Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 71
■ ÁLFOSS FÖT BEZT: Geirmundur
Valtýs og hljómsveit fóstudagskvöld
til 3:00. Hinn skagfírski Geirmundur
Valtýsson og hljómsveit hans leika
fyrir dansi. Sverrir Stormsker
skemmtir laugardagskvöld til 3:00.
■ ÁRSEL: Gabbaraball fyrir fatlaða
laugardagskvöld kl. 20:00 til 23:00. í
tilefni af 1. apríl verður haldið Gabb-
araball fyrir fatlaða. Allir 16 ára og
eldri velkomnir. Munið hina vinsælu
veitingasölu. Verð 400 kr.
■ ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Caprí-tríó
leikur fyrir dansi kl. 20:00 til 1:00.
■ BLÁI ENGILLINN: Blái engillinn
býður upp á karaoke og einnig upp á
íþróttarásirnar Sýn og Sky 1, 2 og 3.
■ BREIÐIN, Akranesi: Land & synir
leika laugardagskvöld til 3:00. Hljóm-
sveitin Land & synir leika á Breið-
inni, gamla Hótel Akranes, en miklar
breytingar hafa orðið á húsinu.
■ BÆJARBARINN ÓLAFSVÍK:
Skugga-Baldur og léttklæddar dans-
meyjar laugardagskvöld til 3:00.
Diskótekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur mæta á staðinn
ásamt léttklæddum dansmeyjum.
Reykur, þoka, ljósadýrð og tónlist
síðustu fimmtíu ára verða um kvöld-
ið. Miðaverð 1. 000 kr.
■ CAFÉ AMSTERDAM: Geir Ólafs
og Furstarnir með tónleika fimmtu-
dagskv. kl. 22:30 til 1:00 Hljómsveit-
ina skipa Árni Scheving, bassi, Carl
Möller, píanó, Guðmundur Steing-
rímsson, trommur og Þorleifur
Gíslason, saxafónn. Rokktríóið
Penta leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ CAFÉ ROMANCE: Lifandi tónlist
öll kvöld. Breski píanóleikarinn
Simone Young leikur. Hann leikur
einnig fyrir matargesti Café óperu.
■ CATALINA, Hamraborg: Þeir fé-
lagar Svensen, Hallfunkel og Perez
sjá um tónlistina á Catalinu um helg-
Frá A-0
■ DÚSSA-BAR, Borgarnesi: Har-
monikutónlist með Ingimari fóstu-
dagskvöld til 3:00.
■ FESTI GRINDAVÍK: Knatt-
spyrnumenn Grindvíkinga með dans-
leik laugardagskvöld til 3:00. Knatt-
spyrnumenn Grindvíkinga halda ball
til að afla fjár fyrir æfingaferð til
Spánar. Það er hljómsveitin Geimf-
ararnir sem spila fyrir dansi.
■ FJARAN, Vestmannaeyjum: Jag-
úar með funkdansleik föstudagskvöld
til 3:00. Hljómsveitin írafár með
dansleik laugardagskvöld til 3:00.
■ FJÖRUKRÁIN FJARAN: Jón Möl-
ler leikur rómantíska píanótónlist
fyrir matargesti í Fjörunni. í Fjöru-
garðinum leikur Víkingasveitin fyrir
víkingaveislugesti fóstudags- og
laugardagskvöld. Dansleikur á eftir
með Rúnari Júh'ussyni.
■ GAUKUR Á STÖNG. Land & synir
leika fóstudagskvöld til 3:00. 8-villt
leikur laugardagskvöld til 3:00. Ný
sveit, Viðfjarðarundrin, leika mánu-
dagskvöld til 1:00. Þótt fyrirbrigðið
modaldjass sé næstum 40 ára gamalt
hefur það verið nær óþekkt í íslensku
tónlistarlífi þar til á allra síðustu mis-
serum. Þessi seiðandi tónlist sem
runnin er undan rifjum John Coltr-
ane og Miles Davis hefúr samskonar
leiðsluáhrif á hlustandann og triphop
og drum & bass enda í raun forveri
þeirra. Viðfjarðarundrin er ný sveit
er leikur modaldjass og hana skipa
þeir: Guðmundur Pétursson, gítar-
leikari, Eðvarð Lárusson, gítarleik-
ari, Þórður Högnason, bassaleikari
og Birgir Baldursson, trommuleik-
ari. Stefnumót #25 þriðjudagskvöld
til 1:00.
Selma Bjömsdóttir ásamt stórsveit Þorvaldar og hljómsveitinni Tod-
mobile leika í Sjallanum, Akureyri, á laugardagskvöld.
■ GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Gunnar Páll leikur allar helgar kl.
19:15 til 23:00. Tónlistarmaðurinn
Gunnar Páll leikur og syngur öll
fimmtudags-, fostudags- og laugar-
dagskvöld. Gunnar leikur hugljúfa og
rómantíska tónlist. Allir velkomnir.
■ GRANDROKK, Akranesi. Villta
vestrið spilar á laugardagskvöldið, en
vegna góðra undirtekta að undan-
förnu verður hljómsveitin sérstök
húshljómsveit Grandrokk á næst-
unni.
GRANDROKK, Reykjavík Hljóm-
sveitin Villta vestrið spilar á föstu-
dagskvöldið. Villta vestrið hefur að
undanfórnu komið margoft fram á
Grandrokk, bæði í Reykjavík og
Akranesi, við góðar undirtektir.
Hljómsveitin leggur áherslu á fjörugt
ERLENDAR
006000
Ólafur Teitur Guðnason,
stj órnmálafræðingur
og fréttamaður á RUV, skrifar
um tónleikauppfærslu Pink
Floyd á „The Wall“sem gefin
er út í viðhafnarútgáfunni „Is
There Anybody Out There?“í
tilefni af því að nú eru um tutt-
ugu ár liðin síðan þessar
hljóðritanir voru gerðar.
★★★★
Söguleg snilld
FYRIR réttum tuttugu árum
frumsýndu liðsmenn Pink Floyd
rokkóperuna „The Wall“ í Los
Angeles í Bandaríkjunum. Þeir
sýndu verkið alls 29 sinnum þar, í
New York, í Dortmund í Þýska-
landi og loks í Lundúnum. Það var
í síðasta sinn sem þeir Roger Wat-
ers, David Gilmour, Nick Mason og
Richard Wright léku allir saman á
sviði.
Og þvílíkir tónleikar höfðu aldrei
sést. Sagan um poppstjörnuna
Pink er sögð með tónum og tækj-
um; saga um sambandsslit við ást-
vini og aðdáendur, fjötra frægðar-
innar, geðveiki, einsemd og
einangrun. Fljótlega eftir að tón-
leikarnir hefjast kemur í ljós að
áhorfendur hafa verið blekktir:
Hljóðfæraleikararnir reynast vera
alls óþekktir menn með gúmmíaf-
steypur af andlitum liðsmanna
Pink Floyd! Þegar bætt hefur ver-
ið úr þessu flýgur flugvél yfir
áhorfendur og springur á sviðinu;
fimmtán metra langar uppblásnar
strengjabrúður birtast hver á fæt-
ur annarri; tíu metra hár veggur
úr 500 „múrsteinum" er reistur
þvert yfir sviðið þannig að hvorki
sést tangur né tetur af hljómsveit-
inni; teiknimyndum er varpað á
vegginn og risavaxið uppblásið svín
ryðst yfir hann og sveimar ógnandi
yfir áhorfendum. Forsprakkinn
Waters marserar um sviðið í fas-
istaklæðum og loks hrynur veggur-
inn til grunna. Óvænt hróp og köll
áhorfenda minna okkur hlustendur
á hvers við förum á mis, en sem
betur fer stendur tónlistin fyrir
sínu.
„Is There Anybody Out There?“
hljómar næstum því alveg eins og
„The Wall“. Hljómurinn er þéttur
og hljóðfæraleikurinn fyrsta
■ flokks, en þar sem enginn liðs-
manna Pink Floyd, nema gítarleik-
arinn Gilmour, kann almennilega á
hljóðfæri, verður að þakka það
fjórum aðstoðarhljóðfæraleikurum.
Lögin víkja afar sjaldan frá út-
setningum á „The Wall“. Mestu
munar um að lagið „What Shall We
Do Now?“ er flutt í fullri lengd,
líkt og Waters og Bryan Adams
gerðu í Berlín 1990, en lagið var
stytt á sínum tíma vegna plássleys-
is á gömlu vínylplötunum. í nokkr-
um lögum er bætt við einleiksköfl-
um, en það hljómar líka
kunnuglega í eyrum þeirra sem
þekkja Berlínartónleikana. Það
sem kemur skemmtilega á óvart
eru hróp og köll Waters til áhorf-
enda í aðdraganda „Run Like
Hell“, en liðsmenn Pink Floyd eiga
engin samskipti við áhorfendur á
þeim þremur tónleikaplötum sem
sveitin hefur áður gefið út. Þetta
eru þó ekki kumpánlegar kveðjur
heldur túlkun hans á aðalsöguhetju
verksins. (Sama gildir um kveðju
til áhorfenda á undan „Young
Lust“; Pink orðinn rokkstjarna og
kveðjan er hliti af leikritinu.) Þá er
útsetningin á síðasta laginu,
„Outside the Wall“, einnig óvænt
og skemmtileg.
Þótt spilamennska og gæði upp-
tökunnar séu nær hnökralaus, eru
nokkur smávægileg atriði sem
valda vonbrigðum og vangaveltum.
Fyrst má nefna að þótt Gilmour
haldi að mestu tryggð við sígilda
einleikskafla sína og takist oftast
vel upp þegar hann lætur gamminn
geisa gerir hann þau mistök að
víkja frá einföldu en áhrifamiklu
stefi í „Hey You“ og eyðileggja þar
með risið í laginu. Þá er orgelsóló í
„Another Brick pt. 11“ afskaplega
tilþrifalítið og líklega má eigna það
Rick Wright sem fékk að fljóta
með í tónleikaferðina þótt hann
hefði verið rekinn úr sveitinni
nokkru áður. Takturinn fer úr
skorðum að minnsta kosti þrisvar
sinnum. Stundum virðist mega
rekja til þess að upptökur af tveim-
ur tónleikum hafa verið klipptar
illa saman („Young Lust“, 01:29),
stundum til mistaka trommuleikar-
ans (slög á milli gítarsólóa í „An-
other Brick pt. II“) og stundum til
þess að nauðsynlegt hafi verið að
leiðrétta taktinn vegna hljóða sem
leikin voru undir af bandi („Hamm-
er! Hammer!" í „Waiting For the
Worms“). Mestum heilabrotum olli
mér þó söngur Waters í laginu
„Nobody Home“, en ég hallast
helst að því að hann sé ættaður úr
hljóðveri en ekki af sviðinu. Þeir
sem fylgdust með Berlínartónleik-
um Waters í beinni útsendingu vita
hve auðvelt er að breiða yfir mis-
tökin eftir á en ekki þori ég þó að
fullyrða að það hafi verið gert hér.
Fyrir utan það sem rakið var í
upphafi er „Is There Anybody Out
There?“ sögulegur gripur fyrir
þær sakir að til þessa hefur ekki
verið til nema ein tónleikaplata frá
því áður en Waters hætti; „Umma-
gumma“ frá 1969. Þótt ég hafi
lengi óskað mér þess að önnur yrði
gefin út óttaðist ég satt að segja að
hún ylli mér vonbrigðum. Sá ótti
reyndist ástæðulaus. Óvenju glæsi-
legur umbúðirnar vekja miklar
væntingar, og innihaldið er hrein
snilld.
rokk, líflega sviðsframkomu og létta
stemmningu.
■ GULLÖLDIN: Jón forseti leikur
föstudags- og laugardagskvöld til
3:00. Boltinn á breiðtjaldi og stór á
350 kr.
■ HARD ROCK CAFÉ: Tónleikar
með Jagúar fimmtudagskvöld til
1:00. Hljómsveitin Jagúar heldur tón-
leika í kvöld og eru þetta sjöttu tón-
leikarnir í Sítrónu-tónleikaröðinni.
■ HREYFILSHÚSIÐ: Gömlu og nýju
dansamir föstudagskvöld kl. 22:00 til
2:00. Danssporið, hópur dansáhuga-
fólks, stendur fyrir dansleik með
gömlu og nýju dönsunum. Guðmund-
ur Haukur og Kristbjörg Löve leika
og syngja fyrir dansi. Allir velkomn-
ir.
■ KAFFELEIKHÚSIÐ: KK og Magn-
ús Eiríksson flytja lög eftir KK og
Magnús föstudagskvöld kl. 21-3. Op-
inber leynigestur kvöldsins er Ellen
Kristjánsdóttir sem syngur lög sem
þeir félagarnir hafa í gegnum tíðina
samið sérstaklega fyrir hennar rödd.
Nýlega var þeirra félaga getið í
velska tónlistartímaritinu Old Folk-
ies and Fermented Pharts sem sér-
hæfir sig í þjóðlagatónlist. Var farið
lofsamlegum orðum um nýja geisla-
disk drengjanna, Kóngur í einn dag.
Boðið er upp á kvöldverð frá kl. 19.30.
■ KOKKTEILB ARINN, Aðalstræti
9, kjallara: Tvær hljómsveitir með
rokktónleika fóstudagskvöld kl. 21:00
til 1:00. Hljómsveitimar Leggöng
tunglsins og 747 halda tónleika í
kvöld og er ókeypis aðgangur.
■ KRIN GLUKRÁIN: Dúettinn Tara
leikur fimmtudagskvöld til 3:00 en
hann skipa þeir Guðmundur Símon-
arson og Ester Ágústar. Hljómsveit-
in Sín leikur föstudagskvöld til 3:00.
Limósín leikur laugardagskvöld til
3:00. Hljómsveitin Limósín leikur
fjöruga tónlist en hana skipa þeir
Kristinn Rósantsson og Páll Bene-
diktsson. Dúettinn Tara leikur
sunnudagskvöld til 1:00
■ LEIKHÚSKJALLARINN: Hljóm-
sveitin Sixties leikur um helgina og
lofa þeir félagar trukki og dýfu. Einn-
ig mun Geir Flóvent leika 80’s og
nýmeti í búrinu.
■ LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Undryð leikur fyrir dansi föstudags-
kvöld til 3:00.
■ NAUST-KRÁIN: Upplyfting leikur
fyrir dansi fóstudags- og laugardags-
kvöld til 3:00. Hin frábæra hljómsveit
Upplyfting leikur fyrir dansi. Upp-
lyfting eru: Haukur, hljómborð, gít-
ar, söngur, Kristján, rafmagnsnikka^
söngur og Magnús sem leikur a
trommur og syngur.
■ NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti. Naustið er opið alla
daga frá kl. 18. Stór og góður sér-
réttaseðill.
■ NÆSTI BAR: Hljómsveitin 4. hæð
leikur. Ókeypis aðgangur miðviku-
dagskvöld kl. 22:00 til 1:00.
■ NÆTURGALINN: Hljómsveitin
Þotuliðið frá Borgamesi leikur fyrir
dansi. Frítt inn til miðnættis á föstu-
dagskvöldinu. Húsið opnar kl. 22.
Frítt inn til miðnættis á föstudags-
kvöldinu. Húsið verður opnað kl. 22.
■ ODD-VITINN, Akureyri: Mið-
aldarmenn leika fóstudagskvöld til
3:00. Björgvin Halldórsson og hljóm-
sveit skemmtir ásamt píanóleikaran; x
um Þóri Baldurssyni laugardags- ;
kvöld.
■ PÉTURSPÖBB: Rúnar Þór spilar
föstudags- og laugardagskvöld til
3:00. Beinar útsendingar í boltanum.
■ RAUÐA LJÓNIÐ Hljómsveitin
HotN Sweet ætlar að bregða sér í
vesturbæinn um helgina og gera allt
vitlaust á Rauða ljóninu.
■ SJALLINN, Akureyri: Dansleikur
með Selmu og Todmobile
laugardagskvöld til 3:00. Selma
Björns og hljómsveitin Todmobile
verða með dansleik.
■ SPORTKAFFI: Eyvi og Stebbi __
Hilmars leika fimmtudagskvöld fev’
1:00. Þeir Eyjólfur Kristjánsson og
Stefán Hilmarsson flytja nýtt prógr-
am með fleiri íslenskum lögum en áð-
ur. Þór Bæring sér um tónlistina
fostudags- og laugardagskvöld til
3:00. Plötusnúðurinn Snyrtilegur
klæðnaður.
■ ÖLFUS SELFOSSI: Harmoniku-
ball laugardagskvöld kl. 22:00 til 2:00.
Félagar úr FHSN, Félagi harmon-
ikuunnenda á Selfossi og nágrenni,
leika fyrir dansi ásamt Hjördísi
Geirsdóttur söngkonu. Allir vel-
komnir.
Beint flug til
Þrándheims
í Noregi
ISLANDSFWG
Flugverð
23.900.-
Ef greitt er fyrir 31. mars
Afsláttur fyrir böm kr. 4.000
^ TERRA
Mnova
Nú býðst einstakt tækifæri á að fljúga beint til ÞRÁNDHEIMS.
Yikuferð frá 23.-30.júní.
Dagflug, brottför frá Keflavík kl. 09:00
Komið til baka 30.jún( kl.15:00.
Góð kjör fyrir hópa
Flogið verður með glæsilegri Boeing-þotu Islandsflugs.
Aukagjöld: Flugvallargjöld kr.4.500 bætast við.
Þú getur fengið sumarbækling TERRA N0VA í verslunum
Nóatúns, Netto Akureyri og www.terranova.is.
- TERRA N0VA - áður Ferðamiðstöð Austurlands
Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik
Sinii: 587 1919 & 567 8545
Fax: 587 0036 ■ www.terranova.is
-Spennandi valkostur-