Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 38
38 MIÐVTKUDAGUR 1. MARS 2000
~i------------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Er þörf á
sameiningu
ráðuneyta?
NÝLEGA var kynnt vönduð
skýrsla nefndar sem forsætisráð-
herra skipaði til að gera úttekt á
starfsskilyrðum
stjómvalda. I skýrsl-
unni er m.a. bent á að
mpta þurfi framtíðar-
stefnu um þróun
stjórnsýslukerfisins. í
máli forsætisráðherra
á Alþingi kom fram að
slík vinna verði hluti af
endurskoðun á lögum
um Stjórnarráð Is-
lands og skipan ráðun-
eyta sem ríkisstjórnin
hefur heitið að beita
sér fyrir á kjörtímabil-
inu. Þessi endurskoð-
un er löngu orðin tíma-
bær. Lög og reglugerð
um Stjórnarráð ís-
lands eru að stofni til
frá 1969. Nú, rúmum þrjátíu árum
Sjiiðar, eru lögin og skipulag ráðun-
eyta, sem á þeim byggist, orðin úr-
elt. Lögunum var upphaflega ætlað
að tryggja festu en þau hafa nú leitt
til ósveigjanleika og eru dragbítur á
eðlilega þróun í stjórnsýslu ríkisins.
I þessu sambandi má nefna verka-
skiptingu og fjölda ráðuneyta sem
kveðið er á um í framangreindri
löggjöf.
Verkaskipting ráðuneyta
I reglugerð um Stjórnarráð ís-
lands eru tilgreindir þeir mála-
ifljíkkar sem hvert ráðuneyti fer
með. Sú upptalning er ónákvæm og
endurspeglar ekki nema að hluta til
verkefni ráðuneyta. Núverandi
verkaskipting hefur þann ókost að
vissum málaflokkum, sem eðlileg-
ast væri að heyrðu undir einn aðila,
er skipt milli tveggja eða fleiri ráð-
uneyta. Af handahófi má nefna eft-
irlit og rannsóknir á sviði matvæla-
framleiðslu, gróðurvernd, rann-
sóknir á sviði landnýtingar, málefni
geðfatlaðra og alþjóðaviðskipti.
Oftar en ekki er skýringa að leita í
örum breytingum sem orðið hafa í
viðkomandi málaflokki. Sem dæmi
má nefna að skilin milli framleiðslu
á sjávarfangi, landbúnaðar- og iðn-
saþarvörum verða sífellt óljósari en
ránnsóknir og eftirlit á sviði mat-
vælaframleiðslu heyra enn undir
minnst þrjú ráðuneyti. Annað dæmi
um úrelta verkaskiptingu er núver-
andi fyrirkomulag búnaðarmenn-
tunar. Að undanförnu hefur verið
unnið að eflingu búnaðarmenntun-
ar, m.a. með stofnun sérstaks
Landbúnaðarháskóla. Skv. lögum
um háskóla heyra þeir stjórnarfars-
lega undir menntamál-
aráðherra en það á
ekki við um Landbún-
aðarháskólann, sem
heyrir undir landbún-
aðarráðherra skv. lög-
um um búnaðar-
fræðslu.
Búnaðarfræðsla á
framhaldsskólastigi
heyrir einnig undir
landbúnaðarráðherra
skv. sömu lögum. Mik-
ilvægi samhæfingar
búnaðarmenntunar
við aðra framhalds- og
háskólamenntun hlýt-
ur að vera augljóst en
henni verður tæplega
náð nema að búnaðar-
menntun falli eins og önnur mennt-
un í landinu undir ábyrgðarsvið
menntamálaráðuneytis. Með þessu
Stjórnsýsla
Sameining ráðuneyta ís-
lenska ríkisins, segir
Ómar H. Kristmunds-
son, er nauðsynleg.
móti ættu hagsmunir landbúnaðar í
landinu að vera tryggðir á sama
hátt og hagsmunir iðnaðar eni
tryggðir með núverandi fyrirkomu-
lagi iðnnáms á Islandi.
Fjöldi ráðuneyta
Ráðuneyti íslenska ríkisins eru
tilgreind í lögum. Fyrir árið 1969
voru þau 11, en það ár fjölgaði þeim
í 13 og með stofnun umhverfisráð-
uneytisins árið 1990 urðu þau 14
(stofnanir sem voru ráðuneytisíg-
ildi eru ekki meðtalin). Árið 1998
voru ársverk ráðuneyta á bilinu 16
til 70. Meðalstærð ráðuneyta í árs-
verkum talið var um 27. Ráðuneytin
eru því flest fremur fámenn þótt
þau séu raunar ekki fámennari en
ríkisstofnanir að jafnaði. Þrátt fyrir
ákveðna kosti fámennra ráðuneyta,
svo sem umtalsverð tengsl ráð-
herra við starfsmenn sína, vega
ókostirnir þyngra en þeir felast
m.a. í þeim breytingum sem orðið
hafa á starfsumhverfi ríkisstofnana
undanfarin ár.
Miklar breytingar hafa orðið á
æðstu stjórnsýslu framkvæmda-
valds hér á landi eins og annars
staðar á Vesturlöndum undanfarin
ár. í örstuttu máli má greina þær í
þrennt. í fyrsta lagi hafa auknar
kröfur um vandaða stjórnsýslu kall-
að á bætta starfshætti ráðuneyta og
stofnana þeirra. Hér má nefna sem
dæmi framkvæmd stjómsýslu- og
upplýsingalaga á íslandi. Eftirlits-
hlutverk ráðuneyta í þessu sam-
bandi er orðið umfangsmeira og
meðferð stjórnsýslukæra og vinna
vegna álita Umboðsmanns Alþingis
hefur aukist. I öðru lagi hafa
áherslur á stefnumótunarvinnu
æðstu stjórnar ríkis aukist víðast
hvar erlendis. Slík stefnumótunar-
vinna felst m.a. í mati á framkvæmd
tiltekinna verkefna, endurbótum og
endurskipulagningu á málaflokkum
ráðuneyta, endurskoðun löggjafar
á grundvelli mats. í þriðja lagi hafa
samskipti og verkaskipting við
stofnanir ráðuneyta breyst. Verk-
efni og ábyrgð hafa í auknum mæli
færst í hendur stjórnenda stofnana,
svo sem fjármála- og starfsmann-
astjórnun. Jafnframt hefur dregið
úr smáatriðastýringu ráðuneyta en
áherslan aukist á stefnumótun og
mat á heildarárangur stofnana.
Þessu fylgja kröfur um að ráðun-
eyti hafi innanborðs nauðsynlega
sérþekkingu. Álitamál er hve vel
núverandi ráðuneyti á Islandi eru í
stakk búin til að fást við breytt
hlutverk, m.a. vegna smæðar.
í flestum nágrannaríkjum okkar
hafa á undanförnum árum verið
gerðar umtalsverðar breytingar á
æðstu stjórnsýslu ríkisins. Þessar
breytingar eiga það sammerkt að
leitast hefur verið við að auka
sveigjanleika og samhæfingu verk-
efna. Til að ná þessu markmiði hafa
sum ríki farið þá leið að fækka
ráðuneytum. Hér má t.d. nefna ný-
lega fækkun ráðuneyta sænska rík-
isins.
Sameining ráðuneyta íslenska
ríkisins er nauðsynleg. Stærri
starfseiningar innan Stjórnarráðs-
ins gera æðstu stjómsýslu ríkisins
betur kleift að sinna verkefnum
sem undir hana heyra. Á sama tíma
mun úreltum landamærum ráðun-
eyta fækka.
Áður hafa verið gerðar tillögur
um breytingar á núverandi Stjórn-
arráðslögum og reglugerð en þær
hafa ekki öðlast hljómgrunn. Vetur-
inn 1989-90 var lagt fram frumvarp
til laga um Stjórnarráð Islands sem
ekki náði fram að ganga. Ekki er
útilokað að fyrirstaðan hafi að ein-
hverju leyti verið núverandi kjör-
dæmaskipan en í stjórnunarviðræð-
um og við val á ráðherrum hefur
þótt nauðsynlegt að sem flest kjör-
dæmi hafi sinn fulltrúa í ráðherra-
hópnum. Með nýrri kjördæmaskip-
an ætti þessi fyrirstaða ekki lengur
að vera fyrir hendi.
Höfundur er stjórnsýslufræðingur.
Ómar H.
Kristmundsson
Að loknu vetrar-
fríi í grunnskól-
um Garðabæjar
SÚ nýbreytni að
gefa frí í grunnskól-
um í nokkra daga um
miðjan vetur, eins og
nú er verið að gera í
fyrsta sinn, er að
mínu mati framfara-
spor. Þetta frí er
raunar tilkomið vegna
þess að skólaárið er
óvenjulangt þetta árið
eða öllu heldur eru al-
mennir frídagar færri
en venja er til. Þar
sem kjarasamningar
kennara gera ráð fyr-
ir 170 kennsludögum
frá hausti til vors
varð annaðhvort að
stytta skólaárið eða gefa frí í skóla
í þrjá daga. Eftir því sem ég
kemst næst varð það fyrirkomulag
ofan á í allflestum skólum lands-
ins.
Hjá okkur í Garðabæ var þetta
frí í síðustu viku. Fjölskylda mín
Skólamál
*
Eg fer ekki dult með þá
skoðun mína, segir Ein-
ar Sveinbjörnsson, að
ég tel að koma eigi á ár-
vissu vetrarfríi í grunn-
skólum landsins og jafn-
vel einnig í leikskólum.
notaði tækifærið og brá sér á skíði
norður til Ólafsfjarðar og einn
þessara daga var Hlíðarfjall ofan
Akureyrar heimsótt. Það kom
skemmtilega á óvart að drjúgur
hluti gestanna í fjallinu þennan
þriðjudag voru aðrir Garðbæingar
sem voru þangað komnir til að
njóta útiveru og samvista með fjöl-
skyldum sínum. Luku allir sem
einn lofsorði á þessa draumadaga
sem höfðu dottið eins og af himn-
um ofan.
Ekki voru þó allir jafnheppnir,
því að ég veit til þess að margir
foreldrar áttu afar erfitt með að fá
sig lausa úr vinnu, enda ekki um
hefðbundinn orlofstíma að ræða.
Þeir foreldrar sem verst voru sett-
ir þurftu þó ekki að örvænta með
börn sín. Skólayfirvöld buðu upp á
gæslu yngstu barnanna í skólaat-
hvarfi og ennfremur
var haldið úti
auglýstri dagskrá alla
þessa daga. Nemend-
ur áttu því allir kost á
tilbreytingu frá hefð-
bundnu skólastarfi.
Vetrarfrí
verði árvisst
Ég fer ekki dult
með þá skoðun mína
að ég tel að koma eigi
á árvissu vetrarfríi í
grunnskólum landsins
og jafnvel einnig í
leikskólum. Helstu
rökin eru þau að for-
eldrar taki nokkurra
daga frí með barni sínu eða börn-
um á miðju skólaári og styrki með
því fjölskylduböndin. Vitanlega
eigum við sameiginlegt jólafrí, en
þeir dagar fara frekar í helgihald
og samvistir við stórfjölskylduna
eða ættina. Til þess að vetrarfrí
setji ekki atvinnulíf úr skorðum
þyrfti í þéttbýli, a.m.k. hér suð-
vestanlands, að dreifa frídögum á
sex til átta vikur eftir hverfum og
bæjarhlutum. Slíkt kallar þá á
samræmingu á milli sveitarfélaga,
þar sem frídagarnir færðust til á
milli ára.
Forsenda þess að koma megi á
því fyrirkomulagi sem hér er lýst
er þó að ákvæði þess efnis verði
sett í kjarasamninga kennara og
eins þarf breytingar á almennum
kjarasamningum, þar sem laun-
þegar fengju ákveðinn rétt til þess
að taka hluta orlofs síns að vetrar-
lagi. Hjá sumum stéttarfélögum er
nú þegar kveðið á um vetrarfrí.
Þegar ég hef viðrað hugmyndir
mínar um vetrarfrí hef ég jafn-
framt látið þess getið að það megi
ekki verða til þess að skólaárið
styttist. I því skyni tel ég rétt að
grunnskólinn hefjist fyrr á haustin
eða í kringum 20. til 25. ágúst. Mín
reynsla er sú að flestir foreldrar
eru hvort eð er farnir að stilla sig
inn á skólabyrjun að áliðnu sumri
eða um og upp úr miðjum ágúst.
Vissulega eru þó til undantekning-
ar á þessu eins og öðru. Eitt veit
ég þó fyrir víst að stytting sumar-
leyfis skólanna er afar umdeild, en
umræða um þessi mál skaðar ekki,
allra síst ef styttingin er sett í
samhengi við almennt þriggja til
fimm daga vetrarfrí.
Höfundur er veðurfræðingur.
Einar
Sveinbjörnsson
Rás 1 • Kl. 19.00
www.ruv.is/vitinn
Málstaður samgönguráðherra
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
lýst því yfir að hann muni ekki láta
sitt eftir liggja við að kynna þau
sjónarmið ráðuneytisins og flug-
málayfirvalda sem liggja að baki
nýbyggingar Reykjavíkurflugvallar
og uppbyggingar allsherjar umferð-
armiðstöðvar landsins í tengslum
við völlinn. Hann mun þá væntan-
lega kynna það ítarlega að Flugmál-
astjóm valdi upphaflega milli
þriggja leiða, þ.e.a.s. nýbyggingar,
uppbrots og yfirlagnar. Hann mun
rekja að hún valdi nýbyggingarleið-
ina sem þar með bar samkvæmt lög-
um frá 1993 að sæta
umhverfismati.
Ekki er að efa að
ráðherrann mun lýsa
rækilega samræmdri
aðför Borgarskipu-
lags, skipulagsstjóra
og umhverfisráðherra
að sannleikanum, þeg-
ar flugmálastjóra var
bjargað undan um-
hverfismati með því að
halda því blákalt fram
að með nýbyggingu
meinti sá ágæti maður
endurbyggingu sem
ekki þyrfti að sæta
lögformlegu mati á
umhverfisáhrifum.
Margt er á huldu um Reykjavík-
urflugvöll og það þarf sérstakrar
skýringar við að hann skuli enn vera
starfræktur án starfsleyfis frá Holl-
ustuvernd og Vinnueftirliti. Aldrei
hefur heldur verið gerð úttekt á um-
hverfisáhrifum vallarstarfseminnar
í heild og skýrslur um öryggismál,
rekstrarafkomu, þjóðhagslega hag-
kvæmni og aðra stað-
setningarkosti eru
böm síns tíma og
standast ekki breyttar
forsendur og framtíð-
arhorfur í þjóðlífinu.
Þetta þarf að kynna.
Væntanlega mun
ráðherrann einnig
kynna áform flu-
grekstraraðila, svo
sem Flugfélags ís-
lands, íslandsflugs og
Jökuls, um alþjóðlegt
farþega- og vöruflug
um Reykjavíkurflug-
völl, þvert ofan í þá
stefnumótun Reykja-
víkurborgar að völlur-
inn verði eingöngu miðaður við þarf-
ir innanlandsflugs fram til 2016.
Hann gæti því til áréttingar bent á
viðtal í Frjájsri verslun við forstjóra
Flugfélags íslands þar sem sú fram-
tíðarsýn er sett fram að ramma beri
allan Reykjavíkurflugvöll inn með
enn fleiri skúra- og braggabygging-
um undir flugstarfsemi. Og loks
Reykjavíkurflugvöllur
Sjónarmið samgöngu-
ráðherra um nýbygg-
ingu Reykjavíkur-
flugvallar eiga, að mati
Einars Karls Haralds-
sonar, skilið rækilega
kynningu.
mun hann efalaust upplýsa okkur
um það hversvegna útborgarstar-
fsemi eins og flugvallarrekstur eigi
að hans dómi heima á verðmætasta
miðborgarlandinu á tímum þegar
gamli miðbærinn á í vök að verjast.
Því skal undir það tekið að málst-
að samgönguráðherra þarf vissu-
lega að kynna rækilega.
Höfundur er ritstjóri og félagi
íSamtökum um betri byggð.
Einar Karl
Haraldsson