Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þetta vil
ég heyra
TÖNLIST
S a I ii r i n n K ó p a v o g i
SÖNGTÓNLEIKAR
Auður Gunnarsdóttir og Jónas
Ingimundarson. Ljóðasöngvar
eftir Schubert, Strauss og Sibel-
ius; lagaflokkar eftir Hjálmar H.
Ragnarsson og Atla Heimi
Sveinsson og óperettulög eftir
Kiimeke, Stolz og Lehár. Mið-
vikudag kl. 20.30.
AÐ feta listabrautina með það
veganesti að ætla að gera öllum til
hæfis getur verið varasamt. Það
er hætt við því að það sé nefnilega
líka til fólk sem ekki kann að meta
slíka þjónkun. Efnisskrá tónleika
Auðar Gunnarsdóttur og Jónasar
Ingimundarsonar í Salnum á mið-
vikudagskvöldið var þannig úr
garði gerð að þar áttu auðsýni-
lega allir að finna eitthvað við sitt
hæfi. Niðurstaðan var sundur-
laust prógramm, sem hafði hvorki
svipmót né stíl og vantaði heildar-
mynd. Auk þess var fyn-i hluti
tónleikanna samsettur af öllum
helstu „klisjum" Schuberts,
Strauss og Sibeliusar; - þarna
voru Gréta við rokkinn, Heiðar-
rósin, Allerseelen, Zueignung og
ef það hefði mátt giska á hvaða
þrjú Sibeliusarlög hefðu verið
þarna, þá hefðu flestir sem ein-
hvern tíma hafa heyrt eitthvað
eftir hann getið rétt. Enn má
bæta við að sumt á efnisskránni
söng Auður á tónleikum sínum í
Kópavoginum fyrir tveimur ár-
um, og það hefur nú ekki oft
heyrst í henni hér síðan þá. Það er
ljóst að gagnrýnandi er svekktur
á efnisvalinu og hefði viljað heyra
langtum bitastæðara prógramm.
Hvers vegna? Jú, vegna þess að
Auður Gunnarsdóttir er feikna-
góð söngkona. Kannski voru
væntingarnar of miklar; kannski
finnst manni bara að svo fínir og
fagmannlegir söngvarar þurfi
ekki að vera að setja sig niður við
að gera öllum til hæfis; - þeir eigi
að láta tónlistina vera í að
minnsta kosti þremur efstu sæt-
unum, og allt annað þar á eftir.
Góðir söngvarar, söngvarar sem
fyrst og fremst þjóna list sinni,
munu alltaf fylla sali, hvar sem er.
Auður Gunnarsdóttir er feikna-
góð söngkona. Hún hefur allt til
að bera; frábæra rödd, mikla túlk-
unarhæfileika, músíkalitet og fal-
lega framkomu. Það vantaði þó
einhvern neista í lög Schuberts,
eitthvað sem gerði þau ný og
fersk og þess virði að heyra þau
enn einu sinni. Gréta var var til
dæmis of dauf og áhugalaus um
örlög sín og þar af leiðandi ósann-
færandi. Þar var of mikil áhersla
á að syngja fallega með tækni-
legri fullkomnun, en vantaði
meira trukk í túlkunina. Richard
Strauss átti miklu betur við Auði,
og í lögunum Allerseelen, All
mein Gedanken og Zueignung var
söngurinn bæði sérstaklega fagur
og áhrifamikill. Jónas var í mikl-
um ham í lögum Strauss og spil-
aði firnavel. Lög Sibeliusar,
Flickan kom ifrán sin álsklings
möte, Sáf, sáf susa og Svarta ros-
or, voru virkilega fallega sungin,
og leikur Jónasar fínn; sérstak-
lega í Flickan kom... þar sem
hann byggði upp sterka og
dramatíska undiröldu sem hélt
uppi spennunni og örvæntingunni
í laginu. Það sem upp úr stóð á
tónleikunum voru íslensku laga-
flokkarnii-; Þrjú lög eftir Hjálmar
H. Ragnarsson úr Pétri Gaut við
ljóð Ibsens (þýdd af Einari Ben.)
og Ljóð fyrir börn eftir Atla
Heimi Sveinsson við ljóð Matt-
híasar Johannessens. I íslensku
verkunum naut sín vel hæfileiki
Auðar til að fara með texta og
túlka. Þar hafði sérhvert orð sitt
rétta vægi, orð og tónlist voru eitt
og útkoman var áhrifamikil. í
þremur óperettulögum, eftir
Kúmeke, Stolz og Lehár, var
Auður aldeilis frábær. Með þann-
ig flutningi geta jafnvel seigustu
lummur orðið dásamlegar. Þessir
dísætu valsar létu þeim Auði og
Jónasi vel og flutningur þeirra
var skínandi og skemmtilegur.
Meðal aukalaga voru lag Þórar-
ins Guðmundssonar, Kveðja, og
lag Sigvalda Kaldalóns, Eg lít í
anda liðna tíð. Flutningur þessara
laga var undursamlegur, ekki síst
síðarnefnda lagið, sem undirrituð
man tæpast eftir að hafa heyrt
jafn vel flutt.
Bergþóra Jónsdóttir
Fréttir á Netinu vÁj> mbl.is
ALLTAf= eiTTH\SAÐ NÝT7
Tilnefndur til
íslensku
tónlistarverðlaunanna
Ceisladiskur Sigurðar Bragasonar barítons
og Cuðmundar Emilssonar Mozart forleikír
og aríur, er tilnefndur til hinna íslensku
tónlistarverðlauna 2000.
Fæst í öllum hljómplötuverslunum
Nokkrir munanna á sýningunni. Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
WoDaaBe hirðingjar
LIST OG
MAJYIVLÍF
Apótekið/Hafnarborg
LJÓSMYNDIR/MUNIR
MYNDBAND
KRISTÍN LOFTSDÓTTIR
Opið alla daga frá 12-18. Lokað
þriðjudaga. Til 20. mars. Aðgangur
200 krónur í allt húsið.
APÓTEK Hafnarborgar hýsir um
þessar mundir merkilega sýningu
ljósmynda og muna er herma af hin-
um svonefndu WoDaaBe-hirðingj-
um, sem búa í Sahel-beltinu í norður-
hluta Níger. Á þessu svæði fellur
regn óreglulega milli ára, en hjarð-
mennska er leið til að nýta hinar
óstöðugu auðlindir náttúrunnar.
Hirðingjarnir eru mjög á faraldsfæti
og flytja að meðaltali búferlum á
þriggja daga fresti og eru þá farar-
tækin úlfaldar og asnar, sjálfir nefna
þeir sig fugla óbyggðanna. Afkomu
sína og sjálfsmynd byggja þeir á
nautgripakyni sem á máli þeirra
nefnist Bororo Zebu, halda þó einnig
flestir kindur og geitur. Fyrir
þurrka á síðustu áratugum hafa lífs-
skilyrði hirðingjanna versnað til
muna og Sahara-eyðimörkin færst
nær þeim, sem þýðir að regn er ófyr-
irsjáanlegra og afkoman áhættu-
samari. Á þuiTkatímunum 1968-74
og 1984-85 misstu margar fjölskyld-
ur mestan hluta dýra sinna og þurfa
því að leita annarra ráða og aðferða
til lífsviðurværis, vinna þannig
margir sem farandverkamenn í
borgum Níger, en bera enn þá von í
brjósti að snúa aftur til hjarð-
mennsku. Heitið WoDaaBe markar
hugtakið, mboda, sem útleggst, það
sem skal forðast, og hirðingjarnir
túlka það svo, að það vísi á ákveðið
siðferðisgildi og hegðunarreglur.
Eru stoltir af eigin sjálfi og uppruna
sínum og leggja mikla áherslu á
ákveðin gildi í samskiptum og lífs-
skoðunum, sem í meginatriðum
snúast um sjálfstjórn og þolinmæði.
Hirðingjarnir segja lífshætti sína
að mörgu leyti erfiða en leggja
áherslu á, að þetta sé það líf sem þeir
þekkja og er þeim eðlilegt, heiti sýn-
ingarinnar, Hornin íþyngja ekki
kúnni, er þannig sótt í málshátt sem
skýrir þessi viðhorf; rétt eins og kýr-
in er vön hornum sínum íþyngir það
okkur ekki sem við erum vanir.
Clemens Aufderklamm
Harald Pröckl
Þýskukennaradagar 2000
Upplestur við
harmonikkutóna
í TILEFNI af Þýskukennaradögum
2000 verður dagskrá í Norræna hús-
inu í kvöld kl. 20. Dagskráin ber heit-
ið „Zwischen den Kontinenten. Ge-
schichten of a small planet“ og er
upplestur við harmónikutóna. Hér er
um að ræða samspil talaðs orðs og
tóna.
Austurrfsku listamennirnir Clem-
ens Aufderdamm og Harald Pröckl
koma þar fram. Clemens Aufder-
damm er leikari, leikstjóri og leikrita-
höfundur en hann hefur einnig skrif-
að handrit fyrir stuttmynd. Hann
dvelst um þessar mundir í Los Angel-
es. Harald Pröckl er tónlistarmaður
og tónlistarkennari við Akademie
flir Neue Komposition í Schwaz.
Hann hefur getið sér gott orð fyrir
mjög nýstárlegan harmonikuleik og
komið fram á upplestrum og í leikrit-
um í ýmsum Evrópulöndum og í Jap-
an, segir í fréttatilkynningu.
Dagskráin er á þýsku.
Það er Kristín Loftsdóttir mann-
fræðingur sem hefur veg og vanda
að framníngnum og mun hafa tekið
ljósmyndirnar, sem eru hver annarri
fegurri. Þá er einnig í gangi mynd-
band sem þeir sem á annað borð rata
á sýninguna mega helst ekki láta
fram hjá sér fara.
Dregið saman í hnotskurn, segir
samanlögð sýningin af hirðingjum
sem lifa nægjusamir og afslappaðir í
fljótandi einangrun sinni, óreglulega
dreifðir í tíma og rúmi en nær hver
öðrum yfir regntímann, er þá eðli-
lega öllu meira um félagslíf og hátíð-
ir. Þetta er fallegt og viturt fólk, og
eins og gerist oft meðal múslima er
litríkt í kringum það, klæðnaður og
hannaðir munir hið mesta augna-
yndi. Afar vandað er til allra verka
kringum sýninguna og er það trúa
mín að hún eigi í öllu sínu eðlilega og
afslappaða látleysi mikið erindi til
Islendinga, sem lifa við allt önnur
lífsgildi hraða, gróðafiknar og firr-
ingar.
Bragi Ásgeirsson
M-2000
Föstudagur 17. mars
Þjóðleikhúsið
Landkrabbinn - frumsýning
Nýtt íslenskt verk eftir
Ragnar Arnalds verður
frumsýnt á stóra sviðinu í Þjóð-
leikhúsinu. Verkið hlaut fyrstu
verðlaun í leikritasamkeppni í
tilefni af 50 ára afmæli Þjóð-
leikhússins og __ fjallar á
hlýlegan og _
gamansaman
hátt um lífið Tl,
um borð í ís- -—u-
lenskum togara. = Leik-
stjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir. Miðasala hjá Þjóð-
leikhúsinu, www.theatre.is.
Vetraríþróttahátíð fþrótta-
bandalags Reykjavíkur
Heil vika með dagskrá þar
sem vetraríþróttir af öllum
gerðum verða í brennidepli.
Bretti, skíði, hestar á ís,
kennsla og kynning, tónlist og
íþróttasirkus er meðal þess
sem verður í boði fyrir almenn-
ing og flest ókeypis.
Dagskráin hefst klukkan
12:00 með „hreyfingarfríi“ þar
sem vinnustaðir eru hvattir til
að gefa frí til hreyfingar í há-
deginu.
Unglingahátíð verður einnig
haldin að kvöldi opnunardags-
ins á einum af skíðastöðum
borgarinnar. Brettasýning,
tónlist, bretti, gönguskíði, sleð-
ar, skíði, „kakóhús" o.fl. ef veð-
ur lofar.
www.ibr.is.
www.reykjavik2000.is.