Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 53
I DAG
BRIPS
IIiiiNjón (iuömiiiidiir
l'áll Arnarsnn
HOLLENDINGURINN
Bauke Muller fann fallega
leið til að tryggja sér tíu
slagi í fjórum hjörtum í spili
dagsins, sem kom upp í
Forbo-Krommenie-keppn-
inni í Hollandi um síðustu
helgi.
Norður
A K64
»9742
♦ ADG
4* A62
Su^ur
♦ A92
» A10853
♦ 8
* KG54
Muller opnaði á einu
hjarta á suðurspilin og end-
aði í fjórum eftir nokkar
slemmuþreifingar. Vestur
kom út með hjartakóng og
Muller gaf slaginn. Aftur
kom hátt hjarta og nú henti
austur tígli. Hvernig myndi
lesandinn spila?
Samningurinn er mjög
sterkur og vinnst í flestum
legum með því að fara í laufið.
Þá er best að taka tvo efstu
og spila að gosanum. Þannig
fæst slagur á lauf nema þegar
vestur liggur með drottning-
una ijórðu í bakið á sagnhafa.
Sem var raunin:
Norður
4. K64
»9742
♦ ADG
*A62
Vestur
* G75
» KDG
* K75
* D1083
Austur
* D1083
» 6
* 1096432
* 97
Su^ur
* A92
» A10853
♦ 8
+ KG54
Ekki lakari spilari en Paul
Soloway, nýkrýndur heims-
meistari og stigakóngur í
Bandaríkjunum, fór niður á
fjórum hjörtum með þessari
spilamennsku. Hann átti
enn þann möguleika að
svína tíguldrottningu, en
valdi frekar að trompsvína
fyrir kónginn í austur.
Vissulega var Soloway
óheppinn með leguna, en
eins og Muller spilaði var
sama hvernig spil AV litu út.
Hann svínaði einfaldlega
tíguldrottningu í þriðja slag!
Sviningin heppnaðist, svo
spilinu var þar með lokið, en
það var í sjálfu sér aukaat-
riði. Ef austur hefði átt tíg-
ulkóng var hugmynd Mull-
ers sú að henda spaða niður í
tígul, trompa út spaðann,
taka síðasta tígulinn og
senda vestur inn á tromp.
Þannig fengi hann útspil í
tvöfalda eyðu og sendingu
upp í KG í laufi.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæh, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þríggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Davíð
SKAK
Umsjún llelgi Áss
Grétarssnn
Þessi staða kom upp á
milli tveggja af efnileg-
ustu skákmönnum Taflfé-
lagsins Hellis á meistara-
móti þess.
Kjartansson
(2235) stýrði
hvítu mönnunum
gegn Birni Þor-
finnssyni (2255),
en hann lék illi-
lega af sér með
síðasta leik sín-
um, 10...0-0??
11. Rgð! Bxg5
U...Bxg2
12. Dxh7 er mát.
Með textaleikn-
um tapar svartur
þvingað skipta-
mun fyrir engar
bætur. 12.Bxb7 Bxcl
13.Haxcl Rd7 14.Bxa8
Dxa8 15.dxc5 bxc5
16.Hxd6 Re5 17.Hcdl
Rxc4 18.Hd7 Re5 19.Hc7
c4 20.Dd2 a5 21.Dd4 f6
22.f4 Db8 23.Dc5 Rg4
24.De7 Db6+ 25.Khl
Rf2+ 26.Kg2 Dxc7
27.Hd7! og svartur gafst
upp.
I fitií
JM
Hvítur á leik.
COSPER
Segðu þeim sem bíða frammi að búið sé að ráða
í báðar stöðurnar.
Með morgunkaffinu
Ast er...
12-27
að vera saman í
fjallakofa oglanga
ekki að moka sig út.
Þú mátt gjarnan bíða
eftir strætó hérna
Ef þú heldur að ég ætli
að klæða mig í kjól og
hvítt þótt við séum að
fara að gifta okkur, er
það misskilningur.
Dag einn munt þú
eignast þetta allt, son-
ur sæll.
LJOÐABROT
TAR
Blíður er blærinn yfir hæðunum
sem horfa yfir byggðina
en við jaðar þeirra býr sorgin
Hún fæddist í fyrra þegar barnið dó
og fuglarnir flykktust
að litla leiðinu og súngu
um það fegursta og saklausasta er deyr
kemur aldrei aftur
En fólkið kunni ekki að sýngja
eins vel og fuglarnir
aðeins að gráta nokkrum höfgum tárum
sem féllu á gljúpa jörðina og hurfu
Jóhann Hjálmarsson.
STJÖRNUSPA
eftir Frances llrake
BRIDS
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Bjartsýni þinni er viðbrugð-
ið og þú festir helzt ekki
sjónir á neikvæðu hliðunum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) "r*
Það getur bæði verið gagn og
gaman af því að kynnast fjar-
lægum löndum og íbúum
þeirra. Skildu fordómana eft-
ir heima, þeir flækjast bara
fyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í*t
Sjálfsöryggi þitt er slíkt, að
menn kynnu að taka það fyrir
hroka. Leggðu þig fram um
að koma öðrum kurteislega í
skilning um hvað fyrir þér
vakir.
Tvíburar ^
(21. maí-20. júní) AA
Nú þarftu að taka til hendinni
og klára allt það sem þú hefur
látið sitja á hakanum. Yttu
nýjum verkefnum frá þér á
meðan; öðru vísi hefst það
ekki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki Gróu á Leiti halda
fyrir þér vöku. Það verða
hennar fylgisveinar, sem fara
verst út úr þvi, en þú stendur
uppi með pálmann í höndun-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er bráðnauðsynlegt að
leika við barnið í sjálfum sér
af og til. Aðeins þannig get-
urðu haldið þér síungum,
hvað sem árunum líður.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.) <S$L
Þig langar að brjóta af þér
hlekki vanans. Gerðu það!
Það er upplagt að byrja á
smábreytingum og taka svo
stærri skref, þegar reynslan
er fengin.
(23. sept. - 22. október) m
Þér hættir til þess að taka of
mörg verkefni að þér í einu.
Utkoman er svo sú að þú situr
uppi með að hafa svikið gefin
loforð. Þú verður að breyta til.
Sþorðdreki ™
(23. okt. - 21. nóv.) HE
Það er stundum freistandi að
stökkva strax, en þú verður
að athuga vel þinn gang áður
en þú lætur til skarar skríða.
Þannig tryggir þú árangur-
inn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er oft betra að fylgjast
með hlutunum úr fiarlægð, en
demba sér umsvifalaust í þá í
návígi.\Þú þarft Iíka á allri
þinni fýrirhuggju að halda.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Það er góð regla að teygja sig
helzt til lengra en maður get-
ur. Þannig tryggir þú fram-
farir þínar og aðrir sjá stöð-
ugan vöxt þinn og viðgang.
Vatnsberi
(20. jan.r -18. febr.) WE-
Þú kemst ekki hjá því að
vinna ákveðið verkefni í sam-
starfi við aðra. Leggðu þig
fram um að ná samkomulagi
og hafði forystu þar um, ef
með þarf.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) V i7_
Enginn hefur alltaf rétt fyrir
sér um alla skapaða hluti. Það
er þroski fólginn í þvi að við-
urkenna mistök sín og hafa
kjark til þess að breyta til.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindafegra staðreynda.
I! iii n j ó ii A r ii ó r G .
It a g n a r s s o n
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Bridskeppni spiluð í Ásgarði
Glæsibæ mánudaginn 21. febrúar.
Sveitakeppni.
Á mánudögum stendur nú yfir
sveitakeppni með þátttöku 10 sveita.
Eftir 6 umferðir er staða efstu sveita
þannig:
Albert Þorsteinsson 117
Rafn Kristjánsson 107
Margrét Margeirsdóttir 104
Fimmtud. 24. febrúar. Tvímenn-
ingskeppni. 22. pör. Meðalskor 216
stig.
Arangur N-S.Olíver Kristófersson -
Kristján Olafsson 260
Auðunn Guðmss. - Albert Þorsteinss. 256
Bergljót Rafnar - Soffía Theódórsdóttir 249
Arangur A-V.Perla Kolka - Stefán
Sörensson 301
Baldur Ásgeirss. - Magnús Halldórss. 277
Hjálmar Gíslason - Viggó Nordquist 229
Bridsklúbbur félags
eldri borgara í Hafnarfirði
Úrslit í tvímenningskeppni Brids-
klúbbs félags eldri borgara í Hafnar-
firði urðu sem hér segir:
18. febrúar
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundarson 127
StígurHerlufsen-JónAndrésson 124
KjartanElíasson-RagnarHalldórsson 118
Árni Guðmundsson - Hera Guðjónsd. 115
25. febrúar
Guðm. Guðmundss. - Sigurlín Ágústsd. 134
Sævar Magnússon - Ámi Bjamason 127
Stígur Herlufsen - Jón Andrésson 125
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundarson 115
Fimmtudagsspila-
mennska í Þönglabakka
Fimmtudaginn 17. febrúar mættu
15 pör til leiks. Spilaður var Mitchell
með fjórum spilum á milli para. Miðl-
ungur var 168 og lokastaða varð
þessi:
NV
Helgi Jónsson-HelgiSigurðsson 192
ElíasIngimarss.-GuðmundurHanss. 177
JónAmason-JökullKristjánsson 177
AV
Kristján Blöndal - Hrólfur Hjaltason 192
JónStefásson-ÓliBjömGunnarss. 181
Guðmundur Péturss. -Baldur Óskarss. 180
Helgamir og Guðmundur Péturs-
son eru þar með jafnir og efstir í
flestum bronsstigum skoruðum í
febrúar með 50 stig. Guðmundur
Pétursson og Aron Þorfinnsson eru
með bestu prósentuskor mánaðarins
57,69%
Bæði bronsstigin og prósentu-
skorin gefa glæsilega vinninga á
Þremur frökkum.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Gunnlaugs Sævarssonar
sigraði með nokkrum yfirburðum í
aðalsveitakeppni félagsins sem lauk
sl. mánudagskvöld. Átta sveitir tóku
þátt í mótinu og fékk sigursveitin
164 stig af 175 mögulegum.
I sveitinni spiluðu ásamt Gulla
þeir Karl G. Karlsson, Gísli Torfa-
son, Jóhannes Sigurðsson, Karl Her-
mannsson og Arnór Ragnarsson.
Lokastaðan í mótinu:
Gunnlaugur Sævarsson 164
Eyþór Jónsson 135
Þröstur Þorláksson 130
Svala Pálsdóttir 90
Næsta mánudagskvöld hefst
þriggja kvölda Michell-tvímenning-
ur þar sem tvö efstu kvöldin telja til
verðlauna. Spilað er í félagsheimil-
inu við Sandgerðisveg og hefst
keppni kl. 19.30.
Bridsfélag Hreyfils
Hafin er Butler-tvímenningur hjá
félaginu og mætti 21 par til keppni.
Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu
para þessi:
Skafti Bjömsson - Jón Sigtryggss. 53
ÁrniHalldórss.-ÞorsteinnSigurðss. 52
Erlendur Björgvinss. - Friðbj. Guðmss. 47
Kristinn Ingason - Guðm. Friðbjömss. 45
Ingunn Sigurðard. - Eiður Gunnlaugss. 40
Spilað er á mánudagskvöldum í
Hreyfilshúsinu.
Lágmarks-
ríkið á
vefnum
MINIMAL State - íslenski frjáls-
hyggjuvefurinn, hefur hafið
göngu sína á http://minimal-
state.com. Ætlunin með vefnum,
sem er á ensku, er að boða hug-
sjónina um frelsi einstaklingsins,
hérlendis sem erlendis, segir í
fréttatilkynningu.
Einnig segir: „Áhersla er lögð á
takmörkun ríldsvaldsins - lág-
marksrikið, sem sinnir aðeins lög-
gæslu, starfi dómstóla og land-
vörnum. Grundvallarhugsjón
vefjarins er að einstaklingar eigi
að hafa frelsi til allra athafna sem
ekki skaði aðra. Réttur ríkis-
valdsins til að ákveða fyrir ein-
staklingana hvernig þeir ráðstafa
fé sínu er ekki viðurkenndur.
Vefurinn er hannaður með það í
huga að vera aðgengilegur þeim
sem lítið vita um frjálshyggju en
vilja kynna sér frelsishugsjónina,
en að auki verða á forsíðu hans
stuttar greinar um málefni líð-
andi stundar, skrifaðar frá sjón-
arhóli frjálshyggjumannsins.
Þótt vefurinn hafi lítið sem
ekkert verið auglýstur hefur
hann verið aðgengilegur í rúma
viku og á þeim tíma sankað að sér
heimsóknum, jafnt ensku- sem ís-
lenskumælandi vefnotenda."
Vilja sam-
stöðu um
launakröfu
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun:
„Fundur í samninganefnd
Bárunnar-Þórs haldinn 27. 2.
2000 hvetur til samstöðu félaga
innan Verkamannasambands Is-
lands við þá hófsömu launakröfu
VMSÍ, sem farið hefur verið
fram með, á hendur Samtökum
atvinnurekenda.
Kröfugerðin byggist á þeim
einfalda veruleika sem blasir við
fólki í félögum innan Verka-
mannasambandsins, þegar litið
er til launahækkana ráðamanna
þjóðarinnar og annarra hópa
eins og meðal annars hefur kom-
ið fram L fréttum undanfarna
daga.
Fundurinn hvetur því fólk í fé-
lögum VMSÍ -til samstöðu um að-
gerðir til stuðnings við kröfugerð
Verkamannasambands íslands."
Gengið á
miili fjarða
Hafnargönguhópurinn stendur
fyrir gönguferð í kvöld frá Hafn-
arhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20.
Farið verður upp Grófina, með
Tjörninni og um Háskólahverfið
suður í Skerjafjörð og eftir
strandstígnum að Skeljanesi. Þar
er val um að ganga strandstíginn
og Suðurgötuna að Hafnarhúsinu
eða fara með SVR frá Skeljanesi.
Allir velkomnir.
Fundur um
barnsmissi
NÝ DÖGUN, samtök um sorg
og sorgarviðbrögð, heldur fyrir-
lestur fimmtudaginn 2. mars kl.
20 í Háteigskirkju.
Álfheiður Steinþórsdóttir, sál-
fræðingur, mun fjalla um barns-
missi og er fyrirlesturinn öllum
opinn.
L