Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 14

Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ , Morgunbladid/Svernr STARFSSTULKA Hafnarborgar ber öl og gosdrykki í sal- inn þar sem Magnús Gunnarsson bæjarstjdri, Stefán Þór- arinsson hjá Nýsi og Magnús Jdhannsson frá FM-húsum undirrituðu samninga um einkaframkvæmd í gær. Samið um einka- framkvæmd Hafnarfjörður HAFNARFJARÐARBÆR skuldbindur sig til að greiða 98,1 milljón króna á ári vegna grunnskóla og um 20,3 m.kr. á ári vegna leikskóla í samning- um um einkaframkvæmd vegna þessara stofnana, sem undirritaðir voru í gær. Samið er við FM-hús um leigu og þjónustu við grunn- skóla í Aslandi en við Istak og Nýsi um leigu og þjónustu við leikskóla við Háholt. Samningsaðilar bæjarins reisa húsin og eiga en leigja bænum þau til 27 ára, hvað varðar grunnskólann, en til 25 ára, hvað varðar leikskólann. Að loknum upphaflegum samningstíma framlengjast samningur um fimm ár í senn nema til uppsagnar komi tveimur árum fyrir lok tímans. Samningsfjárhæðirnar fela í sér greiðslu vegna leigu og við- halds húsnæðis og lóðar, ræst- ingar og þrifa, umsjónar hús- næðis, húsgagna og búnaðar, sem er í eigu þessara fyrir- tækja, svo og umsjón lóðar, sorphirðu, öryggisgæslu, orku og viðhald húsgagna og búnað- ar. Leikskólinn við Háholt verður fjögurra deilda fyrir 90 böm en grunnskólinn í Aslandi verður íyiir 400-500 nemendur með tveimur bekkjardeildum í hveijum árgangi en með möguleika á þremur deildum í yngstu bekkjum. Gert er ráð fyrir að leiga vegna leikskólans verði greidd frá 13. janúar nk. en þá skal afhenda leikskólann í umsömdu ástandi til rekstrar. Upphaf leigutíma 1. áfanga grunnskólans er 1. ágúst 2001 en 2. áfanga 1. ágúst 2002. Af 98,1 m.kr., sem greidd er vegna grunnskólans árlega, eru 72,1 m.kr. vegna leigu og viðhalds húsnæðis og lóðar en annað vegna stoð- og viðhalds- verkefna, þar af 13,6 m.kr. vegna ræstinga. Af 20,3 m.kr., sem greiddar verða vegna leikskólans ár- lega, eru 15 m.kr. vegna leigu og viðhalds húsnæðis og lóðar en 5,3 m.kr. vegna stoð- og við- haldsverkefna, þar af 2 m.kr. vegna ræstingar. Þetta eru fyrstu samning- amir sem sveitarfélag hér á landi geiir við einkaaðila um rekstur af þessu tagi en áður hefur menntamálaráðuneytið gert samning um einkafram- kvæmd vegna Iðnskólans í Hafnarfirði. Málið er umdeilt í bæjar- stjóm Hafnarfjarðar. Minni- hlutinn telur einkafram- kvæmd andstæða sveitar- stjómarlögum og hefur skotið kærutil félagsmálaráðuneytis- ins. Urskurðar er að vænta á næstunni. Stóra upplestr- arkeppn- in nær hámarki Grafarvogur KEPPENDUR í Stóru upp- lestrarkeppninni æfa nú af kappi fyrir lokahátíðir keppninnar í grunnskólum Reykjavíkur, sem haldnar verða á næstu dögum. I Reykjavík hafa 24 skól- ar tekið þátt í keppninni og liðlega 1.200 nemendur. Borginni er skipt upp í fjög- ur hverfi, Austurbæ, Vest- urbæ, Árbæjar- og Breið- holtshverfi og Grafarvog. Hvert þessara hverfa heldur sína lokahátíð, sem markar lok keppninnar þar. Þeir sem þátt taka í loka- hátíðinni hafa áður verið valdir úr sfnum bekkjum til að keppa í hverjum skóla fyrir sig. I keppnum skól- anna voru síðan valdir þátt- takendur á lokahátfð hverf- isins og var miðað við að einn fulltrúi væri frá hverri bekkjardeild í skóla. Lokahátíðirnar eru nú að hefjast í Reykjavík og verða allar haldnar í kirkjunni í viðkomandi hverfi. Á loka- hátíðinni lesa nemendur kafla úr þjóðsögu og fjögur ljóð eftir Vilborgu Davíðs- dóttur. Dómarar verða fjór- Morgunblaðið/Sverrir Garðar Sveinbjörnsson, Svanfríður Hafberg og Rakel Magnúsdóttir æfðu upplesturinn í gær í Rimaskóla, en þau taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni á lokahátíð Grafarvogs- hverfis í dag. ir og koma frá undirbún- ingsnefnd og Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur. Fyrsta lokahátíðin verður í dag í Grafarvogskirkju og hefst klukkan 16. Þar keppa 12 nemendur sem koma frá Engjaskóla, Rimaskóla, Foldaskóla, Hamraskóla og Húsaskóla. Þriðjudaginn 21. mars verður sfðan lokahátfð Árbæjar og Breiðholts í Seljakirkju og hefst einnig kl. 16. Lokahátíð Austur- bæjar verður í Bústaða- kirkju fimmtudaginn 23. mars og hefst kl. 15, og sama dag verður haldin lokahátíð Vesturbæjar í Neskirkju, og hefst hún kl. 15.30. Upphaf Stóru upp- lestrarkeppninnar má rekja til ársins 1996, þegar fram kom sú hugmynd að halda slfka keppni meðal nemenda í 7. bekk í fimm skólum í Hafnarfirði og á Álftanesi. Keppnin breiddist síðan út, og nær nú til 3.118 nemenda í 73 skólum víða um land. Meginmarkmið keppninn- ar er að vekja áhuga og at- hygli á vönduðum upplestri og er lögð sérstök rækt við undirbúinn og vandaðan upplestur hjá nemendum í 7. bekk, jafnt á bundnu sem óbundnu máli. Kennarar leiðbeina nemendum um hrynjandi í upplestri, blæ- brigði í lestri, framburð, hæfilegan hraða, rétta líkamsstöðu og samskipti við áheyrendur, en þetta eru þau atriði sem dæmt er eftir í keppninni sjálfri. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð stækkað um 1.600 fermetra Mikil þörf á hjúkrunar- rýmum Kópavogur RÁÐGERT er að stækka hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi um 1.600 fer- metra, eða 20 rými, en eftir stækkunina verður rými fyrir 75 einstaklinga á heimilinu. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Guðjón Magnússon, formann Sunnu- hlíðarsamtakanna, en hann sagði að áætlaður kostnaður vegna verksins væri um 260 milljónir króna. „Þessi fyrirhugaða upp- bygging er tilkomin vegna mikillar þarfar á hjúkrunar- rýmum,“ sagði Guðjón. „Þörfin hefur farið vaxandi síðustu ár. Fólk er sífellt lengur heima hjá sér vegna þess hve heimahjúkrun hefur batnað og er orðin algeng og því er fólk yfirleitt orðið mjög veikt þegar það kemur inn á Sunnuhlíð hjúkrunarheimilið." Guðjón sagði að viðbygg- ingin væri enn á hönnunar- stigi, en það er Teiknistofa Finns og Hilmars sem sér um hönnunina. Hann sagði að gert værí ráð fyrir mjög full- kominni aðstöðu í bygging- unni, öll herbergin yrðu ein- staklingsherbergi með sérsnyrtingu og þá yrði starfsaðstaðan bætt mikið. í viðbyggingunni væri einnig gert ráð fyrir aðstöðu fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun. Sunnuhlíðarsamtökin, sem áttu 20 ára afmæli í fyrra, starfa á félagslegum grunni og sagði Guðjón að fjármögn- un viðbyggingarinnar væri því að stórum hluta háð söfn- unum samtakanna. Guðjón sagði að 40% af kostnaðinum við bygginu hússins, eða um 104 milljónir króna, yrðu gi-eiddar af ríkinu og að farið hefði verið fram á það við Kópavogsbæ að hann greiddi um 60 milljónir. Hann sagði að afgangurinn, eða um 96 milljónir, yrðu fjármagn- aðar með söfnunum og að þegar hefðu safnast um 40 milljónir með frjálsum fram- lögum. Hann sagði að á aðal- fundi Sunnuhlíðarsamtak- anna, sem verður haldinn föstudaginn 17. mars, yrði ákveðið hvernig staðið verður að söfnun á þeim 56 milljón- um sem eftir standa. Gunnar I. Birgisson um áskorum unglingaráðs HK vegna knattspyrnuhúss Einkennilegt því HK er hluthafi í Knatthúsum Kópavogur GUNNAR I. Birgisson, for- maður bæjarráðs í Kópavogi, segir að sér komi einkenni- lega fyrir sjónir ályktun ung- lingaráðs HK um að bærinn hefjist handa við byggingu eigin knattspyrnuhúss. „HK er nú hluthafi í Knatthúsum ehf., sem vilja byggja í knatt- spyrnuhús í Garðabæ með öðrum sveitarfélögum. Svo kemur þessi áskorun," sagði Gunnar. Hann sagði að bæjarráð hefði málið nú til umfjöllunar. „Við höfum ekkert afgreitt eða ákveðið af eða á í þessu máli.“ Gunnar sagði að bæjarráðið hefði vísað ályktuninni til um- sagnar aðalstjórnar HK. A bæjarráðsfundi í gær var málefnum varðandi knatt- spyrnuhús frestað til næsta fundar en meðal annars ligg- ur fyrir erindi frá Knatthús- um sem vilja reisa sameigin- legt hús fyrir íþróttafélög í Kópavogi, Garðabæ, Hafnar- firði og Bessastaðahreppi í Garðabæ. Samkvæmt tillög- unni er gert ráð fyrir að sveit- arfélögin skuldbindi sig til að greiða 50 milljónir króna í hlutafé og 31 milljón á ári í leigutekjur í 25 til 30 ár. Knattspyrnufélögin sem standa að Knatthúsum eru Breiðablik, HK, Haukar, FH, Stjarnan og Ungmennafélag Bessastaðahrepps. í frumat- hugun Knatthúsa kom fram að miðað við að eingöngu yrði spiluð knattspyrna í húsinu og húsið yrði notað frá klukkan 16-23 virka daga en frá 9-19 laugardaga og 9-23 sunnu- daga yrðu 100 klukkustundir til skiptanna í viku hverri og kæmu þá 2 klukkustundir í hlut hvers aldursflokks þess- ara félaga. Þá er miðað við að 80% tímans yrði spilað á tveim hálfum völlum í húsinu. í ályktun unglingaráðs HK, sem sagt var frá í blaðinu í gær, kemur fram að hugmynd Knatthúsa myndi ekki nýtast yngri flokkum sem skyldi þar sem sækja þurfi æfingar út fyrir bæjarmörkin. Gunnar sagði að bæjaryfir- völd væru nú að skoða öll þessi mál, kostnað og fleira. Hann staðfesti að einn þein’a kosta sem eru til skoðunar sé möguleiki á að byggja yfir sandgrasvöll Breiðabliks í Kópavogsdalnum. Hann sagði að bærinn hefði engin tímamörk sett sér um niðurstöðu í málinu. „Þetta er nú kannski ekki forgangsmál hjá okkur. Við þurfum fljót- lega að fara að byggja íþrótta- hús í Salahverfi; það liggur fyrir hjá okkur að ljúka sund- lauginni. Við erum að fara með íþróttafélögunum í fjár- hagslega endurskipulagningu hjá þeim sem kostar bæjar- sjóð peninga. Það er í mörg horn að líta og þetta er einn af mörgum þáttum." Gunnar sagði að markmið fjárhagslegrar endurskipu- lagningar íþróttafélaganna væri að stöðva skuldasöfnun. „Þau eru að berjast við gamla drauga. Nú hafa íþróttafélög- in breytt um vinnubrögð og nú geta menn ekki sett félag í fjárskuldbindingar nema með samþykki aðalstjórnar. Það er tvennt fyrir bæjarfélag að gera; að gera ekki neitt og láta þetta dingla svona áfram eða reyna að hjálpa þeim að komast út úr þessum vanda og geta starfað á góðum grunni að því unglinga-, for- varna- og uppeldisstarfi sem þeir eiga að vinna í.“ í nýlegum samanburði, sem Morgunblaðið gerði á grund- velli upplýsinga frá Sambandi sveitarfélaga, kom fram að Kópavogur legði minna fé en önnur sveitarfélög á höfuð- borgai'svæðinu til íþrótta- og æskulýðsmála. Um þetta sagði Gunnar að þetta væri ekki rétt þegar betur væri að gáð. „Þetta er kannski öðru- vísi bókað hjá okkur,“ sagði hann. „Það er kannski verið að styrkja íþróttafélögin með öðrum hætti. Menn eru með alls konar stuðning, sem er kannski ekki bókaður á þá staði þar sem hann ætti að vera bókaður. Því ber ekki að neita að það hefur ekkert ann- að sveitarfélag lagt aðra eins peninga til uppbyggingar íþróttamannvirkja og Kópa- vogur á síðustu 10 árum. Það verður að horfa á þetta allt í samhengi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.