Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fjölskylda Filippseyjaforseta sökuð um að misnota opinberan sjóð Sögð nota féð til að bæta pólitíska stöðu sína Filippseyingur atar feiti á mynd af Joseph Estrada, forseta Filippseyja, á mótmælafundi sem efnt var til við forsetahöllina í Manila í fyrradag vegna hækkunar á olíuverði. Forsetinn skoraði á olíufyrirtækin að hækka ekki verðið en gat ekki hindrað hækkunina vegna laga sem sett voru á valdatíma forvera hans, Fidels Ramos. Á mótmælaspjöldunum stendur: „ERAP [gælunafn Estrada] er gagnslaus". Manila. AP, AFP. JOSEPH Estrada, forseti Filipps- eyja, á nú undir högg að sækja vegna ásakana nunnu um að fjöl- skylda hans hafi tekið andvirði 760 milljóna króna úr opinberum sjóði, sem ætlaður var til heilbrigðismála, og notað féð til að styrkja pólitíska stöðu sína. Ásakanir nunnunnar eru álitnar mikill álitshnekkir fyrir forsetann, sem segist hafa helgað sig baráttu fyrir bættum kjörum fátækra landsmanna. Nunnan, Christine Tan, segist hafa verið rekin úr stjórn ríkis- happdrættis vegna þess að hún hafi lagst gegn því að fjölskylda for- setans notaði ágóðann af happ- drættinu til að fjármagna eigin verkefni. Herraskyrtur I 99- Regnjakkar frá 399- Ungbarnavörur frá I 99- Bolir frá 199- Nærbuxur 3 í pk.199- Leikföng frá 99- Buxur frá 1 99- Sokkar 3 í pk. 1 99- mam Faxafeni 8 opið virka daga 12-19 laugard. 12-18 sunnud. 12-19 Nunnan heldur því ekki fram að fjölskyldan hafi auðgast á happ- drættissjóðnum. Megnið af fénu mun hafa runnið til góðgerðarstarf- semi, svo sem heilbrigðisverkefna sem forsetaírúin hefur stjórnað og til kaupa á 200 sjúkrabílum sem elsti sonur forsetans hefur úthlutað. Þeir sem gagnrýna forsetann vegna þessa máls segja að féð hafi verið notað til að styrkja pólitíska stöðu hans og fjölskyldunnar. Sjúkrabflarnir hafi t.a.m. verið nefndir eftir syni forsetans, Jing- goy, sem er bæjarstjóri og hyggst sækjast eftir sæti á þinginu. Vinsældirnar snarminnka Estrada var kvikmyndastjarna áður en hann haslaði sér völl í stjórnmálunum og lék þá yfirleitt hetjur sem börðust við harðsvíraða glæpamenn. Hann naut mikilla vin- sælda þegar hann var kjörinn for- seti fyrir 21 mánuði en þær hafa snarminnkað á síðustu mánuðum. Samkvæmt skoðanakönnunum voru 78% landsmanna ánægð með störf hans fyrir níu mánuðum en aðeins 31% í síðasta mánuði. Vinsældir hans hafa jafnvel minnkað meðal fátækra Filippseyinga, sem voru dyggustu aðdáendur hans. Mikill efnahagsuppgangur var í landinu fyrir þremur árum en margir óttast nú að landið dragist aftur úr öðrum Asíulöndum. Fjár- málasérfræðingar segja að Estrada eigi að miklu leyti sök á því að hag- vöxturinn hefur ekki verið jafnmik- ill og í mörgum nágrannalandanna. Forsetinn hefur einnig verið sak- aður um að hygla auðugum vinum sínum og fyrirtækjum sem lögðu fé í kosningasjóð hans árið 1998. Hann hefur harðneitað þeim ásökunum. „Það er miklu erfiðara að vera forseti en ég hélt,“ sagði Estrada í viðtali nýlega. Hann bætti við að hann teldi dagana þar til sex ára kjörtímabili sínu lyki „eins og fangi“. Bílverð lækkað í Bretlandi London. Morgunblaðið. BREZKA rfldssljórnin hyggst þvinga bflaframleiðendur, ef ekki vill betur, til þess að lækka bflverð í Bretlandi um allt að þriðjung, en kannanir verðlagseftirlitsins hafa sýnt að Bretar borga að meðaltali um 35% hærra verð fyrir bfla en þeir kosta á meginlandinu. Fyrsta skrefið yrði að sögn The Daily Telegraph að bflaframleið- endur leyfðu að einstaklingum yrði veittur sami afsláttur og fyrirtækj- um. Það gæti þýtt, að bíll sem nú kostar einstaklinginn 15.000 pund lækkaði um 5.000 pund. Þá ætlar Stephen Byers, viðskipta- og iðnað- arráðherra, að leita leiða til þess að bijóta upp einkaleyfissamninga bflasala og bflaframleiðenda og skapa með því möguleika til bfla- markaða, þar sem margar tegundir bfla yrðu til sölu á einum og sama staðnum. Brezku neytendasamtökin opn- uðu í gær bflasölu á netinu og að- stoða þau fólk við að kaupa bfla beint frá meginlandinu. Þá er Virg- in-fyrirtækið að undirbúa bflasölu á netinu og feijufyrirtækið PO er farið að taka við pöntunum á bflum, sem það ætlar að flytja inn frá meg- inlandinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.