Morgunblaðið - 01.03.2000, Qupperneq 40
j40 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Byggjum
brýr
ILLUGI Jökuls, minn uppáhalds
pistlahöfundur, hefur nú eins og
margir aðrir viðrað sínar skoðanh- á
grein Toshiki Toma í Morgunblaðinu
þann 8.2. í grein sinni spurði Toshiki
hvort ekki sé kominn tími til að ís-
lenska þjóðfélagið hlusti á hvað inn-
flytjendur hafi að segja,
en ekki aðeins hvemig
þeir tala.
Grein Illuga „stig-
matisering tungunnar"
birtist í Skessuhomi
þann 17.2.
Ég er sammála 111-
uga um það að útvarps-
konan Anna Kristine
hafði leyfi til að velja
sjálf þátttakendur í sinn
útvarpsþátt og ég við-
urkenni að það var fár-
anlegt af mér að stilla
henni upp við vegg þeg-
ar hún vildi viðtal við
mig, með því að fara
fram á að hún tæki
einnig viðtal við Tos-
hiki. Aðferð mín var svo hallærisleg
* að ég sleppi því að reyna að afsaka
mig. Auðvitað átti ég að nota ein-
hverjar aðrar leiðir til að stuðla að því
að meira heyrðist í útlendingum bús-
ettum hér á landi.
Ég skildi það vel þegar Anna Krist-
ine sagði mér að Islendingar hefðu
ekki þolinmæði til að hlusta á útlend-
inga tala bjagaða íslensku í löngu við-
tali. Ég er oft óþolinmóð sjálf, þegar
ég hlusta á útlendinga tala íslensku
og stundum vildi ég helst tala ensku
(þegar viðkomandi talar ensku) til
_J>ess að samræðumar gangi betur og
•'maður þurfi ekki alltaf að vera að
geta í eyðumar. Sem betur fer venst
þetta og það verður auðveldara að
hlusta á útlendinga tala íslensku, eftir
því sem maður gerir meira af því.
Auk þess er ég svo veik fyrir því
sem er framandi og tími ekki að missa
af einhverju sem vekur forvitni mína.
Svo sem af hveiju Japani gerist krist-
inn prestur og vinnur á Islandi m.a
við að aðstoða múslíma.
Það sem kom mér á óvart í samtali
mínu við Önnu Kristine var að margir
hlustendur hefðu hringt og kvartað
undan því að hafa þurft að hlusta á
bjagaða íslensku, eftir að hún tók við-
tal við útlending í þætti sínum og þar
af leiðandi gæti Anna Kristine ekki
“’tboðið hlustendum sínum uppá viðtal
við Toshiki Toma.
Að mínu mati er óþolinmæði okkar
íslendinga eitthvað sem vert er að
skoða og þá hvaða afleiðingar það
getur haft. Það er vert að athuga
hvort til séu aðrar leiðir en að hætta
að taka löng viðtöl við útlendinga í út-
varpi, ef pirraðir hlustendur kvarta.
Eigum við að láta það eftir okkur að
nenna ekki að hlusta á útlendinga af
því að það krefst þess að við leggjum
eitthvað á okkur sem hlustendur?
Það að Anna Kristine vildi ekki tala
við Toshiki er algert
aukaatriði að mínu
mati, hún vill auðvitað
að þátturinn hennar
haldi áfram að vera jafn
vinsæll og tala við fólk
sem henni finnst spenn-
andi. Hún sagði í viðtali
við Eirík Jónsson í DV
að sér fyndist Toshiki
ekki spennandi. Það
finnst mér alveg nægi-
leg ástæða fyrir hana að
fá hann ekki í viðtal og
þá skiptir uppruni hans
og tungumál engu máli.
Anna Kristine hefði
reyndar aldrei verið
neftid til sögunnar í
þessari umfjöllun um
tungumálið, ef hún hefði ekki kosið að
láta Eirík Jónsson taka við sig viðtal
fyrir DV.
Ég er sammmála Illuga um að við
förum villigötur ef menning minni-
Tungumálaskilningur
Aðalatriðið í þessari um-
fjöllun og það sem mér
finnst skipta máli, segir
Helga Þórólfsdöttir, er
að íbúar þessa lands
hafa mismikið vald á
tungumálinu.
hlutahópa og innflytjenda er gerð
rétthærri vegna misskilins frjálslynd-
is og pólitískrar rétthugsunar. Satt
best að segja virðist hættan á rétt-
hærri menningu aðfluttra ekki bein-
linis blasa við hér á landi og ég skildi
grein Toshiki ekki þannig að við ætt-
um að skammast okkar fyrir að hér sé
talað almennilegt mál.
Menning er meira en tungumál og
mér fínnst spennandi að velta fyrir
mér hvað er íslenskt og hvað er að-
flutt í okkar menningu. Ég söngla oft
lag eftir Grýlumar þar sem textinn
byrjar svona ... „Hvað er svona
merkilegt við það að vera ...“ og bæti
svo við Islendingur? - í staðinn fyrir
karlmaður, sem er í upprunalega
textanum. Ég hef nú reyndar sætt
mig við það að fá aldrei svar, en geta
skemmt mér við að leita þess um
mörg ókomin ár.
Ég óttast forsjárhyggju þeirra sem
telja sig frjálslynda og fylgja póli-
tískri rétthugsun. Við fórum villigöt-
ur ef útlendingar sem búsettir eru
hér á landi eru meðhöndlaðir sem
þurfalingar og skjólstæðingar sem
við hin verðum að vera góð við og tala
fyrir.
Ef þeir sem hér búa hafa ekki
möguleika sjálfir á að láta í sér heyra,
því enginn nennir að hlusta og þeir
tala aldrei nógu góða íslensku tU að
hafa áhrif, lendum við á þeim villigöt-
um að velmeinandi smælingjavinir
gerast óbeðnir málsvarar útlendinga
án þess að það sé þeim nokkuð til
framdráttar.
Þeir sem hafa flust til landsins og
eru af erlendum uppruna koma úr
ólíkum aðstæðum, eru með mismun-
andi réttarstöðu, hafa ólíkar skoðanir
og þarfir. Sumir eru spennandi og
aðrir hundleiðinlegir. Innflytjendur
eru bæði ríkir og fátækir, vel mennt-
aðir og með litla skólagöngu að baki,
sumir eru veikir, aðrir frískir og flest-
ir eru vinnandi rétt eins og þeir inn-
fæddu.
Flestir hafa valið að búa hér á landi
vegna þess að það er betri kostur en
að búa einhvers staðar annars staðar,
örfáir búa hér af því að þeir eiga ekki
annarra kosta völ. Á sama hátt hefur
fjöldi Islendinga valið að búa annars
staðar en á Islandi.
Tungumálið er oftast nefnt af út-
lendingum þegar talað er um erfið-
leika við að aðlagast íslensku þjóðfé-
lagi og að fá vinnu við hæfi.
Tungumálið er lykillinn að íslensku
samfélagi og eflaust vilja allir sem
hingað flytjast a.m.k geta tjáð sig á
málinu og sumir vilja ná svo langt að
geta talað almennilegt mál og allir
vilja að bömin þeirra tali tungumálið
það vel að þau geti nýtt sér íslenskt
skólakerfi og verið fullgildir þátttak-
endur í samfélaginu.
Aðalatriðið í þessari umfjöllun og
það sem mér finnst skipta máli er að
íbúar þessa lands hafa mismikið vald
á tungumálinu. Þeir sem eru aðfluttir
og eru að læra málið hafa líka eitt-
hvað til málanna að leggja og ættu að
geta tekið þátt í mótun samfélagsins
á j afnréttisgrundvelli.
Það hefur verið mér mikilvægt og
hjálpað mér til aukins skilnings á
sjálfri mér sem manneskju og Islend-
ings að hafa átt kost á því að kynnast
viðhoríúm annarra en innfæddra ís-
lendinga og ég vil ekki vera án þess
þó að ég þurfi að leggja það á mig að
hlusta á bjagaða íslensku.
Ég held líka að við hljótum að fara
að verða uppiskroppa með spennandi
lífsreynslusögur innfæddra þannig að
viðbótervelþegin.
Höfundur er félagsráðgjafi
og hefur slurfað á vegum
Rauða kross íslands.
Helga
Þórólfsdóttir
Reykjalundur.is
STARFSEMI end-
urhæfingarmiðstöðvar-
innar að Reykjalundi
er fjölþætt og viðamik-
' Uil. Margt hefur breyst í
áranna rás í endurhæf-
ingu. Reykjalundur
hefur fylgt framþróun
á flestum sviðum og er í
dag nútíma endurhæf-
ingarmiðstöð.
Endurhæfing er
flókið og sértækt ferli
sem kallar á sérþekk-
ingu og sérhæfingu.
Hugmyndafræðin
byggir á heildrænni
sýn á heilbrigði sem
_endurspeglast meðal
■annars í aðlögun einstaklingsins að
umhverfi sínu. Virk endurhæfing fel-
ur í sér samvinnu ólíkra faghópa og í
starfsliði Reykjalundar er að finna
fulltrúa allra faghópa sem koma við
sögu í endurhæfingu.
Endurhæfing á Reykjalundi skipt-
ist í níu meginsvið: Atvinnulega end-
urhæfingu, geðsvið, gigtarsvið, hæf-
’ Aigarsvið, næringarsvið,
miðtaugakerfissvið,
hjartasvið, verkjasvið
og lungnasvið.
Á Reykjalundi fer
fram einstaklings- og
hópþjálfun. Mikil
áhersla er lögð á mikil-
vægi ábyrgðar ein-
staklingsins á eigin
heilsu. Fræðsludag-
skrá er í gangi og hald-
in eru námskeið, m.a. í
streitustjómun og lík-
amsvitund.
Sjúklingum stendur
einnig til boða nám í
bak- og verkjaskóla.
Áhersla er lögð á
breyttan lífsstíl með
breyttu mataræði og líkamsþjálfun.
Beiting hugrænnar atferlismeð-
ferðar hefur verið í þróun á Reykja-
lundi, auk þess sem sértæk meðferð
hefur verið byggð upp fyrir Parkin-
son- og heilablóðfallssjúklinga.
Skipulögð þjálfunardagskrá er fyrir
hjartasjúklinga og greining á þörf-
um fjölfatlaðra einstaklinga fyrir
hjálpartæki er gerð. Greining og
Endurhæfing
Beiting hugrænnar at-
ferlismeðferðar, segir
Bára Jóna Oddsdóttir,
hefur verið í þróun á
Reykjalundi.
meðferð á gigtarsjúkdómum er fjöl-
þætt og er veitt einstaklingsfræðsla
um liðvernd. Lungnasjúklingar fá
tilsögn í orkusparandi vinnuaðferð-
um og kröftug reykingavarnamám-
skeið eru í gangi.
Á Reykjalundi tók nýlega til starfa
svið atvinnulegrar endurhæfingar
þar sem markmiðið er að meta
vinnuhæfni einstaklingsins.
Lesa má nánar um endurhæfingu
á Reykjalundi á vefsíðu Reykjalund-
ar.
Slóðin er: http:/Avww.reykjalund-
ur.is
Höfundur er vefstjóri Reykjalundar.
Bára Jóna
Oddsdóttir
Davíð og ör-
yrkinn Golíat
FYRIR nokkru heyrði ég í frétt-
um að ísraelskur læknir hafi komist
að því að miklar líkur væru fyrir að
Golíat sem Davíð drap forðum í
frægum bardaga hafi verið öryrki.
Læknirinn telur líklegt að Golíat
hafi verið með hor-
mónasjúkdóm sem leitt
hafi til þess að mikill
þrýstingur hafi verið á
augnstöðvar í höfði
sem orsakað hafi mikla
sjóndepurð. Einnig
hafi þessi sjúkdómur
valdið miklum ofvexti í
öllum likamanum.
Allt þetta hefur gert
Golíat mjög stirðan og
illa sjáandi.
Þessa veikleika nýtti
Davíð sér til hins ýtr-
asta og hefur Golíat í
raun og veru verið auð-
veld bráð fyrir Davíð.
Þegar Davíð slöngv-
aði vað sínum gat Gol-
íat ekki séð vaðinn og svo stirður að
hann gat ekki vikið sér undan.
Felldi Davíð öryrkjann Golíat með
slöngvuvað sínum og þjóðin lofaði
Davíð, hinn mikla leiðtoga sinn.
Enn í dag slöngvar Davíð vað sín-
um og fellir Golíata á báða bóga. Enn
í dag tekst Davíð að gera risa úr ör-
Oryrkjar
Er ekki kominn tími
til að snúa vörn í sókn?
spyr Stefán Gissur-
arson, og slöngva vaðn-
um til baka og miða
á hinn mikla leiðtoga
Davíð án hlífðar?
yrkjum og þjóðin lofar hinn mikla
leiðtoga.
Stundum getur verið erfitt að
koma orðum að því sem allir eiga að
vita, t.d. þegar Ári í Aravísum spyr:
,jLf hverju er eldurinn heitur, af
hverju er himininn blár?“ Þessu er
erfitt að svara en Ari fær svör þegar
hann er orðinn stór.
Hinn mikli leiðtogi Davíð er orð-
inn stór en hann veit ekki, eða rétt-
ara sagt, hann þykist ekki vita af
hverju eldurinn er heitur o.s.frv.
Hinn mikli leiðtogi Davíð þykist
ekki vita hvað kjör öryrkja eru slæm
og hvað einmanaleikinn og eymdin
er víða mikil. En hinum mikla leið-
toga Davíð tekst að blekkja þjóð
sína, gerir Golíata úr öryrkjum og
slöngvar vað sínum og fellir þetta
fólk til enn meiri fátæktar og enn
meiri einsemdar og meirihluti þjóð-
arinnar lofar hinn mikla leiðtoga
sinn Davíð og sjaldan hefur Davíð
verið vinsælli og Pétur Blöndal
skríkir.
„Dúfu augað, höggorms hjartað/
hunangsvarið eiturtungu." (Með
leyfi höfundar.) Hvað hefur kirkjan
gert í þúsund ár nú á kristnitökuári.
Ég hef ekki orðið var við að kirkj-
an hafi beitt kröftum sínum í þágu
öryrkja, a.m.k. ekki í þeim mæli sem
ég tel vera eðlilegt. Eg las ábyggi-
lega söguna um Davíð og Golíat í
biblíusögunum og ég tel líklegt að
það séu frekar fáir þjóðfélagshópar
sem biðja jafn heitt og innilega til
Guðs og Jesú þegar farið er til hvílu
á kvöldin og öryrkjar, enda trúin ein
eftir þegar allt um þrýtur og fólk í
óviðráðanlegum vítahring er bendl-
að við óráðsíu af hinum mikla leið-
toga Davíð.
Ég tel líklegt að sumir öryrkjar
hafi átt erfiðara með að sofna eftir
ræðu hins mikla leiðtoga Davíðs nú á
dögunum og margir hafi spurt sig:
„Er þetta virkilega mér að kenna að
svona er komið fyrir mér, var ég með
óráðsíu? ... bara ég hefði, bara ég
hefði ...“ Er ekki kominn tími til að
snúa vörn í sókn og slöngva vaðnum
til baka og miða á hinn mikla leiðtoga
Davíð án hlífðar? Ég vil benda hinum
mikla leiðtoga Davíð á það og hans
líkum að góður bóndi hlúir sérstak-
lega að þeim búsmala sem er gamall
og veikur eða hefur
ekki getu til að ganga
innan um hraustan
búsmala.
Þeir sem ekki fara
þannig að missa hinn
veika búsmala úr hor
og jafnvel dauða. Slíkir
bændur eru stundum
kallaðir horkóngar.
Ég fæ ekki betur séð
en hinn mikli leiðtogi
Davíð stefni að því að
verða einn mesti hor-
kóngur þessa lands.
Ég vil nefna dæmi að
títtnefndur útgerðar-
maður og fyrrum skip-
stjóri græddi, ef marka
má fréttir, um fimm
hundruð þúsund á dag í mörg ár og
hafði líka sem skipstjóri góð laun á
sama tíma. Þetta var ekki nóg.
Viðkomandi hafði einnig rétt á
styrk frá ríkinu á þessu tímabili sem
nefnist sjómannaafsláttur.
Þessi afsláttur er það góður að ef
öryrkjar hefðu rétt á slíku myndi það
bæta kjör þeirra verulega. Fullur af-
sláttur fyrir árið 1999 hækkar pers-
ónuafslátt um 239 þúsund og kostar
ríkið um 1.250 milljónir á ári.
Þetta telur hinn mikli leiðtogi
Davíð mjög eðlilegt og segir að ekki
komi til greina að fella niður afslátt-
inn, eða að tekjutengja jiann líkt og
laun (bætur) öryrkja. Á sama tíma
berst hinn mikli leiðtogi Davíð fyrir
því að aðrar þjóðir leggi af ríkis-
styrki í sjávarútvegi. Og þjóðin lofar
hinn mikla leiðtoga sinn Davíð.
Á laugardögum stillir Mogginn
upp á sömu síðu bótum örorku- og
ellilífeyrisþega og þróun kauphallar-
viðskipta, en samt þykist hinn mikli
leiðtogi Davíð ekki vita hver kjör
þessa fólks eru og þjóðin þykist ekki
vita heldur hver þau eru.
Hinn mikli leiðtogi Davíð og stór
hluti þjóðarinnar getur ekki borið
við bamaskap eins og Ari forðum.
Það er skelfilegt til þess að hugsa
að meirihluti þjóðarinnar vilji frekar
borga sjómönnum, sem eru mjög
tekjuháir, styrk en bæta kjör þeirra
sem ekkert eða lítið geta unnið. Ekki
einu sinni að tekjutengja þennan
styrk til sjómanna líkt og laun (bæt-
ur) öryrkja. Á meðan þjóðin er á
þessari skoðun tel ég ekki miklar lík-
ur á að kjör öryrkja batni og leiðtog-
ar stjórnmálaflokkanna og óbreyttir
þingmenn eru flestir á sömu skoðun.
Getur verið að meirihluti þjóðar-
innar með hinn mikla leiðtoga Davíð
í fararbroddi sé í eðli sínu horkóng-
ar.
Ég hef lengi alið þá von í brjósti og
sérstaklega fyrir og ekki síður eftir
síðustu kosningar í ljósi sterks
meirihluta á þingi að sjómannaaf-
slátturinn yrði felldur niður og hann
færður til öryrkja.
Ef þessi sjálfsagða og jafnræðis-
lega aðgerð væri framkvæmd, yrði
tekinn beiskur bikar frá sjómönnum
og þeir leystir undan þessari skömm
að vera styrkþegar, um leið mundu
þeir sem mesta eymd búa við sjá ör-
lítið ljós í myrkrinu.
Ég vil segja hér frá því að maður
einn, sem er öryrki og vinnur hluta
úr degi, mun stefna ríkinu á næstu
dögum á grundvelli jafnræðisregl-
unnar og fara fram á sama skattaaf-
slátt og sjómenn.
Ætli hinn mikli leiðtogi Davíð
reyni að hafa áhrif á dóma í þessu
máli? Að lokum. Á meðan stjórn-
málamenn, kirkjan og það sem mér
finnst sárast meirihluti þjóðarinnar
hefur ekki meiri áhuga á þessum
málaflokki, segi ég: skammist ykkar
(í Davíðs nafni). Amen.
Höfundur starfar sem
vátryggingaráðgjafi og er öryrki.