Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 49
KIRKJUSTARF
JONG.
ARNORSSON
+ Jón G. Arnórsson
fæddist í Vill-
ingadal á Ingjalds-
sandi við Önundar-
Qörð 29. júlí 1919.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 15.
mars síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Ilafnarfjarðar-
kirkju 24. mars.
Elsku afi, nú eru
þjáningar þínar loks-
ins búnar og þér líður
vonandi betur.
Það var alveg
óskaplega sárt að sjá svo hraustan
og sterkan mann, ímynd íslenskrar
karlmennsku, verða að engu og
þjást svo lengi og var það kannski
það versta við þetta allt saman.
Það varð alltaf erfiðara og erfið-
ara að koma til þín í lokin vegna
þess að það var ekki eins og ég
vildi muna þig. Maður áttaði sig
ekki á þegar þetta gerðist að þetta
væri byrjunin á endalokunum en
þegar þetta fór að ílengjast svo
mikið áttaði ég mig á alvörunni.
Ég man eins og gerst hafi í gær
þegar ég var með þér og ömmu
uppi í sumarbústað og í Fögruk-
inninni, alltaf tilbúin að sprella og
leika en lagt manni lífsreglurnar í
leiðinni, Þú vildir alltaf fá að vita
allt fram á síðustu stundu hvað
væri að gerast hjá mér, alltaf jafn
spenntur.
Ég hélt því fram fimm ára gam-
all að ég ætti engan pabba, væri
hreinlega eingetinn, en þú, amma
og mamma útskýrðuð það fyrir
mér hvernig þetta væri allt saman
en að sjálfsögðu var mín útskýring
miklu betri.
Þegar maður skoðar
heildina þá varst þú
mín föðurímynd í
æsku þar sem þú
varst eini karlmaður-
inn á heimilinu og þú
fylgdist með mér á
þann hátt sem feður
gera langt fram á
unglingsárin og fyrir
það er ég mjög þakk-
látur.
Sumarið sem við
unnum saman í
Straumsvík er mér
sérstaklega minnis-
stætt, að sjálfsögðu
varstu þekktur þar sem gleðipinni
og stuðbolti ásamt því auðvitað að
vera dugnaðarþjarkur þrátt fyrir
að vera kominn á þennan aldur.
Það segir allt um þinn karakter,
afi minn, að þegar amma dó þá
syrgðir þú hana auðvitað mjög
mikið og lengi og ákvaðst að flytja í
þessi hús fyrir eldra fólk en að síð-
an rífa sig upp úr því og kynnast
Kristínu og kaupa sér aðra íbúð
var alveg frábært að fylgjast með,
eins og þú hefðir bara allt í einu
lifnað við og ákveðið að hætta við
að verða gamall.
Það eina góða við allan þennan
tíma sem þú varst á sjúkrahúsinu
var það að hún Blær skyldi ná að
kynnast þér aðeins betur og er
mjög sárt að hún skyldi ekki kynn-
ast þér enn betur því að þið hefðuð
náð vel saman.
Að lokum þakkar afastrákurinn
fyrir allar samverustundirnar sem
við áttum saman, ég, þú og amma,
og ég veit að ykkur líður vel og er-
uð hamingjusöm þarna uppi.
Rúnar.
VILBORG ÁSA
VILMUNDARDÓTTIR
+ Vilborg Ása Vil-
mundardóttir
fæddist í Reykjavík
31. ágúst 1930. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans 15.
mars síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 23.
mars.
Mín kæra vinkona
Lilla hefur kvatt eftir
erfið veikindi, sem hún
tókst á við með hetju-
skap. Hennar verður
sárt saknað. Lilla vildi öllum vel og
öllum gott gera og voru hún og
hennar góði maður, Einar, samtaka
í því sem öðru. Alltaf var nóg hús-
rúm og gnægð á borðum, hversu
marga sem bar að garði í Grundar-
gerði 18, en þar bjuggu þau lengst
af. Frá fyrstu kynnum reyndust
þau hjónin mér sannir vinir, en þau
kynni spanna nú áratugi. Ég minn-
ist spilakvöldanna, matarboðanna,
sunnudagsbíltúranna og svo margs
annars. Hún Lilla mín vissi að
hverju dró og kvöddumst við
skömmu fyrir andlát hennar, vit-
andi að það yrði í
hinsta sinn í þessu lífi.
Ég mun ávallt minnast
Lillu og Einars með
væntumþykju og sökn-
uði, betri vini hefði ég
ekki getað átt. Fyrir
það þakka ég og börn-
in mín. Börnum þeirra,
tengdabörnum, barna-
börnum og öðrum
aðstandendum sendi
ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur og bið
Guð að styrkja þau í
þeirra miklu sorg.
„Einstakur“erorð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt,
faðmlagieðasólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
meðbrosi eðavinsemd.
„Einstakur" lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“áviðþá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Terri Femandez.)
Sigríður Sigxirðardóttir.
Skilafrestur
minningargrehici
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að
berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hef-
ur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.
Safnaðarstarf
Tónleikar í
s
Arbæjarkirkju
í TILEFNI þess að nýtt pípuorgel
hefur verið tekið í notkun í Árbæjar-
kirkju verður efnt til tónleika í
kirkjunni í kvöld, fimmtudaginn 30.
mars nk. kl. 20. Þar mun organleikari
kirkjunnar, dr. Pavel Smid, leika á
hið nýja orgel og kór kirkjunnar
ásamt einsöngvurum og einleikurum
flytja tónverk eftir ýmsa höfunda,
Hándel, Mozart og Mendelsohn, svo
einhverjir séu nefndir.
íbúar Árbæjarsóknar eru hvattir
til að sækja tónleikana og hlýða á hið
nýja orgel og söng kórs og einsöngv-
ara.
Að tónleikum loknum verða veit-
ingar í boði sóknarinnar í safnaðar-
salnum.
Kristin
trúarstef í
kvikmyndum
NESKIRKJA heldur tvö fræðslu-
kvöld um kristin trúarstef í kvik-
myndum fimmtudagskvöldin 30.
mars og 13. apríl kl. 20.30. í fyrir-
lestrum verður dregið fram hvemig
kristin stef og vísanir í Biblíuna
koma iðulega fram í kvikmyndum.
Fjallað verður um nokkrar valdar
kvikmyndir og gerð grein fyrir trúar-
stefjum sem í þeim birtast. Fyrra
kvöldið verður athyglinni einkum
beint að ýmsum kristnum stefjum,
svo sem kærleikanum, fyrirgefning-
unni og guðsríkinu en einnig að til-
vitnunum og vísunum i biblíutexta.
Seinna kvöldið verður annars vegar
fjallað um kvikmyndir um Jesú Krist
og hins vegar kvikmyndir sem hafa að
geyma vísanir til hans. Sem dæmi um
kvikmyndir sem verða teknar til um-
fjöllunar má neftia Þrír litir: Blár
(Trois Couleurs Bleu), Fyrirboðinn
(The Omen), Síðasta freisting Krists
(Last Temptation of Christ), Brimbr-
ot (Breaking the Waves) og Matrix.
Fræðsluna annast Gunnar J. Gunn-
arsson, lektor við Kennaraháskóla ís-
lands, og Bjami Randver Sigurvins-
son guðíræðingur.
Eftir umfjöllun fræðara eru skoð-
uð brot úr myndum og að þvi loknu
er kaffi og umræður. Allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Séra Öm Bárður Jónsson.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla al-
durshópa kl. 14-17. Ný öld, nýtt ár-
þúsund. Fræðslusamvera í safnaðar-
heimili Áskirkju í kvöld kl. 20.30. Sr.
Árni Bergur Sigurbjömsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Æskulýðsfélagið fyrir
unglinga í 8. bekk í kvöld kl. 19.30 í
félagsmiðstöðinni Bústöðum.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 14-16 í safnaðarheim-
ilinu. Æskulýðsfélag Neskirkju og
Dómkirkju. Sameiginlegur fundur í
safnaðarheimili Neskirkju kl. 20.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, lestur Passíu-
sálma. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stund lokinni.
Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagn-
aríhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21.
Fyrirbæn með handaryfirlagningu
og smuming. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja. Foreldra- og
bamamorgunn, opið hús kl. 10-12.
Fræðsla: Umhirða húðar. Jóna Mar-
Árbæjarkirkja
grét Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Svala djákni les fyrir eldri bömin.
Söngstund með Jóni Stéfnassyni.
Langholtskirkja er opin til bæna-
gjörðar í hádeginu. Endurminning-
arfundur karla kl. 13-15. Lestur
Passíusálma kl. 18.
Laugameskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur til kl. 12.10. Að
stundinni lokinni er léttur málsverð-
ur á vægu verði í safnaðarheimilinu.
Samvera eldri borgara kl. 14. Anna
Sigurkarlsdóttir og Elísabet Hann-
esdóttir koma í heimsókn með hóp
eldri borgara úr Digraneskirkju og
seniordandsahópi Iþóttafélags aldr-
aðra í Kópavogi.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginlegur
fundur í safnaðarheimili Neskirkju
kl. 20.
Óháði söfnuðurinn. Föstumessa
kl. 20.30. Ástríður Sigurðardóttir
guðfræðinemi prédikar. Biblíulestur
út frá 30. passíusálmi. Kaffi.
Selljarnameskirkja. Starf fyrir
6-8 ára börn kl. 15-16. Starf fyrir 9-
10 ára böm kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir
10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-
17.30.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á fóstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdótt-
ur og Bjargar Geirdal. Kl. 11.15 leik-
fimi aldraðra. Kl. 18 bænastund.
Fyrirbænaefnum má koma til prests
eða kirkjuvarðar í síma 554-1620,
skriflega í þar til gerðan bænakassa í
anddyri kirkjunnar eða með tölvu-
pósti (Digraneskirkja@simnet.is).
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11- 12 ára drengi kl.17-18.
Grafarvogskirkja. Foreldra-
morgnar kl. 10-12. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl. 12.
Þakkar- og bænarefnum má koma til
presta og djákna kirkjunnar. Opið
hús kl. 13.30-16. Eldri borgarar,
kyrrðarstund, handavinna, spjall og
spil, kaffiveitingar. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu að lokin*5> -
bænastund. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 15-16. Starf fyrir 11-12
ára stúlkur kl. 16.30-17.30. Æsku-
lýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera aldr-
aðra í safnaðarheimilinu Borgum kl.
14-16.
Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9-12
ára á vegum kirkjunnar og KFUM
kl. 17.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir ung böm og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op*
ið hús fyrir 8-9 ára böm í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bi-
blíulestur kl. 21.
Frfkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrirlO-12 árakl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára
böm kl. 17-18.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgunn. Kl. 14.30
helgistund á heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum, dagstofu 2. hæð.
Heimsóknargestir velkomnir. Kl. 17
TTT-starf, tíu til tólf ára krakka. Kl.
18 kyrrðar- og bænastund. Koma má
fyrirbænaefnum til prestanna með^'
fyrirvara eða í stundinni sjálfri.
Keflavíkurkirkja. Fermingamnd-
irbúningur kl. 13.30-15.40 í Kirkju-
lundi.
Boðunarkirkjan. I kvöld kl. 20
verður bænastund í kirkjunni að
Hlíðarsmára 9. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbæn-
arsamkoma í dag kl. 18.30-19.30.
Fyrirbænaefnum má koma á fram-
færi á sérstökum miðum sem til em í
kirkjunni eða hafa samband í síma
421-5013 milli kl. 10-12 árd. Spilá"
kvöld aldraðra í kvöld kl. 20.
Hjálpræðisherinn. Gospelkvöld kl.
20.30.
Lágafellskirkja. TTT-starf fyrir
10-12 ára börn frá kl.17-18. Umsjón
Hreiðar og Sólveig.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
Hvamrnstangakirkja. Kapella
Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi- og
bænastund í dag kl. 17. Fyrirbæna-
efnum má koma til sóknarprests.
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN „
Persónuleg þjónusta
Höfum undirbúið og séð um útfarir á höfuðborgar-
svæðinu sem og þjónustu við landsbyggðina 110 ár
og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta
verð allra á llkkistum og þjönustu við úttarir.
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
Rúnar Gtirmundsson Sigurður Runarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Þegar andlát ber að höndum
Utfararstofan annast meginhluta allra útfara
á höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AlúSleg þjónusta sem byggir á tangri reynslu
*
Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266
UTFARARSTOFAISLANDS !
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt £
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. , j
íll
I Sverrir
I Einarsson
I útfararstjóri.
Mstmi 896 8242 i|
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur Bóbó
Frederiksen
útfararstjóri.
simi 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is