Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 28
I
28 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
l
MORGUNBLAÐIÐ
KRÓKHÁLS 5d og 5e - EINKASALA
TIL SÖLU PESSI FRÁBÆRU HÚS, TEIKNUÐ AF HELGA HJÁLMARSSVNI
ARKITEKT OG STEINDÓRI HAARDE VERKFR. GRUNNFLÖTUR HVERS
HÚSS ER CA 530 FM. INNKEYRSLA Á 1. HÆÐ OG 3. HÆÐ. LOFTHÆÐ Á
3. HÆÐ ER 7 M [ MÆNI OG ÞV[ MÖGULEIKI A MILLILOFTI. LYFTA I
STIGAHÚSI. HÚSIÐ ER f BYGGINGU OG SKILAST í MAf/JÚLl NK„ FULL-
BÚIÐ AÐ UTAN MEÐ FRÁGENGINNI LÓÐ OG MALBIKUÐUM BfLA-
STÆÐUM MEÐ HITA f AÐ HLUTA. HÚSIÐ ER EINANGRAÐ AÐ UTAN OG
KLÆTT MEÐ LITUÐU STÁLI EINS OG TEIKNING SÝNIR. GLÆSILEGT
HÚS SEM ÞÚ GETUR FENGIÐ KEYPT f EININGUM, FRÁ CA 530 FM OG
UPP I CA 3.200 FM.
BYGGINGARAÐILI BÚLKI EHF.
SUÐURHRAUN - GBÆ.
Til sölu eru tvö bil, ca 530 fm, með millilofti, stórar innkeyrsludyr. Húsiö verður afhent í
júlí/ágúst nk.* að mestu fullfrágengið meö malbikaðri lóð og bílastæðum. Gott útipláss.
Teikningar og uppl. á skrifstofu gefa Sverrir og Þór.
LINDIR - KÓP.
GRENSÁSVEGUR
- VERSLANIR/SKRIFSTOFUR
Til sölu ca 300 fm verslunarhúsnæöi. Mjög
góöir gluggar. Bjart og vel innréttað hús-
næði. Húsnæðið er laust. Uppl. gefa Sverr-
ir eða Þór.
Atvinnuhúsnæbi
f SMfÐUM TIL AFHENDINGAR f VOR, MJÖG FALLEGT CA 3X600 FM
VERSLUNAR-, SKRIFSTOFU- EÐA IÐNAÐARHÚSNÆÐI MEÐ LYFTU.
HÚSIÐ ER EINANGRAÐ OG KLÆTT AÐ UTAN, VIÐHALDSLÉTT. GÓÐ
FJÖLNOTA EIGN. TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI. UPPL. GEFA SVERRIR
EÐA ÞÓR.
MJÓDDIN -
Síöumúla 11,2. hœö • 108 Reykjavík
Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505
Veffang: www.fastmidl.is
Netfang: sverrir@fastmidl.is
Sverrír jZríetfátweon lögff, foeteígmealí
VERSLUNARHÆÐ - SKÚLAGATA
178 fm verslunarhæð á jarðhæð
sem afhendist tilbúín til Innréttingar
að innan en húsið fullbúiö að utan. Á
efri hæðum eru íbúðir. Verð 15,5 m.
86 fm verslunarhæð á jarðhæð sem
afhendist tilbúin til innréttingar að
innan en húsiö fullbúiö aö utan. Á
efri hæðum eru íbúðir. Verð 7,3 m.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Til sölu er mjög góð skrifstofuhæð á 3.
hæð. Hæöin er 216 fm vel innréttaö pláss,
sem skiptist m.a. f móttöku, 4 herb., kaffi-
stofu, tækjaherb. o.fl. Húsnæði þetta býður
upp á mikla möguleika og hægt að selja
það í tveim hlutum þar sem aðkoma er úr
tveimur stigagöngum. Kannaðu málið bet-
ur. Þetta gæti hentað þér.
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9.00-18.00
OG UM HELGAR FRÁ KL. 13.00-15.00
ERLENT
Ákvörðun OPEC-ríkja um aukna framleiðslukvóta á olíu
Ekki talið munu valda
verulegri verðlækkun
Abu Dhabi, Vínarborg, London. AP, AFP, Reuters. __
SERFRÆÐINGAB vöruðu í gær við
óraunhæfum væntingum um lækk-
andi olíuverð í kjölfar ákvörðunar
Samtaka olíuframleiðsluríkja (0P-
EC) um að auka framleiðslu á olíu.
Níu af ellefu ríkjum 0PEC sam-
þykktu á fundi sínum í Vínarborg
seint á miðvikudagskvöld að auka
framleiðslukvóta sína um
samtals 1,45 milljónir tunna
á dag frá og með 1. apríl
næstkomandi. Aukningin
nemur um 6,3% miðað við
núverandi framleiðslumagn.
Á síðasta ári ákváðu 0P-
EC-rfldn að minnka fram-
leiðslu um 1,7 milljónir
tunna á dag vegna lækkandi
verðs. Eftir að samtökin
samþykktu framleiðsluta-
kmarkanir hækkaði olíuverð
úr tæplega 10 Bandarikja-
dollurum á tunnuna, og hef-
ur farið í allt að 35 dollara á
tunnuna á síðustu mánuð-
um. Undanfarna daga hefur
verðið verið heldur lægra,
um 27 dollarar tunnan, enda
var búist við að olíurfldn
tækju ákvörðun um að auka fram-
leiðslu.
Iran var eina rfldð sem sat fund
0PEC í Vínarborg og samþykkti ekki
tillögumar um aukna framleiðslu-
kvóta. Rætt var um að ef Iranar
hefðu fallist á þá áætlun sem fyrir
fundinum lá, hefði framleiðsluaukn-
ingin numið 1,7 milljónum tunna og
leyflleg heildarframleiðsla ríkjanna
þvi orðið sú sama og hún var áður en
takmarkanimar tóku gildi á síðasta
ári. Skýrendur telja að túlka beri
andstöðu írans við ákvörðun um
aukna framleiðslu sem pólitískt sjón-
arspil, að Iranstjóm hefði ekki viljað
að svo virtist sem hún léti undan
þrýstingi Bandaríkjamanna, sem
hafa hvatt olíurfldn til að auka fram-
leiðslu. Sérfræðingar um olíuiðnað
sögðu einnig að ástæðan væri sú að
íranar væra nú þegar nálægt því að
framleiða það magn olíu sem þeir
gætu framleitt.
íranstjórn hefur nú tilkynnt að hún
muni auka olíuframleiðslu um allt að
264.000 tunnur á dag. Er þar með
ljóst að leyfileg olíuframleiðsla OP-
EC-ríkjanna nær því að verða u.þ.b.
sú sama og fyrir ári. Irak, sem á aðild
að 0PEC, stendur utan við ákvarðan-
ir um framleiðslu þar sem útflutning-
ur olíu frá landinu er enn mjög tak-
markaður af samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna. Engu að síður er
búist við því að útflutingur á olíu frá
Irak muni einnig aukast á næstunm.
Ákvörðun OPEC-samtakanna hef-
ur verið rakin til þrýstings Banda-
ríkjamanna sem hafa haft áhyggjur
af minnkandi olíubirgðum sínum
vegna hins háa verðs. Opinberar töl-
ur sýna að hráolíubirgðir í Bandaríkj-
unum minnkuðu um 1,2 milljónir
tunna í síðustu viku en hefðu miðað
við áætlanir átt að aukast á sama
tíma. Einnig er vitað að ráðamenn í
mörgum iðnríkjum hafa haft áhyggj-
ur af verðbólguþrýstingi sem hátt ol-
íuverð kynni að valda.
Orkumálaráðherra Bandaríkj-
anna, Bill Richardson, hefur að und-
anfömu ferðast milli olíuframleiðslu-
ríkja, bæði ríkja sem eiga aðild að
OPEC og þeirra sem standa utan
samtakanna, í þeim tilgangi að hvetja
valdhafa til þess að fallast á að auka
framleiðslu. Bandaríkjastjóm hefur
viljað að olíuframleiðsla í heiminum
verði aukin um u.þ.b. 2 milljónir
tunna á dag, sem er það magn sem
hún telur að muni halda aftur af frek-
ari olíuverðshækkunum. Richardson
orkumálaráðherra sagði í samtali við
dagblaðið Washington Post í gær að
aukin framleiðsla, bæði OPEC-ríkja
og annarra olíuframleiðsluríkja, og
tilhneiging einstakra ríkja innan OP-
EC til að framleiða meira magn en
samþykktir samtakanna gera ráð
fyrir, myndi að öllum líkindum verða
til þess að koma í veg fyrir verðhækk-
anir.
Samkvæmt mati sérfræðinga um
olíuiðnað og olíuviðskipti í heiminum,
sem Reuters-fréttastofan vitnar til,
framleiða OPEC-ríkin þegar um 1,2
milljón tunnur af hráolíu fram yfir
það magn sem samþykktir samtak-
anna heimila. Þeir telja að verðþróun
olíu á næstu vikum muni að miklu
leyti ráðast af því í hve miklum mæli
aðildarríki samtakanna muni halda
áfram að „svindla“ á framleiðslukvót-
unum.
Miðað við núverandi stöðu á mark-
aði meðframvirkra kaupsamninga
um bensín, sem eru samningar þar
sem kaupandi semur fyrir-
fram um verð á bensíni er
seljandi afhendir eftir tiltek-
inn tíma, má reikna með að
bensínverð muni hafa lækkað
um 16% í júlí á þessu ári og
um allt að 30% í desember. Af
framvirkum kaupsamningum
um olíu sem gerðir eru um
þessar mundir virðist mega
ráða að verðið muni hafa
lækkað um 1 dollara í júlí og
allt að 3 dollara í desember.
Valdataflið innan OPEC
Bak við ákvörðun OPEC-
samtakanna um aukna ol-
íuframleiðslu býr flókinn póli-
tískur veraleiki. írösk stjóm-
völd hafa verið óspör á að
gagnrýna Bandaríkin fyrir að
þíýsta á olíuframleiðsluríki í Mið-
Austurlöndum að stuðla að lækkandi
olíuverði. „Ef Saudi-Arabía og önnur
lönd koma til móts við kröfur Banda-
ríkjanna og auka framleiðsluna, mun
það valda verðhrani og skaða efnahag
þessara landa alvarlega,“ hefur Was-
hington Post eftir Amir Mohammad
Rasheed, olíuráðherra Iraks. Stjóm-
völd í íran hafa tekið í sama streng en
ríkin tvö era hatrömmustu andstæð-
ingar Bandaríkjanna innan OPEC.
Olíuráðherra Kúveit, Sheik Saud
Nasir Sabah, viðurkenndi í gær að
Saudi-Arabía og önnur ríki við Pers-
aflóa hefðu viljað auka framleiðsluna
til að þóknast Bandaríkjunum. „Póli-
tískir hagsmunir ganga að þessu
sinni fyrir efnahagslegum hagsmun-
um,“ sagði ráðherrann í samtali við
Washington Post.
Saudi-Arabar vonuðust lengi til
þess að þeim tækist að fá írana til að
taka þátt í ákvörðun um framleiðslu-
aukningu. Abdullah prins, krónprins
Saudi-Arabíu, er sagður hafa rætt
lengi við Mohammed Khatami, for-
seta Irans, út af málinu um helgina en
án árangurs.
Talið er að ákvörðun stjómvalda í
Líbýu og Alsír um að styðja Saudi-
Arabíu og þau ríki sem vora fylgjandi
framleiðsluaukningu, hafi riðið
baggamuninn á fundinum í Vínar-
borg og tryggt samþykkt tillögunnar
um aukna framleiðslu.
AP
Olíudæla í OPEC-ríkinu Venesúela vinnur verk
sitt við sólsetur.
’
I’
5 bragð-
tegundir
Citrin hefur áhrif á
matarlyst - dregur úr
löngun í sætindi.
Inniheldurm.a.
carcina cambogia
og chromium
picolinate.
Upplýsinga-
bæklingur
á íslensku!
ÆITRIN
K»S0ö
fhtmftí&'
Bráðhollur trefjadrykkur. Fullur af vítamínum og steinefnum.
Minna en 200 hitaeiningar í einni máltíð. Fyrir þá sem vilja
heilbrigða þyngdarstjórnun. Fyrir þá sem vilja bragðgóða og
holla máltíð. Góður heima, í vinnunni, í ferðalagið eða hvar
og hvenær sem er.
Bragdgódur og bætandi
drykkur fyrir heilbrigóa
þyngdarstjórnun _ ryfjC-