Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 1

Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 1
76. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bankastjóri Alþjóðabankans hvetur þjóðir Balkanskaga til dáða Verða að sýna viðleitni til umbóta Brussel, París, Tirana. AFP, AP, Reuters. BALKANLÖNDUNUM er hollast að fara að vinna saman og „hætta að skjóta á hvert annað“ eða gleyma að öðrum kosti öllum óskum um utan- aðkomandi aðstoð og áhuga erlendra fjárfesta, að því er James Wolfen- sohn, bankastjóri Alþjóðabankans, sagði í upphafi tveggja daga ráð- stefnu um Balkanlöndin sem hófst í gær. Ráðstefnan er haldin í því skyni að reyna að auka fjárhagsaðstoð við löndin á Balkanskaga í kjölfar stríðs- ins í Kosovo. En Svartfjallaland, Alb- anía, Makedonía, Búlgaría, Rúmen- ía, sem og Kosovo, þurfa öll á því að halda að endurskipuleggja efnahag, landslög og ríkisstjóm sína. „Annars er sama hve miklu fjármagni er ausið í vandamálin, það kemur ekki til með að hafa tilætluð áhrif,“ sagði Wolfen- sohn við fulltrúa þeirra 44 ríkja og 37 alþjóðastofnana sem ráðstefnuna sitja. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins hefur áhuga á að 5,5 milljörðum evra, eða um 350 mil- ljörðum króna, verði varið til skyndi- aðgerða á Balkanskaga, m.a. í Serb- íu. „Við gerum ráð fyrir umtals- verðum upphæðum til að umbreyta Serbíu eftir að Milosevic fer frá og gera hana þannig að hluta af Verðbréfa- markaðurinn Loftbóla sem getur sprungið? Frankfurt. AFP. UPPGANGURINN á verð- bréfamarkaði að undanförnu ber ýmis einkenni loftbólu, sem getur spungið þegar minnst varir að því er Horst Köhler, nýr framkvæmdastjóri Ai- þjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, sagði í viðtali við þýska dag- blaðið Die Zeit, sem kemur út í dag. Segir Köhler þar, að fjörið á verðbréfamarkaðnum beri með sér, að þar ráði miklu spákaup- mennska, sem stundum hafi haft bráðan endi. Olíuverð- hækkanirnar hafi gert ástandið varasamara en ella þótt ekki sé ástæða til að gera úlfalda úr mýflugu. í öðru viðtali við ítalska blað- ið La Repubblica varði Köhler fyrirgreiðslu IMF við Rússa og sagði að meginmistök IMF og vestrænna ríkja hefðu verið að halda, að unnt væri að breyta Rússlandi á skömmum tíma með peningunum einum. Evrópu,“ sagði Chris Patten, sem sér um utanríkismál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins. „En á meðan Milosevie er við völd eru þess- ar fjárhæðir varðveittar í peninga- geymslunum." Alþjóðabankinn og framkvæmda- stjóm Evrópuráðsins hafa þó hug á að safna um 130 milljörðum króna til að veita í skammtíma aðgerðir á Balkanskaga á komandi mánuðum og hafa hinar 15 þjóðir Evrópusam- bandsríkjanna nú þegar heitið 35 milijörðum til verkefnisins. „Skila- boðin sem við sendum eru, að því meira sem þið gerið því meira getum við gert til að styðja ykkur,“ sagði Patten við ráðstefnugesti og kvað Evrópusambandið engu að síður munu halda áfram að aðstoða óháða fjölmiðla í Serbíu, veita mannúðar- hjálp, sem og að starfa með lýðræðis- öflum í landinu. Milosevic ógnar Svartfjallalandi Einnig eru uppi hugmyndir um sérverkefni sem snúa að þróun mála í Svartfjallalandi, einu tveggja eftirlif- andi ríkja sambandslýðveldisins Júgóslavíu. „Við erum staðráðin í að veita ríkisstjóm Svartfjallalands og almenningi í landinu stuðning okk- ar,“ sagði Patten. fbúar Svartfjallalands virðast þó óttast nágranna sinn, Serbíu, og sagði Milo Djukanovic, forseti Svart- fjallalands, í viðtali við bandaríska dagblaðið New York Times í gær að Slobodan Milosevic, forseti Júgó- slavíu, hefði hug á að steypa ríkis- stjóm Svartfjallalands. Hafi Milos- evic komið á fót 1.000 manna sérsveit innan Júgóslavíuhers í þessu skyni. „Þeirra verk er ekki að varðveita landið heldur að steypa ríkisstjóm- inni,“ sagði Djukanov við New York Times. Að sögn Sadako Ogata, mannrétt- indafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem hefur verið í hálfsmánaðar ferð um Balkanskaga, er þó ekki ástæða til að óttast að sú spenna sem ríkir í málefnum Svartfjallalands reynist kveikjan að umfangsmiklum átökum. Kosningar í Grikklandi COSTAS Caramanlis, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, stærsta stjórnar- andstöðuflokks Grikklands, veifar hér til gesta á kosningafundi í borg- inni Pyrgos. En fjölmennir kosn- ingafundir eru eitt af því fáa sem minnir Grikki á að þingkosningar fara fram 1 landinu þann 9. apríl nk. Æ minna fer nú fýrir stjómmála- baráttu í landinu og hefur hún breyst umtalsvert sl. áratug. Tveir stærstu flokkamir biðla nú til mið- stéttarinnar sem oft sýnir stjórn- málum lítinn áhuga. Rússar verða fyrir árás Tsjetsjena við Zhani-Vedeno AP Rússneskir hermenn leita á manni íþorpinu Tangi, um 30 kílómetra sunnan við héraðshöfuðborgina Grosní. Friðarviðræð- um hafnað Moskvu, Sleptsovskaja, Genf. AP, AFP. FLOKKUR rússneskra hermanna varð fyrir árás skæruliða í fjalllendi sunnarlega í Tsjetsjníu, nálægt bæn- um Zhani-Vedeno, í gær og segjast skæruliðar hafa fellt 70 manns en stjórnvöld í Moskvu vildu ekki stað- festa að nokkur hefði fallið. Hins vegar sagði talsmaður Vladímírs Pútíns, starfandi forseta, að 14 her- menn hefðu særst og munu þeir hafa verið í liði sem sent var til aðstoðar herflokknum. Fréttaritari rússnesku ríkissjónvarpsstöðvarinnar RTR sagði flesta liðsforingja herflokksins hafa fallið í fyrirsát skæruliða. Vladímír Rúshaílo, innanríkisráð- herra Rússlands, heimsótti Tsjetsj- níu í gær til að meta ástandið en yfir- menn hersins hafa sagt stutt í að leifar skæruliðahersins gefist upp. í gær sagðist Míkhaíl Súntsov, emb- ættismaður hjá innanríkisráðuneyt- inu, hins vegar álíta að skæruliðar myndu „efla andspyrnu sína í sum- ar“ að sögn fréttastofunnar Interfax. Forsetar tveggja héraða sem liggja að Tsjetsjníu, þeir Ruslan Aushev í Ingúsetíu og Alexander Dzasokhov í Norður-Ossetíu, sögð- ust í gær hafa reynt að koma á bein- um viðræðum deiluaðila. Talsmaður Pútíns, Sergej Jastrzhembskí, sagði stjórnvöld í Kreml hafa fengið skrif- legar tillögur frá Aslan Maskhadov, forseta Tsjetsjníu, fyrir nokkrum vikum og þeim hefði verið svarað. Rússar hafa heitið skæruliðum sem gefast upp sakaruppgjöf. Jastrzhembskí sagði Maskhadov, sem Rússar hafa áður sagt vera hryðjuverkamann, geta hugsanlega fengið sakaruppgjöf „ef sannað þykir að hann sé ekki með blóðugar hend- ur“. Maskhadov þykir hófsamari en flestir aðrir leiðtogar skæruliða. Rússar yfírgefi Tsjetsjníu Tsjetsjenar létu ekki í ljós neinn vilja til viðræðna við Rússa í gær. „Sendimenn Pútíns eru að reyna að koma á sambandi við Maskhadov en herráð Tsjetsjena álítur útilokað að eiga samningaviðræður við Rússa. Viðræður eru gagnslausar nema rússneska herliðið yfirgefi Tsjetsj- níu,“ sagði einn af leiðtogum skæru- liða, Movladi Udugov. Aðstoðarutanríkisráðherra Rúss- lands, Sergej Ordzhoníkídze, vísaði í gær á bug óskum um að hlutlaus rannsókn færi fram á meintum mannréttindabrotum í Tsjetsjníu. En á fundi Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf sagði Ordzhoníkídze Rússa hafa veitt fjöl- mörgum erlendum aðilum heimild til að kanna aðstæður og ástæðulaust að draga í efa hæfiii rússneskra yfir- valda til að framfylgja lögum um mannréttindi. Hættulegar heræfingar Ósl<5. AFP. ÁHÖFN norsks tundurdufla- slæðara neitaði nýlega að taka þátt í æfingum með öðrum NATO-skipum og bar við því, að það væri of hættulegt að því er norska varnarmálaráðuneyt- ið greindi frá í gær. Kirsti Skjerven, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, sagði að tundurduflaslæðarinn Hinnpy hefði átt að hefja þriggja mánaða þjónustu ásamt öðrum NATO-skipum 27. apríl nk. en af því gæti ekki orðið, þar sem áhöfnin teldi slíkt vera of hættulegt. „Vandamálið er í hnotskum það, að norsku hermennirnir eru of vel haldnir og fá allt of há laun,“ sagði Skjerven og baðst afsökunar á því, að Norðmenn gætu ekki staðið við skyldur sínar innan NATO. Mannskæð- ur eldsvoði Peking. AP. ELDUR kom upp í kvikmynda- húsi í borginni Jiaozuo í Kína aðfaranótt miðvikudags og barst fljótt yfir í aðliggjandi kvikmyndahús með þeim af- leiðingum að 74 fórust. Lögregla náði hins vegar að bjarga 12 manns að því er Xin- hua-fréttastofan greindi frá. Ekki liggur þó íyrir hvað svo margir voru að gera í kvik- myndahúsunum um miðja nótt, en á þeim tíma er flest lokað. Líklegt er þó talið að skortur á eldvörnum hafi átt sinn þátt í hve mannskætt slysið reyndist. En hröð efnahagsþróun, skort- ur á almennum öryggisreglum og slakt eftirlit hafa átt hlut að máli í síendurteknum óhöppum sem orðið hafa af mannavöldum í Kína á undanfömum árum. MORGUNBLAÐK) 30. MARS 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.