Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fjögur sveitarfélög hljóta viðurkenniiigu fyrir gerð Staðardagskrár 21
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristján Þ. Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, Jónas Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra, Hulda Steingrímsdóttir, verkefnisstjóri í Staðardagskrá 21 í Hafnarfirði, Ólína
Kristinsdóttir, fulltrúi í bæjarstjórn Snæfellsbæjar, og Stefán Gislason, verkefnissljóri Staðardagskrár 21.
Snæ-
fellsbær
þótti
skara
fram úr
FJÖGUR sveitarfélög; Snæfellsbær,
Mosfellsbær, Hafnarfjarðarbær og
Akureyrarbær hafa hlotið viður-
kenningu umhverfisráðuneytisins
og Sambands íslenskra sveitarfé-
laga fyrir starf sitt við gerð svokall-
aðrar Staðardagskrár 21 en sú dag-
skrá felst í verkefni sveitarfélaga
sem miða að því að gera forskrift að
sjálfbærri þróun.
Ákvörðunin um gerð Staðar-
dagskrár 21 var tekin á heimsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um um-
hverfi og þróun í Ríó 1991 en
verkefnið er um leið liður í Iram-
kvæmdaáætlun ríkisstjómarinnar
um sjálfbæraþróun í íslensku sam-
félagi.
í frekari lýsingu á Staðar-
dagskrárverkeftiinu er það sagt
vera heildaráætlun um þróun hvers
samfélags um sig fram á 21. öldina
og þess getið að áætlunin eigi að
vera nokkurs konar forskrift að
sjálfbærri þróun, þ.e.a.s. lýsing áþví
hvemig samfélagið ætlar að fara að
því að tryggja komandi kynslóðum
viðunandi lífsskilyrði ájörðinni.
Verkefninu var hleypt af stokk-
unum í október árið 1998 en nokkr-
um mánuðum áður hafði umhverfis-
ráðuneytið og Samband íslenskra
sveitarfélaga gert með sér sam-
starfssamning um verkefnið sem
miðaði að því að aðstoða fslensk
sveitarfélög við að koma sér upp
Staðardagskrá 21. Síðustu átján
mánuðina hefur því alls 31 sveitar-
félag tekið þátt í Staðardagskrár-
verkefninu eins og það er gjaman
kallað en þau fjögur sveitarfélög
sem hér hafa verið nefnd hafa að
mati aðstandenda verkefnisins þótt
standa sig best. Eitt þeirra, Snæ-
fellsbær, þótti þó skara fram úr og
að öðram ólöstuðum hafa „sinnt
Staðardagskránni af mestri elju og
dugnaði," eins og Stefán Gfslason
verkefnisstjóri Staðardagskrár 21
orðaði það er hann afhenti fulltrú-
um sveitarfélagsins viðurkenning-
arskjal fyrir góðan árangur í síð-
ustu viku. Upplýsti hann að
Snæfellsbær hefði eitt sveitarfélaga
lokið við gerð fyrstu útgáfu af Stað-
ardagskrá 21 og staðfest hana í
sveitarstjóm sem stefnumótandi
plagg.
„Það sem einkennt hefur Staðar-
dagskrárstarfið í Snæfellsbæ hefiir
verið traust og stöðugt samband
milli þeirra sem vinna verkið og
þeirra sem að endingu taka hinar
pólitísku ákvarðanir. Sem dæmi um
þessa áherslu má nefna, að helstu
embættismenn sveitarfélagsins og
næstum öll bæjarstjómin sat á
skólabekk heila helgi í október síð-
astliðnum, þar sem fjallað var ítar-
lega um gildi markmiðssetningar
fyrir alla ákvarðanatöku og fram-
þróun, og um þýðingu góðrar
frammistöðu í umhverfismálum fyr-
ir sveitarfélagið Snæfellsbæ og
heimsbyggðina alla í nútíð og fram-
tíð,“ sagði Stefán ennfremur.
I máli Stefáns kom einnig fram að
Akureyrarbær hefði unnið afar
markvisst og skipulega að gerð
Staðardagskrár 21 og að Hafnar-
firði hefði tekist einkar vel til með
almenna kynningu á verkefninu,
svo eitthvað sé nefnt. Þá sagði hann
að Mosfellsbær hefði mikið lagt upp
úr miðlun upplýsinga til almennings
ogþáttöku almennings í markmið-
ssetningu.
Lokuðu útboöi í
BioStratum lokið
Hlutafé
fyrir tvo
milljarða
seldist
ALLT hlutafé í lokuðu útboði á for-
gangsréttarhlutabréfum í banda-
ríska líftæknifyrirtækinu BioStrat-
um Incorporated seldist upp, en
aflað var 28 milljóna dala í útboð-
inu eða jafnvirðis tveggja milljarða
íslenskra króna.
MP verðbréf sáu um útboðið, en
fjárfestar frá fimm löndum tóku
þátt í því, bæði frá Bandaríkjunum
og Evrópu. Þeirra á meðal má
nefna HelathCap Svíþjóð, Equity
Resources Group Inc. Bandaríkj-
unum, Banklnvest Danmörku,
Mellon Holdings Ltd. Bretlandi og
MP Bio íslandi.
BioStratum var stofnað árið
1994 af bandarískum vísindamönn-
um og dr. Karli Tryggvasyni, pró-
fessor við Karolinska Institutet í
Stokkhólmi.
„Lyfjaþróun fyrirtækisins bygg-
ir á mikilli þekkingu og einkaleyfa-
réttindum á sviði gmnnhimnurann-
sókna (basal lamina research). Það
hefur þegar tvö lyf í prófunum:
Pyridorin er lyf við nýrnaveiki sem
aukaverkun af sykursýki og hefjast
annars stigs klínískar prófanir á
því innan skamms. Angiocol er
krabbameinslyf sem hamlar vexti
illkynja æxla og hefur gefið góða
raun í forklínískum tilraunum.
Jóhannes Sigurðsson, hrl., LOG-
OS Lögmannsþjónustu annaðist yf-
irumsjón með áreiðanleikakönnun
vegna útboðsins. Auk hans komu
að könnuninni lögmenn og sér-
fræðingar frá Bandaríkjunum, ís-
landi og Svíþjóð," segir í frétt frá
MP verðbréfum.
Sparisjóðsstjóri SPV svarar sparisjúðsstjúranum í Keflavík
Engin lagaheimild til að breyta
sparisjóðum í hlutafélög
HALLGRÍMUR Jónsson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs vélstjóra, seg-
ir að ekki sé unnt samkvæmt núgild-
andi lögum að breyta spari-
sjóðunum í hlutafélög.
í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Geirmundi Krístinssyni, spari-
sjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík,
að ef sparisjóðunum yrði breytt í
hlutafélög myndi meðferð stofnfjár
ekki vandkvæðum bundið. Hall-
grímur hafði áður sagt í viðtali við
blaðið, að ekki væri einfalt mál að
sameina sparisjóði vegna hins mis-
munandi hlutfalls stofnfjár á móti
eigin fé.
Hallgrímur bendir á að sparisjóð-
irnir sé elstu peningastofnanir
landsins og að í upphafi hafi rekstr-
arfyrirkomulag þeirra byggst á
hugsjónum, með hagsmuni samfé-
lagsins að leiðarljósi. „Formið sem
sparisjóðirnir búa við hefur ekki
verið neinn þrándur í götu, þar til nú
á allra síðustu árum, að borið hefur
á því að einstaka sparisjóðir hafi
lent í vandræðum vegna krafna um
tiltekið hlutfall eigin fjár, enda hafa
sparisjóðirnir vaxið mjög ört. Þessir
sparisjóðir hafa vegna þess gripið til
þess ráðs, til að styrkja stöðu sína,
að auka stofnfé með því að bæta við
stofnfé frá efnasterkum aðilum. En
áður var stofnféð tiltölulega lítið,“
segir Hallgrímur.
Hann segir að hlutafélagavæðing
sparisjóða geti einnig leyst þennan
vanda að einhverju leyti. En hins
vegar standi eftir sú spuming
hvemig farið skuli með eigið fé.
Eigin fé skuli ráðstafa til
menningar- og líknarmála
„í núgildandi lögum um banka og
sparisjóði segir að við slit á spari-
sjóði, eftir að allar skuldir hans hafi
verið greiddar, skuli greiða stofn-
fjáreigendum þeirra fé. Þeim eign-
um sem þá kunni að vera eftir skuli
ráðstafa í samræmi við ákvæði sam-
þykkta sparisjóðsins. Þó sé ekki
heimilt að ráðstafa eftirstöðvum
eigna til stofnfjáreigenda. Ef við
horfum til samþykkta Sparisjóðs
vélstjóra, þá er þar kveðið á um að
þeim eignum sem eftir verði við slit
hans, skuli ráðstafa til menningar-
og líknarmála á starfssvæði Spari-
sjóðsins,“ segir Hallgrímur.
Hann ber saman stöðu Sparis-
jóðsins í Keflavík og Sparisjóðs vél-
stjóra. „Stofnfé Sparisjóðsins í
Keflavík er 346 milljónir króna, til
móts við 24 milljóna stofné í Spari-
sjóði vélstjóra. Ef við lítum til eigin
fjár, þá nemur það 612 milljónum í
Keflavík, eftir að stofnfé hefur verið
dregið frá, en er 1.368 milljómr hjá
okkur. Hver einasti maður hlýtur að
sjá að ráðstöfun á þessu fjármagni
skiptir öllu máli þegar meðferð þess
er ákveðin við hlutafélagavæðingu
og virði viðkomandi sparisjóðs met-
ið.
Reginmunur er á stofnfé og eigin
fé. Löggjafinn hefur ekki breytt
neinu enn sem komið er og því er
umbreyting yfir í hlutafélagaformið
ekki möguleg. Ef lagabreyting mun
hins vegar eiga sér stað breytast
forsendurnar," segir Hallgrímur.
Hann kveðst vera fylgjandi endur-
skoðun á eignarhaldi sparisjóðanna,
en aðalatriðið sé þó það að spari-
sjóðirnir standi enn sterkari eftir.
Hallgrímur segir alltof snemmt
að segja nokkuð til um á hvaða
gengi hlutabréfin verði, sem stofn-
fjáreigendur myndu fá, ef þeim yrðu
afhent hlutabréf í stað stofnfjár við
hlutafélagavæðingu. Enn sé of
mörgum spurningum ósvarað um
hvernig haga skuli framkvæmdinni
á mögulegri hlutafélagavæðingu.
Stefnumótunarvinna að hefjast
innan sparisjóðanna
Stefnumótunarvinna er að hefjast
innan sparisjóðanna þar sem breytt
eignarhald verður rætt og reynt að
samræma skoðanir manna, að sögn
Hallgríms. Telur hann að sú vinna
muni taka nokkra mánuði og í fram-
haldinu muni sparisjóðirnir væntan-
lega koma niðurstöðum sínum á
framfæri við stjórnvöld.
Meirihluti
styður Ólaf
Ragnar
Grímsson
RÚMLEGA 85% landsmanna
segjast vera ánægð með þá
ákvörðun Ólafs Ragnars
Grímssonar að gefa kost á sér
til endurkjörs í embætti forseta
Islands, að því er fram kemur í
könnun Gallup, en tæplega 83%
segjast styðja hann í embættið.
Tæplega 7% segja að þeim sé
sama hver gegni embættinu, en
rúmlega 10% vilja einhvern
annan en Ólaf Ragnar sem
næsta forseta.
Umhverfísráðuneytið bregst ekki serstaklega við áliti umboðsmanns Alþingis
MAGNÚS Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, segir
að ráðuneytið muni ekki sérstaklega
bregðast við áliti umboðsmanns AI-
þingis vegna afgreiðslu starfsleyfis
fyrir álver Norðuráls á Grundar-
tanga, sem sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, enda hafi þegar verið
gerðar breytingar á þeim lögum sem
að málinu lúta og allri réttaróvissu
þannig eytt. Aukinheldur hafi ekki
komið fram neinar tillögur um að-
gerðir í áliti umboðsmanns.
Magnús segir engan vafa á því að
meginástæða þess að afgreiðsla
ráðuneytisins á starfsleyfinu fyrri
hluta árs 1997 þótti umdeilanleg hafi
verið sú að Iög um þessi mál hafi ver-
ið óskýr og óvissa verið um hvernig
með þessi mál skyldi fara.
Með lögum nr. 7/1998 um hollustu-
hætti og mengunarvamir, sem ráðu-
neytið beitti sér fyrir, hafi hins vegar
verið gerðar úrbætur í þessu efni,
m.a. í beinu framhaldi af því máli sem
Þegar búið að
eyða allri
réttaróvissu
hér um ræðir. Það hafi þannig komið
skýrt fram í meðferð málsins á Al-
þingi að umrædd lög hafi þótt óskýr
og þarfnast breytinga við.
Breytingamar frá 1998 segir
Magnús fela í sér að ráðuneytið sjálft
gefi ekki lengur út starfsleyfi heldur
sé það í verkahring Hollustuvemdar
ríkisins, og eftir atvikum heilbrigðis-
nefnda sveitarfélaganna, en síðan er
hægt að kæra útgáfu starfsleyfisins
til ráðherra. Segir Magnús að þar
með séu menn komnir með fyrir-
komulag sem er einfalt og skýrt.
Að sögn Magnúsar gerir ráðuneyt-
ið ekki athugasemd við þá niðurstöðu
umboðsmanns Alþingis að brotið hafi
verið á rétti þeirra sem gerðu at-
hugasemdir við starfsleyfið með því
að búið var að gefa út starfsleyfi fyrir
álverið á Grundartanga í mars 1997,
enda þótt enn væm þrír mánuðir eft-
ir af þeim fresti sem gefinn hafði ver-
ið til að vísa tillögu Hollustuverndar
að starfsleyfi til úrskurðamefndar.
„Það sem er þó rétt að benda á er
að ráðuneytið mat við útgáfu starfs-
leyfisins rétt framkvæmdaraðila og
hagsmuni hans það ríka að það væri
rétt að gefa starfsleyfið út á þessum
tíma,“ segir Magnús. „Það lá líka íyr-
ir að ráðuneytið hafði gert fram-
kvæmdaraðilanum grein fyrir því að
kærufrestur væri í málinu til 7. júní
og að ráðherra gæti þurft að taka
málið upp, ef það kæmu fram atriði í
kæruferlinu. Framkvæmdaraðila var
þetta þannig alveg ljóst og tók áhætt-
unaafþví.“
Magnús segir ráðuneytið einnig
sammála því áliti umboðsmanns að
starfsleyfishafi eigi veigamikilla
hagsmuna að gæta í málinu og að að-
koma umboðsmanns að því, og eðli
þeirra annmarka sem hann nefni til,
sé þess eðlis að litlar líkur séu á því
að umræddir annmarkar leiði til
ógildingar á starfsleyfinu. Hitt sé þó
líka rétt, sem umboðsmaður bendi á,
að það sé að sjálfsögðu dómstóla að
kveða endanlegan úrskurð í því máli.