfússon,
Helga Sigfúsdóttir, Rúnar H. Sigmundsson,
Gunnar Örn Rúnarsson, Bryndís Valgarðsdóttir,
Sigrún Rúnarsdóttir, Magnús Magnússon,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Elín Sveinsdóttir,
Guðrún Rúnarsdóttir, Sigfús Arnar Karlsson
og langömmubörn.
+
Elskulegur maðurinn minn og mágur okkar,
KENNETH J. KELLER,
510 Fairmont ave.,
North Tonawanda
N.Y. 14120
USA,
lést föstudaginn 25. febrúar. Útförin hefur farið fram.
Ásdís Torfadóttir Keller,
Sveinhildur Torfadóttir,
Laufey Torfadóttir,
Sigrún Torfadóttir,
Kristín Torfadóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGURÐUR GUNNARSSON,
Laugarnesvegi 81,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þorbjörg Einarsdóttir,
Guðrún Viktoría Sigurðardóttir,
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Sigurður Victor Chelbat.
+
Okkar kæri fósturfaðir og bróðir,
AÐALSTEINN TH. GÍSLASON,
Jökulgrunni 6,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu mánudaginn 28. febrúar.
Guðrún Árnadóttir,
Sigríður Árnadóttir,
Sigríður Gísladóttir,
Petra Gísladóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
TEITNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis á Fellsbraut 2,
Skagaströnd,
lést á Sjúkrahúsinu Blönduósi mánudaginn 28. febrúar.
Guðmundur Sveinsson, Margrét Guðbrandsdóttir,
Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur sonur minn,
RAFN MAGNÚSSON,
Efstasundi 80,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 29. febrúar.
Aðalheiður Magnúsdóttir.