Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjögur fyrirtæki á Akureyri
Peningagjöf til að efla
fíkniefnarannsóknir
Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, Jón Björnsson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, Guðmundur Guðmundsson, fjár-
málastjóri Samheija, og Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Islenskra
verðbréfa, sem afhendir Bimi Jósef Arnviðarsyni peningagjöfina.
Fyrirlestur í Lista-
safninu á Akureyri
Kynusli,
klám og
kokfylli
GEIR Svansson bókmenntafræðing-
ur flytur fyrirlestur í Listasafninu á
Akureyri föstudagskvöldið 17. mars
og hefst hann kl. 21. Yfirskrift fyrir-
lestursins er kynusli, klám og kok-
fylli og fjallar hann um kyngervi,
losta, greddu og getuleysi við upphaf
nýrrar aldar eins og segir í frétt frá
Listasafninu. Fyrirlesturinn er hald-
inn í tengslum við sýninguna Losti
2000 sem verið hefur á safninu.
I fyrirlestrinum mun Geir velta
vöngum yfir þeirri forvitni um kynlíf,
kynferði, kyngervi og kyn sem hefur
verið áberandi í umræðu hérlendis
sem og erlendis á undanförnum ár-
um. Merki þessarar umræðu megi
hvarvetna sjá stað, í fjölmiðlum,
auglýsingum og í allri dægurmenn-
ingu, en líka í myndlist, sjón- og bók-
menntum, segir í fréttinni og að
engu sé líkara en efasemdir um
kyngervi og kynferði líffræðilegu
kynjanna tveggja, karls og konu,
hafi skotið upp kollinum.
Geir mun sýna myndbönd og úr-
klippur úr íslenskum blöðum og
tímaritum með fyrirlestri sínum. Að-
gangseyrir er kr. 300 og öllum heim-
ill nema börnum.
kvæmdir er lúta að endurbótum á
miðhluta flugstöðvarinnar. Veit-
ingaaðstaðan verður bætt til muna
og flutt til í húsnæðinu, í norðaust-
urhornið, sunnan við Fríhöfnina.
Sigurður sagði að framkvæmdum
ætti að vera lokið fyrir háannatím-
ann í sumar og að um það leiti tæki
viðkomandi aðili við veitingarekstr-
inum.
Fimm tilboð bárust í áðurnefndar
framkvæmdir í miðhluta flugstöðv-
arinnar og voru aðeins tvö þeirra
undir kostnaðaráætlun. Lægsta til-
boðið átti MP-verk og Vík ehf. en
fyrirtækið bauðst til að vinna verkið
fyrir rúmar 36,6 milljónir króna,
sem er um 88% af kostnaðaráætlun
verkkaupa. Viðræður standa yfir við
lægstbjóðanda og gerði Sigurður
ráð fyrir að gengið yrði frá málinu
öðru hvoru megin við næstu helgi.
FJÖGUR fyrirtæki á Akureyri, ís-
lensk verðbréf, Kaupfélag Eyfirð-
inga, Samheiji og Sparisjóður
Norðlendiiiga hafa afhent embætti
sýslumanns á Akureyri samtals 1,2
milljónir króna sem renna munu til
Lögreglunnar á Akureyri til að
efla fíkniefnarannsóknir.
Hugmynd forsvarsmanna fyrir-
tækjanna fjögurra er að leggja
með þessum hætti sitt af mörkum
til að sporna við þeim vanda sem
sala og neysla fíkniefna er. Fram
kom við afhendinguna að ekki
hefði farið fram hjá neinum að
þessi vandi hefði sífellt farið vax-
andi á Akureyri og því hefði stjórn-
endum fyrirtækjanna fjögurra þótt
tímabært að sýna í verki hug sinn
til þessa vandamáls og hvetja til
aukinna aðgerða.
Barist við
sivaxandi vanda
í máli Björns Jósefs Arnviðar-
sonar sýslumanns kom fram að
verið væri að berjast við sívaxandi
vanda en fjármunir sem cmbættið
hefði yfir að ráða væru takmarkað-
ir. Þessi höfðinglega gjöf kæmi sér
að hreinsa vatnið innándyra og
veita því frá húsinu.
Steinar sagði að mesta tjónið
hefði orðið utan dyra þar sem nota
þurfti gröfur til að moka snjónum í
burtu frá húsinu og því væri við-
búið að lóðin hefði farið illa.
Vatnið rann niður brekkuna
vestan við húsnæði fyrirtæksins og
á tímabili var vatnshæðin við út-
vegginn um 1 metri. Steinar sagði
að gífurlegt vatnsmagn hefði flætt
yfir tún fyrir ofan húsið og niður
brekkuna og að önnur hús í ná-
grenninu hefðu einnig verið í
hættu. Skurður þar fyrir ofan var
pakkaður af snjó og tók því ekki
við vatninu. „Það hefur oft verið
leysingavatn á túninu hér fyrir of-
an og menn þá þurft að veita því
frá húsinu en þetta var ekkert
venjulegt. Það kom bara eitt stykki
því vel. Ákvörðun um ráðstöfun
ljárins hefur ekki verið tekin en
væntanlega mun henni varið til
lækur sem orðinn var að á niður
brekkuna og stefndi á húsið. Á
nokkrum niínútum óð vatnið upp
veggina og maður sá bara fyrir sér
að vatnið kæmi inn um gluggana.
Það er alveg ljóst hreppurinn verð-
ur að gera eitthvað til að koma í
veg fyrir að svona nokkuð geti
gerst.“
Starfsmenn bæjarins
í viðbragðsstöðu
Steinar sagði að dæla slökkvilið-
sins hefði dælt mörg hundruð tonn-
um af vatni frá húsinu en aðeins
náð að halda í við vatnsflauminn.
Slökkviliðið var einnig kallað að
tækjakaupa og til að styrkja tíma-
bundið mannafla við fíkniefnaleit á
Akureyri.
verslunarmiðstöðinni í Sunnuhlíð
en þar flæddi vatn upp um niðurföll
í kjallara þar sem tannlæknastofa
er til húsa. Eigandinn þar var með
dælu og búnað en hafði ekki undan
og leitaði því til slökkviliðsins.
Gífurlegt vatnsmagn rann um
flestar götur á Akureyri í gær og
voru starfsmenn bæjarins því í við-
bragðsstöðu.
Gunnþór Hákonarson, starfs-
maður bæjarins, sagði vatnið safn-
ast í snjóinn fyrir ofan bæinn og
svo færi það af stað með látum og
það væri það hættulegasta. „Við er-
um því í viðbragðsstöðu og við öllu
búnir.“
Listasafnið á Akureyri
Losta lýkur
SÝNINGUINNI Losti 2000 sem ver-
ið hefur í Listasafninu á Akureyri síð-
ustu vikur lýkur um helgina. Hún
verður opin í dag, föstudag og morg-
un, laugardag frá kl. 14 til 22 og á
sunnudag frá kl. 14 til 18. Sýningin er
stranglega bönnuð börnum.
Sýningin hefur vakið mikil og sterk
viðbrögð, segir í frétt frá Listasafninu
á Akureyri. Hún er tvískipt, en ann-
ars vegar er um að ræða samsýningu
þrjátíu listamanna sem fjalla um kyn-
líf á íslandi við upphaf nýrrar aldar,
hver með sínum hættipg hins vegar
einkasýningu Snoira Ásmundssonai-
sem nefnist XXX-reyri/Klámtán. Þar
ei-u nokkur málverk og einnig er sýnd
heimildarmyndin XXX-reyri sem
sýnd verður á Stöð 2 innan tíðar.
----------------
Gunnar og
Selma í
Dalvíkurkirkju
Tónleikar verða haldnir í Dalvíkur-
kirkju á sunnudag, 19. mars, kl. 21.
Þar koma fram Gunnar Kvaran selló-
leikari og Selma Guðmundsdóttii- á
píanó. Tónlistarfélag Dalvíkur stend-
ur fyrir þessum tónleikum og er
ókeypis inn fyrir 16 ára og yngri og
sömuleiðis þá sem eru eldri en 67 ára.
----------------
Fundur með
bandaríska
ræðismann-
inum
BILL Moeller, ræðismaður banda-
ríska sendiráðsins í Reylqavík, býður
öllum Bandaríkjamönnum sem bú-
settir eru á Akureyri og í nágrenni til
fundar í fundarherbergi aðalskrif-
stofu Háskólans á Akureyri, laugar-
daginn 19. mars klukkan 10. Moeller
mun í stuttri ræðu kynna starfsemi
sendiráðsins og ræðismannsskrifstof-
unnar og svara síðan fyrirspurnum.
-----♦-♦-+--
Innbrot í
sumarbústað
BROTIST var inn í sumarbústað að
Guðrúnarstöðum í Eyjafjarðarsveit
og þaðan stolið m.a. sjónvarpi og
myndbandstæki. Innbrotið uppgötv-
aðist um liðna helgi, en ekki er vitað
hvenær það var framið. Sá eða þeir
sem þar voru að verki brutu rúðu í
sumarbústaðnum til að komast inn,
en að öðru leyti voru skemmdir
óverulegar. Rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri rannsakar inn-
brotið en það er óupplýst.
-------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar-
stund verður í Grenivíkurkirkju
næstkomandi sunnudagskvöld, 19.
mars, kl. 21. Guðsþjónusta verður í
Grenilundi á Grenivík kl. 16 á sunnu-
dag.
*
Atta sýna
veitinga-
rekstrinum
áhuga
FLUGMÁLASTJÓRN leitaði ný-
lega eftir aðila sem vill taka á leigu
fyrirhugaðan veitingarekstur í
Flugstöðinni á Akureyrarílugvelli
og sendu átta aðilar inn tilboð.
Veitingareksturinn í flugstöðinni
hefur verið á hendi einkaaðila í ára-
tugi og sagði Sigurður Hermanns-
son umdæmisstjóri Flugmálastjórn-
ar að ráðgert væri að reksturinn
yrði á svipuðum nótum í framtíðinni.
Á næstunni verður ráðist í fram-
Vatn
flæddi
inn í hús
VATN flæddi inn í húsnæði DNG-
Sjóvéla í Glæsibæjarhreppi í mikl-
um leysingum í gærmorgun og
þurfti að kalla til slökkviliðsmenn
frá Akureyri með öfluga vatnsdælu.
Vatnið flæddi inn á verkstæði,
kaffistofu og skrifstofu fyrirtækis-
ins en að sögn Steinars Magnús-
sonar, starfsmanns DNG-Sjóvéla,
varð tjónið ekki mikið, en að starfs-
menn hafi haft í nógu að snúast við
M orgunblaðið/Kristján
Starfsmenn DNG-Sjóvéla í Glæsibæjarhreppi og slökkviliðsmenn frá
Akureyri höfðu í nógu að snúast í gær við að veita og dæla vatni frá hús-
næði fyrirtæksins. Vatnshæðin við húsið náði upp undir gluggapósta.
Atvinna óskast
U Metnaðarfullann 16 ára ngling vantar vinnu strax. Upplýsingar í síma 465 1359.
ÍBÚfl ÓSKAST
Tvær reglusamar skóla-
stúlkur vantar 2-3 herb. á
leigu á Akureyri frá 1. júní.
Uppiýsingar
í síma 699 7985.
Eftirlit með sölu áfengis á vínveitingastöðum verði hert
Meira fé til
forvarnastarfs
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur falið
bæjarstjóra að skipa starfshóp sem
m.a. á að móta samræma og efla
vamir innan vébanda Akureyrar
gegn áfengis- og vímuefnaneyslu Á
fundi bæjarráðs í gær var lýst yfir
vilja til að verja frekari fjármunum í
þessu skyni til forvarnastarfs en gert
er ráð fyrir i fjárhagsáætlun bæjar-
ins.
Áfengis- og vímuvarnamefnd Ak-
ureyrar hefur beint þeirri tillögu til
bæjarstjómar að hún beiti sér fyrir
því að hert verði eftirlit með sölu
áfengis á vínveitingahúsum bæjarins
svo komið verði í veg fyrir sölu til of
ungra neytenda. Leggur nefndin
áherslu á að bæjarstjóm hafi samráð
við embætti sýslumanns og kanni
hvort ekki sé nauðsynlegt að miða við
20 ára aldurstakmark á vínveitinga-
húsum sem opin em fram undir
morgun.
Að áliti nefndarinnar er brýnt að
flokka hið fyrsta skemmtistaði á Ak-
ureyri. Þá vinnu þurfi að undirbúa vel
með því að stofna starfshóp um leið
og Alþingi hefur samþykkt tillögu um
flokkun skemmtistaða en slík tillaga
liggur nú fyrir þinginu. Sérstaklega
þurfi að gæta þess að skemmtana-
leyfi næturklúbba standi undir
kostnaði við dyravörslu þar sem
hverju sinni verði lögreglumaður
meðal dyravarða. Þá er bent á að
mikilvægt sé að reglulega verði hald-
in námskeið fyrir dyraverði á Akur-
eyri.
Nefndin beinir einnig þeim tilmæl-
um til bæjarstjórnar að hún kanni
kosti þess og galla að vínveitingastað-
ir hafi frjálsan afgreiðslutíma og það
eftir geðþótta hverju sinni. Vill
nefndin að kannað verði meðal mis-
munandi starfsstétta hvemig hinn
frjálsi afgreiðslutími komi þeim fyrir
sjónir, t.d. hjá slysavakt, leigubfl-
stjórum, lögreglu, starfsfólki veit-
ingastaða sem og atvinnurekendum.
Loks segir að augljóst sé að það að
framfylgja landslögum um sölu og
dreifingu áfengis sé veigamesta að-
gerðin til að halda áfengisneyslu í við-
unandi skorðum og einnig mikilvægt
til að hindra neyslu ólöglegra vímugj-
afa sem oft fylgja í kjölfar áfengis.