Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Námskeið
um jarðgerð
UMHVERFISDEILD Akureyrar-
bæjar og Garðyrkjuskóli ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, standa saman að
námskeiði um jarðgerð, íjrir sveitar-
félög, stofnanir og einstaklinga. Nám-
skeiðið fer fram mánudaginn 3. apríl
nk. frá kl. 10-16 í húsnæði umhverfís-
deildarinnar á Akureyri.
Tryggvi Marinósson, umhverfis-
stjóri Akureyrarbæjar, setur nám-
skeiðið en síðan verða flutt fimm er-
indi. Baldur Gunnlaugsson,
garðyrkjustjóri útisvæða Garðyrkju-
skólans, fjallar um notkun jarðgerð-
ai-afurða í skrúðgarðyrkju, Heimir B.
Janusarson, verkstjóri hjá garðyrkju-
deild Kirkjugarða Reykjavíkur, nefn-
ir erindi sitt; ,Af moldu skaltu verða“
og Björn Guðbrandur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna Gróður
fyrir fólk í landnámi Ingólfs, ætlar að
tala um jarðgerð og jarðgerðargróða.
Þá munu Jóhann Thorarensen,
verkstjóri ræktunarstöðvar Akureyr-
arbæjar, og Guðmundur Sigvaldason,
verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 hjá
Akureyrarbæ, gera grein fyrir fram-
tíðaráformum í jarðgerð hjá umhverf-
isdeildinni. Að síðustu mun Jörundur
H. Þorgeirsson, rekstrarstjóri Gáma-
þjónustu Norðurlands, fjalla um
framtíðarmöguleika fyrirtækisins í
jarðgerð.
Skráning á námskeiðið fer fram hjá
umhverfisdeild Akureyrarbæjar.
-----*-++-----
Skemmdir unnar
á þremur bflum
Vitni vantar
ÞRÍR bílar sem stóðu á bifreiða-
stæðum framan við Hótel Norður-
land á Akureyri voru skemmdir um
helgina. Lögreglan á Akureyri lýsir
eftir vitnum að atburðinum en hann
var á tímabilinu frá kl. 24.30 til 6 að-
faranótt sunnudagsins. Gengið var
ofan á nokkrum bifreiðanna sem
voru á stæðinu og skemmdust þrír
þeirra og einn sýnu mest, en á hon-
um eru verulegar skemmdir eftir að-
farirnar. Tveir bílanna voru bláir og
einn hvítur. Þeir sem sáu til þeirra
sem þarna voru að verki eða telja sig
eitthvað um atburðinn vita eru beðn-
ir að láta lögregluna á Akureyri vita.
-----H-*------
Guitar Islancio
í Deiglunni
TRÍÓIÐ Guitar Islancio leikur í
Deiglunni í kvöld , 30. mars, og hefj-
ast tónleikamir kl. 21.15.
Tríóið var stofnað síðsumars 1998
og hefur leikið víða m.a. á Listasumri
á Akureyri sl. sumar og í október sl. í
tónleikaför í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Útsetningar og leikmáti gít-
artríósins eru undir áhrifum frá
Django Reinhardt, einnig Chick
Corea, Duke Ellington o.fl., efni
sækja þeir ekki hvað síst í íslensk
þjóðlög. Fyrir jólin gáfu þeir út
geisladisk með úrvinnslu sinni á ísl.
þjóðlögum. Tríóið er skipað þeim:
Bimi Thoroddsen og Gunnari Þórð-
arsyni á kassagítara, ásamt Jóni
Rafnssyni á kontrabassa.
Aðgangur verður kr. 500 f.
klúbbfélaga en annars kr. 1000.
Þeir sem veita Jazzklúbbi Akur-
eyrar fjárstuðning em: Akureyrar-
bær, KEA, Sparisjóður Norðlend-
inga, Café Karolína, VSÓ- ráðgjöf á
Akureyri og Kristján Víkingsson.
Gufubaðsunnendur á grænni grein eftir að boðlegt gufubað fannst
Markmiðið
að svitna
áreynslulaust
Gunnar, Friðjón, Friðjón og Pétur tilbúnir að fara aftur inn í klefann.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Að svitna áreynslulaust, um það snýst málið hjá félögunum í gufubaðsklúbbnum
sem ekki ber nafn upp á ástkæra ylhýra heldur nefnist upp á enska tungu The
Icelandic Sauna Council. Á efri bekknum sitja nafnarnir Friðjón Friðjónsson og
Halldórsson, Ólafur Svanlaugsson og Pétur Torfason, en niðri þeir Valgarður
Stefánsson og Valmundur Árnason.
Lífsins gagn og nauð-
synjar eru til umræðu í
gufubaðsfélaginu.
Margrét Þóra Þórs-
dóttir hitti þennan
hressa hóp og komst að
því að stutt er í gaman-
semina og góðlátlegar
sögur um náungann.
FÉLAGAR í The Icelandic Sauna
Council, tíu til fimmtán karlar á
Akureyri, hittast á hverjum föstu-
degi eftir vinnu og skella sér í
gufubað. Starfsemi klúbbsins
hófst í gufubaðinu í Sundlaug Ak-
ureyrar fyrir margt löngu, en
þegar hafist var handa við breyt-
ingar og baðinu lokað á síðasta
ári voru góð ráð dýr, ekkert
gufubað sem stóðst kröfur fannst
til að byrja með innan bæjar-
markanna og menn sáu fyrir sér
tíðar ferðir upp í Mývatnssveit
þar sem boðlegt gufubað er. Einn
félaganna, Valgarður Stefánsson,
reið á vaðið og gerði bæjarbúum
grein fyrir vandanum á heima-
síðu Akureyrarbæjar á liðnu
hausti. Þessir drengir vilja svitna
ærlega alveg fyrirhafnarlaust og
þá duga eimböð, með vatnsgufu,
ekki. Alveg eins hægt að klæða
sig í ullarnærföt og að stunda slík
böð. Eyðilagður hópurinn hóf
þegar leit að hentugu gufubaði
og datt loks niður á eitt slíkt, við
Tryggvagötu, þar sem á árum áð-
ur var starfrækt Dansstúdíó
Alicar, en hefur staðið autt um
árabil.
Sami kjarninn hefur verið í
klúbbnum í yfír 30 ár og enginn
sem þar fær inngöngu hættir fyrr
en hann sofnar svefninum langa.
Það fullyrða þeir félagar í það
minnsta og styðja mál sitt með
dæmum. Nefna Steindór Stein-
dórsson, fyrrverandi skólameist-
ara Menntaskólans á Akureyri,
Sigurgeir leigubflstjóra og Hörð
Tulinius, fram- kvæmdastjóra á
Akureyri.
Hlusta grannt eftir hvissi
Ólafur Svanlaugsson, einn
gufu-baðsfélaga, sagði að heims-
málin og lífsgátan bæri iðulega á
góma og meðal þess sem mikið
hefði verið rætt í gufubaðinu
væri hvort til væri annað líf.
„Hörður vissi að hann var á leið
yfír og sagði okkur að hann
myndi láta vita hvort eitthvað
væri til í þessu með annað líf ef
hann mögulega gæti. Við spurð-
um hvernig hann myndi gera vart
við sig og svarið var að við mynd-
um þá heyra hviss, líkt og heyrist
þegar menn opna bauka. Við er-
um enn að hlusta eftir þessu
hljóði, höfum að vfsu stundum
heyrt það, en ekki enn áttað okk-
ur á því hvort það er frá honum
komið,“ sagði Ólafur og bætti við
að synir Harðar heiðruðu þá
gufubaðsfélaga með nærveru
sinni þegar þeir ættu leið um Ak-
ureyri.
Félagarnir eru farnir að safna
fyrir eins konar pflagrímsferð til
Finnlands sem væntanlega verður
farin í október í haust en þá á að
heilsa upp á vini og frændur þar í
landi. „Við ætlum okkur að skoða
gufuböðin þeirra rækilega og
kynnast þeirra gufubaðsmenn-
ingu eins og kostur er,“ sagði
Valgarður Stefánsson sem þó er
ekki viss um hvort hann sjálfur
eigi heimangengt.
„En þeir skara fram úr og ef-
laust munum við kynnast ein-
hverjum nýjungum hjá þessum
frændum okkar. Félagarnir eru
þegar farnir að kynna sér tungu
þarlendra og á blaði sem hangir
uppi í búningsklefanum geta þeir
sem áhuga hafa lært í það
minnsta eina setningu: Uxi ulaati
gidos sem myndi útleggjast á ís-
lenska tungu: einn bjór, takk!
Þá fara þeir félagar saman vor-
og haustferðir, heimsækja granna
sína í Mývatnssveit þar sem er
geysigott gufubað í Bjarnarflagi
að sögn og eiga saman góðan
dag. Gamall félagi þeirra, Sig-
björn Gunnarsson sveitarstjóri,
býður þeim gjarnan í kaffi og
meðþví í þessum ferðum og skell-
ir sér með í gufubaðið að því
loknu.
Ólafur sem hvað lengst allra fé-
laganna hefur stundað gufubað,
eða samfellt í um 35 ár, og þætti
einhverjum sjálfskipaður forseti
klúbbsins. „Eg er bara ekkert
hrifinn af því að trana mér fram,“
sagði hann þegar hann sveipaði
handklæðinu um sig miðjan.
Alfreð Almarsson er nú sem
stendur í forsvari fyrir klúbbinn.
Hann sagði að gufubaðið við
Tryggvagötu hefði bjargað geð-
heilsu félaganna, en þeir litu þó
svo á að um tfmabundið úrræði
væri að ræða. „Við verðum ekki
þarna til eilífðar, það má búast
við að við færum okkur aftur upp
í sundlaug þegar breytingum þar
er lokið og þeir opna gufubaðið á
ný,“ sagði Alfreð.
Frá verkfræðingum
og niður úr
Félagarnir sitja í þetta tíu til
fimmtán mínútur í senn inni í
heitri gufunni og spjalla, fara yfir
daginn, koma inn á lands- og
heimsmálin og þá ber lífsgátuna á
góma ef sá gállin er á körlunum.
Gufubaðsferðin sem endurnærir
sál og líkama snýst nefnilega ekki
síður um félagsskapinn. Markmið-
ið er að hitta félagana og eiga
með þeim góða stund. „Svo erum
við líka með þeim ósköpum gerðir
að við viljum svitna áreynslu-
laust,“ segja þeir.
En hvaða gaurar eru þetta?
„Þetta er allt frá verkfræðingum
og niður úr,“ segir Pétur Torfa-
son að bragði - og kemur fæstum
á óvart að þar fer verkfræðingur-
inn í hópnum. „Þetta eru karlar
úr ýmsum stéttum; kokkar, sál-
fræðingar, trésmiðir, og svo
finnst líka einn lík-
kistusmiður í hópnum,"
bætir Gunnar Árnason
við og þá stendur ekki
á sögunum. Nýir félag-
ar urðu nefnilega varir
við óvenjulegan áhuga
éins gufubaðsfélaga,
fannst hann mæna á
sig á undarlegan hátt
og mæla sig út afar
gaumgæfilega. „Við
þurfum sífellt að út-
skýra að þetta er alls
ekki áreitni eða neins
konar ástleitni í mann-
inum, einungis starfs-
áhugi,“ sagði Gunnar
um Valmund Árnason,
félaga sinn.
Bassasöngur hafði
ekki tilætluð áhrif
Sérstakir karla- og
kvennatímar voru í
gufubaðinu í Sundlaug
Akureyrar og oft kom
fyrir þegar karlarnir
voru í gufunni að kon-
ur villtust þar inn,
einkum áttu útlendingar erfitt
með að átta sig á að um kyn-
skipta tíma væri að ræða.
„Það kom oft fyrir að konur
væru á vappi utan við gufubaðið
og héldu að tíminn væri sameig-
inlegur, við spiluðum bara með
og hleyptum þeim inn,“ sagði Ól-
afur en gat þess að einn félag-
anna, Jón bóndi Sigfússon, hefði
verið helst til tregur að fá kven-
fólkið inn í baðið til sín. Ein-
hverju sinni hefði hann verið einn
í baðinu og séð út um gluggann
konu eina, æði „kúluvarparalega“
eins og henni var lýst og einsýnt
að hún var á leið í baðið til hans.
Leist honum miður vel á félags-
skapinn og eftir að hafa hugsað
sitt ráð hóf hann þegar upp raust
sína, söng djúpri bassaröddu og
vonaði að söngurinn kæmi því til
skila að nú væri karlatími og
karlmenn eingöngu velkomnir í
gufuna. Þau skilaboð misfórust,
því konan „kúluvarpara- lega“ lét
sér í léttu rúmi liggja hverjir
væru í gufubaðinu og mátti Jón
því una því að sitja við hlið henn-
ar í það skiptið.
Konur hafa aldrei leitað stíft
eftir inngöngu í gufubaðsklúbb-
inn að sögn Valgarðs og karlarnir
heldur ekkert sérstaklega leitað
eftir því að fá þær með. „Menn
eru alla vega í vextinum, ætli
þetta sé ekki bara viðkvæmni,"
sagði hann, en Hallgrímur Indr-
iðason benti strax á að það sama
gilti um konurnar, þær væru frá-
leitt allar eins í vextinum.
„Þær hafa aldrei leitað neitt al-
varlega eftir inngöngu í klúbbinn.
Ég veit ekki hvernig því yrði tek-
ið,“ sagði Valgarður.
Bókaðu í síma 570 3030 0? 460 7000
Fax 570 3001 • websalesö>airiceland.is • www.flu5felag.is
...fljújðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS