Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 64
Heimavörn
Drögum næst
10. mars
Sími: 580 7000
SltovgisttMbftfrifr
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLADW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3M0,
ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Landssíminn
vill stærri lóð við
Suðurlandsbraut
Forstjóra
“'veitt lieim-
ild til við-
ræðna
STJÓRN Landssíma íslands hefur
veitt Pórarni V. Þórarinssyni for-
stjóra heimild til að ganga til við-
ræðna við Reykjavíkurborg og
Orkuveituna um kaup á húsum Raf-
magnsveitu Reykjavíkur á mótum
Suðurlandsbrautar og Grensásveg-
ar.
Að sögn Ólafs Þ. Stephensen upp-
lýsingafulltrúa Landssímans rúma
r-»é>úsin sem fyrir eru á lóðinni ekki
" starfsemi Landssímans og þyrfti að
ræða við borgaryfirvöld um mögu-
leika á stækkun. Lóðin nær frá Suð-
urlandsbraut að Armúla og er því
nær Múlastöðinni en lóðin sem vil-
yrði var veitt fyrir í Laugardal. „Ef
saman gengur mun það fela í sér
talsvert hagræði fyrir okkur,“ sagði
hann.
---------------
Aðalfundur FEB
# #
Vilja áheyrn-
arfulltrúa í
stjórnum líf-
eyrissj'óða
AÐALFUNDUR Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni beinir
því til lífeyrissjóða að tryggja
áheyrnarfulltrúa eftirlaunaþega
setu í stjórnum sjóðanna.
Jafnframt skorar fundurinn á þá
sjóði sem nota vísitölu neysluverðs
—, 4jl verðbóta að breyta í viðmiðun við
Taunavísitölu og að sjóðimir birti í
ársreikningum sínum hvað verð-
tryggingin gefi í samanburði við þró-
un launa á vinnumarkaði.
I greinargerð með tillögunni segir
meðal annars að notkun neyslu-
verðsvísitölu til verðtryggingar eft-
irlauna sé ófullnægjandi sem sjá
megi af því að sú vísitala hafi hækkað
um 8,7% síðustu þrjú árin, en launa-
vísitalan hafi hækkað um 23,7% á
sama tíma. Þá hafi vísitala lífeyris-
skuldbindinga hækkað um 38,6%, en
sú vísitala sé hluti almennu launa-
vísitölunnar og sýni breytingar á
launum opinberra starfsmanna. Hún
hafi verið notuð frá árinu 1996 til
verðbóta á eftirlaunum þeirra sem
ekki hafi eftirlaun samkvæmt stað-
gengilsreglu.
■ Ávöxtun lífeyrissjóda/33
Trúnaðarmaður sjúkraliða á SHR segir þungt hljóð
í mönnum eftir árangurslausar viðræður
Búast við uppsögnum
nú um mánaðamótin
VIÐRÆÐUR milli fulltrúa sjúkra-
liða á Landsspítalanum og Sjúkra-
húsi Reykjavíkur við fulltrúa stjóm-
enda sjúkrahúsanna báru ekki
árangur í gær og sagði Oddný Fjóla
Lárusdóttir, trúnaðarmaður sjúkra-
liða á SHR, í gærkvöldi að hún teldi
hætt við því að kæmi til uppsagna nú
um mánaðamótin febrúar-mars.
Sagði hún að samkvæmt því
myndu uppsagnir koma til fram-
kvæmda 1. júní. Að hennar sögn eru
þeir, sem tóku þátt í viðræðunum
fyrir hönd sjúkraliða, ekki bjartsýnir
og var þungt hljóð í mönnum á fundi
sjúkraliða í gærkvöldi.
Að sögn Oddnýjar Fjólu eru
sjúkraliðar á Landsspítalanum í
sömu aðstöðu.
Kristín A. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, sagði í
gærkvöldi að félagið hefði gert kjara-
samninga 1997, sem ætlast væri til að
farið væri eftir. „Það er verið að fara
yfir það og vinna innan kjarasamn-
ingsins," sagði hún. „Það er ekki ver-
ið að taka upp neina kjarasamninga."
Hún kvaðst vilja biðja fólk að
halda ró sinni því að félagið myndi
„auðvitað halda áfram að gera kröfu
um það að farið yrði eftir kjarasamn-
ingnum út í ystu æsar“.
Þegar Kristín var spurð hvort
henni fyndist vera farið að draga
saman milli aðila eða skortur væri á
skilningi sagði hún að haldið yrði
áfram að fara yfir samninginn svo
lengi, sem hann væri í gildi.
Kristín sagði að ýmis álitamál
væru varðandi útfærslu kjarasamn-
ingsins og teldu sjúkraliðar að hallað
væri á þá.
Um 140 sjúkraliðar lögðu fyrir
mánuði niður störf og héldu fund um
kjaramál og hefur verið gefið til
kynna að komið gæti til uppsagna
sjúkraliða. Kristín sagði að hún hefði
gert sjúkraliðum grein fyrir stöðunni
eftir fundina í gær, en hún vissi ekki
hvort ákveðið hefði verið að fara út í
aðgerðir á borð við uppsagnir: „Eg
er ekki í neinum aðgerðahópi hjá
sjúkraliðum."
Morgunblaðið/RAX
Gosbólstrar
yfir Heklu
Órói í Heklu jókst um fimm leytið í
gærmorgun eftir að hafa dottið
niður á mánudag og hélst stöðugur
fram á kvöld. Miklir bólstrar stigu
upp af fjallinu og var Frúin, flugvél
Omars Ragnarssonar fréttamanns,
lítil í samanburði. Steinunn Jakohs-
dóttir jarðeðlisfræðingur sagði
hugsanlega skýringu á auknum ór-
óa að gosrásin væri að þrengjast en
samfara því yrðu meiri átök. Hún
sagði að þetta væri líkt því að hald-
ið væri að hluta til fyrir stút á gos-
flösku sem hrist hefði verið upp í.
Þrýstingurinn ykist þótt ekki væri
meira í flöskunni. Bjart var í veðri í
gær og gátu því jarðeðlisfræðingar
sem flugu yfir eldstöðvarnar feng-
ið góða mynd af gossprungunni og
útbreiðslu hraunanna. Flugumferð
var mikil yfir Heklu í gær.
■ Hraunið/4
Hagnaður Flugleiða
tífaldast milli ára
Hagnaður af reglulegri starfsemi batnaði um 274 milljónir
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
FLUGLEIÐIR hf. skiluðu 1.515
milljóna króna hagnaði á árinu 1999
og er það tíföldun frá árinu áður en
þá nam hagnaður samstæðunnar
151 milljón króna. Hagnaður af
reglulegri starfsemi samstæðunnar
var 138 milljónir króna árið 1999 en
árið áður var 136 milljóna króna
tap af reglulegri starfsemi sem
þýðir 274 milljóna króna bata á ár-
inu. Þá nam veltufé frá rekstri sam-
stæðunnar 2.103 milljónum króna á
árinu 1999, sem er 27% aukning frá
1.657 milljónum ársins 1998.
Af 1.515 milljóna króna hagnaði
samstæðunnar skilar móðurfélagið
239 milljóna króna hagnaði af
reglulegri starfsemi, sem er rúm-
lega sexföldun frá í fyrra, áhrif
dótturfélaga nema 100 milljóna
króna tapi og eignasala skilar 1.377
milljóna króna hagnaði.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða hf., segist ekki alls kostar
ánægður með þá upphæð sem
reksturinn var að skila frá reglu-
legri starfsemi, þó svo að afkoman
batni mikið á milli ára. Tölurnar
þokist þó í rétta átt en að hans sögn
voru flest flugfélög í Evrópu með
nokkuð lakari afkomu á árinu 1999
heldur en á árinu 1998.
Verð hlutabréfa í Flugleiðum
lækkaði á Verðbréfaþingi íslands í
gær í kjölfar þess að félagið birti
afkomu sína. Lokaverð bréfanna
var 4,25 sem er 15,2% lækkun frá
deginum áður. Hvað þetta varðar
segir Sigurður að sér virðist sem
væntingar ýmissa verðbréfafyrir-
tækja um niðurstöðu ársuppgjörs-
ins hafi verið töluvert meiri en
ástæða var til að ætla. Hann hafi
því átt von á því að bréfin lækkuðu
eitthvað í fyrstu eftir birtingu árs-
uppgjörsins.
■ Söluhagnaður/23