Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„ Ljósmynd/Bjargey Ólafsdóttir
Ur sýningunni Ljúfar sælustundir í París.
Islenskar ljóskur í París
Á LAUGARDAGSKVÖLD kl. 20
opnar Bjargey Ólafsdóttir mynd-
listarsýninguna „Ljúfar sœlu-
stundir í París“ í gallery @hlemm-
ur.is í Þverholti 5 í Reykjavík.
Sýningin er skyggnimyndasýn-
ing sem Kristján Eldjárn hefur
samið tónlistina við, en Kristján
liefur áður samið tónlistina við
kvikmynd Bjargeyjar „Falskar
tennur".
Verkið vann Bjargey í París
þegar hún dvaldi þar í Kjarvals-
itofu.
„Verkið er um fslenskar ljóskur
og franskan karlmann,“ útskýrir
listakonan.
- Eru myndirnar settnr á svið?
„Það er spurning."
- Eru þetta heimildarmyndir á
einhvern hátt?
„Nei, eiginlega ekki. Þetta er
frekar hugarburður um íslendinga
að skemmta sér í útlöndum, þegar
þeir lenda í ruglástandi."
- Er húmor ríkjnndi í verkinu?
„Fólk verður að dæma um það
sjálft. Kannski smáhæðni þar sem
ég er að vinna út frá frönsku klisj-
unni um norrænu konuna," segir
Bjargey, en konan er yfírleitt
sterkari aðilinn í verkum hennar.
- Er tónlistin íslensk eða írönsk?
„Hún er eins frönsk og hún get-
ur orðið miðað við aðstæður. Að
sögn tónskáldsins eru frumstef
tónsmíðarinnar sótt í megin-
viðfangsefni melódíuþingsins í
Aberdeen árið 1994.“
Sýningin rúllar stöðugt allan tí-
mann og gallery (©hlemmur.is er
opið milli 14 og 18 fimmtudaga til
sunnudaga og sýningin stendur til
23. apríl.
Ráðhildur Ingadóttir og Biogen á Kjarvalsstöðum
Ég sem í loftið
NÚ stendur yfir á Kjar-
valsstöðum sýningin Veg
(g)ir, þar sem listamaður
vinnur þrjár vikur á staðn-
um við að myndskreyta
vegg og er opnunarhófið
þegar verkinu er lokið og
nýr listamaður tekur við.
Ráðhildur Ingadóttir
myndlistarkona hefur
fengið raftónlistarmanninn
Biogen til samstarfs við sig
og má sjá, og hlusta á, þau
vinna daglega á staðnum
eina viku enn.
„Ég er að semja á staðn-
um, svipað og Ráðhildur.
Hún semur á veggina og
ég sem í loftið," segir Bio-
gen, eða Sigurbjörn Þor-
grímsson eins og hann
heitir.
„Hún skiptir veggnum í
tvennt með fleygboga.
Annar helmingurinn er
ljósblár og hinn græn-
brúnn og svo teiknar hún
geometrísk form á bláu
hliðina og líkamsmyndir á
brúnu hliðina," útskýrir
Biogen sýninguna sem þau
kjósa að nefna „Óendan-
legt rými“. „Og þá er
markmiðið að búa til óend-
anlegt rými, hvað sem það nú er.
Við reynum að ná niður hughrifum
sem við verðum fyrir á staðnum, og
svo gefa þau aftur tilbaka út í um-
áhríf frá hvort
Morgunblaðið/Jim Smart
Biogen og Ráðhildur eru að vinna
á Kjarvalsstöðum.
hverfið. Við lögðum ekki upp með
neitt ákveðið og við gefum okkur
andrúmsloftinu á vald, og sjáum svo
hvernig fólk tekur túlkun okkar.“
- En
öðru?
„Jú, við verðum fyrir
þeim og það hefur gengið
vel því við höfum verið
hreinskilin hvort við ann-
að.“
Biogen hefur áður samið
tónlist til að spila undir á
myndlistarsýningum. „En
þetta er í fyrsta skipti sem
ég er á staðnum að semja
og að það er einhver alvara
í því.“
- Hvernig finnst þér að
semja á Kjarvalsstöðum?
„Það er mjög gott að
fara í annað umhverfi, þótt
það yrði sjálfsagt letjandi
til langframa að hafa fólk
yfir öxlinni á sér. En mér
finnst ég hafa fengið nýja
sýn á það sem ég er að
gera með því að fólk sem
tilheyrir ekki þessum raf-
tónlistarheimi er að nálg-
ast mann. Það gefur mér
góða sýn á verkið.“
- Ertu búinn að semja
eitthvað sem þú getur
notað í framtíðinni?
„Já, og finna nýjar leið-
ir til að vinna með það efni
sem ég er með. Ég á eftir
að setja þetta saman í einhvern
heildrænan búning á lokuninni eftir
viku,“ segir Biogen sem er með
Ráðhildi daglega á Kjarvalsstöðum.
Að örva
heilastarf-
semi til
sköpunar
ÓLÖF Bjömsdóttir er með sýningu í Gallerý i8 sem lýkur nú um
helgina. A opnuninni nuddaði Ólöf sýningargesti og er öll sýn-
ingin tengd nuddinu eða „betrunarkreistinu“, sem listakonan er
vjpekkt fyrir.
Annars býr Ólöf í London og tók Morgunblaðið tölvupóstsvið-
tal við hana um lífíð og listina þar og víðar.
Samskiptatæki á
mörgnm sviðum
SPURNING: Hvernig er sýningin í i8 og hverju viltu ná fram
með nuddinu?
SVAR: Sýningin í i8 er fyrsta einkasýning mín á íslandi. Ég
hef þó verið með uppákomur ein áður, t.d. í Gallerí gúlp! þegar
ég sýndi þar „Tanngarð".
Með því að nudda er ég að örva blóðrásina upp í heila og von-
andi að auka og örva heilastarfsemina til sköpunar. Þessu reyni
ég að ná fram með því að losa um streytu og stíflur í öxlum nudd-
þegans. Ég næ að tala náið við fólk sem hefur áhuga á að kynnast
því betur sem ég er að fara. Þannig verður þetta tæki til að hafa
samskipti við fólk á mörgum sviðum.
Öðrum gestum er boðið upp á að horfa á þann „metamorfíska“
skúlptúr sem myndast þegar tvær manneskjur sameinast í sért-
ilbúnum búningi sem tilheyrir verkinu.
Það sem ég er að gera er ekki „performance" heldur frekar
uppákoma þar sem ég skapa einskonar tungumál til að miðla
hugmyndum mínum áfram.
Fólk hefur yfirleitt tekið þessu verki vel og skilið það. Færri
hafa tekið því vel án þess að skilja það, en fáir tekið því illa, og ég
fæ svipuð viðbrögð hvort sem er í London, á íslandi eða nú síðast
í Portúgal.
Stafræn tölvutækni
í dansi
SPU: Hvað varstu að gera í Portúgal? SVAR: Ég tók þátt í
framhaldi af „NON STOP OPENING" sýningunni sem ég var
með í hér í London í fyrra. Þetta er samsýning listamanna sem
eru frá London og núna bættust nokkrir frá Lissabon í
hópinn.
Ég var mjög ánægð með Portúgal og það var mikið um að vera
þessa viku sem ég var í Lissabon, en fyrir utan sýninguna okkar
var mikil leikhús- og danshátíð í gangi. Þar vöktu mikla athygli
tveir hópar; einn sem notar stafræna tölvutækni og teikniprógr-
am til að framkalla margræð áhrif í danssýningum sínum og
annar sem var með gömlu Oxtorbrelluna; að gera áhorfendur að
stjömum eitt kvöld, með því að láta þá stíga á flóðlýst svið undir
Ti/fataki.
Ólöf framkvæmir Betrunarkreist IV, 1999.
Ekki leiðst í eina minútu
SPURNING: Hvemig er að vera listakona í London?
SVAR: Hér í London er mikið listalíf; margt spennandi að ger-
ast, og þegar eitthvað gott berst hingað spyrst það fljótt út. Fólk
er mjög vel með á nótunum og mikil gerjun í myndlist. Ef fólk
kemur utan frá em árlega sýningar sem listamenn alls staðar að
geta sótt um að taka þátt í, t.d. East samsýningin í Norwich.
Það er samt trúlega alltaf erfiðara ef fólk hefur ekki verið í
skóla hér í London, því maður þekkir mann. Það hjálpar mér líka
að ég var tvö ár í MA-námi í Goldsmiths College í suðurhluta
London. Það sem hefur hvað helst hrifið mig nýlega er sýning
Mike Nelson sem stendur nú yfir í Matfs Gallery.
IICA á Mall em oft góðir fyrirlestrar og sýningar og í augna-
blikinu er þar mjög áhugaverð myndlistarsýning. Ég get ekki
sagt að mér hafi leiðist eina mínútu þau þrjú ár sem ég hef búið
hér - ekki frekar en þegar ég horfði á kvikmyndina Sjö samurai
um árið!! Það er frekar að það sé of mikið í gangi.
Það em mörg áhugaverð gallerí hér sem sýna spennandi
myndlist. Mörg þeirra em í East End, en ákveðið hverfi þar er
orðið vettvangur mest spennandi listamannanna. Það má nefna
Showroom og The Approach í Bethnal Green, The Nunnery í
Bow, VOma Gold og svo Gasworks í Vauxhall og Salon 3 í Eleph-
ant & Castle en það síðastnefnda hefur skandinavíska listamenn
á sínum snæmm.
I augnablikinu er ég með sýningu í Zwemmer s Gallery sem er
staðsett á Lichtfield Street við Charing Cross Road. Þar sýnir
Lopameyja sig í sjónvarpinu. (Lopameyja er „alterego“ mitt,
sem flutti með mér til London fyrir 3 ámm. Hún er framsækin
listakona í þjóðlegum dúr, askvaðandi um í lopasamfellu á spari-
skóm). Sú sýning endar í lok mánaðarins. Það eru einnig mynd-
bönd með Lopameyju ásamt fleiri myndbandsverkum í Levís
búðinni á Oxford Street, svo hún kemur víða við, jafnvel á ferða-
mannaslóðum.
Það sem framundan er hjá mér er að mér hefur verið boðið að
sýna í Berlín verkefni sem kallast Hard? Candy, þar sem ég mun
sýna ljósmyndaverk. Svo er „Multiple-3“ sýningin enn í gangi í
Temple Bar Gallery í Dublin, þar sem hægt er að kaupa verkin,
jafnvel gegnum póstkröfu. Þar sýni ég „frætrefil“ og árituð lopa-
meyjuportrett.
Stjarna
er fædd
Á MORGUN, kl. 20 opna Melkorka og Sissa sýningu í
Galleríi nema hvað á Skólavörðustíg. Sýningin ber yfir-
skriftina Stjama er fædd sem vísar í mynd Barbra Streis-
and, „A Star Is Born“ og segir Melkorka sýninguna að
vissu leyti undir áhrifum frá Streisand og Helmut Newton.
„Við erum með ljósmyndir og videóverk á sýningunni,
Sissa tekur ljósmyndirnar og ég vídeóverkin," úskýrir
Melkorka. „Ljósmyndirnar eru af mér og vídeóin eru líka
af mér en sýningin heitir Stjarna er fædd og við erum und-
ir áhrifum frá myndinni ,A Star Is Born“. Svo er svona
Helmut Newton-andi yfir ljósmyndunum."
Þetta er í fyrsta sinn sem Melkorka og Sissa sýna saman
og eru allir boðnir velkomnir í Gallerí nema hvað annað
kvöld en sýningin stendur í tvær vikur.
Líkamsástand
listamanns
ÖRN Helgason myndlistarmaður verður með gjörning í
Tökuhúsinu á laugardaginn kl. 21. Hann verður með
beina útsendingu frá efri hæð hússins niður á miðhæðina
þar sem áhorfendur munu sitja.
Uppi ætlar hann að loka sig af og munu áhorfendur
fylgjast með Erni frá sérstöku sjónarhorni; en myndirn-
ar sýna hann að innan og líkamstarfsemi hans.
Brynjólfur Sverrisson rafsegulmælingamaður mun
mæla Örn, með sérstakri þartilgerðri myndavél.
Einnig hefur listamaðurinn fengið lánað frá Land-
spítalanum gömul tæki sem mæla hjartslátt, púls, súrefni
í blóðinu og sýna útkomuna á mónítór.
Þýskir stranda-
glópar
í GALLERÍI Geysi, Hinu húsinu v/Ingólfstorg, opna tveir
þýskir ferðamenn, sem eru strandaglópar á Islandi, sýn-
ingu nk. laugardag á milli kl. 16.00.-18.00.
Þau heita Thorgis Hammerfelt og Eva Friedenschutz.
Thorgis hefur stundað nám við Gedachtuisverbreiter-
ungsschule der DDR, en Eva við Steuermannsschule í
Leipzig, og ætla þau að vera með verk sem er blanda af
innsetningu og gjörningi.
Þau hafa verið föst á Patreksfirði þar sem þau hafa
starfað við fiskvinnslustörf, en eru nú komin til Reykjavík-
ur og eru að safna fyrir farmiðunum heim.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9.00.-17.00. og
stendur frá 1.4.—16.4.2000.