Morgunblaðið - 17.03.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.03.2000, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ 22 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 Hýsing hf. óskar að ráða framkvæmdastjóra. Starfssvið: • Dagleg stjórnun með áherslu á rekstur miðlægs tölvukerfis. • Markmiðasetning og stefnumótun til framtíðar í samvinnu við stjórn fyrirtækisins, auk áætlana til skemmri tíma. • Þátttaka í þróunarstarfi og stjórnun markaðssetningar á nýjungum. Menntun og hæfniskröfur: • Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði verk- fræði, tölvunarfræði, viðskiptafræði eða sambærilega menntun. • Reynsla af stjórnun er nauðsynleg. • Viðkomandi þarf að vera framsækinn, sjálfstæður og hafa frumkvæði og áræði til þess að takast á við krefjandi stjórnunarstarf sem felst í uppbyggingu á metnaðarfullu hátæknifyrirtæki. • Áhersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum og sveigjanleika til að starfa í síbreytilegu umhverfi. Íslandssími Hýsing hf. er í jafnri eigu Íslandssíma og EJS. Tilgangur fé- lagsins er að nýta tækifæri á sviði miðlægrar tölvurekstrar- þjónustu sem bjóðast með háhraða gagnaflutningsleiðum og miðlægum tölvubúnaði. Hlutafé félagsins er kr. 100.000.000. í stjórn félagsins sitja Olgeir Kristjónsson, stjórnarformaður, Eyþór Arnalds, Einar Birkir Einarsson, Sigurður Grendal Magnússon og Ágúst Sindri Karlsson. Hýsing hf. leggur áherslu á alhliða rekstur miðlægra tölvu- kerfa og vill vera í fararbroddi hvað varðar aðgangs- og gagna- öryggi hér á landi sem erlendis. Auk þessa er lögð áhersla á áreiðanleika, uppitíma, sveigjanleika og góðan svartíma kerfa. Fyrirtækið mun reka allar tegundir upplýsingakerfa ásamt því að reka kerfisleigu sem felst í heildarlausnum í tölvumálum. Kerfisleiga veitir viðskiptavinum Hýsingar hf. frelsi til að nota allan algengastan hugbúnað svo sem bókhaldsforrit, ritvinnslu, myndvinnslu og almennar hópvinnulausnir, án þess að þurfa að greiða kostnað vegna hugbúnaðarleyfa, uppfærslu hug- búnaðar og vélbúnaðar eða menntunar starfsfólks vegna rekst- urs tölvukerfa. Fyrirtækið mun bjóða upp á sólarhrings aðgang að þjónustu sinni og sérfræðingum á þessu sviði. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar „Hýsing hf." fyrir 28. mars n.k. Upplýsingar veita Auður Daníelsdóttir og Katrín S. Óladóttir. Netföng: audur.danielsdottir@is.pwcglobal.com katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com PricewaTerhouseQopers Höfðabakka 9*112 Reykjavík • Sími 550 5300 Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is VIÐSKIPTI Athugasemd frá Skeljungi hf. Vegna fréttar Morgunblaðsins í gær, 16. mars, þar sem rætt er við Georg Ólafsson forstjóra Sam- keppnisstofnunar og formann stjórnar Flutningsjöfnunarsjóðs ol- íuvara óskar Skeljungur eftir að koma á framfæri eftirfarandi. „Forstjóri Samkeppnisstofnunar segir ekki hægt að fallast á að miða við Akureyri sem innflutningshöfn fyrir olíuvörur fyrr en hægt sé að anna eftirspurn á svæðinu með slík- um innflutningi. Hann segir jafn- framt að það sé mat meirihluta stjórnar sjóðsins að dómur Héraðs- dóms hafi ekki fallið Skeljungi hf. í hag og því sé fyrirkomulag greiðslna óbreytt. Vegna ummæla forstjóra Sam- keppnisstofnunar er rétt að rifja upp eftirfarandi: Þann 9. nóvember 1998 samþykkti stjórn Flutningsjöfnun- arsjóðs olíuvara beiðni Skeljungs hf. um að viðurkenna Akureyri sem inn- ilutningshöfn á gasolíu. Með þessum innflutningi, sem ætlað var að mæta þörfum viðskiptavina félagsins, stefndi Skeljungur að því að lækka tilkostnað við eldsneytisdreifinguna. Þessi samþykkt stjórnar flutnings- jöfnunarsjóðs hafði í för með sér verulegar breytingar til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Engin skil- yrði voru sett fram af hálfu stjórnar- innar þegar ákvörðunin var tekin önnur en þau að hún tæki gildi þegar fyrsti beini innflutningur á gasolíu væri kominn í tanka stöðvarinnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 8. febrúar 1999, eftir að Skeljungur hafði landað fyrsta farminum, tók stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs hins vegar ákvörðun um að afturkalla fyrri ákvörðun á þeirri forsendu að ekki hefði verið landað heilum farmi. Þar sem hér var komið nýtt skilyrði sem ekki hafði verið sett áður, ósk- aði Skeljungur eftir því að fá frest til að uppfylla það. Við því var ekki orð- •ið og meirihluti stjómar Flutnings- jöfnunarsjóðs ógilti fyrri ákvörðun. Skéljungur vildi ekki una þessari málsmeðferð og höfðaði því mál fyr- ir Héraðsdómi Reykjavíkur og krafðist þess að ákvörðun stjórnar Flutningsjöfnunarsjóðs um að sam- þykkja Akureyri sem innflutnings- höfn yrði látin standa. I niðurstöðu Héraðsdóms segir orðrétt: „Ekki er annað fram komið en að ætlun stefn- anda hafi verið sú að um „alvöru" innflutning yrði að ræða sem full- nægði eftirspurn. Verður enda eigi annað séð en að það varði jafnmiklu hve oft olíu er landað og hitt hve miklu er landað hverju sinni.“ Nið- urstaða Héraðsdóms var sú að ákvörðun meirihluta stjórnar Flutn- ingsjöfnunarsjóðs olíuvara um að afturkalla viðurkenningu á Akureyri sem innflutningsbirgðastöð var felld úr gildi og var Flutningsjöfnunar- sjóði gert að greiða Skeljungi hf. 350.000 krónur í málskostnað. Unnið gegn samkeppni Hvernig forstjóri Samkeppnis- stofnunar og meirihluti stjórnar Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara getur túlkað niðurstöðu dómsins Skeljungi í óhag, eins og haft er eftir Georg Olafssyni í Morgunblaðinu í gær, er stjórnendum Skeljungs óskiljanlegt. Sú yfirlýsing forstjóra Samkeppnisstofnunar að ekki sé hægt að gera breytingar á flutnings- jöfnun vegna þess að Skeljungur anni ekki eftirspurn er út í hött. Skeljungur sinnir auðveldlega öllum kröfum viðskiptavina sinna með þeim innflutningi sem ráðist hefur verið í. Ef það er krafa forstjóra Samkeppnisstofnunar að Skeljung- ur uppfylli jafnframt þarfir sam- keppnisaðilanna er komin upp al- gjörlega ný og áður óþekkt staða í samkeppnismálum á Islandi. Fram- ganga forstjóra Samkeppnisstofn- unar í þessu máli vekur óneitanlega upp spurningar um hvaða sam- keppni hann sé að verja. Rétt er að minna á að Skeljungur keppir í dag við tvö olíufélög sem starfa náið saman, með þeim eru mikil eigna- tengsl og þau hafa sameinað dreifi- kerfi sín. Það er mat stjórnenda Skeljungs að með afstöðu sinni sé forstjóri Samkeppnisstofnunar og meirihluti stjórnar Flutningsjöfnun- arsjóðs að vinna gegn samkeppni í olíudreifingu á íslandi." Memphis kaupir Brand- Vision MEMPHIS hugbúnaðarfyrir- tækið hefur átt í viðræðum um að kaupa BrandVision hluta hugbúnaðar- og ráðgjafarfyr- irtækisins WRC Research Systems í Chicago, og eru við- ræðurnar nú komnar á það stig að aðilar málsins hafa komist að samkomulagi í grundvallar- atriðum um kaupin. Með í kaupunum mun fylgja vöru- merki og einkaleyfi sem tengj- ast BrandVision, BrandMap og BrandProfiler, auk hlutabréfa í WRC Research Systems. Gert er ráð fyrir að dr. Willi- am Cantrall, forstjóri WRC, verði aðstoðarforstjóri hjá Memphis þegar kaupin hafa gengið í gegn, sem gert er ráð fyrir að verði á næstu vikum. Memphis mun greiða fyrir kaupin með hlutabréfum í Memphis, og mun WRC koma til með að eiga 4-6% í Memph- is, segir í fréttatilkynningu frá Memphis. GSp í pósthúsið SAMEINAÐ fyrirtæki GSP- almannatengsla og Gæðamiðl- unar hefur tekið á leigu um 1.200 fm húsnæði í Pósthús- stræti 3-5 og mun flytja starf- semi sína í á næstunni. Hús- næði fyrirtækisins í Skógarhlíð hefur verið selt ferðaskrifstof- unni Heimsferðum. Framtíðarhúsnæði GSP í Pósthússtræti 3-5 er í Pósthús- inu og gömlu lögreglustöðinni. íslandspóstur mun áfram hafa afgreiðslusal í Pósthúsinu. Gunnar Steinn Pálsson, for- stjóri GSP, segist ánægður með húsnæðið og staðsetning- una og segir það henta starf- seminni vel. AÐALFUNDUR Delta hf. verður haldinn að Hótel Loftleiðum, fimmtudaginn 6. apríl og hefst kl.16:00. Dagskrá a 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 4.05 gr. samþykkta félagsins. a 2. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga. a 3. Önnur mál sem eru löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aöalfundi skulu hafa borist i hendur stjórnar meö skriflegum hætti, eigi síöar en sjö dögum fyrir aöalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoöenda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, að Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfiröi, hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aöaifund. Atkvæöaseölar og önnur fundargögn veröa afhent viö upphaf fundarins. Hafnarfiröi, 3. mars 2000 Stjórn Delta hf. Delta hf. • Reykjavikurvegi 78 • Pósthólf 420 • 222 Hafnarfjöröur www.delta.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.