Morgunblaðið - 01.03.2000, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Vfkingar áætla stækkun á vallarsvæði sínu við Traðarland inn f Kópavog
Alagið á nú-
verandi svæði
er of mikið
Fossvogur
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
Víkingur áformar nú stækkun
á Víkingssvæðinu við Traðar-
land, enda núverandi svæði
löngu orðið of lítið og álagið á
grasvöllum verið meira en
góðu hófu gegnir. Þá gera fyr-
irliggjandi skipulagstillögur
ráð fyrir að keppnisvöllurinn
verði færður á núverandi mal-
arvöll til þess að ná betri teng-
ingu við vallarhúsin.
Til þess að stækkunin geti
orðið að veruleika hefur þurft
að sækja um spildu úr landi
Kópavogs og hefur nú náðst
samkomulag milli Kópavogs
og Reykjavíkur um 9.000
ferm landsvæði undir stækk-
unina. Viðbótin veldur því að
hægt verður að bæta við ein-
um æfingavelli, og rúmlega
það. Jafnframt stækkuninni
verða gerðar skipulagsbreyt-
ingar á svæðinu.
Morgunblaðið ræddi á dög-
unum við þrjá af forsvars-
mönnum Víkings, þá Þór Sím-
on Ragnarsson formann
félagsins, Ragnar Ragnars-
son gjaldkera og Harald Har-
aldsson stjórnarmann. Þeir
segja breytingarnar fela í sér
að bætt verður við svæðið
9.000 fermetrum sem nú eru í
landi Kópavogs. Þar sem nú-
verandi keppnisvöllur er í dag
verður útbúinn malarvöllur,
sem þá liggur meðfram Trað-
arlandi og er jafnframt hugs-
aður sem möguleiki fyrir
fjölgun bílastæða.
Keppnisvöllurinn verður
staðsettur þar sem malarvöll-
urinn er í dag og þar er gert
ráð fyrir áhorfendastæðum og
jafnvel stúku í framtíðinni
fyrir allt að 2.500 manns, en
ekki verða hafnar fram-
kvæmdir við gerð stúkunnar í
þessum áfanga. Með því að
færa aðalvöllinn næst betri
tenging við vallarhúsið og
hægt verður að búa til varða
leið fyrir leikmenn og dómara
til og frá vellinum.
Einnig verður hægt að
þjóna áhorfendum betur með
þessum hætti. Með fram-
kvæmdum við áhorfenda-
stúku og tengingu við vallar-
húsið opnast sá möguleiki að
völlurinn geti rúmað stórleiki
Víkinga í framtíðinni, t.d.
Evrópuleiki.
Mikið álag á
núverandi svæði
Stækkunin á svæðinu gerir
síðan kleift að útbúa tvo æf-
ingavelli í fullri stærð og má
segja að hver fermetri verði
nýttur til hins ítrasta. Sam-
kvæmt skipulagstillögu er
gert ráð fyrir að fjölga tennis-
völlum um tvo, en það verður
látið bíða og sléttur grasvöllur
látinn vera þar í staðinn.
Félagið er búið að vera í
vandræðum á svæðinu í mörg
ár og grassvæðið hefur gengið
sér til húðar nánast á hveiju
ári. Stór hluti af svæðinu er í
stöðugri notkun og því hefur
ekki verið ráðrúm til að hlífa
grasinu með því að færa álag-
ið til. Það er grundvallaratriði
fyrir svona svæði að hægt sé
að hvíla ákveðna bletti til þess
að grasið nái sér og sem dæmi
um álagið nefnir Þór Símon að
æft hafi verið á grasinu í rúma
62 tíma á viku síðasta sumar,
á meðan talið er hámark að
æfa 15 tíma vikulega á gras-
völlum á þessari breiddar-
gráðu. Stækkunin mun bæta
úr þessu að einhverju leyti, en
þó telja þeir að nauðsynlegt
verði í framtíðinni að fá til af-
nota annað svæði til æfinga,
td. fyrir meistaraflokk.
Árið 1988 gerði Víkingur
samning við Reykjavíkurborg
þar sem borgin skuldbatt sig
til að kosta gerð malar- og
grasvallar í Fossvogsdal í stað
tveggja valla á fyrra félags-
svæði Víkings í Hæðargarði,
sem látnir voru af hendi árið
1992. Aðalstjórn setti á þeim
tíma fram beiðni um 15.000 fm
landstækkun inn í land Kópa-
vogs og samstarfsnefnd
Reykjavíkur og Kópavogs
samþykkti á fundi sínum í
aprfl 1993 að leggja til verða
við þeirri beiðni. Skipulags-
nefnd Kópavogs samþykkti
síðan á fundi í júní sama ár
óskir Víkinga um afnotarétt
af þessu landi.
Bæjarstjórn Kópavogs
breytti hins vegar stærð
landrýmisins í endanlegri af-
greiðslu málsins og minnkaði
það niður í 9.000 fermetra.
Tilgreind ástæða fyrir minnk-
un svæðisins um 6.000 fer-
metra var áætluð gerð golf-
vallar í Fossvogsdal, sem
síðar var hætt við að gera, að
sögn Þórs Símonar.
Framkvæmdum Ijúki á
sem skemmstum tíma
Hann segir að þetta hafi
verið eitt helsta baráttumál
stjórnarinnar síðustu árin og
Morgunblaðið/Eiríkur
Þrír af forráðamönnum Knattspyrnufélagsins Víkings. Frá vinstri: Haraldur Haraldsson
stjórnarmaður, Þór Sfmon Ragnarsson formaður og Ragnar Ragnarsson gjaldkeri.
Vallarhús
TRAÐARLAND
Malarvöllur
Núverandi
íþróttahús
Tennisvellir
Grassvæði, æfinga-og
p" • færanlegir keppnisvellir
58 bílastæði
Byggingarsv. fyrir
stúku og stæði
Keppnis- fyrir2500 manns
völlur
>m
reykjavIk
KÓPAVOGUR
Fyrirhuguð stækkun á svæði
Knattspyrnufélagsins Víkings
Gróðrastöðin
Mörk -
sgt j
Víkingssvæðið að loknum framkvæmdum. Á kortinu er línan sem skipt-
ir Kópavogi og Reykjavík, en stækkun svæðisins er innan Kópavogs.
hafi loks fengist í
gegn á síðasta
ári. Þó er enn eft-
ir að ganga frá
ýmsum formsat-
riðum auk þess
sem að skurðir og
frárennsli á
svæðinu er ófrá-
gengið. Kostnað-
ur við fram-
kvæmdir á
svæðinu er áætl-
aður um 65 millj-
ónir, en samning-
urinn við Reykja-
vík frá 1988 gerði
ráð fyrir 30 millj-
ónum.
Að sögn þeirra
félaga er vonast
til að hægt verði
að hefja fram-
kvæmdir á svæð-
inu í vor. Nauð-
synlegt er að
ljúka þeim á sem skemmstum
tíma og má vart taka lengri
tíma en eitt ár. Félagið þarf
að nota svæðið jafnóðum og
framkvæmdir standa yfir og
því er ekkert svigrúm til að
dreifa framkvæmdum á lengri
tíma.
Áður en hægt verður að
hefjast handa þarf að ganga
frá því við borgina að endur-
meta samninginn frá 1988 til
núvirðis. Telur Ragnar að
þegar búið sé að meta þessar
framkvæmdir og bera saman
við samninginn í upphafi verði
upphæðin sem borgin eigi að
greiða mjög nálægt því sem
kostnaðaráætlunin gerir ráð
fyrir.
■
Fyrsta skóflustungan að nýbyggingu við leikskólann Norðurberg
Rými fyrir
120 börn
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, tók fyrstu
skóflustunguna að nýbyggingu við leikskólann Norður-
berg á föstudaginn ásamt leikskólabörnunum.
Hafnarfjörður
BÖRNIN í leikskólanum
Norðurbergi í Hafnarfirði
tóku fyrstu skóflustunguna
að nýrri viðbyggingu leik-
skólans ásamt bæjarstjóran-
um, Magnúsi Gunnarssyni, á
föstudaginn. Að sögn Bryn-
dísar Garðarsdóttur, Ieik-
skólaráðgjafa bæjarins, eru
framkvæmdir þegar hafnar,
en ráðgert er að bæta tveim-
ur deildum við leikskólann,
sem staðsettur er við Norð-
urvang 13, en eftir það verð-
ur hann fjögurra deilda og
mun rúma um 120 börn.
Áætlaður kostnaður vegna
framkvæmdanna er um 96
milljónir króna.
„Þetta er iítill gamall leik-
skóli, sem hefur haft lélega
aðstöðu og þetta er því mikil
bót,“ sagði Bryndís.
„Aðstaðan fyrir bæði starfs-
fólk og börn verður bætt til
muna og hönnunin tekur
svolitið mið af þeirri um-
hverfísstefnu sem skólinn
hefur rekið.“
Haustið 1997 hófst þróun-
arverkefni í Norðurbergl,
þar sem stefnt var að því að
gera leikskólann vistvænan.
Fengin var fjárveiting frá
menntamálaráðuneytinu til
verkefnisins og vinnuhópar
settir af stað, sem tóku að
sér ýmis verkefni, með það
markmið að gera starf leik-
skólans vistvænt og veita
börnunum umhverfísmenn-
tun. Þetta hefur leitt til þess
að nú er úrgangur og rusl
leikskólans flokkað og allt
endurunnið sem hægt er.
Gamla húsnæðið
verður tekið í gegn
Framkvæmdirnar við leik-
skólann skiptast í tvo megin-
áfanga. Fyrri áfanginn tek-
ur til nýbyggingar austan
megin við núverandi hús og
eru áætluð verklok þann 18.
ágúst í sumar. Síðari áfang-
inn tekur til nýbyggingar
norðan megin við núverandi
hús og frágang lóðar, í síð-
ari áfanganum verða einnig
gerðar endurbætur á núver-
andi húsi. Áætluð verklok
eru 4. október.
„Gamla húsnæðið verður
tekið alveg i gegn, búið til
nýtt eldhús og dyttað að
ýmsu öðru,“ sagði Bryndís.
„Lóðin mun einnig stækka
töluvert og verður mjög
náttúruleg og skemmtileg.
í framtíðinni gerum við
siðan ráð fyrir að í leikskól-
anum verði deild fyrir
yngstu börnin, þ.e. ársgömul
böm. Húsið er teiknað með
það í huga, en ég er ekki
búin að sjá að við getum sett
það í framkvæmd strax.“
Bryndís sagði að starf-
semi leikskólans yrði í lág-
marki í sumar og að þegar
framkvæmdir stæðu sem
hæst myndu börnin verða
flutt annað, en að líklega
yrði það ekki nema í 3 vik-
ur. Hún sagði að komið
hefði til tals að flytja börnin
í Engidalsskóla, en að ekki
væri búið að taka endanlega
ákvörðun f þvi máli.
Það er verktakafyrirtæk-
ið Feðgar ehf. sem sér um
framkvæmdir, en alls tóku 4
fyrirtæki þátt í útboði vcgna
framkvæmdanna. Tilboð
Feðga hljóðaði upp á 96
milljónir króna, eins og áður
sagði, en kostnaðaráætlunin
upp á um 98 milljónir.
Sundlaug
Kópavogs
óvenju köld
Kópavogur
SUNDLAUG Kópavogs
hefur verið óvenju köld
undanfarnar vikur og
vegna þessa hefur nokkr-
um sinnum þurft að
hætta við skólasund í
lauginni. Að sögn Péturs
Sveinssonar, vaktfor-
manns sundlaugarinnar,
má líklega rekja kuldann
til þess að heitavatnsdæl-
ur laugarinnar séu farnar
að gefa sig, en hann sagði
að þessa dagana væri ver-
ið að gera við þær.
„Þegar það koma mikil
hvassviðri þá verður yfir-
borðskælingin svo mikil
að dælurnar hafa ekki
undan,“ sagði Pétur.
„Laugin er 25 gráður í
dag (í gær), en hún fór al-
veg niður í 23 í gær (í
fyrradag). Eðlilegt hitast-
ig er hinsvegar 29,3 gráð-
ur.
Við höfum líka verið að
gæla við það að við fáum
ekki eins mikið vatn og
við þurfum, en það er óm-
ögulegt að staðfesta neitt
um það fyrr en dælurnar
eru komnar í lag.“
Að sögn Péturs urðu
þeir fyrst varir við þetta
vandamál í haust, en síð-
an hefur það verið að
smáaukast, ekki síst síð-
ustu vikur þegar kalt hef-
ur verið í veðri.
Nóg til af heitu vatni
Pétur sagði að viðgerð-
in á dælunum myndi klár-
ast í dag eða á morgun,
en um er að ræða fjórar
dælur sem verið hafa í
gangi frá því laugin var
opnuð árið 1991.
Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, sagði að
þrátt fyrir kuldatíð væri
nóg af heitu vatni til
handa höfuðborgarbúum.
„Við höfum mjög mikla
ónotaða framleiðslugetu á
Nesjavöllum,“ sagði Guð-
mundur. „Það er því langt
frá því að við séum að
nálgast einhver hættum-
örk í þeim efnum.“