Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Árbæjarkirkja
Safnaðarstarf
Hvers má
, vænta? - Lífið
og eilífðin
BIBLÍULESTUR í Árbæjarkirkju á
miðvikudagskvöldum í mars frá kl.
20.30-22 (1.3-22.3.) Fyrirlestrar
verða haldnir um grundvallartexta
úr Nýja testamentinu sem fjalla um
hina síðustu tíma, endurkomu Krists,
upprisuna, Dóminn og eih'ft líf. Þetta
eru efni sem snerta alla menn. Rétt
er að geta þess að Nýja testamentið
vill hugga með boðskap sínum um
þessi efni en ekki hræða. Allir eru
velkomnir. A eftir fyrirlestri verða
umræður yfir kaffíbolla. Fyrirlesari
er dr. Siguijón Ámi Eyjólfsson hér-
aðsprestur.
Prófasta-
fundur í Hall-
grímskirkju
ÁRLEGUR prófastafundur er
haldinn í Hallgrímskirkju 1. og 2.
mars. Messað verður í Hallgríms-
kirkju 1. mars kl. 17. Dómprófastur,
séra Guðmundur Þorsteinsson,
prédikar, séra Agnes Sigurðardóttir,
prófastur í Bolungarvík, þjónar fyrir
altari, Gunnar Gunnarsson, organisti
og Sigurður Flosason, saxófónleik-
ari, leiða tónlist. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæð-
ur með ung börn kl. 10.30-12 í safn-
aðarheimilinu. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með htil böm sín. Samverustund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samvemstund, kaffiveitingar. TTT-
starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Unglingastarf kl. 19.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12. Bibl-
íulestur kl. 20 í umsjá Sigurðar Páls-
sonar. Náttsöngur kl. 21.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Samvera eldri
borgara í dag kl. 13-17. Spil, lestur,
handavinna. Kaffi og meðlæti ki. 15.
Djákni flytur hugvekju. Söngstund
undir stjóm Jóns Stefánssonar org-
anista. Lestur passíusálma kl. 18.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30.
Starf fyrir 6-9 ára börn.TTT kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferming-
artími kl. 19.15. Unglingakvöld kl. 20
í samvinnu við Laugameskirkju,
Þróttheima og Blómavals.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Kaffi og spjall. Bænamessa kl.
18.05. Sr. Öm Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.Starf fyrir 11-12
ára böm kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl.13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarins.
„Hvers væntum við - lífið og eilífðin".
Bibhulestur í Árbæjarkirkju á mið-
vikudagskvöldum í mars frá kl.
20.30-22 (1.3-22.3). Fyrirlestrar
verða haldnir um grandvallartexta
úr Nýja testamentinu sem fjalla um
hina síðustu tíma, endurkomu Krists,
upprisuna, Dóminn og eilíft líf. Þetta
era efni sem snerta alla menn. Rétt
er að geta þess að Nýja testamentið
vill hugga með boðskap sínum en
ekki hræða. Allir velkomnir. Á eftir
fyrirlestri verða umræðm- yfir kaffi-
bolla. Fyrh-lesari: Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu á eftir. Klrkjuprakkarar,
starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT-
starf 10-12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður.
KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á móti
Framkvæmdastjóri
ÆSKR
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkur-
prófastsdæmum (ÆSKR) auglýsir starf fram-
kvæmdastjóra laust til umsóknar. Leitað er
eftir starfskrafti með háskólapróf (helst í guð-
fræði) og/eða umtalsverða reynslu af kirkju-
starfi með unglingum. Viðkomandi þarf að
hafa góða skipulags- og samskiptahæfileika,
lifandi áhuga á að efla unglingastarf þjóðkirkj-
unnar auk þess að hafa gott vald jafnt á
íslensku og ensku. Nánari upplýsingar og gögn
um starfið má fá á skrifstofu sambandsins í
Grensáskirkju í síma 588 1625.
Umsóknum, ásamt ítarlegum upplýsingum
um menntun og fyrri störf, skal skila á skrif-
stofu Reykjavíkurprófastsdæmis vestra í Hall-
grímskirkju (101 Reykjavík) fyrir 15. mars nk.
Nauðsynlegt er að umsækendur geti hafið
störf hinn 15. júlí nk.
Fræðslumiðstöð
*|‘ Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Seljaskóli, sími 567 7411
Stuðningsfulltrúi til að aðstoða nemendur
í bekk.
Hlutastarf.
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri. Umsóknir ber að senda í skólann.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar-
félög.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
*■ Bifreiðasmiður óskast
Óskum eftir að ráða bifreiðasmið. Reynsla
æskileg. Vinna við réttingabekk. Um framtíðar-
starf er að ræða. Upplýsingar á staðnum.
Bifreiðaverkstæði Jónasar,
Skemmuvegi 46,
200 Kópavogi.
Fanarstjóni
á Spáni
Flugleiðir óska eftir að ráða fararstjóra á Spáni -
Costa Brava á tímabilinu maí - september 2000.
Nokkurra ára reynsla af fararstjórn, góð spænsku-
kunnátta og sjálístæð vinnubrögð eru skilyrði.
Lágmarksaldur 28 ár.
Umsóknum skal skilað til afgreiðslu
Morgunblaðsins merkt „Fararstjóri 2000“ í síðasta
lagi 6. mars.
Ekki er tekið við umsóknum í gegnum síma.
ICELANDAIR
Hagkaup Skeifunni
StarfsmaÓur í herradeild
Hagkaup óskar að ráða starfsmann í herradeild
verslunarinnar í Skeifunni.
Starfið er fólgið í afgreiðslu og þjónustu við
viðskiptavini. Starfsmaður þarf að hafa náð 20
ára aldri, vera duglegur, stundvís og
þjónustulundaður.
Um er að ræða fullt starf. Vinnutími er virka
daga frá kl: 9-18 og annan hvem laugardag.
Upplýsingar um starfið veitir Anna Ingvarsdóttir
starfsmannafulltrúi á staðnum og í síma 563-
5044.
Mtóra úrval-betrikaup
Matreiðslumaður
Óskum eftir matreiðslumanni í vakta-
vinnu. Góð laun í boði.
Nánari upplýsingar gefa Robbi eða
Gústi í síma 561 3616.
Hafnarfjarðarbær
Félagsleg
heimaþjónusta
Óskum eftir að ráða starfsfólktil starfa strax
við heimaþjónustu í Hafnarfirði.
Viðkomandi þarf að vera umburðarlyndur og
hafa áhuga á mannlegum samskiptum.
Vinnutími er á milli kl. 9 og 17, eða eftir nánara
samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðar-
bæjar og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Nánari upplýsingar veita Húnbjörg og Jónína
í síma 585 5735 f.h. alla daga.
Félagsþjónustan í Hafnarfirði.
Oldrunarfulltrúi,
Kolbrún Oddbergsdóttir.
III
MENNTASKÓUNN f KÓPAVOGI
Ræsting
Menntaskólinn í Kópavogi óskareftirað ráða
starfsmenn til dagræstinga í heilsárs störf.
Um er að ræða 3 hálf störf ræsta, 4 stundir á
dag.
Laun eru skv. samningi Eflingar (Framsóknar)
og fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skól-
ans í síma 544 5510 og þangað ber að skila
umsóknum í síðasta lagi 10. mars.
Skólameistari.
Ljósmæður
Sjúkrahús Akraness
óskar eftir Ijósmæðrum til afleysinga í sumar.
Upplýsingar um deildina og launakjör gefur
Anna Björnsdóttir, deildarstjóri,
í síma 430 6000.
Matreiðslumaður
Júmbó samlokuróska eftir að ráða matreiðslu-
mann til starfa nú þegar.
Upplýsingar gefur Einar Árnason í síma
554 6694 eða 893 2345.