Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hæstiréttur dæmir í málum tveggja fyrirtækja vegna ofgreiddra jöfnunargjalda Ríkið dæmt til að end- urgreiða 15,5 millj. kr. HÆSTIRETTUR dæmdi í gær ís- lenska ríkið til að endurgreiða fyr- irtækinu Dreifingu ehf., sem flutt hefur inn franskar kartöflur, 9,5 milljónir af ofgreiddu jöfnunar- gjaldi á árunum 1988-94 með drátt- arvöxtum, auk 800 þúsund kr. málskostnaðar. Hæstiréttur komst að sömu niðurstöðu í öðru máli þar sem sambærilegar kröfur voru hafðar uppi og var ríkið einnig dæmt í því máli til að endurgreiða hópi einstaklinga, fyrir hönd inn- flutningsfyrirtældsins Ekrunnar hf., 6 millj. kr. með dráttarvöxtum auk 600 þúsund kr. málskostnaðar vegna ofgreidds jöfnunargjalds af innfluttum kartöflum. Ólögmæt álagning Héraðsdómur hafði sýknað ríkið af báðum kröfunum, m.a. með þeim rökstuðningi að þær væru fyrndar. Á það féllst Hæstiréttur ekki. Hæstiréttur komst að þeirri nið- urstöðu í lok árs 1996 að álagning 190% og 120% jöfnunargjalds af kartöflum og vörum unnum úr þeim, sem lagt var á skv. heimild í reglugerð landbúnaðarráðherra, hefði verið ólögmæt. í framhaldi af þeim dómi höfðuðu bæði fyrirtækin mál gegn ríkinu og kröfðust endur- greiðslu á ofgreiddum jöfnunar- gjöldum. í niðurstöðum Hæstaréttar í málunum segir m.a. að áfrýjendur hafi leitt verulegar líkur að því, að samkeppnisstaða þeirra hafi rask- ast nokkuð vegna jöfnunargjalds- ins. „Þar sem ekki var gætt lög- mætra skilyrða við álagningu þess þykir næsta öruggt, að það hafi ekki í raun skilað sér til baka í verðlagningu vörunnar. Þetta mat er örðugt og hlýtur að fara að álit- um. Eftir öllum atvikum þykir hæfilegt, að stefndi endurgreiði áfrýjanda 9.500.000 krónur af hinu ofgreidda jöfnunargjaldi, sem til álita er,“ segir niðurstöðu Hæsta- réttar í máli Dreifingar. Ríkið sýknað af kröfu um endurgreiðslu á U-gjaldi Hæstiréttur sýknaði hins vegar ríkið af kröfu Dreifingar um end- urgreiðslu á svokölluðu U-gjaldi, sem nam 50% á tollverð unninnar vöru úr kartöflum og staðfesti með því dóm héraðsdóms sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að fjög- urra ára fyrningarfrestur gilti um kröfuna og hefði krafan því verið fyrnd þegar málið var höfðað. Morgunblaðið/Ásdís B arnavagnarnir komnir á kreik í LEYSINGUNUM að undanfómu hefur einn þjóðfélagshópur glaðst talsvert; nefnilega nýbakaðir for- eldrar og ungviði þeirra. Nú er nefnilega aftur hægt að fara með bamavagninn á ferðina, nokkuð sem hefur reynst harla vonlítið í fannferginu á Fróni upp á síðkast- ið. Þessi mær brá undir sig betri fætinum ásamt tvíburanum á Sauð- árkróki á dögunum og leiddist greinilega ekki lífið. Telur skip- stjórann hafa strok- ið með áhöfnina FLUTNINGASKIPIÐ Fio Crima lét úr Hafnarfjarðarhöfn um hádegið í gær enda þótt einungis væri búið að landa helmingi farms þess. Islenskir fulltrúar Alþjóðasambands flutninga- verkamanna (ITF) stöðvuðu uppskip- un í fyrradag vegna óviðunandi kjara skipverja um borð. 20 til 30 skipverj- ar eru um borð, allt Rússar búsettir í Lettlandi. Á fundi ITF í gær áður en skipið lét úr höfn var ákveðið að fara yfir stöðu mála með lögfræðingum og mun brottíor skipsins ekki hafa áhrif á framvindu mála. „Ég lít svo á að skip- stjórinn hafi strokið burt með áhöfn- ina og mun skrifa skýrslu um málið og senda afrit af henni á þá staði sem grunur leikur á að skipið muni hafa viðkomu á,“ sagði Borgþór Kjæme- sted eftirlitsfulltúi ITF. „Við munum ennfremur biðja þá aðila sem kunna að taka á móti skipinu að vera vak- andi yfir því að skipverjar á skipinu búa við óviðunandi kjör. Við munum fara fram á að skipið verði bundið og ekki leyst úr viðkomandi höfn fyrr en gert hefur verið upp við skipverjana." Skipið siglir undir fána Panama en er í eigu grískra aðila. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fjórir jarðskjálftar mældust í Eyjafjallajökli í gær. Skj;ílftarnir áttu ekki upptök í öskjunni, sem sést á myndinni, heldur í norðurenda jökulsins. Hræringar í Eyjafjallajökli FJÓRIR jarðskjálftar mældust í Eyjaíjallajiikli í gær og voru þeir allir 1 til 2 stig á Richter. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstof- unni er þetta heldur meiri skjálfta- virkni en venjulega á þessu svæði, en þó ekki það mikil að ástæða þyki til að hafa sérstakan viðbúnað. Að sögn Steinunnar Jakobsdótt- ur, jarðeðlisfræðings á jarðeðlis- sviði Veðurstofunnar, dró nokkuð úr skjálftavirkni í Eyjafjallajökli meðan á Heklugosinu stóð, en hún virðist nú hafa aukist á ný. Stein- unn sagði að ýmsar skýringar gætu verið á þessu og að ekkert lægi fyr- ir um að bein tengsl væru á milli Heklugossins og skjálftavirkni í Eyjaíjallajökli. Hún sagði að skjálftavirkni í Eyjafjallajökli kæmi oft í bylgjum og að hugsanlega hefði lægð farið saman við gosið. Upptök skjálftanna nú era ekki í öskju Eyjafjallajökuls heldur í norðurendajökulsins. Góður skriður á viðræðum Samiðnar FINNBJÖRN A. Hermannsson, formaður Samiðnar, sagði að við- ræður Samiðnar og Samtaka at- vinnulífsins væru komnar á fullan skrið. Fundur var haldinn hjá ríkis- sáttasemjara í gær þar sem m.a. var rætt um veikindarétt og ýmsa afmarkaða þætti kjarasamning- anna. Finnbjörn sagði að menn hefðu skipst á pappírum og undirnefndir væru að störfum. Ekkert hefði ver- ið rætt um sjálf launin, en hagfræð- ingar væru að fara yfir þau mál og meta forsendur samninga. Finn- björn sagðist meta það svo að Sam- iðn væri komin álíka langt í viðræð- unum við SA og Rafiðnaðar- sambandið. Hann sagðist telja að menn þyrftu a.m.k. alla næstu viku til að Ijúka samningavinnunni. Samiðn hefur átt í viðræðum við Reykjavíkurborg um gerð skamm- tímasamnings sem gildi frá upphafi þessa árs til ársloka. Viðræðurnar byggjast á því að tekið verði upp nýtt launakerfi. Finnbjörn sagði að á samningafundi í fyrradag hefði Samiðn lagt fram heildstæð drög að kjarasamningi við Reykjavíkur- borg. Samninganefnd borgarinnar hefði óskað eftir tíma til að fara yfir drögin fram á miðvikudag í næstu viku. Þá kæmi væntanlega í ljós hvort samningar á þessum grund- velli tækjust eða ekld. Samgönguráðherra undirbýr ráðstefnu um samgöngumál THE LOOK OF THE CENTURY Á 20. öld hafa nýtiskustefnur skotið upp kollinum hvað eftir annað og breytt hugmyndum okkar um hvað skuli teljast smekklegt og hvað sé smekk- laust. Þessi vandaða og rikulega myndskreytta bók rekur hönnunarsögu 20. aldar á einstaklega hrífandi hátt. n BHéetory Erlendar bækur daglega I\ mumlsson Austurstræti 5111110« KringUinni 51) 1130 • Hafnarftrði 555 Ö0ú5 Engar aðgerðir vegna Húsavíkurflugs STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra segist ekki geta séð með hvaða hætti samgönguyfirvöld gætu gripið til aðgerða til að koma aftur á áætlunarflugi frá Húsavík. Hann segir bæjarstjóra Húsavíkur hafa rætt við sig og ýmsir aðilar nyrðra hafi sent ráðuneytinu álykt- anir og lýst þar áhyggjum sínum. „Húsavíkurflugið er í uppnámi vegna þess að á þeirri leið er eng- inn hagnaður og flugfélögin vilja ekki sinna öðrum leiðum en þeim sem standa undir sér,“ segir Sturla Böðvarsson. Hann segir ilugið út frá Akureyri um Norðurland í sér- stakri skoðun í ráðuneytinu. Ráð- herra benti á að góðar flugsam- göngur væru milli Reykjavíkur og Akureyrar og ekki löng vegalengd milli Akureyrar og Húsavíkur en kvað þó æskilegt að halda hefði mátt áfram áætlunarflugi á Húsa- vík. „En á þessu stigi sé ég ekki að samgönguyfirvöld geti komið að málinu," sagði ráðherra. Samgönguráðherra segir í und- irbúningi að kalla hagsmunaaðila á ráðstefnu til að ræða vítt og breitt samgöngur bæði í flugi og með áætlunarbílum. Segir hann þar ætlunina að draga sem mest fram upplýsingar og umræður um hvernig mönnum sýnist að þessari þjónustu verði best komið í fram- tíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.