Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 52
452 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
(JMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Presario 5740
COMPAa
Topp margmiðlunarvél frá Compaq. Sendu video-tölvupóst til
ættingja alls staðar i heiminum. Skrifaðu tónlistar- eða
gagnadiskadiska. Sprangaðu um netið á topp hraða. Náðu í MP3
tónlist af vefnum. Geymdu lagasafnið á RISA hörðum diski.
Nakinn á netinu - Möguleikarnir eru óendanlegir.
• 533 MHz AMD K6-2 örgjörvi
• 17"Proview skjár
• 64 MB 100 MHz minni
• 20 GB UltraDMA diskur
• 2xAGP 3D skjákort sem notar
8 MB af innra minn
• Re-writeable 2x4x24 skrifari
Logitech QuickCam Express
netmyndavél
56K innbyggt mótald
RioPort Audio Manager
Internet skrunmús
Compaq lyklaborð
Hátalarapar
Endurhæfingarátak
Tryggingastofnunar
í sumum tiMkum
eru aðstæður fólks
þannig að ekki er neinn
vafl á því að það þarfn-
ast aðstoðar samfélags-
ins það sem eftir er æv-
innar. Á íslandi þykir
sjálfsagt að tryggja af-
komu þeirra sem búa
við þannig aðstæður.
Það að hverfa af vinnu-
markaði getur hins veg-
ar haft mjög neikvæð
áhrif á líf fólks og lífs-
gæði og kostnaður sam-
félagsins vegna hvers
einstaklings sem er ör-
yrki er mikill. Öryrkj-
um hefur fjölgað jafnt
ogþétt á Islandi undanfarin ár. Ungh-
öryrkjar eru hlutfallslega fleiri á Is-
landi en hinum Norðurlöndunum.
Ein af ástæðum þessa er að ekki hafa
verið í boði nægir endurhæfingar-
möguleikar fyrir fólk sem vegna af-
leiðinga sjúkdóma eða fötlunar hefur
verið óvinnufært um tíma. Reynslan
sýnh- að þegar fólk hefur verið
óvinnufært lengur en nokkra mánuði
getur verið mun erfiðara að stuðla að
því að það hefji störf að nýju heldur
en ef gripið er fyrr til aðgerða. Jafn-
vel þótt sjúkdómseinkenni sem ollu
óvinnufærni hafi dvínað með tíman-
um er hætta á að fólk glati sjálfs-
trausti, sjálfsbjargarviðleitni og fót-
festu á vinnumarkaði. Það er afar
brýnt að geta gripið fljótt inn í þenn-
an vítahring, þannig að viðkomandi
verði ekki að óþörfu öryrki fyrir lífs-
tíð.
Starfsendurhæfing á vegnm al-
mannatrygginga
Stjómendum Tryggingastofnunar
fannst kominn tími til að almanna-
tryggingakerfið tæki virkan þátt í
starfsendurhæfingu. Aflað var upp-
lýsinga um hvemig staðið er að slíkri
endurhæfingu í nágrannalöndum
okkar og hver þáttur almannatrygg-
inga er í henni. Helstu endurhæfing-
arstofnanir hér á landi voru heimsótt-
ar og þjónusta þeirra könnuð. Það
reyndist vera talsvert úrval af starfs-
endurhæfingu fyrir öryrkja, en lítið
framboð af henni fyrir fólk sem að-
eins hefur verið óvinnufært í skamm-
an tíma. Við töldum að bæta mætti úr
þessu með því að Tryggingastofnun
gerði þjónustusamninga við endur-
hæfingarstofnanir, til að tryggja
starfsendurhæfingu og að sem flestir
af þeim sem era óvinnufærir um tíma
hverfi aftur til vinnu.
Þetta myndi auka lífs-
fyllingu fjölmargra Is-
lendinga og auk þess
augljóslega spara rík-
inu fé. Þessar hug-
myndir voru kynntar
fyrir tryggingaráði og
heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra og
hlutu góðar undirtektir.
Fékk Tryggingastofn-
un heimild til að semja
við endurhæfingar-
stofnanir um starfsend-
urhæfingu og til að
koma á fót matsteymi
til að meta endurhæf-
ingarmöguleika fólks
sem verið hefur óvinnufært nokkra
mánuði og þykir að óbreyttu ekki lík-
legt til að snúa aftur til vinnu.
Matsteymi
Matsteymið hefur tekið til starfa.
Það starfar sjálfstætt, samkvæmt
þjónustusamningi við Trygginga-
stofnun. I teyminu era endurhæfing-
arlæknir, sem veitir því forystu, og
félagsráðgjafi, sálfræðingur og
sjúki-aþjálfaii sem allir hafa sérþekk-
ingu á þessu sviði. Teymið getur
kvatt aðra fagaðila til liðs við sig eftir
þörfum. Fólk er kallað til viðtals og
skoðunar hjá hverjum fagaðila fyrir
sig. I kjölfarið hittist teymið og fer yf-
ir niðurstöður sínar og kemst að sam-
eiginlegri niðurstöðu um hvort end-
urhæfing sé líkleg til árangurs og ef
svo er, hvernig heppilegast sé að
haga henni. Teyminu er jafnframt
ætlað að veita fólki sem kemur til
mats leiðbeiningar um „framskóg"
kerfisins ef þörf krefur, þ.e. benda á
hvar það kann að eiga rétt á aðstoð og
hvemig nálgast megi hana.
I fyrstu atrennu er fyrst og fremst
vísað til teymisins fólki sem er að
sækja um örorkubætur hjá Trygg-
ingastofnun. Þá hefur óvinnufærni
varað u.þ.b. eitt ár. Heppilegra er
hins vegar að geta gripið inn í þennan
feril fyrr, þ.e. þegar óvinnufæmi hef-
ur aðeins staðið fáeina mánuði. Því er
unnið að því að kynna þetta úrræði
fyrir fagfólki, sérstaklega læknum.
Samningar við endurhæfingar-
stofnanir
Tryggingastofnun hefur gert þjón-
ustusamning við Starfsþjálfun fatl-
aðra (Hringsjá). Þai- fær fólk kennslu
og ráðgjöf sem miðar að því að það
verði fært um að vinna störf við hæfi
Endurhæfing
Læknisfræðileg endur-
hæfíng beinist að því að
draga úr sjúkdómsein-
kennum og að auka
almenna færni, segir
Sigurður Thorlacius,
en starfsendurhæfing
að því að auka vinnu-
færni einstaklingsins.
á almennum vinnumarkaði eða takast
á við frekara nám. Jafnframt fer fram
mat á stöðu einstaklingsins og hann
lærir að þekkja sjálfan sig betur, ósk-
ir sínar, hæfileika, getu og takmark-
anir. Hver einstaklingur er að jafnaði
í starfsþjálfun í eitt til tvö ár. Auk
þess er boðið upp á skemmri nám-
skeið, tölvu- og bókhaldsnámskeið og
sjálfstyrkingu, atvinnuleit og gerð
umsókna (vinnuklúbb). Starfsþjálfun
fatlaðra hefur verið starfrækt í rám-
an áratug. Árangurinn af starfinu
hefur verið mjög góður. Drjúgur
meirihluti þeiira sem fengið hefur
þar stai’fsþjálfun hefur að henni lok-
inni farið út á vinnumarkaðinn eða til
frekara náms.
Einnig hefur verið samið við
Reykjalund um starfsendurhæfingu
en þar er áratugareynsla af slíku
starfi. Starfsemin er skjólstæðings-
miðuð. Fæmiskerðing einstaklings-
ins er kortlögð og gerð vinnuprófun.
Mikil áhersla er á fræðslu og kennslu.
Lögð er áhersla á þætti eins og bætta
líkamsvitund, réttar vinnustellingar,
aukið vinnuþol og styrktar- og út-
haldsþjálfun. Skjólstæðingurinn er
aðstoðaður við að setja sér raunhæf
markmið miðað við fæmi og getu.
Stefnt er að vinnu við hæfi á hinum
almennavinnumarkaði. Meðaldvalar-
tími er um það bil tveir mánuðir.
Þessu endurhæfingarátaki er ætl-
að að styðja einstaklinga sem hafa
verið óvinnufærir um tíma við að losa
sig úr erfiðum vítahring og skapa sér
ný sóknarfæri. Tryggingastofnun
bindur miklar vonir við átakið og von-
ast til að það geti orðið víðtækara í
framtíðinni.
Höfundur er tryggingayfirlæknir.
Sigurður
Thorlacius
" BT Skeifunni - S: 550-4444
BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040
BT Akureyri - S: 461-5500 • BT Kringlunni - S: 550-4499
Eru guðirnir dauðlegir?
NU ÞEGAR nær
dregur því að upp
verði kveðinn dómur
um eitt stærsta mál,
sem tekið hefur verið
fyrir hæstarétt okkar
Islendinga, kannski
frá upphafi byggðar
hér á landi, finnst mér
tilvalið að leggja nokk-
ur orð í belg um mis-
tök stjórnvalda í fisk-
veiðistjórn og hvernig
stendur á að margir
hverjir hugsa sér
heimsendi skyldi
Hæstiréttur gerast
svo djarfur að dæma
gegn stjórnarskrá
landsins.
Með því fyrsta sem ég lærði í
þeirri litlu lögfræði sem ég hef aug-
um litið var að ekki væri heimilt að
setja lög sem skarast á við önnur
lög og alls ekki mættu þau skarast
á við stjórnarskrá. Mér þykir það
því þrælmagnað, að lögfræðingar á
við forsætisráðherra og marga
ílokksfélaga hans skuli blása til
landflótta til suðrænna landa, verði
Vatneyrardómurinn svokallaði stað-
festur, því lögin sem um er rætt að
ekki standist stjórnarskrá bera
mörg hver undirskrift
þessara sömu manna.
Af þessu verð ég fávís
viðskiptafræðigikkur-
inn að draga þá álykt-
un að annaðhvort sé
forsætisráðherra með
eindæmum illa lærður
í sínum fræðum eða
bara með eindæmum
gleyminn. Ef ég hins
vegar hugsa ljótt kem-
ur upp mynd af ríkis-
stjórn íslands sem
verður að teljast nógu
alvarleg til að heimta
afsagnir margra
manna.
Nú finnst mér með
eindæmum leiðinlegt að sjá hversu
forsætisráðherra vor er orðinn
hrokafullur. Hann hefur oft verið
beittur, en eftir að héraðsdómur
Vestfjarða kvað upp þennan fræga
dóm hefur hann sýnt æ meiri
mannvonsku. Þessi fræga Kanarí-
ræða hans virkaði mjög móðgandi á
landsbyggðargutta eins og mig þar
sem ég hef þurft að horfa upp á
heimabyggð mína deyja hægt og
hljótt sökum vítisverðrar fiskveið-
istjórnunar.
Síður er það skemmtilegt að
Fiskveiðistjórn
Ég vona þó að skellur-
inn komi núna, segir
Kristján Ragnar
— ■
Asgeirsson, svo ekki sé
farið út 1 þá vitleysu að
halda þessu lénsfyrir-
komulagi áfram.
horfa upp á miðaldra fólk missa hús
sín í verðleysi vegna „gleymni" lög-
fræðings sem skrifaði undir hver
lögin á fætur öðrum sem sköruðust
á við önnur lög og stjórnarskrá.
Nú er svo komið að vefurinn er
nokkuð vandlega spunninn. Nú
hafa lífeyrissjóðir íjárfest í kvóta-
fyrirtækjum, ásamt almenningi og
hefur þvi skapast ný stétt, sem þrá-
ir núverandi kvótakerfi í óbreyttri
mynd, nefnilega verðbréfasalar.
Virðist þeim mjög í mun að eignar-
réttur útgerðanna sé virtur og ekki
frá þeim tekið það sem þeir hafa í
fjárfest af miklum móð síðustu árin.
Eg er mikill fylgismaður eignar-
Kristján Ragnar
Ásgeirsson