Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 57

Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 57 FÓLK í FRÉTTUM Guitar Wolf Jet Generation Matador Japanskt slagsmálarokk ROKKAÐASTA rokksveit nútím- ans kemur frá Japan, landinu þar sem allt virðist gerilsneytt og formfast en piltarnir í hljómsveit- inni „Guitar Wolf' færa okkur skít, hávaða, leður og geðveiki. Leðurklædd afsprengi Hiroshima- kjarnorkusprengjurinar spila gam- aldags rokk og ról í anda Ramones og Cramps. Peir Seiji, Billy og Toru kunna lítið annað í ensku en „one, two, three, four“ en þeir hafa farið sigurför um bandarísku neð- anjarðarsenuna undanfarin miss- eri. Þeir eru sannir pönkarar og kunna varla á hljóðfærin sín en þeir rokka, guð minn góður, þeir rokka! Platan sem hér er til umfjöllun- ar er þeirra nýjasta „Jet Generat- ion“ eða þotukynslóðin. Platan hefst á „feedbakki", drengirnir telja inní og þá hefst rokksurg sem hljómar eins og eftirköst kjarnorkusprengjunnar. Hávaðinn og geðveikin eru ólýsanleg meðan þeir spila heimskuleg rokklög full af krafti og ofbeldi. Hvert einasta hljóðfæri er þanið í botn þannig að yfirkeyrslusurgið er alls ráðandi. „Guitar Wolf‘ snýst eiginlega meira um töffaraskap heldur en tónlist, enda hafa þeir verið að hita upp fyrir „The Jon Spencer Blues explotion" sem eru framherjar töffararokksins í dag. Stemmningin, rokkið og rólið skiptir úlfana meira máli en tón- listin enda segir gítarleikarinn Seiji að það eina sem skipti máli í rokkinu sé að hoppa nógu flott á sviði. Úlfarnir eru fyrst og fremst tónleikaband en stemmningin skil- ar sér líka á disknum þar sem þeir taka allt upp í einu í sveittu hljóð- veri og láta allar vitleysur standa. Þrátt fyrir að hljómurinn sé hrárri en hrátt og tónlistin greinist varla fyrir yfirkeyrslusurginu er gífur- legur kraftur og þyngd í hljómnum á disknum, öfugt við fyrri útgáfur sveitarinnar þar sem krafturinn fær ekki að njóta sín eins vel. Þessi diskur er hreinasta snilld og greinarhöfundur stendur sig yfir- leitt að því að hækka allt í botn og brjóta nokkra vasa þegar strákun- um er skellt í spilarann. „Guitar Wolf‘ eru svo sannarlega komnir til að bjarga heiminum, óþvegnir og ógeðslegir færa þeir mannkyni tæra, ofbeldisfulla hamingju. Ragnar Kjartansson r \ BÆTT HEILSA - BETRI LÍÐAN! BÆTT AFKÖST! Vara sem allstaðar slær í gegn 300 kr. á dag! Uppl. í s. 698 3600. ^^mmmmmmmmmm^mmm^mmmmmmmm^mi^^mmmmmmmmmm^r Sjavarrettadagar 1,- 5. mars Við komum þér á óvart með sérlega girnilegu og gómsætu sjávarréttahlaðborði. Matreiðslumeistarar frá Sikiley Sarino Damiano og Franco Mentesana munu sjá um matreiðsluna ásamt matreiðslumönnum Perlunnar. Sarino Damiano hefur rekið hótel- og veítingahús á Sikiley um árabil, sem orðið er þekkt fyrir fiskisúpur og Ijúffenga sjávarrétti og hefur Franco starfað þar með honum sl. 17 ár. Þeir hafa ferðast víða og hafa sérhæft sig i því að matreiða ferskan fisk á einfaldan og náttúrulegan hátt á Miðjarðarhafsmáta. Með matnum verður að sjálfsögðu boðið upp á ítölsk eðalvin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.