Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Námskeið og
fyrirlestrar í LHI
Strand á
Ströndinni
TVEIR fyrirlestrar verða í Lista-
háskóla Islands, Skipholti 1, í
næstu viku. Cornelía Sollfrank
myndlistarmaður heldur fyrirlestur
um eigin verk og Netið sem miðil
og vettvang myndlistar, mánudag-
inn 20. mars kl. 12.30, á Laugar-
nesvegi 91, stofu 24.
Cornelía býr og starfar í Ham-
borg. Henni eru hugleiknar þær
breytingar sem nú eiga sér stað í
myndlist og nýtt hlutverk mynd-
listarmanna í heimi tækni og upp-
lýsinga. Cornelía er einn af stofn-
endum alþjóðlegu femínistahreyf-
ingarinnar „Old Boys Network“.
Miðvikudaginn 22. mars kl. 12.30
í stofu 113 í Skipholti 1, heldur
Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir
listfræðingur fyrirlestur sem hún
nefnir: „Ljósmyndun í Cobru (1948
-1951). Hin alþjóðlega hreyfing
Tónlist
fyrir
textíl
TÓNLIST fyrir textíl er yfirskrift
samstarfsverkefnis Bergþóru
Guðnadóttur, fata- og textflhönn-
uðar, og tónlistarmannanna Jóels
Pálssonar, Hilmars Jenssonar og
Matthíasar Hemstock, sem opnað
verður í kvöld, fóstudagskvöld,
kl. 21 í vöruskemmu við Köllun-
arklettsveg 4 (Breiðfjörðs blikk-
smiðja bakvið Kassagerðina við
Sæbraut).
Flutt verður verk sem byggist
á spuna auk skrifaðra fyrirmæla
fyrir kontrabassaklarínett, rafgít-
ar og rafmagnað slagverk. Berg-
þóra sýnir eigin hönnun á flíkum
þar sem megináhersla er á efnin
sem hún vinnur sjálf að öllu leyti
eða hluta til.
Bergþóra er hér með sína
fyrstu tískusýningu eftir útskrift
úr Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1999.
Cobra, hafði áhrif á nútímalist og er
hvað þekktust fyrir framlag sitt til
myndlistar. Ljósmyndun í Cobra
hefur hinsvegar verið nær óþekkt
fram að þessu. Fyrirlesari mun
kynna niðurstöður rannsóknar
sinnar um þetta efni, sem unnar eru
við Sorbonne-háskólann í París.
Námskeið
Týndar konur er yfirskrift nám-
skeiðs sem hefst mánudaginn 27.
mars. Saga listakvenna er rakin í
samhengi við almenna listasögu og
hugsanlegar skýringar þess að svo
hljótt hefur verið um þær; byrjað
verður á miðöldum og endað í sam-
tímanum.
Kennari er Elísa Björg Þor-
steinsdóttir listfræðingur. Kennt
verður í stofu 113, Skipholti 1.
KVIKMYNDIR
Stjörnubfó
BATS/BLÖKUR
★ V2
Leikstjóri: Louis Morneau. Hand-
ritshöfundur: John Logan. Leikar-
ar: Lou Diamond Philipps, Dina
Meyer, León og Bob Gunton. Dest-
ination Films 1999.
NÓTT. Ungt par í bíl úti fyrir bæj-
armörkunum. Hún er ekkert á því að
kyssa hann. Honum finnst það ekki
nógu gott, en verra þó þegar hrylli-
legt skrímsli ræðst inn í bílinn og tæt-
ir þau bæði í sig. Við erum að horfa á
bandaríska hryllingsmynd.
Skrímslin reynast sérræktaðar og
sérstaklega grimmar leðurblökur
sem vísindamaður (Bob Gunton)
nokkur missti úr höndum sér. Það
kemur í hlut leðurblökufræðings
(Dina Meyer) að ráðast til atlögu við
kvikindin ásamt aðstoðarmanni sín-
Gunnar Kr.
sýnir í Lista-
sal Man
GUNNAR Kr. Jónasson opnar
sýningu í Listasal Man að
Skólavörðustíg 14 á morgun,
laugardag, kl. 16. A sýningunni,
sem ber yfirskriftina Stálverk,
verða þrívíð verk unnin úr stáli.
Gunnar Kr. Jónasson er
fæddur 12. nóvember 1956.
Hann er búsettur á Akureyri
þar sem hann rekur auglýs-
ingastofuna Stíl.
Gunnar stundaði nám við
málunardeild Myndlistaskól-
ans á Akureyri á árunum 1986
-1989 og hefur einkum lagt
stund á málverk en snúið sér í
vaxandi mæli að gerð þrívíðra
verka í seinni tíð.
Sýningin mun standa til 4.
aprfl og er opin virka daga kl.
10-18, laugardaga kl. 10 til 18
og sunnudaga frá kl. 14 til 18.
um (León) og lögreglustjóra bæjarins
(Lou Diamond Philipps).
Það versta við þessa mynd er að
það er ekkert fmmlegt við hana. Hún
er klisja frá upphafi til enda; sögu-
þráðurinn, persónumar, samtölin og
áfram mætti lengi telja. Svo er hún
ekki fyndin. León hefur fengið aumk-
unarvert hlutverk hins alkunna
fyndna félaga. Hann skýtur því
„fyndinni" setningu inn á milli mis-
gáfulegs orðagjálfurs hinna, en allt
em það gamlir brandarar.
Þessi mynd er ekki spennandi. Það
er kannski enn verra en ófrumleikinn
því þetta á nú að vera einhvers konar
hryllings-spennumynd. Hún er of
fyrirsjáanleg auk þess sem persón-
urnar era það leiðinlegar að
skemmtilegast hefði verið að sjá eina
leðurblökuna narta í þau af bestu lyst.
Eg held með leðurblökunum. Þær
era býsna vel gerðar, era hryllilega
ógeðsleg kvikindi (en þó sjarmerandi
á sinn hátt) og það eina gáfulega í
þessari mynd.
Hildur Loftsdóttir
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Bíó-
höllin, Laugarásbfó,
Borgarbfó Akureyri
THEBEACH ★★
Leikstjóri Danny Boyle. Hand-
ritshöfundur John Hodge e. skáld-
sögu Alex Garland. Tónskáld Angel
Bandalamenti. Kvikmyndatöku-
stjóri Darius Khondji. Aðalleik-
endur Leonardo Di Caprio, Tilda
Swinton, Robert Carlyle, Virginie
Ledoyen, Guillaume Canet, Patter-
son Joseph. Lengd 120 nu'n. Banda-
rísk. Fox 2000 - 20th Century Fox,
2000.
RICHARD (Leonardo Di Caprio)
á lítið sameiginlegt með hinum al-
mennu Taílandsföram, sem hann
kallar „fitukeppi sem éta upp heim-
inn“. Kjötflutningunum úr norðri
sem viðra sig í einhverjar vikur og
halda síðan á brott jafnnæpuhvítir
og þeir komu. Með minningar um
sætt landslag, draumaprinsa á
barnum, æsilegar flagmerar á
nuddstofunum. Richard er í leit að
„svalanum", ævintýrinu. Heims-
horna á milli flækist þessi ungi
Bandaríkjamaður með pokaskjatta
á bakinu og virðist loksins á réttri
leið er hann kynnist Duffy (Robert
Carlyle), snargeggjuðum skota, á
gistiheimili í Bangkok. Duffy segir
Bandaríkjamanninum frá af-
skekktri eyju með hinni fullkomnu
strönd, sannkallaðri sólarparadís án
fitukeppa. Fremur síðan sjálfsmorð
en skilur eftir landakort í herbergi
Richards. Þar hefur hann dregið
upp teikningu af eyju og Richard fer
á stúfana ásamt frönsku pari, ná-
grönnum sínum á hótelinu, Franc-
oise (Virginie Ledoyen) og Etienne
(Guillaume Canet). Áður gerir hann
afrit af kortinu og afhendir það ung-
um löndum sínum í svipaðri leit.
Draumurinn verður að veruleika.
Eyjan er til, nóg að bíta, brenna og
dóp til að reykja. Ströndin ómót-
stæðileg, þar sem lítill hópur lands-
hornaflakkara hefur sest að án
nokkurra tengsla við umheiminn.
Búa í sátt og samlyndi við mar-
íjúanabændur sem rækta sitt gras í
friði á hinum enda eyjunnar - svo
lengi sem Vesturlandabúunum
fjölgar ekki.
Maðurinn hefur löngum alið með
sér drauminn um Útópíu, hið full-
komna eyland þar sem allt er einsog
best verður á kosið. T.d. minnist ég
að hafa lesið fyrir löngu síðan Pro-
vidence Island, bók eftir Calder
Willingham um furðu svipað efni. Á
síðum hennar urðu auglýsingajaxl
og piparmey skipreka á eyðiey, þar
sem m.a. var kappnóg af kannabis
og ástalífið blómstraði. Willingham
(The Graduate, Little Big Man), var
manna fyndnastur. Alex Garland
fékk að vísu Betty Trask verðlaunin
fyrir þessa fyrstu skáldsögu sem
myndin er byggð á, hún hlýtur að
taka handritinu fram. Það er fyrst
til að taka að myndin (og sagan) er
hreinræktuð fantasía og ber að taka
sem slíka. Fer vel af stað í framandi,
fögra og afburða glæsilega teknu
landslagi, fönguðu af Darius
Khondji, einum merkasta töku-
manni samtímans, undir ámóta
góðri tónlist Angelo Bandalamenti,
kryddaðri flutningi Blur, All Saints,
ofl., ofl. Di Caprio flottur eins og
draumaprins fölleitra túrhesta,
sömuleiðis Virginie Ledoyen og
Tilda Swinton (Orlando). Allt rúllar
þokkalega áfram fyrri klukkutím-
ann, eða svo, þá fer myndin að losna
úr böndunum og endar að lokum
sem marklaust augnakonfekt.
Ádeila á einræði og harðstjórn er
léttvæg, hliðstæðan við Apocalypse
Now og Flugnahöfðingjann, og að
lokum Paradísarmissi, ámóta
bragðlaus. Að lokum stendur gest-
urinn uppi með enn ein Holly-
woodmistökin, draum um mikla að-
sóknarmynd sem því miður siglir í
strand á Ströndinni. Boyle.og félag-
ar virðast ekki ná áttum nema í
heimahögunum.
Sæbjörn Valdimarsson
Stórhættuleg
kvikindi
Gólfefa
afsláttur af öllum gólfefnum
Gólfmottur
í miklu úrvali
Gólfmotta 230 xl60 sm
7.485 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Svanhildur Bogadóttir liorgarskjalavörður og
Skúli Helgason, framkvæmdastjóri innlendra við-
burða hjá menningarborginni, skoða nýju bókina.
Nýjar bækur
• EVIDENCE! Europe reflected in
Archives, Sannanir! (Evrópa spegl-
uð í skjalasöfnum) hefur að geyma
gömul skjöl (oft lítið þekkt), sjö
borgarskjalasafna menningarborga
Evrópu árið 2000. Söfnin hafa unnið
að sameiginlegu verkefni, þar sem
tilgangurinn er að kynna hinn auð-
uga menningararf Evrópu sem er að
finna í skjalasöfnum borganna, bæði
sameiginleg einkenni borganna og
sérkenni þeirra. I tengslum við þetta
hefur einnig verið opnuð sýning á
Netinu.
Skjalaverðir safnanna í Bergen,
Bologna, Helsinki, Krakow, Prag,
Reykjavík og Santiago de Compost-
ela sáu um söfnun skjalanna. Þau
segja t.d. frá upphafi lýðræðis, rót-
um menntunar, greftrunarsiðum og
afþreyingu barna. Þau geta verið
sorgleg, spennandi, falleg, alvarleg,
fyndin eða jafnvel heimskuleg.
Bókin er skipt í tvo meginhluta. í
fyrri hlutanum er fjallað um sér-
kenni umræddra borga. Hægt er að
lesa um söguna bak við tilbúnu hæð-
irnar í Krakow, um hvemig eftir-
líking af dómkirkju er brennd í tákn-
rænum tilgangi í Santiago,
drengjasveitirnar í Bergen, timbur-
húsin í Reykjavík o.s.frv. Annar
hluti bókarinnar fjallar um sameig-
inlegt einkenni í evrópskri menn-
ingu og arfleifð. T.d. er fjallað um
borgararéttindi, aðstoð við fátæka,
íþróttir og önnur verkefni borganna,
eins og holræsa- og hafnargerð og
snjómokstur. í lok bókarinnar er
fjallað um skjalasöfnin sem tóku
þáttíverkefninu.
Framlag hverrar borgar er á máli
lands hennar og á ensku.
Verkefnið var unnið með styrk frá
Raphaél-sjóði Evrópusambandsins,
með styrkjum frá framkvæmda-
nefndum menningarborgarársins í
hverri borg og með stuðningi deildar
MÖGULEIKHÚSIÐ verður með
tvær leiksýningar í Vestmanna-
eyjum í dag, fóstudag. f öllum
leikskólum bæjarins og yngstu
bekkjum grunnskólanna fá börnin
að sjá leikritið um Snuðru og
Tuðru eftir Pétur Eggertz, byggt
borgarskjalasafna í
Alþjóðasambandi
skjalasafna.
Reykjavík - menn-
ingarborg Evrópu
árið 2000, studdi
Borgarskjalasafn
Reykjavíkur til
þátttöku í verkefn-
inu og er það hluti
af dagskrá hennar.
Bókin er291
bls., prentuð á
vandaðan pappír,
með yfír 300 litljós-
myndum, fíestum
þeirra af skjölum.
Bókin fæst á Borg-
arskjalasafni
Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, helstu bókaversl-
unum ogáNetinu.
Einnig er hægt að skoða sambæri-
legt efni á sýningu safnanna á Net-
inu sem ber sama heit Evidence!
Europe refíected in Archives. Vef-
fanghennar er: http://www.euarch-
ives.org.
á scigum eftir Iðunni Steinsdóttur.
I framhaldsskólanum verður
spunaverkið Hafrún eftir leikhóp-
inn í leikstjórn Péturs Eggertz.
Þar eru leikkonan Vala Þórsdóttir
og gítarleikarinn Kristján Eldjárn
í aðalhlutverkum.
Möguleikhúsið
sýnir í Eyjum