Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
¥
FRETTIR
, •■ ■ • •■•, *s<• . . ,• ■',• .■• ;
■“'***'**? ***%*& &tm
- V\NÍÍ' -<!$*>** w'^r4' ^ /,<§ífr^, S&'
" f*** v. •>'
áflWCaf■'* -«.’• ' > í*.*11-' V<
^§jj|& **
Miklar framkvæmdir standa fyrir dyrum á Reykjavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Framkvæmdir að hefjast við Reykjavfkurflugvöll og ný flugstöð á deiliskipulagi
Framtíð vallarins er
mál allra landsmanna
Ráðgert er að efna til atkvæðagreiðslu með-
al Reykvíkinga um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar. Jóhannes Tómasson dregur
fram nokkur atriði úr umræðunni um kosti
og galla flugvallar í Vatnsmýri.
FRAMTÍÐ Reykjavíkurflugvallar
eftir árið 2016 er óljós en þá rennur
út gildistími núverandi aðalskipu-
lags Reykjavíkur. Endurgerð flug-
vaHarins er nú að hefjast en það er
framkvæmd upp á um i,5 milljarða
króna. Þýðir hún að samgönguyfir-
völd gera sér vonir um lengri ævi
flugvallar í Vatnsmýri? Hefði mátt
komast af með ódýrari aðgerðir? Er
hagkvæmt að flytja völlinn? Eða
leggja hann niður en færa flugið
annað?
Flugvöllur í miðri höfuðborg héf-
uf kosti og galla. Mikið hefur verið
rætt um þá og menn hafa skipst í
fylkingar út frá þessum atriðum.
Borgarstjóri hefur líkt þessum hóp-
um við villutrúar- eða rétttrúnaðar-
menn. Spyrja má þá hverjir eru
villutrúar og hverjir rétt- _______
trúnaðarmenn í þessu
sambandi.
landsflugi - að minnsta kosti ef gert
er ráð fyrir að samgöngur á landi
haldi áfram að batna. Einnig hefur
verið bent á nálægð vallarins við að-
alsjúkrahús landsins og að hann sé
því nauðsynlegur sem sjúkravöllur.
Enn má nefna að talsvert ferjuflug
hefur farið um völlinn og því hafa
fylgt nokkur störf og tekjur vegna
margs konar þjónustu.
Gallar
Kostir
Ný flugstöð
styrkir f lug-
völlinn í sessi
Kostir eru nálægð
þessarar miðstöðvar flugsamgangna
innanlands við aðrar lífæðar á höf-
uðborgarsvæðinu, tenging lands-
byggðar og höfuðborgar. Þeir sem
búa fjarri höfuðborginni og eiga
þangað erindi með flugi hljóta að
vilja lenda sem næst henni og það
sama hlýtur að eiga við um þá sem
búa á höfuðborgarsvæðinu. Þeir
myndu kjósa annan ferðamáta ef
akstur milli miðborgar og flugvallar
tæki hálftíma eða meira ef miðað er
við Keflavíkurflugvöll, en hann hlýt-
ur að vera helsti kosturinn fyrir inn-
anlandsflug verði Reykjavíkurflug-
völlur lagður niður. Það þýðir að
fækka myndi farþegum í innan-
Meðal galla sem hafa verið nefnd-
ir er ónæði fyrir nágranna flugvall-
arins. Flugumferðinni fylgi hávaði,
oft fnykur og margs konar truflun.
Einnig að þessi stóri reitur hefti
mjög allt svigrúm borgarinnar hvað
varðar skipulag, ekki aðeins hvað
varðar flugvallarsvæðið sjálft, held-
_________ ur miðborgina, tengingu
gatna vegna aukinnar
umferðar við hana og
betra væri að nýta svæð-
ið til að byggja nýtt
hverfi íbúa og fyrirtækja
arins. Hefur þegar dregið úr áhrif-
um vegna ílugumferðar að þessu
leyti og benda má líka á að flugvélar
verða sífellt hljóðlátari.
Fyrirhugað er að flytja æfinga-
flug eða snertilendingar frá vellin-
um á aðra nálæga velli eða leggja
nýja braut sem gæti tekið að nokkru
að sér hlutverk kennsluflugsins.
Flugmenn benda á að öryggismál-
um nágrannaflugvalla sé þannig
komið að þeir dugi ekki að óbreyttu
til þess ama. Telja þeir næsta frá-
leitt að hægt sé að nota nokkurn nú-
verandi valla. Þannig sé völlurinn
við Tungubakka í Mosfellsbæ of
takmarkaður og varla raunhæft að
flytja vandann frá Reykvíkingum til
dæmis til Sélfyssinga. Ekkert liggur
enn fyrir hvar má koma fyrir nýrri
braut sem gæti verið viðunandi fyrir
snertilendingar. Margir horfa þó á
Kapelluhraunið í því skyni.
Unnið að forathugun
og þann veg styrkja borgina í sessi.
Spuming er hins vegar hversu góð-
ar eða hagkvæmar byggingarlóðir
verða í mýri.
Dregið úr umhverfisáhrifum
Ljóst er að flugvöllur í Vatnsmýri
verður við lýði næstu 16 árin en
hugsanlegt er að margt muni breyt-
ast í starfsemi hans á næstu áram.
Þannig hafa borgaryfirvöld og sam-
gönguráðherra komist að samkomu-
lagi um að dregið verði nokkuð úr
áhrifum flugumferðar og ekki era
mörg misseri síðan gefnar vora út
viðbótarreglur um aðflug og fráflug,
hávaðareglur og þjónustutíma vall-
Málið er nú til athugunar á vegum
samgönguráðuneytis en allmörg ár
eru síðan tillögur komu fram um að
flytja æfinga- og kennsluflugið frá
Reykjavík á nýjan flugvöll. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra seg-
ir að unnið sé nú að forathugun og
gert ráð fyrir rúmlega 100 milljóna
króna framlagi vegna þess.
í september á síðasta ári fór fram
skoðanakönnun á viðhorfum lands-
manna til Reykjavíkurflugvallar. í
niðurstöðum hennar kom fram að
47% úr 1.100 manna úrtaki með
616% svarhlutfalli var mjög eða
frekar sammála því að völlurinn yrði
áfram í Vatnsmýrinni, 31% voru því
ósammála og 22% hafði ekki mynd-
að sér skoðun. Nokkur munur var á
afstöðu ef svör voru greind eftir
búsetu. Þannig var 45,5% íbúa á höf-
uðborgarsvæðinu mjög eða frekar
sammála því að hafa völlinn áfram í
Vatnsmýri en um 50% íbúa lands-
byggðarinnar vora á þeirri skoðun.
hluta flugvallarstæðisins að austan-
verðu. Gert er ráð fyrir því að á
þessu og næsta ári verði nokkrum
fjármunum varið til undirbúnings
hennar. Samgönguráðherra kveðst
vilja kalla saman fjárfesta og þá sem
tengjast flugrekstri og gætu verið
reiðubúnir að standa að fjárfestingu
í allsherjar umferðarmiðstöð. Hún
myndi þjóna öllum flugrekendum,
geta sinnt hlutverki núverandi Um-
ferðarmiðstöðvar og þannig verða
alhliða miðstöð. „Ég legg mjög mik-
ið upp úr því að kanna hvort þarna
geti ekki verið um einkafjármögnun
að ræða. Að henni kæmu fjárfestar
og þeir sem sinna þarna rekstri,
langferðabílar og aðrir þjónustuaðil-
ar sem vildu koma sér upp aðstöðu
þar,“ sagði ráðherra og kvaðst einn-
ig geta ímyndað sér að þar yrði
komið upp verslunarrekstri. „Þá
geta menn verslað, tekið flug eða
rútu út á land og rekið önnur erindi
undir sama þaki.“
Er þá ekki verið að horfa til lengri
tíma en 2016 með slíka fjárfestingu?
„Jú, ég held að það sé líklegt að
menn vildu vita hvað verður ögn
lengra fram í tímann. Hins vegar má
benda á að þjónustumiðstöð á þess-
um stað, sem sinnti áætl-
unarbílum, strætisvögn-
um, leigubílum, verslun
og ýmsu öðra, myndi
kannski nýtast áfram og
hugsanlega þótt völlur-
sagði Ingibjörg Sólrún í samtali við
Morgunblaðið. „Það þarf að koma
ákveðnum upplýsingum á framfæri
og ákveðnir hlutir sem þarf að vinna
og ég stend í þeirri meiningu að
borg og ríki ættu að standa sameig-
inlega að því. Þar er ég að tala um
hina fjárhagslegu þætti málsins,
hvaða möguleikar eru í stöðunni ef
flugvöllurinn verður ekki í Vatns-
mýri og hvað það þýðir, hvaða
tekjur fengjust með nýtingu á
Vatnsmýri og hvaða þýðingu það
hefði fyrir skipulag svæðisins í heild
og miðborgarinnar og líka hvaða
þýðingu flugvöllur hefur þar sem
hann er eða annars staðar fyrir
ferðaþjónustuna og landsbyggðina
og svo mætti áfram telja.“
Samgönguráðherra kveðst hafa
svarað borgarstjóra því til að komi
formlegt erindi um slíka nefnd
myndi ráðuneytið tilnefna sinn eða
sína fulltrúa. „Ég mun ekki láta mitt
eftir liggja að kynna það fyrir lands-
mönnum hvers vegna ákvörðun var
tekin um endurbyggingu vallarins,"
segir ráðherra. „Ég hef líka minnt á
að þegar endurbygging Reykjavík-
ur var undirbúin var skipaður
starfshópur undir forystu Guðrúnar
Ágústsdóttur, sem þá var borgar-
fulltrúi, og fór hann yfir málið vand-
lega og fól meðal annars Hagfræð-
istofnun Háskólans að meta allar
hliðar og kosti þess að flugvöllurinn
færi eða væri. Niðurstaða þessa
starfs varð sú að endurbyggja skyldi
flugvöllinn en færa hann ekki þann-
ig að það er búið að skoða sitthvað í
málinu,“ sagði ráðherra og benti á
að í úttekt Hagfræðistofnunar kæmi
fram að þjóðhagslega hagkvæmt
væri að völlurinn yrði áfram í Vatns-
mýri og það væri ekki bundið við nú-
verandi skipulagstímabil. Sagði
hann flugmálastjórn einnig hafa lagt
til grandvallar nýtt áhættumat
vegna flugvallarins þegar endur-
byggingin var ákveðin. „En það er
líka mjög mikilvægt að stjórnmála-
menn, bæði hjá borg og ríki, gefi
skýr svör um pólitíska afstöðu í
þessu máli sem væntanlega yrði
byggð á gögnum og rökum.“
Efnt verður til
atkvæðagreiðslu
Keflavík helsti
kosturinn fyrir
innanlandsflug
Gert ráð fyrir nýrri flugstöð
Samkvæmt deiliskipulagi er nú
gert ráð fyrir nýrri flugstöð á suður-
inn væri fluttur. En hann er hins
vegar aðalatriðið í slíkri miðstöð.“
Nefnd skoði
framtíðarhugmyndir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri hefur óskað eftir því við
samgönguráðherra að sett verði á
laggirnar nefnd sem hefði það hlut-
verk að fara yfir helstu þætti er
varða framtíð flugvallarins í Reykja-
vík.
„Það væri hópur skipaður fagfólki
sem vega skyldi og meta og skoða
hlutlægt kostina í stöðunni og undir-
búa þá umræðu sem þarf að fara
fram meðal borgarbúa um málið,“
Borgarstjóri segist vænta þess að
þessi vinna skýri mjög hvaða kostir
eru í stöðunni um framtíð flugvallar-
ins. Efna á til atkvæðagreiðslu á ár-
inu meðal borgai'búa um það hver sé
vilji þeirra varðandi flugvöllinn eftir
að núverandi skipulagstímabil renn-
m- út árið 2016. „Ef það verður nið-
urstaða borgarbúa að þeir vilja hafa
flugvöllinn áfram þá vinnum við að-
alskipulagið samkvæmt því en ef
það verður niðurstaðan að færa eigi
flugvöllinn myndum við vinna aðal-
skipulag með það í huga að hann
færi eftir 2016 og þá hafa menn
þennan aðlögunartíma."
Borgarstjóri segist vilja taka mik-
ið mark á væntanlegri atkvæða-
greiðslu, það fari þó eftir þátttök-
unni hversu bindandi niðurstaða
hennar geti verið. „Ég get séð það
fyrir mér að við reyndum einhverja
nýja leið í atkvæðagreiðslunni. Það
er ekki víst að við þyrftum að draga
alla á kjörstað heldur gæti póst-
kosning eða svipað fyrirkomulag
komið til greina," segir borgarstjóri.
Stefnt er að atkvæðagreiðslunni á
árinu en líklega verður hún ekki fyrr
en með haustinu.
Sturla Böðvarsson telur mikil-
_________ vægt að gefa fleirum
tækifæri til að taka af-
stöðu til málsins ef leita
á eftir afstöðu almenn-
ings. Athuga bæri að
flogið væri yfir Seltjarn-
arnes og Kópavog og því mætti ef til
vill kanna hug þeirra. „Flugvöllur-
inn er mikilvæg samgönguæð fyrir
landsmenn alla og því skiptir það
mjög miklu máli að fleiri komi að
þessari ákvörðun en höfuðborgar-
búar einir, enda gerir tillaga borgar-
yfirvalda ráð yfir því að afstaða ann-
arra verði könnuð.“
Nokkuð Ijóst er því að ákvörðun
um framtíð Reykjavíkurflugvallar
snertir alla landsmenn. Málið er
hvorki einkamál Reykvíkinga né
þeirra sem búa úti á landi né heldur
þeirra sem hafa beinna hagsmuna
að gæta vegna starfsemi sinnar eða
starfa.
I