Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 29

Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 29 ERLENT Skýstrókar valda tjóni í Texas TVEIR menn biðu bana og rúm- lega 100 slösuðust vegna tveggja skýstrdka í miðborg Fort Worth í Texas í fyrrakvöld. Rúmlega 20 háhýsi skemmdust í dveðrinu, sem stdð í nokkrar sekúndur, og rúður brotnuðu í öllum húsunum á svæðinu. Tré rifnuðu upp með rdtum og bflar ultu, jafnvel stdrir vöruflutningabflar. Fjdrðungur borgarinnar varð rafmagnslaus vegna hamfaranna. Merkel með jafnmikið fylgi og Schröder Hamborg. AFP. ANGELA Merkel, næsti leiðtogi Kristilegra demókrata (CDU) í Þýskalandi, nýtur jafnmikils stuðn- ings og Gerhard Schröder, kanslari og leiðtogi þýskra jafnaðarmanna, samkvæmt skoðanakönnun sem vikublaðið Die Woche birti í gær. Þátttakendur í könnuninni voru spurðir hvort þeir myndu kjósa Merkel eða Schröder ef haldnar yrðu almennar kosningar til kansl- araembættisins. 39% aðspurðra sögðust myndu kjósa Merkel og jafnmargir Schröder. Kanslari Þýskalands er þó ekki kjörinn í almennum kosningum. Könnunin bendir til þess að fylgi jafnaðarmanna sé nú 41% og Kristilegra demókrata 33%. Fylgi hinna síðarnefndu hefur minnkað um tvö prósentustig frá síðustu könnun, sem gerð var viku áður, en fylgi jafnaðarmanna er óbreytt. Stjórn Kristilegra demókrata samþykkti einróma fyrr í mánuðin- um að tilnefna Merkel sem næsta formann flokksins í stað Wolfgangs Scháuble sem varð að draga sig í hlé vegna ólöglegrar fjáröflunar flokksins á valdatíma Helmuts Kohls, fyrrverandi kanslara. Merk- el verður ein í framboði þegar næsti formaður verður kjörinn á flokksþingi í Essen 9.-11. apríl. Andstöðuleiðtogi sleppur úr fangelsi í Afganistan Talinn geta valdið tale- bönum miklum vanda Teheran. AFP. EINN af leiðtogum andstöðunnar við stjóm talebana í Afganistan, Ismail Khan, sem slapp úr fangelsi í borginni Kandahar, er nú sagður vera í Iran. Skýrðu erindrekar íyrr- verandi ríkisstjórnar landsins, sem eru í útlegð í Teheran, AFP-frétta- stofunni frá þessu í gær. Þeir sögðu að hann hefði komist undan ásamt fjölskyldu sinni og væri við góða heilsu. Talsmaður íranska utanríkisráðu- neytisins sagði að verið væri að kanna hvort Khan væri kominn til landsins. Aður hafði talsmaður upp- reisnarmanna í Afganistan tjáð fréttastofunni að Khan væri í Afgan- istan en á svæði sem væri í höndum andstæðinga talebana. „Við getum- ekki skýrt frá nafni staðarins af ör- yggisástæðum,“ bætti hann við en talið er að menn hafi óttast að flugher talebana myndi gera árásir á svæðið. Stjómvöld í íran hafa beitt sér gegn talebönum og viðurkenna þau enn stjórn Burhanuddins Rabbanis sem talebanar steyptu árið 1996. Rabbani fer fyrir bandalagi sem ræð- ur enn yfir hlutum Afganistans og er einn af liðsmönnum bandalagsins hinn írægi skæruliðaforingi Ahmad Shah Masood, fyrrverandi varnar- málaráðherra. Vinsæll í Herat Khan er náinn félagi Rabbanis og liðsmaður flokks hans, Jamiat-i-Is- lami. Hann var landstjóri í héraðinu Herat sem liggur að íran en var hrakinn frá völdum þar 1995 af tale- bönum og flýði til Irans. Hann sneri þó aftur en hermenn stríðsherrans Abduls Maliks, sem er Uzbeki, hand- tóku hann í héraðinu Faryab 1997. Malik var þá búinn að semja við tale- bana og afhenti þeim Khan. Talebanar skýrðu frá því á sunnu- dag að Khan hefði flúið ásamt fleiri mönnum og hefði verið um „sam- særi“ að ræða. Æðsti leiðtogi Tale- bana, Mulla Mohammad Omar, hét háum verðlaunum fyrir upplýsingar sem leitt gætu til þess að fangamir næðust. Aðstoðarráðherra upplýs- ingamála í höfuðborginni Kabúl sagði að Iranar myndu reyna að not- færa sér Khan gegn talebönum ef hann kæmist á ný til Irans. „Þeir munu ekki hagnast mikið á því en geta valdið fólki vandræðum,“ sagði ráðherrann, Abdurrahman Ahmad Hotak. Ónafngreindur, afganskur stjóm- málamaður sem býr í Pakistan, sagði á hinn bóginn að flótti Khans væri áf- all fyrir talebana. „Ismail Khan er vinsæll í Herat og hann getur valdið talebönum miklum vandræðum," sagði maðurinn. Kánebo Vor 2000 Íll iii KYNNING fpí' : I SNYRTIVORUDEILD HAGKAUPS SMARANUM DAG, FIMMTUDAG, OG Á MORGUN KL. 13 18. SNYRTIFRÆÐINGUR VERDUR MEÐ KANEBO TÖLVUNA OG VEITIR FAGI..EGA RÁÐGJÖF, y- \ I' n Aóalfundur AðalfundurSamskipa hf. verður haldinn mánudaginn 10. apríl 2000 kl. 16:00 í Ársal á Hótel Sögu í Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. gr. samþykkta félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins. Lagt ertil að heimild stjómartil hlutafjáraukningarverði rýmkuð og framlengd. Ennfremur er lagt til að breytt verði ákvæðum um forgangsrétt hluthafa til að kaupa hlutafé á þann veg að stjórn félagsins verði heimilt að selja hlutafé til annarra en eldri hluthafa. 3. Tillaga stjórnar um heimild til aó kaupa og/eða eiga eigin hlutabréf. 4. Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn. 5. Önnur mál sem löglega eru upp borin. Stjóm Samskipa hf. Tillögur og gögn sem lögð eru fyrir fundinn verða til skoðunar á skrifstofu félagsins viku fýrir fundinn og fram til hádegis aðalfundardags. Fundargögn verða afhent á fundarstað. ■25 Dregið io 1 l>TlVMTlTt J\JI U\J\J\J Þú getur unnið bíl. En þá verðurðu að hringja í 907 2000! Hringdu oft og margfaldaðu möguleika þína á að vinna glæsilegan Toyota!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.