Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ
oO FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
HESTAR
Boðið upp á
fósturvísaflutn-
inga á Hólum
Hryssueigendur eru flestir farnir að skipu-
leggja undan hvaða stóðhestum þeir ætla að
fá folöld á næsta ári og nóg er úrvalið. En
nú gildir ekki bara náttúrulega aðferðin því
hægt er líka að sæða hryssur og flytja fóst-
urvísa á milli hryssna. Ásdís Haraldsdóttir
skoðaði hvað fosturvísaflutningar fela í sér.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Hvernig skyldi þessi svo hafa orðið til? Með gömlu
aðferðinni, sæðingum eða fósturvísaflutningum?
HÓLASKÓLI gerði tilraunir með
fósturvísaflutninga síðastliðið vor og
vorið 1997. A þessari tilraun verður
nú byggð þjónusta sem boðið verður
upp ó fyrir þá sem vilja láta færa
fósturvisi úr einni hryssu í aðra.
Stendur til að gera þetta á tímabilinu
20. maí til 20. júní næstkomandi.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjón-
ustu verða að sækja um til Hólaskóla
fyrir 1. apríl næstkomandi.
Útvega þarf fósturgjafa
og fóstru
En fósturvísaflutningur er ekki
einfalt mál. byrjað er á því að sam-
stilla hryssur 20. maí og er gert ráð
fyrir að útskolun og flutningum fóst-
urvisa verði lokið í kringum 20. júní.
Ef fósturvísir finnst og er fluttur
þarf að bíða í nokkurn tíma eftir að
hægt verði að ómskoða „fóstruna" til
að staðfesta að hún sé fengin. Fóstr-
urnar verða svo útskrifaðar við stað-
festingu á 40 daga gömlu fóstri.
Hver hryssueigandi þarf að út-
vega eina aukahryssu sem nota má
sem fóstru. Gert er ráð fyrir að tekin
verði egg úr 15 hryssum og þarf að
hafa a.m.k. 25 fóstrur til taks. Þær
þurfa að vera bandvanar, óslægar og
sæmilega meðfærilegar, heilbrigðar
og í miðlungs- eða góðum holdum,
ekki akfeitar. Þær þurfa að vera á
aldrinum 4 til 12 vetra, helst búnar
að eiga a.m.k. eitt folald, en ekki
verður tekið við fylsugum. Hryss-
umar þurfa að vera frjóar eftir því
sem best er vitað, þ.e. ekki með
frjósemisvandamál.
Þessi skilyrði gilda einnig fyrir
fósturgjafa. Bent er á á heimasíðu
Hólaskóla, „að fósturvísaflutningai-
eru almennt séð alls engin lausn fyr-
ir hryssur sem hafa átt við frjósemis-
vandamál að stríða. Forsaga um
slíkt minnkar líkur á árangri. Ef
komið er með unga fósturgjafa eykst
óvissan um árangur enn frekar þar
sem ekki er vitað um frjósemi þeirra.
Samt sem áður er möguleiki að taka
fósturvísa úr þriggja vetra hryssum
ef þær eru stórar og vel þroskaðar.
Eldri aldursmörk verður að meta í
hverju tilviki."
Verðandi mæður
í tamningu
Höskuldur Jensson dýralæknir
sem mun sjá um fósturvísaflutning-
ana sagði í samtali við Morgunblaðið
að áhuginn á því að notfæra sér
þessa tækni væri enn ekki mjög mik-
ill. Nokkuð hefði verið um fyrir-
spumir en engin formleg umsókn
enn borist.
Hann sagði að árangur af fóstur-
vísaflutningum hefði verið góður
þessi tvö ár sem tilraunir hafa farið
fram á Hólum. Fósturvísar voru
fyrst fluttir milli hryssna á Hólum
vorið 1997. Þá var fósturvísir skolað-
ur út úr fósturgjöfunum og honum
komið fyrir í fóstrunum með skurð-
aðgerð. Áætlað var að halda tilraun-
inni áfram vorið 1998 en henni var
frestað vegna hitasóttarinnar til
vorsins 1999. Þá hafði Höskuldur
farið til Bandaríkjanna og kynnt sér
fósturvísaflutninga án skurðaðgerð-
ar pg var sú tækni notuð í fyrra.
Arangur var ágætur og í samræmi
við það sem víða gerist. I fyrra voru
fluttir 9 fósturvísar og urðu 7 hryss-
ur fylfullar. Þá voru til dæmis teknir
fósturvísar úr nokkrum þriggja
vetra hryssum Hólabúsins. Þær eru
nú allar í tamningu þrátt fyrir að
eiga von á afkvæmum í vor. Fóstrur
ganga með afkvæmi þeirra og ungu
hryssurnar koma hvergi nálægt
meðgöngu, köstun eða að sjá af-
kvæminu fyrir næringu.
Höskuldur sagði að fólk áttaði sig
ekki alltaf á gagnsemi fósturvísa-
flutninga. Gott dæmi um slíkt væri
þegar hryssa ætti auðvelt með að
festa fang en léti síðan fóstrinu. Þar
er í raun ekki um frjósemisvandamál
að ræða heldur virðast þessar hryss-
ur ekki getað gengið með fulla með-
göngu af einhverjum orsökum.
Lausnin sé að skola út fósturvísi hjá
slíkum hryssum og koma honum fyr-
ir í hryssu sem hefur átt auðvelt með
að ganga með fulla meðgöngu.
Hann sagði að framhald fóstur-
vísaflutninga á Hólum myndi ráðast
af undirtektum. Ákveðinn fjölda
hryssna þyrfti að fá í verkefnið svo
það borgaði sig. AJltaf væri um
ákveðinn fastan kostnað að ræða og
eftir því sem fleiri tækju þátt dreifð-
ist hann meira. Fyrirhugað var að
flytja fósturvísa á milli hryssna í eigu
Hólabúsins í vor, en það ræðst af
þátttöku hvort af verður.
í nýjasta hefti Equine Canada
Magazine kemur
fram að þrátt fyrir
að fósturvísaflutn-
ingar hafi nú í
nokkuð mörg ár
verið notaðir í
nautgriparækt sé
þessi aðferð fyrst
nú að ná fótfestu í
hrossarækt. Smám
saman hafi rækt-
unarfélög hinna
ýmsu hestakynja
farið að leyfa fóst-
urvísaflutninga, en
það sé fyrst og
fremst vegna þess
að nú er hægt að
staðfesta hverjir
réttir foreldrar eru
með DNA-rann-
sóknum. Þannig sé
hægt að tryggja
rétta skráningu af-
kvæmanna.
Talið er að þessi
nýja tækni eigi eft-
ir að hafa gífurleg
áhrif í hrossarækG
inni í framtíðinni. I
N orður-Ameríku
eru fósturvísa-
flutningar fyrst og
fremst notaðir til
þess að hægt sé að
nota hryssur áfram
í keppni og jafn-
framt rækta undan þeim, að fá fleiri
en eitt folald á ári undan úrvalsgóð-
um hryssum, að fá folöld undan
gömlum hryssum eða hryssum með
vandamál og að fá folöld undan ung-
um óþroskuðum hryssum.
Ódýrara á íslandi
Cheryl Lopate dýralæknir, sem
vinnur hjá Armstrong Bros., í Ing-
elwood í Ontario í Kanada, sem er
næststærsti ræktandi Standard-
bred-hrossa í Norður-Ameríku,
hlaut þjálfun í fósturvísaflutningum
án skurðaðgerðar. Árangur þeirrar
aðferðar er sífellt að batna, sérstak-
lega með yngri og betri gjafahryss-
um og er nú um 75% hjá Armstrong
Bros.
Kostnaður við fósturvísaflutninga
hjá þeim er sagður verða á bilinu
290.000 til 880.000 ísl. krónur, en þá
er reiknað með að annað hvort sé
keypt fóstra eða hún leigð. Sá kostn-
aður einn er reiknaður á bilinu
110.000 til 550.000 krónur. Ef hann
er ekki reiknaður með kostar fóstur-
vísaflutningurinn á milli 180.000 og
330.000 króna.
Islenskir hrossaræktendur geta
því unað glaðir við sitt. Þátttaka í
verkefninu á Hólum kostar 80.000
krónur á hryssu án virðisaukaskatts.
Ef hryssa skilar árangri, þ.e. ef fang
er staðfest í fóstru eftir 40 daga,
bætast 49.000 krónur við. Kostnað-
urinn er þá orðinn samtals 129.000
krónur. Við þá upphæð bætist fola-
tollur sempr mjög misjafn eftir stóð-
hestum. I fæstum tilfellum nær
kostnaðurinn upp í lágmarksverð
Kanadamanna ef miðað er við verð á
folatolli hjá velflestum stóðhestum
landsins.
Á ráðstefnu sem bandarísku sam-
tökin American Association of
Equine Practitioners hélt á síðasta
ári kom fram að fósturvísaflutningar
með skurðaðgerð væru dýrir, kost-
uðu mikinn tíma og þörfnuðust mik-
ils mannafla.
Þess vegna hefði áhugi á fóstur-
vísaflutningum án skurðaðgerðar
aukist verulega. Þá er fósturvísinum
komið fyrir í fóstrunni með svipuðu
tæki og notað er við fósturvísaflutn-
inga í kúm, nokkurs konar byssu.
Svo virðist sem þessi aðferð skili
jafngóðum ef ekki betri árangri en
skurðaðgerð, auk þess sem hún er
ódýrari og áhættuminni.
Á þessari ráðstefnu kom einnig
fram að gerð hefur verið tilraun með
að flytja eggmóðurfrumur úr eggbúi
gjafahryssu yfír í eggjaleiðara
fóstru. Fóstran er síðan sædd og
fósturvísirinn þroskast í legi hennar.
Tilraun þessi var gerð á vegum ríkis-
háskólans í Colorado árið 1998.
Hryssur af sjö hrossakynjum voru
notaðar og voru þær á aldrinum 16
til 30 vetra. Þeim fylgdi öllum löng
saga erfíðleika við að festa fang eða
mistaka í fósturvísaflutningum. Vel
gekk að safna eggmóðurfrumum og
fyljuðust 23% hryssna með þessari
aðferð. Helstu vandamálin sem
tengdust tilrauninni voru lítil gæði
eggmóðurfrumna og sæðis. Flestar
hryssurnar voru yfir 20 vetra gamlar
og minnkandi frjósemi fylgir hækk-
andi aldri hjá hryssum. Mjög mikill
munur var á gæðum eggmóður-
frumna hjá ungum og gömlum
hryssum. Auk þess kom sæði frá
mörgum stóðhestum og ræktunar-
búum og voru gæði þess mjög mis-
jöfn.
Niðurstöður rannsóknarinnar
þykja benda til að þessi aðferð geti
nýst vel við að rækta folöld undan
verðmætum hryssum sem verulega
erfitt hefur verið að fá undan.
Spurningar vakna um
skráningu og markaðsmál
Það verður spennandi að vita
hvemig tækninýjungar í hrossarækt
þróast hér á landi, hvort sem um er
að ræða sæðingar, fósturvísaflutn-
inga eða eggfrumuflutninga. Vitað
er að frjósemi íslenska hrossastofns-
ins hefur verið góð yfirleitt og auð-
velt að fjölga hrossum á náttúruleg-
an hátt þótt ýmis vandamál hafi
verið að skjóta upp kollinum.
Nýrri tækni fylgir ákveðin tor-
tryggni og einnig gætu svona breyt-
ingar verið tilfinningamál fyrir
margan ræktandann. Eflaust sjá
margir ekkert annað fyrir sér í
hrossaræktinni en að halda áfram að
nota náttúrulegu aðferðina - að
glæsilegur stóðhestur gangi með
stórum hryssnahópi úti í haga og
sinni skyldum sínum.
Einnig vaknar eflaust spuming
hjá mörgum um hver staða hrossa-
ræktandans sé gagnvart skýrslu-
haldinu í hrossarækt ef hann ætlar
að skrá tvö folöld undan sömu hryss-
unni sama árið. Og hvað með mark-
aðsmálin? Skiptir máli á þeim vett-
vangi að íslenski hesturinn tímgist á
náttúrulegan hátt?
Sl RTMAFU (A ÐL JR
1 VORUM AÐ TAKA UPP IUÝJAR VÖRUR |
puma - nike - champion - sketchers
Borgartú 50-80% a1 ni 22 Opið mán -fös. kl. 9-18 og lau. kl Fslá .10-16 ttur Sími 551 2442