Morgunblaðið - 01.03.2000, Side 41
MORGUNB LAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 41
------------------------
I
Athugasemd við skrif fréttaritara
Morgunblaðsins á Skjaldfönn
Tófan, sem Indriði á Skjaldfönn skaut, gekk undir nafninu Kúla. Hér er
mynd af henni sem yrðlingi sumarið 1998.
FRÉTTARITARI
Morgunblaðsins
Skjaldfönn er iðinn við
að birta fréttir af
bóndanum á Skjald-
fönn. Nokkrum sinn-
um hafa birst myndir
af honum í fjölmiðlum,
haldandi í tófuskott,
þar sem hann býsnast
yfir því að nú hafi tóf-
um fjölgað svo á norð-
anverðum Vestfjörð-
um að þær komi alla
leið heim á hlað til sín.
Fréttaritarinn
„gleymir" hins vegar
að geta þess að bónd-
inn ber út æti á hlaðinu
í því skyni að lokka ferfætlingana
þangað svo að hann geti skotið þá út
um gluggann hjá sér.
í Morgunblaðinu 24. febrúar, bls.
20, birtist sú „frétt“ sem hér verður
gerð að umtalsefni. Þar segir orð-
rétt: „Allt frá því að frumvarp til
laga frá ’94 um friðun refa og minka
á Hornströndum tók gildi hefur
Indriði ásamt flestum bændum í ná-
grenni friðlandsins verið á móti frið-
uninni og talið fullvíst að þegar sult-
urinn sverfði að legðu dýrin land
undir fót og leituðu fanga þar sem
ætis væri von, en líffræðingar hafa
haldið hinu gagnstæða fram, þ.e. að
dýrin haldi sig á sínum heimaslóð-
um. Því þótti honum fengur í
merktu tófunni sem með komu sinni
hingað, ásamt hinum þremur
merktu tófum, sannar kenningar
þeirra fyrmefndu."
Að vísu hefur aldrei verið lagt
fram frumvarp á Alþingi með því
nafni sem að ofan get-
ur en látum það liggja
milli hluta. Fréttarit-
arinn á Skjaldfönn hef-
ur þetta vafalaust eftir
helsta heimildamanni
sínum, Indriða á
Skjaldfönn, sem hann
telur líklega vera
ái'eiðanlegan.
Einn líffræðingur er
nefndur á nafn í frétt-
inni, en það er undir-
ritaður. Mín er getið
bæði fyi'ir og eftir hinn
tilvitnaða texta og sér-
staklega tekið fram að
við Indriði hefðum
Refir
Taldi ég að málinu væri
þar með lokið en afsök-
unarbeiðni Indriða á
Skjaldfönn, segir Páll
Hersteinsson, virðist
hins vegar hafa farið
framhjá fréttaritaran-
um á Skjaldfönn.
staðið í deilum í fyrravetur. Lesandi
fréttarinnar hlýtur því að álykta að
það sé undiiTÍtaður sem hafí haldið
því fram að dýrin haldi sig ávallt á
heimaslóðum, gagnstætt kenningu
Indriða, enda virðist markmið
fréttaritarans á Skjaldfönn vera að
gera hlut bóndans á Skjaldfönn sem
mestan.
Hið rétta í málinu er þó að Indriði
setti sjálfur fram kenninguna um að
refir yfirgæfu ekki heimaslóðir sín-
ar en ákvað að klína henni á mig svo
að hann gæti upphafið sjálfan sig
með því að benda á hve heimskuleg
kenningin væri. Tilefni ritdeilna
okkar Indriða í Vestra var einmitt
það að hann eignaði mér sínar eigin
heimskulegu kenningar. Er
skemmst frá því að segja að deilum
okkar Indriða í Vestra síðastliðinn
vetur lauk með því að hann bað mig
opinberlega afsökunar á málflutn-
ingi sínum (Vestri, 11. mars 1999,
bls. 8). Taldi ég að málinu væri þar
með lokið en afsökunarbeiðni Indr-
iða á Skjaldfönn virðist hins vegar
hafa farið fram hjá fréttaritaranum
á Skjaldfönn.
Ólíkt Indriða, sem lætur sér
nægja að sitja heima á Skjaldfönn
og smíða kenningar í eigin nafni og
annarra um ferðir refa, hef ég gert
mitt besta til þess að afla raunveru-
legra gagna um þessar ferðir. Þegar
eru liðnir tveir áratugir síðan ég
stóð fyrst fyrir eyrnamerkingum á
yrðlingum á Vestfjörðum en endur-
heimtur þá sýndu m.a. að ungir,
vestfirskir refir fara allt að 60 km er
þeir yfirgefa heimasvæði foreldr-
anna þótt meðalvegalengdin væri
u.þ.b. 25 km. í bókinni Agga Gagg -
með skollum á Ströndum, sem kom
út árið 1997, sagði ég einnig frá
tveim radíómerktum geldlæðum
Páll
Ilersteinsson
sem yfirgáfu heimkynni sín og fóru
töluverðar vegalengdir áður en þær
settust um kyrrt. Indriði á Skjald-
fönn átti því að vita betur þegar
hann tók að heimfæra eigin kenj^-
ingar upp á mig sl. vetur enda veit
ég ekki til að nokkur maður hafi
tekið mark á honum, nema e.t.v.
fréttaritarinn á Skjaldfönn.
Fréttaritarinn á Skjaldfönn telur
það mikla frétt að Indriði á Skjald-
fönn skuli hafa veitt merkta tófu við
agn sem hann lagði sjálfur út í
hlaðvarpanum á Skjaldfönn. Jafn-
framt telur fréttaritarinn að sá at-
burður sanni kenningu Indriða en
afsanni kenninguna sem Indriði
setti fram í mínu nafni. Ég verð þó
að hryggja fréttaritarann með því
að þetta telst varla frétt. í bókinni-
Refirnir á Hornströndum, sem út
kom sl. haust, sagði ég frá því að
einmitt þessi tiltekna tófa, sem
Indi'iði skaut um daginn, hefði flutt
úr friðlandinu og verið búin að koma
sér fyrir í grennd við Skjaldfönn
sumarið 1999. I sömu bók er einnig
getið örlaga nokkurra annarra ra-
díómerktra refa sem fluttu út úr
Hornstrandafriðlandi. Hver er þá
fréttin og hver hefur sannað hvað?
Ég hlýt að gera ráð fyrir að
fréttaritari Morgunblaðsins á
Skjaldfönn fari ekki vísvitandi með
rangt mál enda má hann vita að
hann missir starfið samstundis ef
slíkt sannast á hann. Til þess að
koma í veg fyrir að svona lagað end#--
urtaki sig vil ég ráðleggja frétta-
ritaranum tvennt. í fyrsta lagi ætti
hann að kynna sér fyrirliggjandi og
aðgengileg gögn, þar á meðal nýút-
gefnar bækur, um málefnin sem
hann fjallar um áður en hann sendir
frá sér frétt. I öðru lagi ætti hann að
vanda betur val sitt á heimildar-
mönnum hér eftir en hingað til.
Höfundur er prófessor við Háskóla
Islands og hefur stundað rannsóknir
á refum íáratugi.
í réttu Ijósi frá morgni til kvölds
Estée Lauder kynnir
Revelation
Light Responsive Compact Makeup SPF 15
Nú getur húð þín verið frábærlega frísk-
leg og lýtalaus ásýndum í hvaða Ijósi
sem er - hvort heldur dagsbirtu eða raf-
Ijósum. Leyndardómurinn felst í þessum
nýja andlitsfarða sem í eru sérstök litar-
efni er laga sig að birtunni og stýra
þekjuhæfni farðans. Tregsmitandi efna-
blandan veitir húðinni nauðsynlega
vernd og þægilega áferð daglangt.
Clara Kringlunni
Sara Bankastræti
Lyfja Lágmúla
Lyfja Setberg
Lyfja Hamraborg
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáranum
Snyrtistofan Hrund,
Crænatúni
Amaró, Akureyri
Apótek Keflavíkur
Fasteignir á Netinu
vDmbl.is
Ríkisvívlar í markflnklcnm
Utboð miðvibudagmn 1. mars
í dag kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að þessu
sinni verður boðið upp á 2 í mánaða ríkisvíxil en að öðru leyti eru skilmálar útboðsins
í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum.
í boði verður eftirfarandi flokkur ríkisvíxla í markflokkum:
Núverandi Áætlað hámark
Flokkur Gjalddagi Lánstími staða* tekinna tilboða
R700-0S17 17.maí 2000 2* mónuður 4.400 2.000.-
♦Milljónir króna
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í
ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð
tílboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og
tryggingafélögum er heimilt að gera tífboð í
meðalverð samþykktra tílboða að lágmarld
500.000 krónur. Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 11:00,
miðvikudaginn 1. mars 2000. Útboðsskilmálar,
önnur tílboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgöm 6,
í síma S62 4070.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. haeð • Sími: S62 4070 • Fax: S62 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is
r