Morgunblaðið - 01.03.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 23
Hagnaður Flugleiða hf. 1,5 mill.iarðar króna
Söluhagnaður
eigna 1.377 m.kr.
FLUGLEIÐIR hf. skiluðu 1.515
milljóna króna hagnaði á árinu 1999
og er það tífoldun frá árinu áður en þá
nam hagnaður samstæðunnar 151
milljón króna. Hagnaður af reglulegri
starfsemi samstæðunnar var 138
milljónir króna árið 1999 en árið áður
var 136 milljóna króna tap af reglu-
legri starfsemi sem þýðir 274 milljóna
króna bata á árinu. Þá nam veltufé frá
rekstri samstæðunnar 2.103 milljón-
um króna á árinu 1999 sem er 27%
aukning frá 1.657 milljónum ársins
1998.
Af 1.515 milijóna króna hagnaði
samstæðunnar skilar móðurfélagið
239 milljóna króna hagnaði af reglu-
legri starfsemi, sem er rúmlega
sexfóldun frá í fyrra, áhrif dótturfé-
laga nema 100 milljóna króna tapi og
eignasala skilar 1.377 milljóna króna
hagnaði.
Verulegur hagnaður varð af sölu
eigna hjá félaginu á árinu 1999. Flug-
leiðir seldu tvær hótelbyggingar í
Reykjavík í upphafi ársins með 1.311
milljóna króna söluhagnaði en dóttur-
félag Flugleiða, Flugleiðahótel, leigði
byggingamar aftur af kaupanda. Þá
var Boeing 737-400 flugvél seld í mars
með 307 milijóna króna hagnaði en fé-
lagið leigði flugvélina aftur af kaup-
anda í þrjú ár. Loks seldi félagið í des-
ember síðastliðnum 34% af hluta-
bréfum sínum í alþjóðafjarskipta-
félaginu Equant með 436 milljóna
króna söluhagnaði.
Hagnaður af sölu eigna nam því
alls 2.055 milljónum króna fyrir
skatta en reiknaður tekjuskattur af
söluhagnaðinum var 678 milljónir
króna.
Velta Flugleiða jókst um 8,7% á ár-
inu vegna aukinnar starfsemi í far-
þega- og fraktflugi, ferðaskrifstofu-
rekstri og fleiri rekstrarþáttum.
Rekstartekjur samstæðunnar námu
30.4 milljörðum króna miðað við tæpa
30 milljarða króna árið 1998. Rekstr-
argjöld jukust einnig, um 9,2%, voru
27.5 milljarðar árið 1998 en fóru í 30
milljarða á árinu 1999. Fjármagns-
gjöld félagsins lækkuðu hins vegar úr
625 milljónum króna á fyrra ári í 83
milljónir króna árið 1999 og er lækk-
unin fyrst og fremst rakin til aukinna
vaxtatekna, virkrar áhættustýringar
og fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar dótturfélaga Flugleiða.
Mjakast í rétta átt
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða hf., er ekki alls kostar ánægður
með afkomuna en segir hana ekki
koma á óvart.
„Við erum ekki nægilega ánægðir
með að hagnaður af reglulegri starf-
semi hafi ekki orðið meiri en raun ber
vitni, þó að hann batni mikið á milli
ára. Hins vegar erum við að mjakast í
rétta átt en flest flugfélög í Evrópu
skiluðu lakari afkomu á árinu 1999
heldur en á árinu 1998. Reksturinn er
smám saman að styrkjast en fyrir-
tækið hefur vaxið heilmikið á undan-
fömum ámm og síðastliðin 10 ár höf-
um við verið að byggja upp nýtt
leiðakerfi. Það hefur smám saman
verið að stækka, sem skilar sér í auk-
inni hagræðingu.
Nú, við sköpuðum einnig töluverða
fjármuni á síðasta ári, veltufé frá
rekstri em rúmir 2 milljarðar króna
og er það 446 milljóna króna aukning
miðað við árið á undan. Þá höfum við
losað um ýmsar eignir sem vom
fastar í rekstrinum með sölu þeirra og
höfum fengið góða ávöxtun á þá pen-
inga sem við fengum fyrir þær eignir.
Það kemur fram í því að nettó fjár-
magnskostnaður lækkar“, segir Sig-
urður.
Hann segir síðasta ársfjórðung
ársins 1999 hafa verið heldur erfiðan,
eins og gert hafi verið ráð fyrir, vegna
hækkunar á eldsneytisverði og vegna
mikillar samkeppni og umframfram-
boðs í flugi yfir Norður-Atlantshaf.
„Þessi síðasti ársfjórðungur var að
skila okkui' minna heldur en við gerð-
um ráð fyrir í upphafi en svipuðu og
við sáum fram á seinnipart sumars.
Þá var nokkuð minna um ferðalög í
desember og í kringum áramót held-
ur en við og önnur flugfélög gerðum
ráð fyrir.
Fraktflutningamir hafa hins vegar
verið að aukast mjög mikið og tekjur
af þeim flutningum jukust mikið á ár-
inu,“ segir Sigurður.
Verð hlutabréfa lækkar um 15,2%
Verð hlutabréfa í Flugleiðum lækk-
aði á Verðbréfaþingi íslands í gær í
kjölfar þess að félagið birti afkomu
sína. Lokaverð bréfanna var 4,25 sem
er 15,2% lækkun frá deginum áður.
Hvað þetta varðar segir Sigurður að
svo virtist sem væntingar ýmissa
verðbréfafyrirtækja um niðurstöðu
ái'suppgjörsins haii verið töluvert
meiri en ástæða vai' til.
„í ljósi þessa áttum við von á því að
bréfin lækkuðu eitthvað. Við sjáum
svo á næstu dögum hvemig það leið-
réttist," segir hann.
Smári Rúnai' Þorvaldsson hjá fyr-
irtækjagreiningu íslandsbanka F&M
r.
P^r'iSr -ánf
VIÐ UTLOND
Verðmæti innflutnings og útflutnings
Jtnir
S
í jan.-ágúst 1999 og 2000 1999 (fob virði í milljónum króna) janúar 2000 janúar Breyting á föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 8.192,4 9.185,0 +15,6%
Sjávarafurðir 5.175,8 5.310,1 +5,8%
Landbúnaðarvörur 165,2 265,6 +65,7%
Iðnaðarvörur 2.126,4 3.472,4 +68,4%
Ál 1.599,3 2.166,7 +39,7%
Kísiljárn - 290,3 -
Aðrar vörur 725,0 137,0 -80,5
Skip og flugvélar 656,9 - -
Innflutningur alis (fob) 10.783,7 10.987,6 +5,1%
Matvörur og drykkjarvörur 842,2 858,3 +5,1%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 2.660,9 2.404,5 -6,8%
Óunnar 58,4 111,6 -
Unnar 2.602,5 2.292,9 -9,2%
Eldsneyti og smurolíur 498,1 1.374,3 -
Óunnið eldsneyti 0,4 63,2 -
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 118,8 194,2 +68,6%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 378,8 1.116,9 -
Fjárfestingarvörur 3.550,4 2.724,7 -20,9%
Flutningatæki 1.455,9 1.703,1 +20,6%
Fólksbílar 947,8 987,2 +7,4%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 226,4 408,6 +86,1 %
Skip 12,9 6,2 -50,1%
Flugvélar 0,2 39,6 -
Neysluvörur ót.a. 1.764,9 1.879,9 +9,8%
VÖrur ót.a. (t.d endursendar vörur) 11,3 42,7 -
Vöruskiptajöfnuður -2.591,3 -1.802,6
" Miðað ef við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann maelikvarða er meðalverð
erlends gjaldeyris í janúar 2000 3,0% lægra en árið áður. Heimild: HAGSTOFAISLANDS
Vöruskiptin óhagstæð
um 1,8 milljarða
HALLI var á vöruskiptum Islend-
inga við útlönd í janúarmánuði síð-
astliðnum og nam hann 1,8 milljörð-
um króna. Til samanburðar var
vöruskiptahallinn 2,5 milljarðar
króna í janúarmánuði árið 1999.
Útflutningur nam 9,2 milljörðum
króna síðastliðinn janúar en inn-
flutningur 11,0 milljörðum. Verð-
mæti vöruútflutnings var 16% meira
á fostu gengi en á sama tíma árið áð-
ur, og verðmæti vöruinnflutnings
var 5% meira, einnig á föstu gengi.
Þetta kemur fram í frétt frá Hag-
stofu íslands. í töflu sem fylgir frétt-
inni kemur fram að útflutningur
sjávarafurða jókst um 5,8%, en út-
flutningur landbúnaðarafurða jókst
hins vegar um 65,7% og iðnaðarvara
um 68,4%. Útflutningur á öðrum vör-
um dróst hins vegar saman um
80,1% og munar þar mestu um að
engin skip eða flugvélar voru seld úr
landi í janúarmánuði á þessu ári.
Hvað innflutning varðar má nefna
að innflutningur á matar- og drykkj-
arvörum jókst um 5,1% frá janúar-
mánuði 1999 til janúarmánaðar árið
2000. Þá jókst innflutningur á flutn-
ingatækjum um 20,6%, og um 9,8% á
neysluvörum, áður ótöldum. Þá jókst
innflutningur á eldsneyti og smurol-
íum úr 498 milljónum í 1.374 milljón-
ir króna. Innflutningur á hrávörum
og rekstrarvörum dróst hins vegar
saman um 6,8%. Jafnframt dróst
innflutningur á fjárfestingarvörum,
öðrum en flutningatækjum, saman
um 20,9%.
Flugleiðir hf. Úr uppgjöri samstæðu 1999
| Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 30.418 27.984 +9%
Rekstrargjöld 30.023 27.502 +9%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -83 -625
Tekju- og eignarskattar -173 8
Hagnaður af reglulegri starfsemi 138 -136
Aðrar tekjur og gjöld 1.377 287 +380%
Áhrif dótturfélaqa 0 0
Hagnaður ársins 1.515 151 +903%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 25.272 20.685 +22%
Eigið fé 8.179 6.409 +28%
Skuldir 17.093 14.276 +20%
Skuldir og eigið fé samtals 25.272 20.685 +22%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár —-ý 23,40% 2,40%
Eiginfjárhlutfall r^Í 32% 31%
Veltufjárhlutfall 1,25 0,88
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 2.103 1.657 +27%
segir að ársuppgjör Flugleiða verði
að teljast vonbrigði.
„Framlegð félagsins síðasta árs-
fjórðung ársins var -13,1% en í fyrra
var hún -3,4%. Framlegð félagsins
allt árið lækkar frá 1998 úr 5,9% í
4,7%. Rekstrartekjur félagsins jukust
um 8,7%. Tekjur af farþegaflugi auk-
ast um 18% en mestu munar um
auknar tekjur af ferðaskrifstofum en
rekja má 46% af tekjuaukningu til
þeirra eða um rúman milljarð króna
af rúmlega 2,4 milljörðum. Jafnframt
er aukning í vöru- og póstflutningum
21%.
Rekstrargjöld félagsins hækka um
9,17% og líkt og í tekjuhlutanum má
relga 46% af aukningunni til rekstar
ferðaskrifstofa eða rúman milljarð af
rúmlega 2,5 milljarða gjaldaaukn-
ingu. Hótelrekstur félagsins gengur
Ola en tekjur af þeim hluta rekstrar-
ins dragast saman um 3% á meðan
kostnaður eykst um 14%. Þó ber að
hafa í huga í þessu sambandi að Flug-
leiðir hafa selt hótel og endurleigt á
tímabilinu og því kemur til einhver
sparnaður í afskriftum og fjármagns-
gjöldum á móti.
Fram kemur í fréttatilkynningu fé-
lagsins að félagið hafi verið varið að
nokkru leyti fyrir áhrifum eldsneytis-
verðhækkunar en samt sem áður hafi
áhrif þessa á reksturinn verið þó
nokkur. Jafnframt er offramboð á
sætum á Norður-Atlantshafsleiðum
og kom það félaginu illa á síðustu 3
mánuðum ársins. Það má því búast
við því að komandi misseri verði fé-
laginu erfið þar sem það mun búa við
mun hærra eldsneytisverð sem erfitt
verður að fleyta yflr í verðlag þar sem
félagið býr við harða samkeppni,“
segir Smári.
1,3 milljónirfarþega á milli landa
Flugleiðir fluttu rúmlega 1,3 millj-
ónir farþega í millilandaflugi á árinu
1999, sem er 0,4% fleiri en árið áður.
Þá voru farþegar í innanlandsflugi
Flugfélags íslands 310 þúsund, 6,3%
fleiri en 1998. Sætanýtingí millilanda-
flugi lækkaði milli ára um 2,5 prós-
entustig og var 71,4%. Fraktflutning-
ar voru liðlega 24 þúsund tonn, sem er
26,4% aukning frá árinu 1998.
Megináherslur félagsins á árinu
2000 felast m.a. í stóraukinni notkun
upplýsingatækni í rekstrinum svo ná
megi fram aukinni hagi'æðingu á
ýmsum sviðum auk þess sem lögð
verður áhersla á styrkari markaðs-
sókn.
Aðalfundur Flugleiða verður hald-
inn á Hótel Loftleiðum hinn 16. mars
næstkomandi og hefst klukkan 14:00.
A fundinum verða meðal annars lagð-
ar fram tillögur um 10% arðgreiðslu,
um heimild til kaupa á eigin hluta-
bréfum að nafnvirði allt að kr.
230.000.000 og um stjómarlaun vegna
ársins 1999 þar sem stjórnarmenn fái
600.000 krónur hver og formaður
1.200.000 krónur.
Ný sölu- og
þjónustumiðstöð
Ako-Plastos hf.
r ■■■■■■■■•■■ ■ ■
Ako-Plastos hf.
hefur flutt alla starfsemi sína
úr Suðurhrauni 3 í Garðabæ
og opnar í dag nýja sölu-
og þjónustumiðstöð að
Klettagörðum 15
í Reykjavík (VM-húsið).
Tryggjum
viðskiptavinum
um allt land aukna þjónustu
í samstarfi við vöruhótel
Eimskips og miðstöð
Flytjanda.
Verið velkomin
ePlastos M*sr Plástos
V