Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 56
756 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Tímamót á gjörgæsludeild
„Sjúklingur
liggur þungt
haldinn á gjör-
gæsludeild
Borgarspíta-
lans.“ Pessi
setning hefur því
miður ekki svo
sjaldan verið
hluti af fréttum í
gegnum árin,
þegar sagt er frá
V alvarlegum slys-
um. Það getur
verið erfitt fyrir
þann sem ekki
hefur kynnst
starfsemi á gjör-
gæsludeild af
eigin raun að gera sér í hugarlund
hvað þetta þýðir og hvað hér er um
að ræða. Sjúklingar eru lagðir inn á
gjörgæsludeild þegar stöðug gæsla
er nauðsynleg vegna þess hve mikið
veikir eða slasaðir þeir eru. Tryggja
þarf fyllsta öryggi, vegna þess að lífs-
hættulegt ástand þeirra getur hæg-
lega breyst á hverri stundu. Sam-
kvæmt orðabók Menningarsjóðs er
með orðinu gjörgæsla átt við, að veitt
_ sé gæsla sem er fullkomin eða alger
Gyða
Hallddrsdóttir
Kristinn
Sigvaldason
og er þar vel lýst tilgangi þeirrar
starfsemi sem hér verður fjallað um.
Nafni Borgarspítalans, eins og
sjúkrahúsið hét í upphafi, hefur tví-
vegis verið breytt á síðustu árum.
Fyrst í Sjúkrahús Reykjavíkur við
sameiningu Borgarspítala og Landa-
kotsspítala og svo nú í mars í Land-
spítali, háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Þrátt fyrir skipulagsbreytingar á
sjúkrahúsunum er gjörgæsludeildin
sú sama og tilgangur starfseminnar
óbreyttur.
Deildin gegnir
mjög mikilvægu
hlutverki í heil-
brigðisþjónustu
landsmanna á
helsta bráða-
spítala landsins.
Gjörgæsla í
þrjá áratugi
Á þessu ári
eru 30 ár liðin
frá því að gjör-
gæsludeild
Borgarspítalans
Kristín tók til starfa.
Gunnarsdóttir Deildin er elsta
deild sinnar teg-
undar hér á landi. Síðar hófst starf-
semi gjörgæsludeilda á Landspítala,
Landakotsspítala og Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. I dag eru
þrjár gjörgæsludeildir starfræktar
hér á landi. Það er vel við hæfi, að á
tímamótum sem þessum skuli gjör-
gæsludeildin í Fossvogi opna sem
nýendurbyggð og stækkuð deild,
með gjörbyltingu á allri aðstöðu.
Rúmstæðum fjölgar nú um tvö og
verða þau nú ellefu með nýjum og
auknum tækjabúnaði og bættri að-
stöðu, sem tryggir aukið öryggi og
gæði við eftirlit, meðferð og umönn-
un sjúklinga.
Starfsemi gjörgæsludeildarinnar
hefur aukist mikið með árunum. Með
aukinni þekkingu og tækni hafa
möguleikar á meðferð sjúklinga með
alvarlega sjúkdóma og áverka af
völdum slysa aukist til muna. Með
samhæfðri teymisvinnu lækna,
hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða,
presta og annars starfsfólks, er leit-
ast við að veita sjúklingum og að-
standendum þeirra bestu mögulega
þjónustu.
Rekstur gjörgæsludeilda er mjög
dýr og kostnaður tækjabúnaðar mik-
ill fyrir hvem sjúkling. Meðferð
sjúklinga getur verið mjög flókin og
kostnaðarsöm, sérstaklega hvað lyf
og umönnun sérþjálfaðs starfsliðs
varðar.
En hverjir eru lagðir inn á gjör-
gæsludeild? Eins og áður sagði eru
það einstaklingar með fjöláverka eft-
ir hvers kyns slys, þar sem lifi og
heilsu er ógnað. Einnig eru þar ein-
staklingar með bilun á helstu líffæra-
kerfum, svo sem hjarta, lungum,
heila og nýrum. Við bráða nýmabil-
un er gerð blóðskilun með hjálp
nýrra og fullkominna tækja. Mikið er
um stórar og flóknar skurðaðgerðir á
sjúkrahúsinu og eru þeir einstakling-
ar á gjörgæsludeild þar til stöðugt
ástand líkamans er tryggt. Innlagnir
Gjörgæsla
Gjörgæsludeildin í
Fossvogi gegnir lykil-
hlutverki í bráðaþjón-
ustu landsmanna segja
Gyða Halldórsdóttir,
Kristín I. Gunnarsdótt-
ir o g Kristinn Sigvalda-
son. Brýnt er að í fram-
Minnum á hinn árlega blaðauka Fermingar
sem fylgir Morgunblaðinu laugardaginn
25. mars.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 mánudaginn 20. mars
Aliar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
AUGLÝSINGADEILD
tíðinni verði búið vel að
svo þjóðfélagslega mik-
ilvægri starfsemi.
á gjörgæsludeildina eru flestar
bráðainnlagnir frá slysa- og bráða-
móttöku eða öðrum deildum spítal-
ans.
Vöknun er eining innan gjör-
gæsludeildarinnar, þar dveljast
sjúklingar sem þurfa sérstaka gæslu
í styttri tíma eða innan við sólar-
hring. Á vöknun eru þrettán rúm-
stæði, með fullkomnum útbúnaði.
Hjúkrun
Mikil nákvæmni er viðhöfð við
hjúkrun bráðveikra einstaklinga.
Hver og einn fær sérhæfða hjúkrun
þar sem öll gæsla og umönnun er
stöðug og nákvæm. Á gjörgæslu-
deildinni starfar starfsfólk með sér-
hæfða þekkingu og reynslu í umönn-
un mikið veikra einstaklinga.
Starfsmenn sem koma nýir til starfa
á deildinni fá kennslu og sérstaka
þjálfun.
Hjúkrun og umönnun aðstand-
enda er mjög vandasamur og stór
þáttur í gjörgæslustarfinu. Aðstand-
endum sjúklinga þarf að sinna af alúð
og umhyggju og veita stuðning við að
takast á við erfiðleikana. Ailt starfs-
fólk deildarinnar, ásamt prestum,
kemur þar að. Við alvarlegt ástand
og meðvitundarleysi veit hinn sjúki
oft lítið af því sem er að gerast, en á
meðan bíða aðstandendur í óvissu.
Slíkt óvissutímabil er oft mjög erfitt
fyrir aðstandendur og er þá lögð rík
áhersla á mikilvægi upplýsinga.
Lækningar
Hefð hefur skapast fyrir því á ís-
landi eins og hjá öðrum Norður-
landaþjóðunum að umsjá gjörgæslu-
lækninga er í höndum
svæfingalækna. Ákvarðanir um með-
ferð eru þó ávallt teknar í samvinnu
við sérfræðinga sem annast sjúkling-
inn og umönnun er oftast teymis-
vinna margra sérgreina (skurð-
lækna, hjartasérfræðinga,
lungnasérfræðinga, smitsjúkdóma-
lækna, nýmasérfræðinga, röntgen-
lækna og fleiri). Á gjörgæsludeild er
sérfræðingur í svæfingum og gjör-
gæslu til taks á staðnum allan sólar-
hringinn og kallar hann aðra lækna
til eftir þörfum.
Mikil og stöðug aukning hefur ver-
ið á innlögnum þá þrjá áratugi sem
deOdin hefur starfað. Það er greini-
legt að hlutfall mikið veikra fer vax-
andi, þar sem sífellt fleiri þurfa á
meðferð í öndunarvél að halda. Með-
ferð í öndunarvél varir að meðaltali í
fimm daga, en dæmi eru um allt að
3ja mánaða meðferð. Þrátt fyrir
þessa aukningu hefur dánartíðni
lækkað úr 11,7 % í 8,5 % á síðasta
áratug og meðallegutimi er nú
styttri. Framfarir hafa því greinilega
skilað árangri og meðferð er skjót-
virkari.
Framtíðin
Gjörgæsludeildin í Fossvogi gegn-
ir lykilhlutverki í bráðaþjónustu
landsmanna. Brýnt er að í framtíð-
inni verði búið vel að svo þjóðfélags-
lega mikilvægri starfsemi. Endur-
nýjun og stækkun deildarinnar er
mjög mikilsverður þáttur í þeirri við-
leitni. Breytingin er mikO, en þó að
tækjabúnaður sé fullkominn og að-
staðan góð, er það mannauðurinn
sem mestu máli skiptir. Fullkomin
tæki mega sín lítils ef ekki kemur til
reynsla og kunnátta fagfólks til að
nota þau. Allt frá stofnun gjörgæslu-
deOdarinnar í Fossvogi hefur deildin
átt því láni að fagna að hafa á að
skipa mjög hæfu og traustu starfs-
fólkd, sem ávallt er reiðubúið að veita
sjúklingum og aðstandendum bestu
fáanlega meðferð og umönnun.
Framtíð deildarinnar byggist á góðu
starfsumhverfi, þar sem stuðlað er
að stöðugri endurmenntun og fram-
þróun.
„Líðan sjúklingsins er nú betri og
er hann kominn úr lífshættu. Hann
verður væntanlega útskrifaðui- af
gjörgæsludeild á morgun.“ Mark-
miðið er að sem oftast verði fréttin
þessi. Bætt líðan og betri heilsa er og
verður alltaf takmarkið fyrir okkar
skjþlstæðinga.
Á morgun, laugardaginn 18. mars,
kl. 14-16, gefst landsmönnum kostur
á að skoða nýendurbyggða gjör-
gæsludeild á Landspítala í Fossvogi.
Við bjóðum alla velkomna sem vOja
nota þetta tækifæri, að skoða deild-
ina áður en hún tekur til starfa.
Gyða er svidsstjóri hjúkrunnr á
skurðlækningasviði, Kristín er
hjúknnmrdeiltkirsijóri á gjörgæslu-
deild og Kristinn er umsjónarlæknir
á gjörgæsludeild Landspítala, há-
skólasjúkrahúsi í Fossvogi.
Skrítin afstaða Skeljungs
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Stjórn olíufélagsins
Skeljungs tilkynnti
nýlega á aðalfundi að
fyrirtækið hefði ákveð-
ið að hætta að styrkja
starfsemi stjórnmála-
flokka. Þetta er óneit-
anlega skrítin ákvörð-
un, ekki síst vegna þess
að fyrirtækið sagðist í
þessu samhengi vilja
vinna að viðskipta-
markmiðum sínum eft-
ir ábyrgum og lögmæt-
um ieiðum og greiði því
ekki fé til stjórnmála-
starfsemi. Ólafur
Lýðræðið er dýr- Hauksson
mætasta eign þjóðar-
innar. Velsæld hennar byggist á því
að með lýðræðislegum stjórnarhátt-
um fær frelsi einstaklingsins að
njóta sín og að skapaður er rammi
utan um trausta þjóðfélagsgerð.
Stjómmálastarfsemi er birtingar-
mynd lýðræðisins. Því er með öllu
óskiljanlegt hvernig fyrirtæki eins
og Skeljungur getur komist að þeirri
niðurstöðu að það samrýmist ekki
viðskiptamarkmiðum að styðja það
starf sem stuðlar að viðhaldi lýðræð-
isins - og þar með áframhaldandi til-
veru Skeljungs. Án lýð-
ræðisins væri Skelj-
ungur ekki tO. Hér
væri aðeins einrátt rík-
isolíufélag. Stjóm þess
væri ekki kosin á aðal-
fundi eigenda, heldur
útvalin klíka flokks-
systkina og ættingja
einræðisherrans.
Vel getur verið að
stjórn Skeljungs telji
lýðræðið hér á landi
svo fullkomið að þeir
sem að því hlúa þurfi
engan stuðning. En
það er nóg að fylgjast
með hinni daglegu
pólitísku umræðu tO að
sjá að stjórnmálamenn og stjórn-
málaflokkar þurfa stuðning úr öllum
áttum, bæði móralskan og fjárhags-
legan. Þetta fólk vinnur hörðum
höndum fyrir opnum tjöldum til að
tryggja velsæld þjóðarinnar. Það
kostar ekkert síður peninga en
áhuga.
Kynning stjórnmálaflokka á
stefnumálum verður sífellt kostnað-
arsamari, því það er orðið mjög dýrt
að láta til sín heyrast með auglýsing-
um og útgáfu prentefnis. Miklu
Lýðræði
An lýðræðisins, segir
Olafur Hauksson, væri
Skeljungur ekki til.
skiptir því að sem flestir leggi þess-
ari starfsemi lið með hóflegum fram-
lögum. Þannig er einnig best hægt
að draga úr óæskilegum áhrifum
þess að fáir aðilar kosti starfsemi
einstakra flokka.
Skeljungur gefur slæmt fordæmi
með ákvörðun sinni. Ekki nóg með
það, heldur segir stjórnarformaður-
inn í viðtali í Morgunblaðinu að ekki
kæmi á óvart að fleiri fyrirtæki
fylgdu á eftir Skeljungi í þessum efn-
um.
Vonandi verður enginn tO að
fyigja fordæmi Skeljungs. Vonandi
verður þetta á hinn veginn, að fleiri
fyrirtæki og einstaklingar leggi
stjórnmálastarfsemi lið. Það er hin
ábyrga og lögmæta leið til að styrkja
stoðir lýðræðisins.
Höfundur er blaðamaður og starfar
við almannatengsl.