Morgunblaðið - 01.03.2000, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stúlkurnar þrettán sem taka þátt í Fegurðarsamkeppni Suðurlands. Myndin er tekin í kynnisferð til Reykjavík-
ur. Þær eru í aftari röð Sjöfn Ólafsdóttir Vestmannaeyjum, Helga Þórlaug Jónsdóttir Selfossi, Anna Stella Ey-
þórsdóttir Selfossi, Hugborg Kjartansdóttir Ölfusi, María Karen Jósefsdóttir Selfossi og Hildur Marta Val-
garðsdóttir Hveragerði. f fremri röð eru: Þórey Jóhannsdóttir Vestmannaeyjum, Sigurrós Steingrímsdóttir
Vestmannaeyjum, Sylvía Karen Heimisdóttir Selfossi, Katrín Dögg Pálsdóttir Hveragerði, Sif Jónsdóttir
Hveragerði, Aðalbjörg Jóhanna Þorláksdóttir Vestmannaeyjum og Kristinn Bergsson bflstjóri. Á myndina
vantar Ragnheiði Þorvaldsdóttur frá Flúðum.
Fegurðarsamkeppni Suðurlands
Þrettán stúlkur keppa
Selfossi - Þrettán stúlkur taka þátt í
undirbúningi fyrir Fegurðarsam-
keppni Suðurlands sem fer fram á
Hótel Selfossi 4. mars næstkomandi.
Undirbúningurinn hefur staðið í
nokkrar vikur en talsverðar áherslu-
breytingar hafa verið gerðar á
keppninni frá þvi sem áður var.
Þriggja manna stjórn keppninnar
stýrir undirbúningnum og í fréttatil-
kynningu frá henni segir m.a. að
þegar sé farið að huga að næstu
keppni sem verður keppni um Herra
Suðurland.
Stúlkurnar sem eru víðs vegar að
af Suðurlandi hafa stundað fjöl-
breytta líkamsþjálfun í líkamsrækt-
arstöðinni Styrk og fengið æfingar
hver við sitt hæfí. Þá er snyrtistofan
Myrra þeim innan handar varðandi
förðun og hárgreiðslustofan Ozone
sér um hárgreiðslu fyrir keppnina og
leiðbeiningar til stúlknanna um það
efni.
Sjálfstraust og framkoma
Kadri Hint-Dagbjartsson frá Tall-
inn í Eistlandi er stílisti keppninnar
og sér um stílsetningu og þjálfun
stúlknanna. Hún segir mikið lagt
upp úr samvinnu stúlknanna. „Þetta
er góður og skemmtilegur hópur og
ég tel að það sem við erum að gera sé
gott fyrir stúlkurnar, þetta snýst
ekki bara um að líta vel út heldur
einnig um sjálfstraust og fram-
komu,“ sagði Kadri.
Netstúlkan valin
Sérstök vefsíða hefur verið sett
upp fyrir keppnina og þar geta þeir
sem heimsækja hana valið Netstúlku
Suðurlands, slóðin er www.ka.is/feg-
urd. Úrslit í því vali verða kynnt 4.
mars á úrslitakvöldinu.
Úrslitakvöldið verður mjög veg-
legt með fjórréttuðum matseðli, Eg-
ill Ólafsson verður kynnir kvöldsins
og hljómsveitin Á móti sól mun leika
fyrir dansi. Sérsmíðað svið verður í
húsinu fyrir keppnina.
Lionsmenn kynna
sér búskapinn
Stykkishólmi - Lionsklúbbur Stykk-
ishólms hefur starfað í yfír 30 ár.
Starfið hefur gengið vel í vetur og
hafa 6 nýir félagar bæst við í hópinn
og eru félagsmenn 32 talsins. Stærsta
verkefnið á þessu starfsári var endur-
bygging Lionshússins sem ráðist var
í í haust. Skiluðu félagar þar mikilli
vinnu og lítur Lionshúsið nú vel út.
Nýlega var Lionsmönnum boðið í
heimsókn að Hraunhálsi í Helgafells-
sveit til eins félagans, Jóhannesar
Eybergs Ragnarssonar. Hann sýndi
félögunum sínum nýbyggt fjárhús
sem hann hafði byggt að mestu leyti
sjálfur í sumar. Farið var fjósið og
heilsað upp á kýmar. í fjósinu eru 30
mjólkandi kýr auk geldneytis.
Eyberg framleiddi 130.000 mjólkur-
lítra á síðasta ári. Að lokum var boðið
í hlöðuna þar sem bóndi hafði útbúið
aðstöðu til að taka á móti gestunum.
Þar var boðið upp á veitingar, m.a.
osta frá Mjólkurbúinu í Búðardal. Á
meðan gestir nutu veitinganna flutti
Eyberg erindi um starf bóndans.
Hann lýsti því hvernig lífið gengi fyr-
ir sig hjá bóndanum og húsdýrum
hans. Með natni, snyrtimennsku og
mikilli vinnu nær búið að skila eig-
endum sínum viðunandi afkomu.
Lionsmenn höfðu mikla ánægju af
heimsókninni og fóru heim fróðari um
starfsskilyrði félaga sinna í sveitinni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Lionsmenn í Stykkishólmi í heimsókn í fjósinu á Hraunhálsi. Á myndinni
er með þeim Jóhannes Eyberg bóndi í Hraunhálsi og kálfurinn Óþörf
sem kom í heiminn tveimur dögum áður.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Magnús Kristinsson með fulltrúum styrkþega; frá Sambýlinu Sæfinna,
frá fþróttafélaginu Ægi Hera, og frá Meðferðarheimilinu Búhamri Mar-
grét.
Morgunblaðið/GPV
Unnið að viðgerð á Kvíabryggju.
Viðgerð á Kvía-
bryggju
Grindavík - Verið var að vinna að
viðgerð á Kvíabryggju þegar
blaðamaður leit við nýlega. Menn
eru farnir að tala um fasta liði
eins og venjulega í þessu sam-
bandi því bryggjan er búin að vera
í viðgerð frá því f janúar en hún
fór illa f illviðri 10. janúar og svo
aftur í lok febrúar.
Morgunblaðið ræddi við Viðar
Má Aðalsteinsson bæjartæknif-
ræðing og kom fram í máli hans
að mjög reyndur hafnarverktaki
ynni við framkvæmdirnar, Lárus
Einarsson. „Viðgerðin var rétt
hálfnuð þegar bryggjan fór aftur
og eiginlega verr en áður því að
það brotnuðu staurar og burðar-
viður á köflum. Það verður því
meira mál að gera við bryggjuna
en áður. Viðlagatrygging greiðir
allan kostnað við viðgerðina að
frádreginni sjálfsábyrgð upp á
500.000 kr. Þó er eitthvað til við-
bótar sem fellur á bæinn,“ sagði
Viðar.
Vigdís Ylfa íþrótta-
maður ársins
Bfldudal - Á sólarkaffi Bílddæl-
inga í febrúar var tilkynnt val á
íþróttamanni ársins hjá Iþrótta-
félagi Bíldudals.
Það var Vigdís Ylfa Hreins-
dóttir sem hreppti titilinn fyrir
góða frammistöðu á íþróttamót-
um sumarsins.
Að auki hlutu viðurkenningu
fyrir góðan árangur þau Arna
Margrét Arnardóttir, Pálmi
Gíslason, Bryndís Hreinsdóttir,
Karl Orri Einarsson, Andrés G.
Andrésson og Anna Steinunn
Árnadóttir.
Það var nýkjörinn formaður
ÍFB, Gísli Ægir Ágústsson, sem
afhenti verðlaunin.
Morgunblaðið/Nanna Sjöfn Pétursdóttir
Frá kjöri íþróttamanns ársins 1999 á Bíldudal.
Eyjaís með
300 þús-
und tonn
Vestmannaeyjum - Sl. föstudag
varð sá merki viðburður í sögu
Eyjaíss, að fyrirtækið seldi frá sér
300 þúsundasta tonnið af ís. Það
var árið 1986 að fyrirtækið Eyjaís
hóf starfsemi öflugrar ísstöðvar
við Friðarhöfn í Vestmannaeyjum,
og hefur fyrirtækið allar götur
sfðan þjónustað bátaflotann og
fiskvinnslufyrirtækin í Eyjum.
Á síðari árum hefur heldur
dregið úr sölu á ís vegna fækkun-
ar í bátaflota Eyjamanna auk þess
sem fiskvinnslufyrirtækjunum
hefur fækkað og í seinni tíð er árs-
salan um 17 þúsund tonn en var
mest á árinu 1990, 29 þúsund tonn.
Vegna þessara tímamóta ákvað
stjórn fyirtækisins að styrkja þrjá
aðila sem vinna að málefnum fat-
laðra í Vestmannaeyjum, um
100.000 þúsund krónur hvern.
Meðferðarheimilið að Búhamri,
íþróttafélagið Ægi og Sambýlið
við Vestmannabraut. Fulltrúar
þessara aðila tóku við gjöfinni úr
hendi Magnúsar Kristinssonar
stjórnarformanns Eyjaíss, í fund-
arherbergi fyrirtækisins. Full-
trúar styrkþega þökkuðu rausnar-
lega gjöf sem þeir sögðu að kæmi í
góðar þarfir og væri þeim hvatn-
ing í mikilvægum störfum í þágu
fatlaðra í Vestmannaeyjum.