Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Kaffihúsið Baunin í Síðumúla ræður franskan bakara
Bakar franskar
bökur og kökur
ÁVAXTABÖKUR og léttar tertur
eru meðal nýjunga hjá kaffihúsinu
Bauninni í Síðumúla en þar er nú
franskur bakari kominn til starfa.
Dominiqe Le Goff er frá Bretagne
og hefur búið hérlendis um skeið.
„Ég rak bakarí í 25 ár í Frakklandi
en bakaraiðnina lærði ég af fóður
mínum sem lærði hana síðan af afa
mínum. Ég er því þriðji ættliðurinn
sem leggur fyrir sig bakaraiðnina."
Dominiqe ákvað að söðla um, selja
reksturinn og flytjast til íslands en
eiginkona hans Evelyne bjó lengi á
Islandi og langaði alltaf að koma
hingað aftur.
„Ég ætla meðal annars að bjóða
upp á franskar ávaxtabökur og alls-
konar franskar kökur hér á
Bauninni en þær eru nokkuð
frábrugnar íslenskum kök-
um. Uppistaðan í bökurnar
eins og jarðarberjabökur og
blábeijabökur eru ferskir
ávextir. Það sama á við um
matarmeiri bakstur, þá er oft
mikið notað af fersku græn-
meti.
Kökubaksturinn hjá Frökkum er
oft loftkenndari en íslendingar eiga
að venjast því Frakkar nota mikið af
eggjum í sinn bakstur og bragðið er
annað en af venjulegu íslensku bakk-
elsi.“
Dominiqe hefur ekki enn bakað
mikið af frönskum brauðum enda
Dominique Le Goff ætlar að bjóða upp
á franskt bakkelsi í kaffihúsinu Baun-
inni, en hann rak bakari í Frakklandi í
aldarfjórðung.
segist hann fyrst þurfa að afla sér
hráefnis og tækja frá Frakklandi til
að geta bakað brauðin sín eins og
hann er vanur. Hann segir að brauð-
menningin sé mjög mikil í Frakk-
landi, þar þyki fólki nauðsynlegt að
borða brauð með næstum öllum mat
og úrval brauða sé töluvert.
Tíu daga sala á íþrótta-
og útivistarvörum í Perlunni
Afslátturinn
nemur að jafn-
aði 60-80%
Á MORGUN, föstudag, verður opn-
uð tíu daga sala á íþrótta- og úti-
vistarvörum í Perlunni. „Við höfum
kosið að kalla söluna „Merkjavöru á
silfurfati" en þetta kallast „outlet“ í
bandaiTkjunum,“ segir Einar Sig-
fússon kaupmaður. „. Hér er um að
ræða vörur fyrir alla aldurshópa
sem ekki hafa verið til sölu í búðum
heldur koma beint frá innflytjend-
um. Þetta eru eftirstöðvar á lager-
um frá ýmsum innflytjendum og hér
er eingöngu um merkjavöru að
ræða.
Tvisvar á ári
Mikið af þessum vörum er nýlegt
og hugmyndin er að vera með svona
uppákomu tvisvar á ári hér eftir og
þá á vorin og haustin. Þá er hug-
myndin að þetta fylgi alltaf í kjöl-
farið á útsölunum.
Þarna verður áður óþekkt verð-
stig og sem dæmi má nefna að vara
sem kostaði áður 6.990 krónur mun
kosta 990-1990 krónur. Prósentu-
lækkunin verður reyndar misjöfn en
hún mun liggja á bilinu 60 til 80%.
Hugmyndin er að klára vörurnar og
verðlagningin er eftir því,“ segir
Einar.
Vörur beint úr umbúðum
Að sögn Einars eru innflytjendur
nú að fá nýjar vörur og það vantar
pláss á lager hjá þeim. „Innflytjend-
umir þurfa að losna við þessar vör-
ur og þetta er hagkvæmari kostur
en að senda vörurnar úr landi.
Þarna verða íþrótta- og útivistar-
vörur ásamt skófatnaði og má nefna
merki eins og Nike, Adidas, Arena-
sundfatnað, Skechers-skó, X-18
skófatnað, Deisel, Regatta og Craig.
Þetta hefur ekki verið gert áður
hér á landi en auðvitað hafa verið
rýmingar- og lagersölur en það er
ekki það sama. Þá er verið að
hreinsa afganga og það sem er búið
að hanga í búðunum í einhvern tíma
en hér er aftur á móti um að ræða
vörur sem koma beint úr pakkning-
um frá innflytjendum.
Það á allt að seljast og er hér um
að ræða ágætt skref í að lækka verð-
lag í landinu," segir Einar.
ÁSLAND - enn fleiri Iððir!
2. hluti í 2. áfanga
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar
lóðir við Þrastaás í 2. áfanga Áslands
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu
umhverfis- og tæknisviðs, Strandgötu 6, 3. hæð.
Umsóknum skal skila á sama stað í síðasta lagi
þriðjudaginn 30. apríi 2000 kl. 15.30.
Greiðslumat sem lagt var fram við síðustu úthlutun
gildir áfram en umsækjendur sem ekki fengu
úthlutað síðast, þurfa að endurnýja umsóknir sínar.
Frekari upplýsingar um byggingarsvæðið og skilmála,
auk ýmissa uppdrátta og mynda af svæðinu,
fást hjá umhverfis- og tæknisviði og á heimasíðu
Hafnarfjarðarbæjar, en slóðin er www.hafnarfjordur.is.
Bæjaiverkfræðingurinn í Hafnarfirði
16 lóðir fyrir einbýlishús
14 lóðir fyrir parhús
20 lóðir fyrir raðhús
6 lóðir fyrir fjögurra íbúða fjölbýlishús
9 lóðír fyrir tólf-til þrettán íbúða fjölbýlishús
Jafnframt eru til úthlutunar ein lóð við
Klukkuberg og ein
lóð við Mávahraun. Lóðirnar verða
—........ afhentar í
nóvember 2000
LIÐ-AKTÍN
Góð fæðubót fýnr
fólk sem
er með mikið álag
á liðum
AKTi
Giucosamine
&
Chondroitin
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Brezkir bankar falla
frá tvöfaldri gjaldtöku
Æilsuhúsið
Skólavörðuslig, Kringlunni & Smáratorgi
www.mbl.is
London. Morgunblaðið.
BREZKIR bankar hafa heldur
dregið í land með samþykkt um að
falla frá tvöfaldri gjaldtöku af
hraðbankanotkun frá og með 1.
júlí nk. Þeir, sem nota hraðbanka,
eiga nú á hættu að verða rukkaðir
í tvennu lagi um samtals 2,50
pund; um pund fyrir að nota hrað-
banka annars banka en síns við-
skiptabanka, sem síðan rukkar þá
um hálft annað pund í refsigjald.
meoTáWta
ta3aö
Hvorugt gjaldið verður þó fellt
niður, en eftir 1. júlí verður bara
um eina gjaldtöku að ræða; annað-
hvort pund eða hálft annað. Refsi-
gjald verður aðeins innheimt ef
bankinn, sem skipt er við tekur
ekki gjald fyrir notkunina. Þá
munu viðskiptavinir geta séð hvert
gjald þeir eiga að greiða við notk-
un hraðbankans og eiga kost á því
að hætta við ef þeir vilja.
Fyrir nokkru kom út skýrsla um
starfsemi bankanna sem sagði þá
alltof sjálfráða, þjónustu þeirra lé-
lega og þeir hefðu milljarða punda
af almenningi og litlum fyrirtækj-
um með alltof háum þjónustugjöld-
um. Talsmenn bankanna mót-
mæltu niðurstöðum skýrslunnar,
sem unnin var fyrir fjármálaráð-
herrann Gordon Brown, og fyrstu
viðbrögð hans voru yfirlýsing um
að lög yrðu sett til þess að koma á
sérstöku eftirliti með starfsemi
bankanna og síðan fólu hann og
viðskiptaráðherrann samkeppnis-
ráði og stofnun, sem fylgist með
réttmæti viðskipta, að taka banka-
málin til sérstakrar skoðunar.
Talsmenn þessara stofnana
sögðu að samþykkt bankanna um
að falla frá tvöfaldri gjaldtöku af
hraðbankanotkun væri skref í
rétta átt en fyigzt yrði vandlega
með framvindu mála hjá bönkun-
um.