Morgunblaðið - 01.03.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 19
Breikkun
Mýrar-
götu í at-
hugun
Miðborg
BORGARSKIPULAG er nú
að skoða þann möguleika að
breikka Mýrargötu. Borgin
hefur keypt upp lóðir sem af-
markast af Mýrargötu, Selja-
vegi og Nýlendugötu, og nú
síðast lóð af raftækjaverk-
stæðinu Segli. Byggingar-
nefnd Reykjavíkur hefur sam-
þykkt að sameina þessar
lóðir, sem þá verða samtals
rúmir 2.000 fermetrar og
verður nýja lóðin tölusett
númer 25 við Mýrargötu. Þá
verður einnig tekið af lóðinni
og lagt til nýrrar lóðar sem
verður 317 fermetrar að
stærð og verður hún númer
32 við Nýlendugötu.
Gert er ráð fyrir að byggja
þarna ný hús, en núgildandi
deiliskipulag á þessu svæði er
í endurskoðun. Þeirri endur-
skoðun hefur verið frestað
vegna þess að nú er verið að
skoða Mýrargötuna sérstak-
lega og hugsanlega breikkun
á henni. Sú vinna er í fullum
gangi og þess vegna er ekki
búið að ákveða hvernig nýjum
lóðum verður ráðstafað enda
gæti hluti af lóðinni farið und-
ir breikkun Mýrargötu.
Skipulagið gerði ráð fyrir
að þarna yrðu tvær lóðir fyrir
flutningshús, en eftir að end-
urskoðun lýkur verður lóðinni
ef til vill ráðstafað í eitthvað
annað.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Uáuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Sætlr
spæjarar
AÐEINS 459 kl
9. tbl. 62. ara.
29. febrúar, 20Ö0
’ERÐ 459 kr. m. VSK.
Wammgjan
í Hollywood
Ir sjálfsálitio
í lagiP
Listin að
slá gullhamra
kriftir
Eldheit ást á
strfðstfmum
Lifandi 09 dauð
UTSOLULOK!
10% aukafsláttur af útsöluverði
Úlpur - snjóbuxur -
kuldaskór - íþróttaskór
og margt fleira
ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT
SPAR SPORT
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI
Nóatúni 17
Sími 511 4747